Morgunblaðið - 17.01.1999, Side 14
14 SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTSR
, . __ Reuters
JÚGOSLAVINN Sínisa Mihajlovic, fyrir miðju, er hér að fagna marki sem hann skoraði gegn Fiorentina á Ólympíuleikvanginum í Róm
um sl. helgi, þar sem Lazio vann 2:0. Giuseppe Pancara og Paolo Negro fagna með honum.
Mesta
fjárfesting
sögunnar
Ekkert lið í sögu knattspymunnar hefur kostað jafnmiklu til kaupa
á leikmönnum og Rómarliðið Lazio. Þótt vafasamt sé að kalla liðið
„dýrasta lið allra tíma“ þar sem slíkt er afar afstætt og erfitt að
reikna út verðmæti leikmanna einstakra liða er ljóst að ekkert félag
hefur lagt jafnmikið út í beinhörðum peningum og einmitt Lazio.
Einar Logi Vignisson hefur fylgst með Rómarliðinu, sem síðustu
tvær leiktíðir hefur sankað að sér fjölmörgum heimsfrægum leik-
mönnum. í iyrra var árangurinn ágætur en ekki viðunandi að niati
eiganda liðsins og því var ausið úr buddunni í sumar sem aldrei fyrr
- jafnvirði heilla 10 milljarða íslenskra króna var eytt.
deildarkeppninni og hefur aðeins
Gianfranco Zola gert fleiri en hann
setti 19 mörk beint úr aukaspyrnum
meðan hann lék í Serie A.
Cragnotti hafði allan þennan
áratug keypt 1-2 dýra leikmenn á
ári en fyrir tveimur árum ákvað
hann að taka almennilega til hend-
inni og skapa stórveldi í evrópskri
knattspyrnu, hann sagðist vera
bisnissmaður og vissi það að vel-
gengni fylgdi meiri velgengni og
hæg og örgugg uppbygging væri
bara fyrir blanka vesalinga! Sparn-
aður dagsins í dag væri tap morg-
undagsins. Cragnatti hefur enda
eytt yfir 25 milljörðum í leik-
mannakaup síðan hann keypti liðið
1992...
Sóknarsafn
Efsti maður á lista Cragnotti var
Brasilíumaðurinn Ronaldo en hann
taldi hag sínum betur borgið hjá
Inter. Ein af ástæðunum fyrir
áhuganum á brasilíska snillingnum
var að Cirio er geysilega sterkt í
Suður-Ameríku og eftir að Ronaldo
brást leitaði Cragnotti eins og óður
maður að suður-amerískri hetju.
Hana fann hann í Chile í framherj-
anum Marcello Salas sem keyptur
var í fyrra og hóf að leika með liðinu
í haust. Það var skilyrði af hálfu
Eriksons að Mancini kæmi með en
Cragnotti fannst samt ekki komið
nóg af framherjum og kallaði Alen
Boksic heim frá Juventus og í sum-
ar reiddi hann fram gífurlega upp-
hæð fyrir sterkasta framherja ítala,
Christian Vieri, sem hafði verið í
hálfgerðri útlegð á Spáni og var
með heimþrá.
Ofan í framherjastóðið safnaði
Cragnotti saman sókndjörfum
miðjumönnum, Spánverjanum Ivan
de la Pena, Portúgalanum Sergio
Conceigao, Júgóslavanum Dejan St-
ankovic og Argentínumanninum
Matias Almeyda sem verður reynd-
ar að teljast nokkuð duglegur að
vinna boltann. Markvörðurinn Luca
Marchegiani er í fremstu röð og
vamarmaðurinn Alessandro Nesta
er einn besti varnarmaður ítala.
Félagar hans í vörninni, þeir Paolo
Negro og Giuseppe Favalli, eru
traustir leikmenn en vömin var
engu að síður Akkilesarhæll liðsins í
fyrra en hefur batnað gríðarlega
með komu Mihajlovic auk þess sem
Portúgalinn Fernando Cuoto er
reyndur leikmaður sem gott er að
geta leitað tíl.
Eriksson hárréttur maður
Hinn næstum því fjarstæðu-
kenndi fjöldi ofurstjarna sem flest-
ar vilja íremur sækja en verjast
hefur vakið undmn og vantrú knatt-
spyrnuáhugamanna. Liggur við að
margir hafí ekki tekið dýrasta lið
sögunnar almennilega alvarlega,
talið að stjömurykið myndi þyrlast í
allar áttir og þótt liðið gæti átt góða
spretti yrði það aldrei „massivt"
topplið. Þetta hefur í stjómm drátt-
um gengið eftir fyrstu tvö „ofur-
stjömutímabilin". En nú virðist liðið
vera að spila sig æ betur saman og
leikmenn geisla af baráttugleði á
leikvellinum. Margir sparkspeking-
ar þakka þetta ekki síst skynsam-
legri stjórn sænska þjálfarans
Svens Görans Erikssons. Hann sé
nógu stórt nafn til að frægir leik-
menn beri virðingu fyrir honum og
þétt skandinavískt lundemi hans
haggist lítt við stöku rokur milljóna-
drengjanna og seint verði hann
leiddur í gildm fjölmiðlaslagsmála
við leikmenn. Cragnotti lagði mikið
undir með Eriksson, greiðir honum
einhver hæstu laun sem nokkur
þjálfari hefur í heiminum, og hefur
staðið vel við bakið á honum, t.d. í
lok síðustu leiktíðar þegar Lazio
missti hlutina illilega úr höndunum
á sér. Eriksson kann þá list að fá
leikmenn til að spreyta sig á öðrum
stöðum en þeir era vanir án þess að
þeir fari í fýlu og gamli bakvörður-
inn kann varnarlistina ágætlega.
