Morgunblaðið - 05.03.1999, Page 1
53. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bandarrkjamenn herða á „bananadeilunni“ með því að setja á refsitolla
Reuters
BANANAR sem þessir, á markaði í Sankti Lucia í Karíbahafinu, eru
bitbein harðrar viðskiptadeilu Bandaríkjanna og ESB.
Reiði í höfuð-
stöðvum ESB
Brusselt Washington. Reuters.
ÁKVORÐUN bandarískra stjóm-
valda um að herða aðgerðir í „ban-
anadeilunni" við Evrópusambandið
(ESB) með því að hrinda í raun í
framkvæmd hótunum um að setja á
100% refsitolla á valdar vörur írá
ESB-löndum, olli í gær reiði í höf-
uðstöðvum ESB.
Sir Leon Brittan, sem fer með ut-
anríkisviðskiptamál í framkvæmda-
stjórn ESB, sakaði Bandaríkja-
menn um að brjóta reglur
Heimsviðskiptastofnunarinnar
(WTO) með aðgerðum sem hann
sagði gera hina langvinnu deilu um
bananainnflutningsreglur ESB mun
alvarlegri. Brittan fór fram á það
við WTO að fundað yrði með fulltrú-
um Bandaríkjastjórnar vegna hót-
ananna, en slíkur fundur er nauð-
synleg forsenda þess að ESB geti
formlega snúið sér til WTO með
umkvörtunarefni sitt.
í fyrradag tilkynntu bandarískir
embættismenn að innflytjendur í
Bandaríkjunum, sem flyttu inn þær
vörur sem væru á refsitollalistanum
- þar á meðal skozkar kasmírullar-
peysur og ítalskan peccorino-ost -
yrðu að gjöra svo vel að reiða fram
tryggingar fyrir greiðslu refsitoll-
anna.
„Þeir hætta á að koma af stað
heilu viðskiptastríði vegna þess að
þeir þykjast ekki geta beðið í hálfan
mánuð,“ sagði Brittan með tilvísun
til þess, að búist var við að sátta-
nefnd WTO þyrfti tvær vikur í við-
bót til að taka endanlega afstöðu til
þess hvor aðilinn hefði rétt fyrir sér
í deilunni.
I Lundúnum kallaði viðskiptaráð-
herrann Stephen Byers bandaríska
sendiherrann á sinn fund til að færa
honum formleg mótmæli við þvi
sem brezka stjómin sagði vera ský-
laust brot á reglum um alþjóðavið-
skipti.
Charlene Barshefsky, aðalfull-
trúi Bandaríkjanna hjá WTO, varði
aðgerðirnar og sagði þær réttmæt-
ar þar sem úrskurðað hefði verið
að bananainnflutningsreglur ESB
brytu í bága við reglur WTO.
Sáttagerðarkerfi WTO í hættu?
Renato Ruggiero, yfirmaður
WTO í Genf, hvatti ráðamenn
Bandaríkjanna og ESB til að sýna
,jákvæðan anda“ og ganga í að
leysa deiluna. Sáttagerðarkerfi
WTO væri fullfært um að leysa öll
lagaleg deiluatriði málsins.
Á undanfömum misserum hafa
hrannast upp viðskiptaleg ágrein-
ingsefni milli Bandaríkjanna og
ESB, þ.á m. um hormónakjöt, gena-
breytt korn og háværar flugvélar,
sem auk bananadeilunnar stefnir í
að verða sannkallað viðskiptastríð.
Reuters
FLAK einnar bifreiðarinnar sem
uppreisnarmenn Hútúa brenndu
í Bwindi-þjóðgarðinum.
Bwindi-morðin
Fimmtán
uppreisnar-
menn vegnir
Bwindi-þjóðgarðinum, Uganda. Reuters.
HÁTTSETTUR herforingi í Úg-
andaher lýsti því yfir í gær að
fimmtán skæruliðanna sem myrtu
erlenda ferðamenn í Bwindi-þjóð-
garðinum á mánudag hefðu verið
vegnir. Naut her Úganda aðstoðar
herflokka frá Rúanda við leitina að
morðingjunum. Sagði herforinginn
að setið hefði verið fyrir uppreisn-
armönnunum á vegi á milli Goma og
Kisoro í austurhluta Kongó.
Um 150 uppreisnarmenn Hútúa
rændu 31 ferðamanni í Bwindi-þjóð-
garðinum í Úganda á mánudag og
myrtu átta þeirra á gi’immilegan
hátt.
■ Samvinna heija/26
Tíðar skærur á milli serbneskra öryggissveita og skæruliða Kosovo-Albana
Stjórnvöld í Belgrad
efla landamæravarnir
Pristina, Belgrad. Reuters.
