Morgunblaðið - 09.03.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 27
LISTIR
EITT málverka G.R. Lúðvíkssonar.
Málverk
G.R. Lúð-
víkssonar í
Kringlunni
SÝNING á verkum listamannsins
Guðmundar Rúnars Lúðvíkssonar
verður opnuð í sýningarrými Gall-
erís Foldar og Kringlunnar, á
annarri hæð, í dag, þriðjudag.
Listamaðurinn sem kallar sig G.R.
Lúðvíksson nefnir sýninguna „Lan
- land og þjóð“ (sbr. Kring-LAN
og LAN-d), segir í fréttatilkynn-
ingu.
Ennfremur segir að þetta sé
þriðja einkasýning listamannsins á
þessu ári, en hann stefnir að því að
halda eina einkasýningu í hverjum
mánuði ársins.
G.R. Lúðvíksson lauk námi úr
Myndlista- og handíðaskóla íslands
árið 1991. Þá stundaði hann nám við
Academie van Beldende Kunsten í
Hollandi á árunum 1992-1995 og
Fine Art Akademie í Frankfurt.
Guðmundur hefur komið víða við á
ferli sínum, haldið margar einka-
sýningar og tekið þátt í fjölda sam-
sýninga af ýmsu tagi.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma
verslana í Kringlunni til 29. mars.
Morgunblaðið/Þorkell
ÞEIR sem ekki fengu miða á píanótónleika Þorsteins Gauta Sigurðs-
sonar í síðustu viku fá tækifæri til að heyra í honum í kvöld, en þá
hyggst hann endurtaka tónleikana í Salnum.
Tónleikar
Þorsteins
Gauta endur-
teknir
ÞAR sem uppselt var og fjölmarg-
ir urðu frá að hverfa þegar Þor-
steinn Gauti Sigurðsson píanó-
leikari hélt tónleika í Salnum í
Kópavogi sl. þriðjudag verða tón-
leikarnir endurteknir í kvöld á
sama stað og sama tíma, eða kl.
20.30.
A efnisskránni eru þrjú smá-
stykki eftir George Gershwin,
Gnossía eftir Eric Satie, Tungl-
skinssónata Beethovens, þrjár
etýður eftir Chopin og sónata op-
us 26 efir Samuel Barber.
Utvarpsleikhúsið
Islensk leik-
rit í mars
ÚTVARPSLEIKHÚSIÐ býður
hlustendum Rásar I og Rásar 2 upp
á ný íslensk leikrit í marsmánuði.
Verkin eru ólík að innihaldi og
formi en flest eiga þau það sameig-
inlegt að lýsa fólki sem felur og
bælir sinn innri mann en viðheldur
um leið þeirri blekkingu að allt sé í
himnalagi.
A Rás 1 verða frumflutt fjögur
leikrit, hið fyrsta er ný upptaka á
leikritinu Herbergi 213 eftir Jökul
Jakobsson. I þessu verki Jökuls
tvinnast saman harmræn örlög
persóna sem margar eru enduróm-
ur af eldri persónum úr safni höf-
undarins. Með helstu hlutverk
fara: Ragnheiður Arnardóttir, Þór
Túliníus, Steinunn Olína Þor-
steinsdóttir og Margrét Ólafsdótt-
ir. Leikstjóri er Sveinn Einarsson.
Verkið var flutt í tveimur hlutum
dagana 6. og 7. mars en verður
flutt í heild miðvikudaginn 10.
mars kl. 22.25.
Þorsteinn Marelsson er höfund-
ur leikritsins Klóraðu mér á bak-
inu elskan, sem frumflutt verður
laugardaginn 13. mars kl. 14.30.
Persónur þess eru eldri hjón sem
taka sig upp einn góðan veðurdag
og aka norður í land í því augna-
miði að heimsækja dóttur sína og
tengdason. Þegar líður á ferðalag-
ið kemur ýmislegt fram sem varp-
ar ljósi á eiginlegan tilgang ferðar-
innar. Með hlutverk hjónanna fara
Margrét Ólafsdóttir og Steindór
Hjörleifsson. Leikstjóri er Hall-
mar Sigurðsson. Verkið verður
endurflutt miðvikudaginn 17. mars
kl. 13.05.
Handlagni píparinn eftir Þor-
stein Guðmundsson verður frum-
flutt laugardaginn 20. mars. kl.
14.30. Þar segir frá manni sem er
orðinn fíkinn í að hlusta á æsandi
kynlífsfrásagnir á Ástarlínunni.
Kona hans kemst að þessu hátterni
hans þegar símareikningur heimil-
isins er farinn að hækka ískyggi-
lega. Leikstjóri er Hallmar Sig-
urðsson. Verkið verður endurflutt
miðvikudaginn 24. mars kl. 13.05.
Gamanleikurinn Mávurihn eftir
Jón Gnarr verður frumfluttur laug-
ardaginn 27. mars kl. 14.30. Þar
segir frá konu sem linnir ekki lát-
um fyrr en hún er komin með garg-
andi máv sem gæludýr inn á heimil-
ið. Eiginmaður hennar er ekki par
hrifínn og bregst við af fullri hörku.
Leikstjóri er Hjálmar Hjálmars-
son. Verkið verður endurflutt mið-
vikudaginn 31. mars kl. 13.05.
Mánudaginn 15. mars kl. 10.03
hefst á Rás 2 frumflutningur á
sakamálaleikritinu Opin augu eftir
Hávar Sigurjónsson í leikstjórn
Hjálmars Hjálmarssonar. Leikrit-
ið, sem er í tólf þáttum, segir frá
ungum blaðamanni í Reykjavík sem
er sendur til að taka viðtal við for-
eldra unglingspilts sem er hoi'fínn.
Hann kemst fljótt að því að fjöl-
skylda hans býr yfir ýmsum leynd-
armálum sem ekki þola dagsins
ljós. Hver þáttur er síðan endur-
fluttur samdægurs kl. 18.40 á Rás
2.
Meó eirtu
handtakí bvróu
tii boró á baki
bíistjórasætis.
4 foftpúóar:
bítstjóri, farþegt
í framsaeti og
híiöarpúóar.
Pú getur gert
Scénic bítinn aó
sendibíí í einu
vetfangi.
Alti jpettamrmH Rmwlt Scénk Verð 1.678.000,-
Það er líkt og Renault Mégane Scénic stækki
þegar þú sest inn í hann, enda er hann fyrsti
fjölnotabfllinn f flokki bfla í millistærð. Segja
má að Scénic sé í raun þrír bflar, fjölskyldubfll,
ferðabfll og sendibfll.
Hann eraðeins 4.23 m á lengd en hugmyndarík
hönnun og mikió innanrými gerir hann ótrúlega
notadrjúgan og hagkvæman fýrir einstaklinga
og fjölskyldur.
Það er engin furða þó hann hafi umsvifalaust
verið valinn bíll ársins af öllum helstu
bílatímaritum í Evrópu þegar hann var kynntur.
Hér á landi hefur hann þegar fengið frábærar
viðtökur.
Ármúla 13, Sími 575 1200, Söludeild 575 1220