Morgunblaðið - 09.03.1999, Page 60

Morgunblaðið - 09.03.1999, Page 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ r f 'i HÁSKÓLABÍÓ ★ ★ ★ ★ HASKOLABIO geggjun ■"" b oi'Hurjjaiuj'. Hagatorgi, simi 530 1919 - r °3 s „Margföld skemmtun" ★ ★ 1/2 MBL 'tilnefningarhJ OskarsveiáiMtji ★ ★★ 1/2 \ Kvikmyndir.is Ástf angio Stiakespeare in iskrandi fyndin ndir.is NYTT 0G BETRA^Œ úOí^jÖJUJUíir. »f -17111 nltiil :r .'iymiiin 'Iujui :11 '% jjuiiir jiu/ DXDIGnAL Álfabakka 8, simi 587 8900 og 587 8905 www.samfilm.is GWYNETH Paltrow og Ben Affleck gátu borið höfuðið hátt því leikhópur Ástfangins Shakespe- ares var verðlaunaður í bak og fyrir. JULIANNA Marguiles með verðlaunin sem besta leikkona í framhaldsþáttum og einnig sem leikari í besta leikhópnum. Verðlaun Samtaka leikara Shakespeare hlutskarpari en Björgun óbreytts Ryan LEIKHÓPURINN í Ástfóngnum Shakespeare hafði betur en leik- hópurinn í Björgun óbreytts Ryans þegar verðlaun Samtaka leikara í Bandarikjunum voru veitt á sunnudag og gefur það til kynna að óvæntra tíðinda sé að vænta þegar Óskarinn verður afhentur 21. þessa mánaðar. Björgun óbreytts Ryans hefur hingað til verið talin sigurstranglegust. - Margir af þeim sem greiddu at- kvæði taka eiimig þátt í atkvæða- greiðslunni um Óskarsverðlaunin. ítalski leikarinn Roberto Benigni og bandaríska leikkouan Gwyneth Paltrow voru valin bestu leikarar í kvikmyndum og ætti það að auka líkur á að Óskarinn falli þeim í skaut síðar í mánuðin- um. Benigni er fyrsti erlendi leik- arinn til að fá SÁG-verðlaunin og var svo himinlifandi að hann hljóp upp á sviðið, lyfti leikkonunni Helen Hunt og sneri henni í hringi. ^ „Eg er svo himinlifandi að hvert líffæri í skrokknum hagar sér ny'ög skrýtilega," lýsti hann yfir. Hann talaði þó ekki bara á gaman- sömum nótum heldur vottaði leik- stjóranum Stanley Kubrick, sem er nýlátinn, virðingu sína og kallaði hann „meistara sem gerði myndir á tungu drauma“. Paltrow, sem leikur ástkonu Shakespeares í Ást- fóngnum Shakespeare, virtist gráti næst þegar hún tók við að eigin sögn alls óvæntum verðlaun- uin. Hún þakkaði árangurinn móð- ur sinni, leikkonunni Blythe Dann- er. Þegar hún var spurð baksviðs hvort hún héldi að myndin gæti haft betur en stríðsmynd Spiel- bergs á afhendingu Oskarsverð- launanna síðar í mánuðinum svar- aði hún: „Það er undir guðunum komið. Ég er kona svo ég kýs Shakespeare fram yfir strákslega stríðsmynd hvenær sem er.“ Kathy Bates var valin besta leik- kona í aukahlutverki fyrir frammi- stöðu sína í Primary Colors. „Ég bjóst ekki við þessu og er yfir mig hrifin, ekki síst vegna allra hinna frábæru bresku leikkvenna," sagði hún og vi'saði til Judi Dench, sem lék Elísabetu drottningu í Ást- föngnum Shakespeare, og Lynn Redgrave, sem lék þernu í Guðum og skrímslum. Það kom ekki síður á óvart þeg- ar Robert Duvall var valinn besti leikari í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í „A Civil Act- ion“ og var tekinn framyfir stór- Ieikarana Billy Bob Thornton, Geoffrey Rush og James Cobum. Besta leikkona i' dramati'skum framhaldsþáttum var valin Juli- anna Marguiles úr Bráðavaktinni annað árið í röð og Sam Waterston úr Lögum og reglu var valinn besti karlleikari. Leikhópurinn úr Bráðavaktinni, vinsælustu fram- haldsþáttum í Bandaríkjunum, sigraði þriðja árið í röð og í fjórða skipti á síðustu fimm áram. Michael J. Fox úr Spin City var valinn besti gamanleikari í fram- haldsþáttum og breska leikkonan Tracey Ullman fyrir frammistöðu sína í þáttunum „Tracey Takes On“. Leikhópurinn í Ally McBeal vann hins vegar í flokki gaman- þátta. Þegar konurnar í þáttunum vom spurðar baksviðs hvernig þær héldu sér í formi svaraði Nicole Carson: „Súkkulaði, kampa- vín og frábært kynlíf.“ Mót.leik- kona hennar Lucy Liu bætti við: „Ekki í þessari röð.“ Leikarinn Christopher Reeve var verðlaunaður fyrir besta frammistöðu í sjónvarpsmynd fyr- ir hlutverk sitt í myndinni „Rear Window" sem er endurgerð sam- nefndrar myndar Hitchcock. Ang- elina Jolie var valin besta leikkona í sjónvarpsmynd fyrir frammi- stöðu sína í Giu. Kirk Douglas var heiðraður fyr- ir æviframlag sitt til kvikmynda en hann hefur Ieikið í 82 myndum, þar á meðal myndum á borð við Spartacus, Lust For Life, Champ- ion og Paths of Glory. „Þegar þeir komast að því að ég var að ljúka við nýja mynd gætu þeir átt eftir að skipta um skoðun," sagði leik- arinn síbrosandi, sem er 82 ára. SAG-verðlaun leikstjóra ", ' . unberto Bemg“> ÍTALSKl leikstjónrm u Nicoletu. Benignimættimeðejg- Spielberg bestur leikstjóra ►STEVEN Spielberg var valinn besti kvikinyndaleikstjóri liðins árs af Samtökum leikstjóra í Bandaríkjunum fyrir stórmynd- ina Björgun óbreytts Ryans. Hann þakkaði föður si'num, Arnold, sem barðist í heimsstyij- öldinni síðari, fyrir að veita sér innblástur við gerð myndarinnar, sem Qallar um leit herdeildar að hermanni innan við óvinalínurnar rétt eftir innrásina í Normandí. Þá bar hann lof á aðra leikstjóra sem voru tilnefndir, einkum ítalska handritshöfundinn, leik- stjórann og leikarann Roberto Benigni sem tilnefndur var fyrir Lífið er fallegt. „Leikstjórar þurfa á innblæstri að halda og leita gjarnan eftir honum hver hjá öðrum,“ sagði hann. „Ég hef sérstaklega fundið innblástur í hreinum, óspilltum lífskrafti Ro- berto Benignis." miiiiimiiiiiiiiiiiiinii i rrn mii mmin i n 11111111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.