Morgunblaðið - 17.01.1999, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 7/6 -13/6
►LÖGREGLA og tollgæsla í
Eyjum fundu riíni flmm kíló
af hassi og lítilræði af
marxjúana við komu Breka
VE til Vestmannaeyja. Sölu-
verð fíkniefnanna er talið
var á bilinu 5-10 milljónir
króna. Tveir eru í gæslu-
varðhaldi vegna málsins.
Stefnt að lækkun
skulda
STEFNT er að því að lækka skuldir
ríkissjóðs á árinu 1999 um 21 milljarð
króna. Fyrirhugaðar afborganir af lán-
um ríkissjóðs á innlendum lánamarkaði
á árinu eru um 16 milljarðar kr. um-
fram lántökur og stefnt er að því að
lækka erlendar skuldir um fímm millj-
arða á árinu.
► STJÓRN fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík mun ekki leggja
til að prófkjör fari fram
vegna komandi þingkosn-
inga. Verði þetta raunin
verður þetta í fyrsta sinn
sx'ðan 1974 að ekki er haldið
prófkjör á vcgum flokksins í
Reykjavík.
►ÚRSKURÐARNEFND
fjarskipta- og póstmála
fclldi úr gildi bráðabirgða-
úrskurð Póst- og fjarskipta-
stofnunar um að Landssím-
anum beri að innheimta
gjöld fyrir millilandasímstöð
Tals hf. Taldi úrskurðar-
nefndin að Póst- og fjar-
skiptastofnun hafi ekki til-
greint lagaleg rök fyrir úr-
skurðinum.
► VERJA á í kringum 500
milljónum króna til ýmissa
vegaframkvæmda á árinu
sem tengjast kristnihátíð á
Þingvöllum á næsta ári að
meira eða minna leyti. Gert
er ráð fyrir framkvæmdun-
um í vegaáætlun sem sam-
þykkt var á liðnu vori. Meðal
framkvæmda er gerð bfla-
stæða og göngustíga á Þing-
völlum auk nýrrar akreinar
á vegarkaflanum milli Grafn-
ingsvegar og Almannagjár.
Kosta þær framkvæmdir um
90 milljónir kr. Þá verður
vegarkaflinn frá Þingvalla-
vegi í suðurátt að Nesjavalla-
vegi byggður upp og lagður
bundnu slitlagi. Aætlaður
kostnaður er um 200 milljón-
ir kr.
Breytingar á lögum
um stjórn fiskveiða
ALÞINGI hefur samþykkt breytingar á
lögum um stjórn fiskveiða. Breyting-
arnai- snúa einkum að fiskveiðistjórnun-
arkerfi krókabáta, einkum þeirra sem
hafa róið hafa á sóknardögum, og verð-
ur með lögunum í raun til nýtt kerfi fyr-
ir þá. Að öðru leyti eru lögin að mestu
eins og kveðið var á um í frumvarpi rík-
isstjórnarinnar til breytinga á lögum
um fiskveiðisstjórnun sem lagt var fram
í desember í kjölfar dóms Hæstaréttar í
kvótamálinu svokallaða.
Agamál rædd
í Hagaskóla
HÚSFYLLIR var á fundi Foreldrafé-
lags Hagaskóla í Reykjavík um agamál.
Á fundinum kom fram stuðningur við
skólastjórann og stefnu skólans. Voru
foreldrar hvattir til að beita aga og hafa
skýrar reglur. Þrír drengir hafa játað
að hafa verið valdir að sprengingum í
Hagaskóla fyrstu daga ársins.
Flugeldur nærri
flugvél
FLUGELDUR fór nálægt Fokker-flug-
vél Flugfélags Islands á sunnudags-
kvöld, þegar hún var í aðflugi að
Reykjavíkurflugvelli eftir flug frá Akur-
eyri. Flugmennirnir fipuðust ekki og
gekk lending vélarinnar að óskum. Sam-
kvæmt reglugerð um sölu og meðferð
skotelda er almenn notkun og sala skot-
elda til almennings óheimil nema á tíma-
bilinu 27. desember til 6. janúar.
Ótti við efnahagssam-
drátt í heiminum
MIKIÐ uppnám varð á fjármálamörkuð-
um heimsins á miðvikudag þegar gengi
realsins, gjaldmiðils Brasilíu, féll um tæp
8% og olli það ótta við að fjármálakreppa
í þróunarlöndunum gæti dregið úr hag-
vexti í heiminum. Gengi verðbréfa lækk-
aði verulega í Bandaríkjunum og Evrópu
og óttast var að gjaldeyriskreppan í
Brasilíu gæti leitt til hrinu gengisfellinga
og fjármálaumróts í Rómönsku Amer-
íku. Það gæti haft alvarlegar afleiðingar
íyrir efnahag Bandan'kjanna, sem selja
um 20% af útflutningi sínum til Ró-
mönsku Ameríku, auk þess sem banda-
rísk fyi-irtæki hafa fjárfest í miklum
mæli í þessum heimshluta. Efnahagssér-
fræðingar eru sammála um að fjármála-
ólgan í Brasilíu hafi einnig aukið líkur á
samdrætti í Evrópu á árinu.
