Morgunblaðið - 14.03.1999, Síða 41

Morgunblaðið - 14.03.1999, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 14. MARZ 1999 41 AÐALBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR + Aðalbjörg Guð- mundsdóttir fæddist á Gilsár- stekk í Breiðdal 25. nóvember 1908. Hún andaðist á Eskifírði 1. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Eskiíjarðar- kirkju 9. mars. Þegar ég kom í fyrsta sinn í Villinga- holtsskóla hafði hús- móðirin í nógu að snú- ast. Auk heimafólks voru þar komnar eldri dæturnar tvær með fjögur smábörn og átti að skíra það yngsta. Eiginlega var ekki á þennan mannfjölda bætandi þegar eldri sonurinn skaut upp kolli með ókunna stelpu. Þá kom sér vel að allmikið húspláss var í skólanum því að ekki var nú verið að gera ráð fyrir því að ólofaðir unghngar svæfu í sama herbergi. I þessm erli gátu kynni okkar ekki orðið náin, en það breyttist fljót- lega. Annars var Aðalbjörg vön margmenni á heimili, fyrst í for- eldrahúsum á Gilsárstekk, en hún tók snemma mikinn þátt í bústjórn þar vegna veikinda móður sinnar. Síðan á Höfn, þar sem þau hjón bjuggu í þremur herbergjum með fjögur böm og mæður sínar báðar, en gestakomur tíðar. Guðlaug, móðir hennar, dvaldist að mestu á heimili hennar um áratuga skeið og var sjúkhngur síðustu árin, bundin rúmi og hjólastól, og þótt Guðmundur, faðir hennar, ætti heimili á Gilsárstekk hjá syni og tengdadóttur, dvaldist hann einnig oft langdvölum hjá dóttur sinni, og var þai’ alveg síðasta árið sem hann lifði. Mikil umbreyting varð á lífi Aðalbjargar á áranum um 1970. Móðir hennar dó 1965 og faðir 1966. Óli féll óvænt frá 1970 og ár- ið 1972 dó Páll, bróðir hennar og náinn vinur, en um það leyti var síðasta barnið farið að heiman. Eftir það bjó Aðalbjörg ein í stóra húsi á Eskifirði til dauðadags, en naut þar nábýlis við Ragnhildi, dóttur sína, og Árna, mann henn- ar, og barnahópinn þeirra, auk fjölmargi’a góðra vina. Um tvítugsaldur var Aðalbjörg tvö ár í Alþýðuskólanum á Eiðum og minntist þeirra ára, kennara og skólafélaga með mikilli hlýju. Hún hafði enn á síðustu áram samband við fáeina skólafélaga og ánægju- legt var að koma með henni í heim- sókn til fóðurbróður míns, Sigurð- ar Magnússonar á Seyðisfirði, og heyra þau rifja upp minningar sín- ar frá skólaárunum, enda bæði stálminnug og gamansöm. Eitt sumar í æsku vann Aðalbjörg í Gróðrarstöðinni við Laufásveg, ekki síst til að mennta sig í ræktun garðs og blóma, sem lék í höndum hennar alla tíð, eins og sjá mátti. Hún minntist þeirrar dvalar með ánægju en hafði þó ímugust á þétt- býlinu í Reykjavík og var að dómi afkomenda og tengdafólks alltof treg til að koma þangað í heim- sókn og of fljót að drífa sig austur aftur. Hún var mikill Austfirðing- ur og unni átthögunum heitt. Þótt hún skipti sjaldan skapi gat henni hitnað í hamsi þegar talið barst að þeirri óhæfu að drekkja gróður- lendi með virkjunarframkvæmd- um til að knýja stóriðju þar eystra. Ekki kæmi mér á óvart þótt hún hafi glaðst yfir því á síðustu dög- um lífs síns að sú loftbóla virtist vera sprangin, í bili að minnsta kosti. Tengdaforeldrar mínir hófu bú- skap á Höfn í Hornafirði í krepp- unni miðri og bjuggu þar fram yfír stríð. Mjög bjart var yfir þeim ár- um í minningum þeirra og bæði þar og í Villingaholti eignuðust þau vini sem Aðalbjörg hélt sam- bandi við til æviloka. A Höfn og í Villingaholti stunduðu þau dálítinn búskap. Ekki veitti af að drýgja kennaralaunin, en bæði höfðu þau líka yndi af sveitastörfum. í Villingaholti sá Aðal- björg um heimavist og kenndi handavinnu. Aðalbjörg var heilsuhraust alla ævi og hélt óskertum and- legum kröftum til dánardægurs. Hún gat því séð um sig sjálf og stjómað eigin lífi, en auðvitað var henni ómetanlegt að Ragnhildur, dóttir hennar, bjó í nágrenninu og liðsinnti henni með innkaup og fjölmargt annað. Þyrfti hún að bregða sér frá vora vinir og ná- grannar boðnir og búnir til hjálp- ar. Tómstundastarf og félagsstarf aldraðra á Eskifirði var henni mik- ils virði. Þar fékk hún útrás fyrir listhneigð og sköpunarþrá, hitti jafnaldra sína og fór með þeim í