Morgunblaðið - 09.03.1999, Side 8

Morgunblaðið - 09.03.1999, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Kjör sem öryrkjum eru búin samrýmast ekki lífssýn á nýrri öld Ekki sæmandi einni af ríkustu þjóðum heims T&MU hJO ÞAÐ eru fleiri en endurnar á Tjörninni sem hafa verið teknir út af sakramentinu og settir út á guð og gaddinn. Morgunblaðið/Kristinn Ný sýn yfir Austurvöll EFTIR að ísafoldarhúsið við Austurstræti hefur verið flutt blasir Austurvöllur, Dómkirkj- an og Alþingishúsið við frá nýju sjónarhorni úr Austur- stræti. Forseti Islands til Rdmaborgar Avarpar ráð- herrafund FAO Viðvarandi æska? Éh eiisuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi og Skipagotu, Akureyn MATVÆLA- og landbúnaðarstofn- un Sameinuð þjóðanna, FAO, hefur boðið forseta Islands, Ólafi Ragn- ari Grímssyni, að flytja setningar- ræðu á fundi sjávarútvegsráðherra FAO-ríkja sem haldin verður í Róm á morgun, miðvikudag. Efni ráðherrafundarins eru starfsreglur og ábyrg þróun í sjáv- arútvegi og er markmið fundarins að stuðla að alþjóðlegu samkomu- lagi í þessum efnum. í nóvember sl. heimsótti forseti Islands aðalstöðvar FAO og átti viðræður við stjórnendur FAO um framlag íslendinga til alþjóð- legrar stefnumótunar og þróunar í sjávarútvegi. Boðið til forseta ís- lands um að flytja setningarræð- una á sjávarútvegsráðherrafundi FAO kom síðan í framhaldi af þeirri heimsókn, segir í fréttatil- kynningu. Að lokinni setningarathöfn ráð- herrafundarins í Róm mun forseti íslands halda til Póllands þar sem opinber heimsókn hans hefst að morgni fimmtudagsins 11. mars. Alþjóðasamtök leikbrúðugerðarfólks Brúðuleikhús hefur blómstrað á Islandi UNIMA á Islandi eða íslandsdeild Alþjóðasamtaka brúðuleikhússfólks (Union International de la Marionette) var stofn- uð í Reykholti árið 1976 og hefur verið starfrækt síðan. Margrét Kolka Haraldsdóttir er for- maður samtakanna hér á landi. „Islensku samtökin voru stofnuð eftir að haldið var samnorrænt leikbrúðunámskeið í Reykholti. Frumkvöðull- inn að stofnun íslenska félagsins var þekktur, sænskur brúðuleikhús- maður sem heitir Mich- ael Mescke.“ Margrét segir að ís- lensku samtökin hafi tvisvar stað- ið fvrir alþjóðlegum brúðuleik- húshátíðum og tvisvar haldið námskeið í brúðugerð. „Félagið hefur líka verið tengiliður við er- lent brúðuleikhúsfólk sem hefur haft áhuga á að sýna á Islandi. Markmið félagsins er að efla ís- lenskt brúðuleikhús og fylgjast með því sem er að gerast í brúðu- leikhúsheiminum, bæði hvað snertir alþjóðlegar sýningar, brúðuleikhúshátíðir og nám- skeið.“ - Hvenær voru UNIMA al- þjóðasamtökin stofnuð? „Þau voru sett á stofn í Prag árið 1929 en þar er mjög sterk hefð fyrir brúðuleikhúsi eins og annars staðar í Austur-Evrópu. Starfsemin lá síðan niðri á stríðs- árunum en var endurvakin árið 1957. Upp frá því var farið að halda alþjóðleg þing á fjögurra ára fresti og í tengslum við þau brúðuleikhúshátíðir." Margrét segir að þar komi fram það besta sem völ er á og hún bendir á að íslendingar hafi tekið þátt í þess- um hátíðum og Leikbrúðuland tvisvar unnið til verðlauna. „Upphaflega voru UNIMA evr- ópsk samtök