Jacques Santer ávarpar Evrápuþingið.
Framkvæmdastjórn
ESB hélt velli
Tillaga um vantraust á framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins (ESB)
vegna ásakana um fjármálamisferli var
felld á Evrópuþinginu í Strassborg á
fimmtudag með 293 atkvæðum gegn
232. Megintillagan um vantraust, sem
þingmenn jafnaðarmanna fluttu, var
hins vegar dregin til baka þegar þingið
hafði samþykkt að komið skyldi á fót
nefnd, sem rannsakaði ásakanirnar.
Daginn áður hafði Jacques Santer, for-
seti framkvæmdastjórnarinnar, hótað
að segja tafarlaust af sér ef útlit væri
fyrir að meirihluti þingsins samþykkti
tillögu um vantraust á stjórnina, en af
því varð ekki.
► SAKSÓKNARAR fulltrúa-
deildar Bandarikjaþings hófu
á fimmtudag málflutning fyr-
ir öldungadeildinni í máli
Bills Clintons Bandaríkjafor-
seta. Er þetta í fyrsta sinn f
130 ár sem efnt er til réttar-
halda vegna ákæru á hendur
bandarískum forseta til emb-
ættismissis. Ekki er enn ljóst
hvort vitni verða kölluð fyrir
og þá jafnvel Clinton sjálfur.
► SKÆRULIÐAR í Frelsis-
her Kosovo (KLA) slepptu á
miðvikudag átta júgóslav-
neskum hermönnum, sem
þeir höfðu haldið í gíslingu í
nokkra daga. Júgóslavneskir
hershöfðingjar höfðu hótað
að beita hervaldi til að frelsa
gíslana og óttast var að það
gæti leitt til nýs stríðs i'
Kosovo.
► BANDARÍSKAR herþotur
gerðu árásir á ratsjár- og
loftvarnastöðvar í Irak í fjóra
daga í röð cftir að ein þeirra
festi skotmið á eftirlitsvélar á
flugbannssvæðinu yfir norð-
urhluta landsins á mánudag.
Nokkrum af hersveitum Kú-
veits var skipað að búa sig
undir hugsanleg átök vegna
„hótana“ íraka og harðorðra
yfirlýsinga þeirra um sam-
starf Kúveita og Sádi-Araba
við Bandaríkjamenn.
► LEIÐTOGI uppreisnar-
manna f Sierra Leone sagði á
fimmtudag að þeir myndu
heQa vopnahlé á morgun,
mánudag, sem ætti að standa
í viku. Hersveitir Vestur-Af-
ríkurikja náðu höfuðborg-
inni, Freetown, á sitt vald í
vikunni sem leið eftir að upp-
reisnarmennimir höfðu lagt
miðborgina undir sig.
► HAFT var eftir Ariel Shar-
on, utanríkisráðherra ísraels,
á miðvikudag að hann teldi
að Palestínumenn myndu
stofna sjálfstætt ríki.
Sumum brá í brún vegna uppgjörs Hita- og vatnsveitu Akureyrar
Nauðsynlegt að fylgj-
ast með notkuninni
Á TÖFLUNNI sést hversu miklu vatni var dælt inn á dreifikerfi Hita-
og vatnsveitu Akureyrar á árunum 1997 og 1998. Þar kemur fram að
heildardæling inn á kerfíð var mun meiri i' fyrra en árið áður.
Akureyri. Morgunblaðið.
VIÐSKIPTAVINUM Hita- og
vatnsveitu Akureyi'ar brá sumum
hverjum í brún er þeir fengu í
hendur uppgjörsreikninga fyrir
heitavatnsnotkun á síðasta ári.
Reikningar eru sendir út á tveggja
mánaða fresti en aðeins er lesið af
mælum einu sinni á ári, um ára-
mótin, og eru dæmi um að við-
skiptavinur hafi fengið uppgjörs-
reikning upp á um 80 þúsund krón-
ur.
Franz Árnason, framkvæmda-
stjóri Hita- og vatnsveitu, sagði
nauðsynlegt fyrir fólk að fylgjast
vel með heitavatnsnotkun á heim-
ilum sínum. Komi upp bilun í hita-
kerfi sem er án eftirlits kemur
hún ekki fram fyrr en við álestur
um áramót og á þeim tíma getur
mikið vatn hafa farið til spillis sem
viðskiptavinurinn þarf engu að
síður að borga fyrir. „Enn meiri
aðgæðslu er þörf nú þegar aðeins
er lesið af einu sinni á ári. Enda
höfum við ekki möguleika á að
vera með viðskiptavini okkar í
gjörgæslu."
Reikningar hærri
en árið áður
Franz sagði reyndar að almennt
væru reikningar fyrir heitavatns-
notkun á síðasta ári nokkru hærri
en árið áður vegna árferðis. Hann
sagði að þar væri almennt um að
ræða aukakostnað sem samsvaraði
einum til tveimur mánuðum en
einnig væru dæmi um mjög háa
reikninga.
