Morgunblaðið - 14.03.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. MARZ 1999 55
FÓLK í FRÉTTUM
ROBERT
AÐ ÞESSU sinni verður
fjallað um snilling sem er
almenningi lítt kunnur, ef
ekki gjörsamlega ókunn-
ur. Robert Rossen, (1908-
’66), skildi eftir sig eina
af bestu myndum aldar-
innar, auk þess níu til við-
bótar, sem flestar eru
langt yfír meðallagi.
Hann varð skammiífur,
það var þó ekki eina
ástæðan fyrir litlum af-
köstum hans, heldur ekki
síður hinar illræmdu,
pólitísku „nornaveiðar"
sem kenndar eru við for-
sprakkann, þingmanninn
Joseph McCarthy. Hann
stóð fyrir kommúnistaveiðum frá
því á síðari hluta fimmta áratug-
arins í hartnær áratug. Þetta var
skelfíngartími þar sem fjöldi
listamanna var kallaður fyrir „O-
amerísku nefndina“, sem ýmist
rústaði feril þeirra eða lamaði
um langvarandi skeið og margir
urðu að flýja land. Það er hollt
að rifja upp átakanlega sögu
hinna ógæfusömu listamanna,
sem Rossen er svo ágætur sam-
nefnari fyrir.
Rossen hóf störf í skemmtana-
iðnaðinum á fjölum Broadway á
þriðja áratugnum. Skrifaði og
leikstýrði hvössum þjóðfélagsá-
deilum, sem gjarnan endurspegl-
uðu vinstrisinnaðar skoðanir
hans. Þær urðu honum þó ekki
fjötur um fót, Warner Bros gerði
mikið af orðhvössum og áleitnum
myndum um þetta leyti, og þeir
buðu honum vestur. Rossen féll
vel í kramið og varð á skömmum
tíma einn virtasti handritahöf-
undur kvikmyndaversins. Fyrstu
verk hans voru Marked Woman
og They Wont Forget, bæði
frumsýnd ‘37. Nokkur fleiri at-
hyglisverð handrit hans voru
kvikmynduð hjá Warner, áður en
Rossen gerðist sjálfstæður höf-
undur og seldi hæstbjóðendum á
fimmta áratugnum. Meðal þeirra
verka voru A Walk in the Sun,
(20th Century Fox, ‘45), og The
Strange Love of Martha Ivers
(Paramount, ‘46), leikstýrði Lew-
is Milestone þeim báðum.
Þegar hér var komið sögu
voru fílm noir myndir að ná
óhemju vinsældum. Rossen var
réttur maður á réttum tíma og
fylgdi í fótspor Hustons, Wilders
o.fl. góðra manna, og fór sjálfur
að leikstýra handritum sínum. Sú
fyrsta var Johnny O’Clock, ‘47,
við næsta verkefni fékk hann að-
stoð Abrahams Polonsky (McC-
arthy rústaði vænlegan feril hans
síðar), úr varð hnefaleikamyndin
góða, Body and Soul, (‘47). Næst
kom hin fræga ádeila, All the
King’s Men, (49), síðan nautaats-
myndin The Brave Bulls, (‘51), þá
varð Rossen að flýja föðurlandið
undan þrýstingi á hann og ýmsa
hans nánustu samstarfsmenn.
Við tók Mambo, (‘54), lítilsigld,
ítölsk mynd, en næsta verk hans
þar í landi var Alexander the Gr-
eat, (‘56), ein besta búningamynd
áratugarins. Þá var röðin komin
að Island In the Sun, (‘57), stór-
mynd sem varð vinsælasta mynd
leikstjórans í útlegðinni, og þeir
hjá Fox réttu honum Hustler upp
í hendurnar.
Svo við höldum áfram sorgleg-
um viðskiptum Rossens við
McCrthy og Ó-amerísku nefnd-
ina, þá gekk Rossen, þá ungur
rithöfundur á uppleið, í Komm-
únistaflokk Hollywood árið 1936,
ásamt fjölmörgu vinstrisinnuðu
listafólki í kvikmyndageiranum.
Þetta var á kreppuárunum og
„rauðir“, nutu þá um sinn nokk-
urra vinsælda í neðanjarðar-
PAUL Newman sýndi sinn besta leik á
glæsilegum ferli í The Hustler, þá var
Rossen fallinn í ónáð.
menningarheimi vesturstrandar-
innar. Þessi flokksskráning átti
eftir að draga dilk á eftir sér
seinna meir. Pólitískar skoðanir
hans komu einnig fram í handrit-
um hans frá fimmta áratugnum,
þau fjölluðu gjarnan um félags-
Ieg vandamál, ógnina af einræði
og valdbeitingu. 1944 komst
Rossen hins vegar í andstöðu við
skoðanir flokksins, og sagði al-
gjörlega skilið við hann. Tók sér
ársfrí í New York, sneri síðan
aftur til Hollywood og skar á öll
tengsl við Kommúnistaflokkinn.