Mesta verk hans er þó að vera
„diplómat“, hann þarf að róa leik-
menn sem allir telja það langt fyrir
neðan virðingu sína að sitja á
bekknum og gæta þess að hin mikla
barátta um sæti í liðinu verði ekki
til þess að hver maður hugsi fyrst
og fremst um eigin frammistöðu
fremur en hag liðsins.
Lazio hefur reynst nokkuð brokk-
gengt í haust en undanfarið hef-
ur verið allnokkur völlur á liðs-
mönnum og er liðið nú komið á hæla
Fiorentina og Parma á toppi deild-
arinnar auk þess að vera sigur-
stranglegt í Evrópukeppni bikar-
hafa.
í dag mætir Lazio einmitt Parma
í toppslag deildarinnar en um síð-
ustu helgi var Fiorentina lagt að
velli með glæsibrag. Segja má að
þar hitti andskotinn ömmu sína
hvað óráðsíu varðar því Parma fylg-
ir fast á hæla Lazio í peningaaustri í
leikmenn og er svo sem enn „tilbún-
ara“ lið því Parma stendur ekki á
jafn gömlum merg hvað varðar ár-
angur og fjölda stuðningsmanna, er
eiginlega „Blackbum Rovers" Ítalíu
á meðan Lazio er „Newcastle
United"! Þessi tvö lið em að ýmsu
leyti persónugervingar nútíma
knattspyrnu, þau em andlit stjór-
fyrirtækjanna Cirio og Parmalat
sem vita að vinsældir og árangur
liðanna skapa fyrirtækjunum góða
ímynd.
Ævintýramaður
með persónutöfra
Lazio, sem oft hefur verið kallað
litla liðið í Róm, er í eigu viðskipta-
jöfursins Sergio Cragnotti. Hann
var áður forstjóri Enimont, fyrir-
tækis í eigu ríkisins og einkaaðila,
og auðgaðist þar ótrálega. Hann
notaði auð sinn, aðstöðu og tengsl
innan stjórnkerfísins til að kaupa
hlutabréf er fjölmörg ríkisfyrirtæki
vora einkavædd í kjölfar uppgjörs-
ins gegn áhrifum mafíunnar í
ítölsku efnahags- og stjómmálalífi í
upphafi þessa áratugar. Hann eign-
aðist ríkjandi hlut í stærsta mat-
vælafyrirtæki Italíu, Cirio, og síðar
hefur hann eignast fleiri matvæl-
arisa, svo sem suður-afríska fyrir-
tækið Del Monte, en sérhver ís-
lendingur sem á ömmu hlýtur að
kannast við niðursoðna ávexti frá
þeim góðu mönnum, jafn mikil
skylda og hefur þótt að sturta
minnst hálfri dós af ávöxtum út á
sunnudagsísinn!
Cirio er rekið með tapi en
Cragnotti nýtur mikillar tiltrúar á
fjármálamörkuðum þar sem hann
er annálaður fyrir framsýni sína
auk þess sem að pólitísk sambönd
hans skemma ekki fyrir í fjölskyldu-
landinu Italíu... Hann skráði lið
Lazio á hlutabréfamarkaði fyrst
alh-a ítalskra liða og hefur það
reynst afar gott fyrir ímynd hans og
Cirio, þótt ekki muni hluthafar fá
mikinn arð af hlut sínum í náinni
framtíð, svo brjálæðisleg er fjár-
festing liðsins. Ævintýramaðurinn
Cragnotti siglir hins vegar áfram
studdur þeim sem tráa því að hann
sé maðurinn til þess að leiða fram
suðrænt stórveldi sem muni ekki
einungis skáka nágrönnum sínum á
Norður-Ítalíu heldur leggja alla
aðra enn norðar að velli.
25 milljarðar á 6 árum!
Lazio átti gífurlega léttleikandi
lið um miðbik þessa áratugar rekið
áfram af sóknaráráttu þjálfarans
Zdeneks Zemans. Léttleikanum
fylgdi því miður að vömin var sem
gatasigti sem sóknarmenn andstæð-
inganna notfærðu sér jafnóðan og
Signori, Casiraghi og félagar settu
mark. Liðið náði því aldrei að full-
nýta möguleika sína og leitaði
Cragnotti á náðir sænska þjálfarans
Svens Görans Eriksson sem var
þrautreyndur úr ítalska boltanum
og hafði t.a.m. náð að koma Samp-
doria í fremstu röð þrátt fyrir lítil
efni þar á bæ. Eriksson tók með sér
fyrirliða Sampdoria, Roberto
Mancini, og síðar meir neri hann
enn meira salti í sár Samp með því
að lokka til sín aukaspyrnusérfræð-
inginn Sinisa Mihajlovic. Sá hefur
skorað hreint ævintýraleg glæsil-
mörk beint úr aukaspymum á þessu
tímabili - markið gegn Fiorentina
um sl. helgi var hans 17da í ítölsku