skemmtiferðir og heimsóknir sem veittu henni ómælda ánægju og hún hafði gaman af að segja frá. En hún var líka snillingur í þeirri list að vera sjálfri sér næg heima, ýmist með handavinnu, hlustandi á góða tónlist eða talað orð í útvarpi, eða með því að lesa góða bók. Ég vil að lokum þakka tengda- móður minni ómetanleg kynni og gefandi samverastundir í fjóra áratugi. Þegar við fógnuðum með henni níræðisafmæli hennar í haust vorum við viss um að hittast öll aftur að fimm áram liðnum. Hið óvænta lát tengdamömmu var mikið áfaO fyrir okkur og söknuðurinn er mikill, en líklegast hefði hún sjálf kosið sér þennan endi, að skilja við lífið án þess að verða öðrum til byrði. Unnur A. Jónsdóttir. Tengdamóðir mín, Aðalbjörg Guðmundsdóttir, var kona fínleg og ekki há vexti, en í mínum huga var hún mikil kona og stór í snið- um; hún var ráðvönd kona, skyn- söm og skýr í hugsun. Hún fann til með hverjum sem minna mátti sín og hafði til að bera ríka réttlætis- kennd. Það var með mikilli gleði sem böm hennar og tengdaböm hóuðu saman ættingjum til veislu í tilefni af níræðisafmæli hennar í nóvember sl. A þessum tímamót- um var hún enn svo ern og hress að vart hefði nokkurn órað fyrir að kveðjustund væri svo skammt undan. Þegar Aðalbjörg heimsótti okk- ur Rannveigu dóttur sína þar sem við bjuggum á sínum tíma á Sel- fossi hafði hún á því orð að henni þætti mikið óráð að Rafveitan skyldi rjúfa rafstraum á kyndingu tvisvar á dag. Þegar mjög kalt var í veðri kólnaði fljótt svo nær ólíft varð í húsinu. Aðalbjörg stakk þá upp á því að tengdasonurinn sýndi þá sjálfsögðu framtakssemi að tengja fram hjá klukkurofanum í rafmagnstöflunni. Rafveituna munaði ekkert um strauminn. Tengdasonurinn reyndi að útskýra að samningar væra samningar og þar að auki væri ekki leyfilegt að fikta sjálfur við rafmagnið. Það stóð ekki á svari hjá konu sem mátti muna tímana tvenna: Ef þú verður gripinn skaltu bara segja að það hafi verið ég sem aftengdi klukkuna. Að tengdamóður minni stóðu sterkir stofnar í báðar ættir. Aðalbjörg Guðmundsdóttir var af bændaættum og kunni góð skil á ættmennum sínum úr Breiðdal og víðar að á Austfjörðum og norðan úr landi. Ræddum við oft saman í seinni tíð um þá einstaklinga sem henni höfðu verið samtíða á lífs- leiðinni, þó svo margir þeirra hefðu verið gengnir löngu fyrir mitt minni. Hún hélt góðu sam- bandi við sitt fólk og skrifaðist á við margt af því sem fjarri bjó, ásamt því að halda sambandi við kunningja um allt land. Fyrir jól vora jafnan miklar annir hjá henni og Ragnhildi, dóttur hennar á Eskifirði, því enginn mátti gleym- ast sem hún vildi gleðja með jóla- kveðju eða gjöf. Þá var Aðalbjörgu alla tíð mjög umhugað um hag ömmubarnanna og langömmu- bama eftir að þau komu til, og var ævinlega með eitthvað á prjónun- um sem smáfólkinu var ætlað. Aðalbjörg missti mann sinn, Ola Kristján Guðbrandsson kennara, sumarið 1970, ekki löngu eftir að við Rannveig dóttir hennar tókum saman. Ég hafði fyrst hitt hann í heimsókn á Eskifjörð ári fyrr, en stundaði sjó frá Eskifirði þetta sama sumar, og hafði þá kynnst Óla Kristjáni nægilega til þess að ég gerði mér þess Ijósa grein hví- líkur mannkostamaður hann var. Missir Aðalbjargar var mikill og bar hún harm sinn með reisn sem ósjálfrátt kom manni til að hugsa um hinar stoltu formæður íslend- inga sem segir frá í gömlum sög- um, og þá grímu sem þær bragðu jafnan yfir ásjónu sorgarinnar. Það kann auðvitað líka að hafa valdið nokkra um að formæður komu í hug, að aldursmunur var mikill með okkur tengdamóður minni, hún stóð á sextugu árið sem ég sá hana fyrst og var ég þá rétt tvítugur. Allt kynslóðabil okkar i millum gufaði þó upp við nánari kynni og hefur vinátta okkar orðið meiri og dýpri með hverju ári sem hefur liðið. Fyrir rúmum tuttugu árum fluttum við Rannveig úr höf- uðborginni, og hún gerðist skóla- stjóri Villingaholtsskóla í Flóa, þar sem þau Óli Kristján Guðbrands- son og Aðalbjörg Guðmundsdóttir höfðu ráðið húsum sautján áram fyrr, frá 1948 til 1960, þegar hann var þar skólastjóri eftir að hafa gegnt sama starfa á Homafirði. Aðalbjörg hafði