STJORNVÖLD í Júgóslavíu tOkynntu í gær að efla ætti landamæravarnir til
þess að koma í veg fyrir að andstæðingar þeirra „laumuðust“ yfir landamær-
in. „Ákvörðunin er tekin til þess að efla landamæravörslu í Júgóslavíu og
koma í veg íyrir að hiyðjuverkahópar komist inn í Kosovo-hérað,“ segir í op-
inberri tilkynningu sem Tanjug-fréttastofan bh-ti. Serbar hafa mikinn viðbún-
að í héraðinu og umferð öryggissveita í brynvörðum bifreiðum og skriðdrek-
um er mikO á helstu þjóðvegum. Einnig var greint frá því í Belgrad að auka
þyrfti hergagnaframleiðslu til muna í Serbíu „til þess að efla vamir lands og
þjóðar gegn ógninni sem steðjar að frelsi hennar,“ sagði í opinbem tilkynn-
ingu frá Tanjug-fréttastofunni.
D’Alema
undrandi yfír
sýknudómi
Boston, Camp Lejeune. Reuters.
MASSIMÖ D’AIema, forsætisráð-
herra Italíu, lýsti í gær undrun sinni
yfir sýknudómi herréttar í Norður-
Karólínu í Bandaríkjunum yfir
bandarískum herflugmanni sem varð
tuttugu farþegum í kláfferju að bana
á Italíu á síðasta ári. D’Alema kvað
dóminn óskiljanlegan og ekki full-
nægja réttlætinu.
Flugmaður bandarískrar orr-
ustuflugvélar á æfíngaflugi olli
dauða tuttugu evrópskra ferða-
manna er flugvél hans skar á togvíra
kláfferju, sem þeir voru farþegar í, í
lágflugi yfii’ ítölsku Ölpunum.
Skærur eru tíðar á milli öryggis-
sveitanna og skæruliða Frelsishers
Kosovo (UCK) og lík fallinna fínnast
svo að segja daglega. Hvorir tveggju
saka andstæðinginn um að eiga upp-
tök átakanna. Fjórir Serbar, þar af
tveir öryggissveitarmenn, voru
vegnir í Kosovo-héraði í gær.
Eftirlitsmenn Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu (ÖSE) sögðu
að bardagi hefði brotist út við bæinn
Lapusnik, sem er í 20 km fjarlægð
frá Pristina, í gær. Eftirlitsmenn
segja Serba hafa 20 herfylki undir
vopnum í héraðinu en samkvæmt
samkomulagi um vopnahlé frá því í
október mega þeir einungis hafa
þrjú herfylki í Kosovo.
Stjórnarherinn hefur aukið lið-
styrk sinn til muna við landamæri
Makedóníu í liðinni viku. í gær bár-
ust einnig fréttir af brynvörðum her-
bílum á leið tO landamæranna við Al-
baníu. William Walker, yfirmaður al-
þjóðlegrar friðareftirlitsnefndar í
Kosovo, telur tilkynningu stjórn-
valda í Belgrad um herta landa-
mæravörslu geta annaðhvort verið
réttlætingu á liðsflutningum undan-
farið, ellegar visbendingu um frekari
hernaðaruppbyggingu.
Rússar beita ekki þrýstingi
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, hitti starfsbróður sinn,
Igor Ivanov, í Moskvu í gær. Að
loknum þeim fundi taldi Cook litlar
líkur til þess að Rússar muni beita
stjórnvöld í Belgrad þrýstingi svo að
þau láti af andstöðu sinni við hug-
myndir um friðargæslu sveita Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) í
Kosovo. Bob Dole, fyri-verandi öld-
ungadeildai’þingmaður og forseta-
frambjóðandi í Bandaríkjunum,
hyggst ferðast til Kosovo í dag og
íreista þess að leggja sitt lóð á vog-
arskálar friðarins.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði einnig
koma til greina að Richard Hol-
brooke, aðalhöfundur Dayton-friðar-
samkomulagsins, tæki þátt í að leysa
deiluna. Líklegast er talið að þeir fé-
lagar muni þrýsta á Slobodan Milos-
evic, forseta Sambandslýðveldis Jú-
góslavíu, um að leyfa setu tæplega
30.000 hermanna NATO í Kosovo.
Reuters
SERBNESKIR hermenn stíga um borð í rússneska skriðdreka af
gerðinni T-55 í bænum Pec, sem er í 70 km íjarlægð frá Pristina.
Friðarsamkomulagið á N-frlandi
Mun minni stuðningur
meðal sambandssinna
Belfast. Reuters.
STUÐNINGUR meðal norður-
írskra sambandssinna við Belfast-
friðarsamkomulagið, sem náðist á
páskum í fyrra, hefur minnkað
verulega ef marka má niðurstöður
skoðanakönnunar sem greint var
frá í gær. 55 prósent sambands-
sinna studdu samkomulagið í þjóð-
aratkvæðagreiðslu sem haldin var í
maí á síðasta ári en skoðanakönnun,
sem gerð var íyrir BBC á N-ír-
landi, sýnir að einungis 41 prósent
sambandssinna styðja það nú.
í skoðanakönnuninni kom einnig
fram að sjö af hverjum tíu sam-
bandssinnum myndu snúast gegn
David Trimble, leiðtoga stærsta
flokks sambandssinna og verðandi
forsætisráðherra, kæmi hann á fót
tíu manna heimastjórn með aðild
fulltrúa Sinn Féin, stjórnmálaarms
írska lýðveldishersins (IRA), án
þess að IRA hafi fyrst byrjað af-
vopnun.
■ Deilan um/24