Morgunblaðið - 17.01.1999, Side 18
18 SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
EIN ljósmyndanna á almanaki Lavazza.
Unaðsheimur kaffis
í GALLERÍI Sævars Karls hefur
verðið opnuð sýning á ljósmynd-
um sem unnar hafa verið fyrir
almanak ítalska kaffiframleið-
andans Lavazza.
Magnum Photos í New York
annaðist ljósmyndun fyrir alman-
ak Lavazza að þessu sinni. Ljós-
myndastofan Magnum Photos
var stofnuð árið 1947, en í rúm
50 ár hafa ljósmyndarar hennar
sérhæft sig í frétta- og heimilda-
ljósmyndun.
Ljósmyndurum Magnum
Photos hefur tekist að festa á
filmu nútimalegt. samhcngi unaðs
og kaffls í heimsálfunum fimm,
segir í tilkynningu. Kaffí og kon-
ur eru miðpunktur athyglinnar,
eins og svo oft áður. Saman
mynda verkin röð sem ber með
sér sterkan keim fréttaljósmynd-
unar, þær lýsa ólíkum kringum-
stæðum, í leik og samveru, þar
sem kaffi kemur við sögu, í anda
hefða og siða hvers lands fyrir
sig.
Sýningin stendur til 1. febrúar.
Spunaleikritið Hafrún frumsýnt í Möguleikhúsinu í dag
Sofa urtubörn á útskerjum
í Möguleikhúsinu við
Hlemm angar allt af
þangi þessa dagana,
enda eru þar sagðar
þjóðsögur úr fjöruborð-
inu, í spunaleikritinu
Hafrúnu sem verður
frumsýnt í dag kl. 17.
Margrét Sveinbjörns-
dóttir rann á þang-
lyktina, fann leikhóp-
inn í fjöru og fylgdist
með æfíngu.
í HAFRÚNU segir frá ýmsum
furðuskepnum sem ýmist rísa úr
sjónum eða birtast í fjöruborðinu,
mönnum til undrunar, hugarang-
urs, nokkurs ótta og jafnvel lífs-
hættu. Leiksýningin er spunnin af
leikhópnum í sameiningu upp úr
Morgunblaðið/Þorkell
VALA Þórsdóttir og Kristján Eldjárn í fjöruborðinu.
þremur íslenskum þjóðsögum sem
allar tengjast fjörunni og hafinu.
Sögumar eru Sjö börn í sjó og sjö
á landi, Hafskessan og Sigurður í
Skoruvík.
Sýningin er flutt af einum leik-
ara, Völu Þórsdóttur, og einum
Nýir ríkisvíxlarí raarkflokkum
í dag kl. 11:00 mun fara fram útboð á ríkisvíxlum hjá Lánasýslu ríkisins. Að þessu sinni
verður boðið upp á 3ja, 5 og 11 mánaða ríkisvíxla, en að öðru leyti eru skilmálar útboðsins
í helstu atriðum þeir sömu og í síðustu útboðum. í boði verða eftirfarandi ríkisvíxlar
Flokkur Gjalddagi Lánstími Núverandi staða* Áætlað liámark tekinna tilboða*
RV99-0416 16. apríl 1999 3 mánuðir 1.145 1.000
RV99-0618 18. júní1999 5 mánuðir 0 500
RV99-1217 17. desember 1999 11 minuðir 0 1.000
* Milljónir króna.
Þús. kr.
Uppbygging markflokka ríkisvíxla
Staða ríkisvíxla 13. janúar 15.204 milljónir.
Áæduð hámarksstærð og sala 18. janúar, 1. og 9. febrúar 1999.
3 mán
5 mán
11 mán Gjalddagar
Áætluð sala 9. febrúar 1999
BBff: . • H Áætluð sala 1. febrúar 1999
Áæduð sala 18. janúar 1999
m Staða 13. janúar 1999
jftp Áæduð áfylling síðar
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is
tónlistarmanni, Kristjáni Eldjárn,
sem leikur á rafgítar. Mismunandi
persónur, óvættir og umhveríí eru
sköpuð í samspili leikara og tónlist-
armanns án annarra utanaðkom-
andi hjálparmeðala. Tónlistin er
ekki aðeins bakgrunnur eða upp-
fylling, heldur órjúfanlegur hluti
heildarmyndarinnar. Þannig er
höfðað sterkt til ímyndunarafls
áhorfenda, þar sem ævintýrin taka
á sig mynd í hugum þeirra fremur
en að þeir séu mataðir af fullút-
færðum sviðs- og búningaskiptum.
„Þetta er allt öðru vísi en að
gera tónlist við venjulegt leikrit,
vegna þess að þetta er unnið á allt
annan hátt og í svo nánum tengsl-
um, maður er inni í öllu vinnsluferl-
inu. Það sem gerir þetta svo sér-
stakt er hvað maður hefur frjálsar
hendur og getur í rauninni gert ná-
kvæmlega það sem manni sýnist,“
segir Kristján um þátt tónlistar-
mannsins í verkinu. Vala tekur
undir þetta og segir sýninguna í
raun hafa verið í mótun alveg fram
á síðasta dag - og sjálfsagt verði
hún það áfram eftir frumsýning-
una.
Lyktin íjórða
víddin í leikhúsinu
Lýsinguna hönnuðu þeir Ólafur
Pétur Georgsson og Bjarni Ingv-
arsson í sameiningu. Leikmyndin
er að stórum hluta unnin úr þangi
og öðru úr sjónum. Heiðurinn að
henni og búningunum á Katrín
Þorvaldsdóttir. Kristján lýsir yfir
sérstakri velþóknun á sínum bún-
ingi, sem er brúnn að lit með þangi
utan á og rennur svo að segja inn í
leikmyndina. „Eg er mjög ánægð-
ur með þennan búning og stefni að
því að fá að nota hann hversdags í
framtíðinni,“ segir hann.
Lyktin af þaranum setur sinn
salta svip á sýninguna. „Þetta er
náttúrulega fjórða víddin sem hef-
ur vantað í leikhúsið,“ segir Krist-
ján. Leikstjórinn, Pétur Eggerz, er
hjartanlega sammála: „Mér finnst
alveg ómissandi á hverri sýningu
að hafa svona lyktarhönnuð!" „Það
er ekki eins og í víkingasafninu í
Jórvík, þar sem maður fær spjöld
til þess að skafa og lykta af á hin-
um mismunandi stöðum safnsins -
oj, fjósalykt!" segir Vala.
En þetta með lyktarspjöldin í
víkingasafninu var nú bara útúr-
dúr. Aftur að sýningunni, en leik-
hópurinn segist vera að taka við
þeim þjóðararfi sem þjóðsögurnar
eru. Þjóðsögurnar, sem hafi varð-
veist í munnlegri geymd kynslóð
fram af kynslóð, tekið breytingu og
lagað sig að stað og tíma. Nú hafi
þau búið til nýja útgáfu sem hæfi
stað og stund.
Hafrún verður sem áður sagði
frumsýnd í dag kl. 17 og verður
fyrst um sinn sýnd í Möguleikhús-
inu. Síðan er ætlunin að fara með
hana út í skólana á höfuðborgar-
svæðinu og jafnvel víðar. Sýningin
er ætluð áhorfendum frá átta ára
aldri og upp úr.