en eru löngu orðin alþjóðleg. Aðildarfélög eru um hundrað talsins." -Er starf samtakanna öfiugt hér á landi? ,;Brúðuleikhús hefur blómstrað á Islandi undanfarin ár. Jón E. Guðmundsson er frumkvöðullinn að brúðuleikhúsi hér á landi og Islenska brúðuleikhúsið sem hann stofnaði hefur verið starf- rækt í um hálfa öld. Jón var fyrsti formaður félagsins og formaður þess til margra ára. Þá er Leikbrúðulandið löngu orðið þekkt og það hefur starfað í 30 ár. Brúðubíllinn ------------ sem sýnir á sumrin á opnum svæðum og gæsluvöllum hefm’ átt vinsældum að fagna og síðan er Sögu- svuntan, Tíu fingur og ““ Dúkkukerran þekkt brúðuleik- hús. Tíu fingur eru um þessar mundir að sýna Ketil Flatnef í Iðnó og Sögusvuntan er að vinna að uppsetningu „Minnsta trölls í heimi“ sem mun m.a. verða sýnt í Bandaríkjunum. Einnig má nefiia að Katrín Þorvaldsdóttir hefur gert bníður og leiktjöld fyrir Ha- frúnu sem sýnt hefur verið í Möguleikhúsinu.11 Margrét bendir á að auk þessa hafi ýmsir félagar í UNIMA unn- ið innan leikhúsa með brúður og grímur í uppfærslum leikhús- anna. Margréf Kolka Haraldsdóttir ►Margrét Kolka Haraldsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1948. Hún lauk myndmenntakenn- araprófi frá Myndlista- og handíðaskóla Islands árið 1974 og MA-prófi í dönsku frá HI ár- ið 1978. Margrét hefur rekið mynd- listarskóla Garðabæjar ásamt Ingibjörgu S. Haraldsdóttur undanfarin níu ár. Hún hefur verið í UNIMA á Islandi frá stofnun samtakanna og formaður þeirra frá árinu 1998. Eiginmaður hennar er Leifur Agnarsson framkvæmdastjóri og eiga þau 4 börn og 2 barna- börn - Er brúðuleikhús aðallega fyr- irbörn? „Hér á Islandi hefur fyrst og fremst verið litið á brúðuleikhús sem barnaleikhús en það er alls ekki svo víða erlendis. Þar eru uppfærslur fyrir fullorðna og ég hef til dæmis séð Don Giovanni í fullri lengd í bníðuleikhúsi í Prag. Það var rosalega skemmtilegt. í Kína og Japan er löng hefð fyrir því að brúðuleikhús sé fyrir fullorðið fólk. Reyndar er brúðu- leikhús ævagamalt listform og fyrr á öldum var það vettvangur fyrir þjóðfélagsgagnrýni. Þar var ýmislegt hægt að segja undir rós og Hitler var til dæmis afar illa við brúðuleikhúsið í Prag og reyndi ítrekað að stöðva starf- semina.“ - En brúðuleikhús hafa verið notuð í öðrum tilgangi en til að skemmta fólki? „Já, brúður hafa til dæmis ver- ið notaðar í kennslu hér á landi og erlendis eru mörg dæmi um að brúður séu notaðar í meðferð á spítölum. Þær gegna gjarnan því hlutverki að fá börn í meðferð til að segja frá erfiðri lífsreynslu. Börn virð- ast stundum eiga auð- veldara með að segja brúðu frá erfiðum málum.“ - Er eitthvað sérstakt fi-amundan hjá samtökum brúðu- gerðarfólks? „Það er alltaf eitthvað á döf- inni og um þessar mundir er verið að ganga frá því að UNIMA á íslandi og Leikbrúðu- land taki þátt í Reykjavík menn- ingarborg Evrópu árið 2000 með uppfærslu á íslensku verki sem heitir Prinsessan í hörpunni eft- ir Böðvar Guðmundsson. Það byggir á gömlu ævintýri, Völs- ungasögu og sögu Ragnars Loð- brókar Brúðurnar not- aðar til kennslu og í meðferð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.