Honum tókst þó ekki að hrista
fortíðina af sér. Rossen var kall-
aður fyrir nefndina 1947, yfir-
heyrslunum lauk þá skyndilega
með sakfellingu „Hollywood tug-
arins“, fræga, og Rossen fékk
aftur vinnufrið. 1951 var hann
aftur kallaður fyrir þessa ill-
ræmdu þingnefnd, þar sem vitni
báru kennsl á hann sem fyrrver-
andi flokksmeðlim. Rossen neit-
aði að vera lengur í nokkru sam-
bandi við komma en neitaði að
B-LEIKARlNN Broderick CRAWFORD varð fræg-
ur á einni nóttu fyrir Óskarsverðlaunaleik sinn í All
the King’s Men.
asta og besta hlutverki sínu, sem
ballskákarsnillingurinn og
bragðarefurinn „Fast“ Eddie
Felson. Hann fæst við stóra
kalla og litla á borðinu, en fær
annað sjónarhorn er hann verð-
ur ástfanginn af Laurie. Auka-
leikaraliðið er með afbrigðum
gott með Gleason í fararbroddi í
hlutverki Minnesota Fats, og
það gustar af Scott í umbahlut-
verkinu. Niðurdregið meló-
drama en áhrifamikið með stór-
góðum ballskákarsenum í sér-
lega mögnuðu andrúmslofti ball-
skákarsalanna þar sem allt snýst
um að sigra eða tapa. Rossen
lætur verkið hreinlega lykta af
hnignun og undirferli.
ROBERT Rossen við tökur á nautaatsmyndinni The
Brave Bulls, ásamt litla nautabananum Mel Ferrer.
ALL THE KING’S MEN, (‘49)
Frægasta mynd Rossens (hlaut
Óskarsverðlaunin sem besta
mynd ársins), er sígild dæmi-
saga um pólitíska .spillingu og
andlega hnignun. Broderick
Crawford (fékk Óskarsverðlaun-
in fyrir fyrsta mannsæmandi
hlutverk sitt), leikur óaðfinnan-
lega góðan dreng sem lætur
ginna sig út í borgarstjómar-
Sígíld myndbönd
vitna eða benda á gamla félaga
og lenti því í útskúfun „svarta
listans“.
Rossen hélt það út í tvö ár, at-
vinnulaus og vinafár. Þá samdi
hann við nefndina og gaf þeim
upp nöfn 50 gamalla félaga. Nú
gat hann unnið aftur, en för hans
var aldrei heitið til Holly wood
eftir þetta. Gerðist hann einrænn
og vinir hans lýstu honum sem
örvingluðum manni. Þá hélt hann
til Evrópu.
Við upphaf sjöunda áratugarins
sýndi Rossen hvað enn lúrði innra
með þessum þjáða listamanni, og
sendi frá sér The Hustler, sem fór
sigurför um heiminn. Af augljós-
um ástæðum náði hún þó ekki að
setja mark sitt á Óskarsverð-
launaafhendinguna það árið, sem
hún átti þó fyllilega skilið. Iðnað-
urinn er lengi að fyrirgefa. And-
staðan tók mikið á Rossen, sem
gerði aðeins eina mynd eftir
þetta, Lilith, (‘64), sem hvorki
hlaut náð fyrir augum banda-
rískra gagnrýnenda né almenn-
ings. Hann dó tveimur árum síð-
ar, friðlaus maður.
THE HUSTLER, (‘61)
kosningar - og vinnur. Síðar nær
hann kosningu sem ríkisstjóri.
Vandi fylgir vegsemd hverri,
valdið spillir manninum og að
endingu hefur hann rústað sitt
eigið líf og allra sinna nánustu.
Mercedes McCambridge, sem
eiginkona Crawfords, hlaut
einnig Óskarsverðlaunin.
BODY AND SOUL, (‘47)
Newman hefur ekki í annan
tíma verið betri en íþessu fræg-
Kvikmyndasagan lúrir á
nokkrum sígildum myndum um
hina umdeildu „íþrótt“, hnefa-
leika. Ein sú besta er þessi fá-
séða mynd um ungan boxara
sem notar öll meðul til að kom-
ast á toppinn. John Garfield er
algjörlega ófyrirleitinn í þessu
skólabókardæmi um mannlega
niðurlægingu, meistarinn hans
er eftirminnileg persóna. Vann
til nokkurra Óskarsverðlauna,
þ.á m. James Wong Howe fyrir
kvikmyndatöku - hann fékk í lið
með sér nokkra atvinnuíþrótta-
fréttamyndatökumenn með
handstýrðar tökuvélar og ár-
angurinn var byltingarkenndur.
Sígild.
Sæbjörn Valdimarsson
Fast i apotekum og snyrti-
vöruverslunum um land allt
________I Ath. naglalökk frá Trend fást í tveimur stærðum
Ath. Andlitskremin frá Trend fást i tilboðspakkningum.
Leitið upplýsinga. Útsölustaðir: Ingólfsapótek, Kringlunni,
Rima Apótek, Grafarvogi.
Nýjung! Þýsk gæðavara
Ekta augnahára- og augnabrúnalit-
ur, er samanstendur af litakremi og
geli sem blandast saman, allt í ein-
um pakka. Mjög auðveldur í notk-
un, fæst í þremur litum og gefur
frábæran árangur.
Útsölustaðir: Apótek og
snyrtivöruverslanir
ATH. nú! Frá Tana Maskara Stone. Þessi (svarti) gamli góði með stóra
burstanum. Uppl. í smáblaði sem fylgir augnbrúnalitnum.
TANA Cosmetics Einkaumboð: S. Gunnbjörnsson ehf., s. 565 6317
«t
ROSSEN