bæði veitt forstöðu heimavist og mötuneyti skólans og verið í stjóm kvenfélags sveitai'- innar um árabil. Við tókum því í arf eftir þau Aðalbjörgu og Óla góðvild og kærleika eldri sem yngri sveitunga. Hennar gömlu vinkonur tóku okkur opnum örm- um og það urðu ævinlega fagnað- arfundir þegar hún var á ferð hjá okkur í sveitinni og fékk tækifæri til að hitta þær Laufeyju í Kotinu, Grétu í Villingaholti, Oddnýju í Ferjunesi og marga fleiri. Sérstak- lega verður mér minnisstæð heim- sókn okkar til þeirra Samúels og Stefaníu í Þingdal þegar hann vildi skála við okkur í kínversku rauð- víni sem þessi rómaða bindindis- kona fékkst loks til að bragða eftir miklar fortölur, blandað vatni að hálfu. Þrátt fyrir að Aðalbjörg væri tekin að reskjast þegar við kynnt- umst verður það að segjast eins og er að undirritaður átti fullt í fangi með að hafa við henni þar sem hún hljóp upp brekkurnar á Eskifirði þegar skroppið var á berjamó að hausti. Hún var að vísu hætt að hlaupa brekkumar undir það síð- asta, en ekki era samt ýkja mörg ár síðan hún sagði mér síðast að hún hefði brugðið sér upp í fjall. Það var okkur öllum mikil gæfa að Aðalbjörg skyldi fá að lifa það að verða svo gömul og fá að vera jafn ern og frísk sem raun bar vitni til síðasta dags, ekki síst skipti það Rannveigu miklu sem yngsta bai-n þeirra Aðalbjargar og Ola Krist- jáns, þótt auðvitað hefðum við öll viljað að árin yi-ðu miklu fleiri. Söknuðurinn eftir Aðalbjörgu er mikill en við getum huggað okkur við að hún fékk hægt andlát sem kom bæði snöggt og óvænt eins og hún hefði sjálf kosið. „Þegar þú fæðist þá grætur þú en aðrir gleðj- ast; þegar þú deyrð þá gleðst þú en aðrir gráta,“ sagði hún eitt sinn við nöfnu sína og sonardóttur. Lát- um þau orð verða okkur öllum huggunarorð. Blessuð sé minning Aðalbjargar Guðmundsdóttur. Rúnar Ármann. + Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA LÁRUSDÓTTIR RIST, lést á Landspítalanum að morgni 9. mars. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. mars kl. 13.30. Lena Margrét Rist, Anna Fjóla Gísladóttir, Hadda Björk Gísladóttir, Elfa Lilja Gísladóttir, Edda Sólveig Gísladóttir, og barnabarnabörn. Gísli B. Björnsson, Karl G. Kristinsson, Einar Sigurðsson, Gunnar Th. Sigurðsson + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANNES GUÐJÓNSSON, skipstjóri, frá Ökrum, Skólabraut 28, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðju- daginn 16. mars kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis. Fjóla Guðbjarnadóttir, Bjarni Jóhannesson, Ingiríður Jóhannesdóttir, Björn Gunnarsson, Guðjón Jóhannesson, Anna Sigurjónsdóttir, Guðný Jóhannesdóttir, Hjörleifur Jónsson, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, Ari Jóhannesson barnabörn og barnabarnabarn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR LONG BERGSVEINSSON verslunarmaður, Hjallalundi 3c, Akureyri, sem lést mánudaginn 8. mars sl., verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 16. mars kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Guðbjörg Sigfúsdóttir, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Sigurður K. Einarsson, Þorgerður Einarsdóttir, Valdís Vera Einarsdóttir, Óskar Long Einarsson og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GISSUR KARL GUÐMUNDSSON, Rjúpnahæð 8, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 16. mars kl. 13.30. Gerda M.C. Guðmundsson, Guðmundur Hans Gissurarson, Magdalena S. Gissurardóttir, Ragnar Guðsteinsson, Kristín Gissurardóttir, Karl Gissurarson, Ari Gissurarson, Árni Óskar Gissurarson, og barnabörn. Gunnar Friðjónsson, Elín Dóra Elíasdóttir, Inka Spiller, + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR KRISTINN ÁRMANNSSON endurskoðandi, Goðheimum 17, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 9. mars verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðjudaginn 16. mars kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigrún Guðmundsdóttir, Ármann Sigurðsson, Margrét Guðmundsdóttir, Anna Sigurðardóttir, Guðmundur Björnsson barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.