Morgunblaðið - 09.03.1999, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 53
FRÉTTIR
Dagbók Lögreglunnar
Ein líkamsárás og ölvun-
arakstur meðal verkefna
Reykjavík helgina 5. til 8. mars 1999.
UM helgina var 31 ökumaður
stöðvaður fyrir of hraðan akstur
og 12 ökumenn voru teknir fyrir
ölvun við akstur. I tveim tilvika
höfðu ökumennirnir lent í umferð-
aróhöppum. Þá urðu 43 umferðar-
óhöpp með eignatjóni.
Nokki-u eftii- miðnætti á mánu-
dag var tilkynnt um bifreið sem ek-
ið hafði verið á ljósastaur við Sæ-
braut. Við áreksturinn kviknaði
eldur í bifreiðinni sem slökktur var'
með slökkvitæki. Þrír unglingar á
aldi-inum 14 til 16 ára, tveir drengir
og ein stúlka vora í bifreiðinni, sem
hafði verið stolið. Tvö þeirra hlupu
af vettvangi en náðust skömmu síð-
ar. Sá þriðji, sem varð eftir, reynd-
ist handleggsbrotinn. Öll þrjú
höfðu hlotið nokkra áverka og voru
flutt á slysadeild.
Lögi'eglan stöðvaði ökumenn
fjögurra bifreiða um helgina fyrir
að hafa filmur límdar innan á
fremri hliðarrúður og var öku-
mönnum gert að fjarlaegja fílm-
urnar á staðnum. Minnt skal á að
ekki er heimilt að líma fílmur á
framrúðu eða fremri hliðarrúður.
Innbrot
Snemma morguns á föstudag
var tilkynnt um innbrot og þjófnað
á verkfærum úr vinnuskúr í
Höfðahverfi. Einnig var brotist
inn í bílasölu og nokkru stolið og
eitthvað skemmt.
Brotist var inn í bifreið í
Höfðahverfi á föstudag og úr
henni stolið verðmætum geisla-
spilara. Undir hádegi voru tveir
menn handteknir eftir að hafa
brotist inn í bifreið og stolið úr
henni verkfærum. Báðir mennirn-
ir hafa oft komið við sögu lög-
reglu vegna ýmissa afbrota. Um
svipað leyti var tilkynnt um að
brotist hefði verið inn í bifreið í
Breiðholti og úr henni stolið
hljómflutningstækjum og geisla-
diskum. Rétt er að minna fólk á
að geyma ekki mikil verðmæti í
bílum sínum.
Eftir hádegið var maður staðinn
að því við áfengisútsölu ÁTVR að
kaupa talsvert magn áfengis fyrir
ungling. Lögregla lagði hald á
áfengið og minnt skal á að ekki má
selja, veita eða afhenda áfengi
þeim sem er yngri en 20 ára. Síð-
degis var tilkynnt um innbrot í
íbúðarhúsnæði á miðborgarsvæð-
inu þar sem talsverðum verðmæt-
um var stolið.
Leigubflstjóri stunginn
við störf
Piltur réðst á leigubifreiðar-
stjóra og stakk hann í hálsinn á
föstudagskvöld. Pilturinn hljóp á
brott og var mikil leit gerð að
honum. Á laugardagsmorgun var
handtekinn 19 ára piltur sem
grunaður var um verknaðinn.
Leigubifreiðarstjórinn fór á
slysadeild en fékk að fara heim
eftir að gert hafði verið að sárum
hans.
Á föstudagskvöld var tilkynnt
um að bíl hefði verið stolið frá
heimili eigandans. Lyklar bifreið-
arinnar voru í kveikjulásnum. Rétt
er að minna fólk á að ganga
tryggilega frá ökutækjum sínum.
Tilkynnt var um eld í potti í íbúð
í Norðurmýrinni. Eldurinn var
slökktur með eldvarnateppi og
urðu nokkrar skemmdir.
Bifreið var stolið á Seltjarnar-
nesi, í þetta sinn var ekki bara lyk-
ill í kveikjulásnum heldur var
þjófnum gert enn auðveldara fyrir
og bifreiðin skilin eftir í gangi.
Bifreiðin fannst rúmlega klukku-
stund síðar og hafði þá ýmsum
verðmætum verið stolið úr henni.
Ástand nokkuð gott
á föstudagskvöld
Um 700 manns voru í miðborg-
inni þegar flest var aðfaranótt
laugardags, ekki mikil ölvun og
ástand nokkuð gott.
Nokkra eftir miðnætti voru þrír
ungir menn handteknir þar sem
þeir voru að reyna að stela bifreið.
Einn maður var handtekinn eftir
að hafa reynt að fá skipt fölsuðum
5 þúsund kr. seðlum.
Skömmu fyrir miðnætti var til-
kynnt um innbrot í bifreið þar sem
hún stóð fyrir utan bíóhús í borg-
inni. Nokkrum verðmætum var
stolið úr henni s.s. geislaspilara,
tösku o.fl.
Slagsmál með
súperman-styttu
Margt manna var í miðborginni
aðfaranótt sunnudags, ölvun mikil
og talsverður erill vegna ýmissa
mála.
Laust eftir miðnætti var til-
kynnt um innbrot í söluturn í
Breiðholti, ein rúða var brotin en
ekki vitað hversu miklu var stolið.
Er nokkuð var liðið á nóttina var
tilkynnt um slagsmál. Þeir sem
slógust voru með súpennan-styttu
meðferðis. Ekki er gott að segja til
um hvort styttan hafði þau áhrif að
menn þurftu að sýna kraftana.
Tilkynnt var um eld í lítilli raf-
stöð á kerru og var eldurinn
slökktur af slökkvdliði.