Frá því í byrjun síðasta árs hafa
bæjarbúar fengið hitaveitureikn-
inga sína á tveggja mánaða fresti
en áður voru reikningarnir sendir
út mánaðarlega. Áður var einnig
lesið af mælum tvisvar á ári en nú
er aðeins lesið af um áramót. Þess-
ar breytingar voru kynntar mjög
vel á sínum tíma og fólk þá hvatt
til þess að fylgjast en betur en áð-
ur með vatnsnotkuninni og skrá
hana niður mánaðarlega. Þannig
sé hægt að grípa tímanlega inn í
komi upp bilun í kerfinu.
Lagning Borgarfjarðarbrautar
Veitt leyfi
til efnistöku
HREPPSNEFND sveitarfélagsins
„Borgarfjarðar" samþykkti á fundi
sínum síðastliðinn fimmtudag að
veita Vegagerð ríkisins fram-
kvæmdaleyfi vegna efnistöku til
lagningar Borgarfjarðarbrautar.
Undirbúningur að lagningu hins
umdeilda kafla Borgarfjarðarbraut-
ar, neðan Kleppjárnsreykja, stend-
ur yfir af hálfu verktakans, Leifs
Guðjónssonar í Borgarnesi.
Hreppsnefndin hefur veitt fram-
kvæmdaleyfí fyiir veginum nema
um svokallaða Steðjabrekku vegna
mótmæla bóndans þar. Fyrirhugað
er að taka umsókn Vegagerðarinnar
um framkvæmdaleyfi fyrir þann
kafla vegarins til afgreiðslu á næsta
reglulega fundi hreppsnefndar og
gefst bóndanum á Steðja tækifæri
til að koma sjónarmiðum sínum að.
Vegagerðin sótti einnig um fram-
kvæmdaleyfi vegna efnistöku til
vegagerðarinnar. Hreppsnefndin
samþykkti fyrir sitt leyti að veita
heimild fyrir þremur námum af
fjórum, að því er fram kemur í
fundargerð. Frestað var leyfi til
efnistöku í námu, sem er í landi
Steðja.
Alvarleg
meiðsl
eftir
útafakstur
ÖKUMAÐUR bifreiðar, sem
lenti út af veginum við Húnaver
á föstudagskvöld, hlaut alvar-
leg meiðsl að sögn læknis á
Sjúkrahúsi Blönduóss. Hann
var hafður í gjörgæslu á
Sjúkrahúsi Blönduóss eins og
tök voru á og var þess beðið
fram eftir degi í gær að veður
lægði til að unnt væri að flytja
hann til Reykjavíkur á sjúki-a-
hús.
Blindhríð og slæmt skyggni
var þegar slysið varð og slösuð-
ust tveir farþegar bifreiðarinn-
ar einnig, en minna.
Vindurmn færði bifreiðir
úr stað í Kópavogi
LÖGREGLA og Hjálparsveit
skáta í Kópavogi aðstoðuðu Kópa-
vogsbúa aðfaranótt laugardags
þegar byggingarefni tók að fjúka
um bæinn og bifreiðir færðust úr
stað. Hjálparsveitir voru kallaðar
út seinnipart nætur og huguðu að
mótauppslætti og öðru lauslegu,
sem roldð hafði af stað.
Bifreiðum, sem færðust úr stað
á bifreiðastæðum, var reynt að ýta
í var eða setja fyrir hjól þeirra.
Mest voru vandræðin í Engihjalla,
en þar mynduðust sterkir vind-
strengir milli fjölbýlishúsa.
Þá lét ljósastaur undan vind-
hviðu við tengiveg milli Hafnar-
fjarðaiTegar og Kársnesbrautar
og lagðist endilangur.
Snemma í gærmorgun var ekið
á umferðarljós á Nýbýlavegi við
Birkigrund og var einn maður
fluttur á slysadeild.
I Hafnarfii'ði var óveðursnóttin
hins vegar róleg samkvæmt upp-
lýsingum lögreglu, sem sagði bæ-
inn hafa sloppið ótrúlega vel.
Minniháttar tjón
í höfuðborginni
LIÐSMENN björgunarsveita að-
stoðuðu höfuðborgarbúa aðfara-
nótt laugardags við að fergja og
festa lausa hluti og voru við störf
fram á laugardag. Timbur, plötur,
ruslatunnur og annað fauk á víð og
dreif og hlaust af því minniháttar
tjón. Þá losnuðu hurðir og gluggar
fuku upp, rúður brotnuðu og þak-
plötur losnuðu.
Fátt fólk var í miðbænum við
lokun skemmtistaða aðfaranótt
laugardags enda varla stætt í
verstu hviðunum.
Skemmdir
á bifreið
SKEMMDIR urðu á fólksbif-
reið í Vík í Mýrdal í gær þegar
grjót þeyttist í gegnum rúður
bifreiðarinnar, svo þær brotn-
uðu allai'. Þá fauk jeppabifreið
út af veginum við Klifanda á
föstudagskvöld og var hún
dregin upp af björgunarsveit-
inni Víkverja sama kvöld. Eng-
in slys urðu á fólki.