Morgunblaðið - 17.01.1999, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.01.1999, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Selj avallakvótinn Síðan kvótalögin voru sett hafa verið gerðar Gl^úfJc>< EKKI eru menn á eitt sáttir um hvort hér sé bara kosningadúsa á ferðinni, eða nú sé komið að því að ræna þá ríku og færa fátækum. Myndavélar, stafrænar myndavélar, sjónaukar og smásjár ©YflMAHfl Hljómtæki Nikon ivélar, stafrænar myndavélar, sjónaukar og smásjá MOKIA Sjónvörp Nætursjónaukar GAMEBOY Handleikjatölvur NINTENDO.64 Leikjatölvur '"*** Lagmula 8 • Simi 533 2800 Bræöurnir Ormsson ehf. og Hljómco ehf. hafa verið sameinuð og öll starfsemi flutt í Lágmúla 8 hjá Bræðrunum Ormsson, sem mun annast innflutning, heildsöludreifingu og sölu allra ofangreindra vörumerkja. Viðgerðaþjónusta verður áfram hjá Fotoval og Rafeindaþjónustu Stefáns. : Nýtt félag þeirra sem fræða tvítyngda Skortur á heppi- legu námsefni NÝLEGA var stofn- að í Reykjavík, í húsnæði Náms- flokka Reykjavíkur, Mið- bæjarskólanum, félagið Isbrú. Þetta er félag fólks sem starfar að kennslu- og fræðslumálum sem snerta tvítyngt fólk á ís- landi. Allir sem starfa að málefnum tvítyngdra, hvar á skólastigi sem er, geta orðið félagar í ísbrú. Kosin var stjóm en hún hefur ekki enn skipt með sér verkum. Formaður undirbúningsnefndar var Sólborg Jónsdóttir og hún á sæti í stjóm Isbrúar. Hún var spurð hvers vegna þetta félag hafi ver- ið stofnað. „Það var vaxandi þörf hjá þeim sem kenna út- lendingum og tvítyngdum börn- um að styrkja stöðu sína og skjól- stæðinganna í menntakerfinu. Mikil umræða hefur verið um að stofna svona félag, bæði meðal kennara í námsflokkum og grunnskólum. Við héldum fyrst stóran undirbúningsfund fyrir stofnfund og boðuðum þangað fólk frá öllum skólastigum á höf- uðborgai-svæðinu en á stofnfund- inn kom líka fólk utan af landi.“ - Eiga þeir sem vinna með tví- tyngdum börnum í leikskólum samleið með þeim sem kenna fullorðnum? „Já, við teljum það. Að kenna annað tungumál og byggja brú milli ólíkra menningarheima er sama ferlið hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna. Mjög mikilvægt er að að það séu tengsl milli þeirra sem kenna bömum og fullorðnum. Stundum er verið að vinna með börnum í leikskól- um sem eiga foreldra sem eru í íslenskunámi á öðru skólastigi. Þá getur verið mjög gott að hafa heildarsýn og samráð.“ - Eru margir íhinu nýstofnaða félagi? „Tæplega fjörutíu manns skráðu sig sem stofnfélaga en síðan ætlum við að hafa samband við alla þá sem hafa með slíka kennslu og fræðslu að gera. Eg held að þetta verði með tímanum stórt félag.“ - Ætlar þetta félag að vinna að málefnum tvítyngdra með því að þrýsta á yfirvöld? „Já, það er meðal annars til- gangur félagsins að leita eftir styrkjum fyrir félagsmenn til námsefnisgerðar, sem er mjög brýnt, og einnig til náms og end- urmenntunar. Fólki er oft kastað út í kennsl- una t.d. í grunnskól- um, án þess að það hafí nauðsynlegan bakhjarl til þess að leita til með upplýs- ingar, fræðslu og góð ráð. Við viljum að félagið geti orðið mótandi aðili þegar stefna er mótuð í kennslu tvítyngdra og jafnframt að félagarnir geti sótt þangað styrk og fræðslu.“ -Er erfítt að kenna „annað tungumáleins og þið nefnið það? „Þetta er mjög ólíkt því að læra t.d. erlent tungumál eins og flestir gera í hinum ýmsu skólum. Fyrst og fremst er mjög brýn nauðsyn og þörf að læra málið sem fyrst svo viðkomandi aðili geti aðlagast og orðið vh'kur þátttakandi í íslensku samfélagi. Miklu meira er líka lagt upp úr kennslu sem miðar að því að við- komandi geti sem fyrst bjargað sér í samfélaginu og skilið það sem fram fer.“ -Miðar kennsla ykkar að því ► Sólborg Jónsdóttir er fædd 7. febrúar 1969 í Reykjavfk. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Hamrahlíð í janúar 1990 og lagði stund á sagnfræði við Háskóla Islands. Um þessar mundir er hún í mastersnámi við bandarískan háskóla í kennslufræði með sérgrein hvernig á að kenna nýtt tungu- mál í nýjum menningarheimi. Hún var formaður undirbún- ingsnefndar að stofnun Isbrúar, félags þeirra sem starfa að mál- um útlendinga/tvítyngdra. Sól- borg er í sambúð með Lýði Val- geiri Lárussyni bílamálara. að fræða fólk um samfélagið og íslenska menningu? „Já, kennsluefnið þarf að vera um raunverulegar aðstæður í samfélaginu og þá einhverjar að- stæður sem koma þessu fólki við.“ -Hvaða aðstæður reynið þið fyrst og fremst að kynna? „Við reynum að æfa fólk í að gefa upplýsingar um sjálft sig á íslensku, síðan reynum við að líkja eftir aðstæðum svo sem í verslunum, í stofnunum þar sem leita þarf upplýsinga, við lækna- heimsóknir og fleira í þeim dúr.“ - Hvað leggið þið fyrst og fremst áherslu á við upphaf kennslu? „Hér hjá Námsflokkum Reykjavíkur leggjum við mesta áherslu á að fólk fari að nota ís- lenskuna mjög fljótt. Við kennum auðvitað málfræði líka en Ieggjum mesta áherslu á daglegt mál og notkun þess.“ - Vonist þið til að félagið styrki stöðu þeiira sem kenna frá því sem nú er? „Já, staðan er þannig að t.d. þeir sem kenna tvítyngdum börnum í grunnskól- um og framhaldsskól- um eru oft einangrað- ir, á þetta einkum við venjulega bekkjai-kennai'a sem fá kannski eitt tvityngt bam í bekk- inn og þurfa að glíma við að hjálpa því að ná tökum á nýju tungumáli og nýn-i menningu samhliða því sem bamið á að tileinka sér náms- efnið í skólanum, þetta getur verið snúið. Þeir sem em úti á lands- byggðinni era sérlega einangraðir í þessum efnum. Við viljum að fé- lagið nái þessu fólki saman þannig að það geti fengið aðstoð og fræðslu svo það geti valdið þessu hlutverki. Mín skoðun er sú að yf- irvöld gangi ekki nógu strangt eft- ir því að útlendingar sem setjast hér að lært næga íslensku. En til þess að fólkið geti lært málið þarf það að fá tækifæri og góða að- stöðu til þess og ísbrú ætlar einnig að stuðla að slíkri þróun eftir megni.“ Brýn nauðsyn og þörf að læra málið sem fyrst
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.