Snemma morguns á sunnudag
kviknaði eldur í rúmdýnu í íbúð í
vesturbæ. Þrír einstaklingar voru
í íbúðinni en engan þeirra sakaði.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn
en nokkrar reykskemmdir urðu í
íbúðinni. Laust fyrir hádegi
hringdi maður og sagði bifreið
sinni hafa verið stolið, bifreiðin
hafði þá fundist skömmu áður þar
sem henni hafði verið ekið út fyrir
veg skammt ofan borgarinnar.
Síðdegis var tilkynnt um innbrot
og þjófnað úr bifreið.
Á sunnudagskvöld var tilkynnt
að tveggja drengja, 18 og 19 ára,
væri saknað, en þeir höfðu farið í
vélsleðaferð um morguninn.
Skömmu síðar var haft samband
og sagt að drengirnir væru komnir
fram heilir á húfi. Vélsleði þeirra
hafði bilað.
Skömmu eftir klukkan tvö að-
faranótt mánudags var aðstoðar
óskað vegna ölvaðrar konu sem
truflaði ökumann leigubifreiðar
við aksturinn. Er komið var á vett-
vang var konan komin út úr bif-
reiðinni og truflaði umferð, hún
var handtekin og fékk að hvíla sig
á lögreglustöðinni.
Undir mánudagsmorgun var
bifreið stöðvuð. í bifreiðinni
reyndist talsvert magn tölvubún-
aðai' sem ökumaður viðurkenndi
að hafa stolið í innbroti í fyrirtæki
í Kópavogi.
Fræðslufundur
Grænu
smiðjunnar
FRÆÐSLUFUNDUR Grænu
smiðjunnar - græns framboðs,
verður haldinn í kvöld kl. 20.30 í
húsnæði Vinstrihreyfíngarinnar.
Á fundinum munu Tryggvi Fel-
ixson hagfræðingur og Tómas Jó-
hannesson jarðeðlisfræðingur
ræða loftslagsbreytingar. Fundar-
stjóri verður Auður Sveinsdóttir
landslagsarkitekt.
KOMIN
AFTUR
© Husqvarna
Husqvama heimiíistækin erti
komin aftur til landsins.
Þau taka á móti gestum I verslun okkar
alla virka daga fra 9:00 -18:00.
Endumýjum góð kynni!
Ungt fólk
gegn ofbeldi
UNGMENNADEILD Reykjavík-
urdeildar Rauða kross íslands
heldur kynningu á samnorrænu
átaksverkefni í kvöld, þriðjudag,
kl. 20 í Sjálfboðamiðstöð Rauða
krossins að Hverfisgötu 105.
Verkefninu er beint gegn ofbeldi
og hefst 8. maí og mun standa í eitt
ár. Verkefnið er í framhaldi af ung-
mennastarfi hjá norska Rauða
krossinum og í kvöld ætlar starfs-
maður þeirra, Anne Bergh, að
kynna hvað þau hafa verið að gera
í Noregi. „Það er mikilvægt að fá
hóp af fólki sem er reiðubúið að
taka afstöðu gegn ofbeldi," segir í
fréttatilkynningu.
Afhenti
trúnaðarbréf
KRISTINN F. Árnason sendi-
herra afhenti í gær Alexander
Kwasniewski forseta Póllands,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
Islands í Póllandi með aðsetur í
Osló.
Fyrirlestur
um príonsjúk-
dóma í mönnum
og dýrum
STEFANÍA Þorgeirsdóttir flytur
fyrirlestur um príonsjúkdóma á
vegum Siðfræðifélags Islands í
Lögbei'gi, stofu 101, á morgun,
miðvikudag, kl. 20. Fyrirlesturinn
nefnir hún Príonsjúkdómar í
mönnum og dýrum - áhrif arfgerða
príongensins.
Stefanía mun leitast við að gefa
yfirlit yfir helstu príonsjúkdóma
sem eru þekktir í mönnum og dýr-
um og segja frá niðurstöðum rann-
sókna, bæði erlendis og hér á landi
á því hvernig breytileiki í príon-
geninu getur skipt máli fyrir smit-
næmi og sjúkdómsmynd.
mbl.is
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- Mbé 1 jW'' j
ömmu,
HÖLLU BALDVINSDÓTTUR,
Hörpugötu 9, \ fejgHH
Reykjavík. M 1111
Anna Gréta Arngrímsdóttir, Snorri L. Kristinsson,
Kristín A. Linfeldt,
Guðrún Arngrímsdóttir,
Baldvin Arngrímsson,
Margrét Arngrímsdóttir,
Jóhannes Arngrímsson,
Stefán Arngrímsson,
Kristján S. Arngrímsson,
Arngrímur Arngrímsson,
James Diecker,
Þórður Kárason,
Gunnþór Hákonarson,
Anna Radwanska,
Jóhanna Steingrímsdóttir,
Arnfríður Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
luelle
Fatnaíiii - Ftábær leiö
Bolir
Pils
Mikið úrval af nýjum kvenfatnaði
kr. 995,- Peysur kr. 1999,-
kr.1290,- Buxur kr.1290,-
Dragtir kr. 9900,- Blússur kr.1990,-
Hárburstasett í Skartgripusknn
poka m/rennilás nieð spilverki
Kr. 995 KrJ300
Fjölnota
pottur
Pönnusett 5 hl. pottasettið
m/glerloki komið aftur
8 hluta
pottasett
pottur m/glerloKi kuu
Kr. 3,799 Kr. 4,899 KrJJffl- Kt-iSffl
Glæsileg búsálröW úr gæðasláli
Tvöl. botn • Hert glerlok
töskusett ioskuí iui>wu
Kr. 3290 KrJ290 EiIHlíg m-,Kið úrval al öðrum tilboðum i busaholdu .
5 hluta Strand- bæjar-
töskusett töskur í úrvalv