Morgunblaðið - 30.03.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 30.03.1999, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þingmenn fresta framkvæmdum í Vattarnesskriðum í ljósi umræðna um hugsanleg jarðgöng á Austfjörðum Fjárveiting- notuð í Kambaskriður Morgunblaðið/Golli Forsetinn setti skíðalandsmótið ÞINGMENN Austurlands ákváðu á fundi sem þeir héldu um úthlut- un viðbótarfjár til vegamála að færa fjárveitingu sem nota átti næsta vetur til framkvæmda við veginn um Vattarnesskriður í undirbúning framkvæmda í Kambaskriðum. Er þetta gert í ljósi umræðna um hugsanleg jarð- göng milli Fáskráðsfjarðar og Reyðarfjarðar en þau munu gera framkvæmdir í Vattarnesskriðum óþarfar. Samkvæmt vegaáætlun átti að verja 85 milljónum til endurbóta á veginum um Vattarnesskriður og var fyrirhugað að bjóða verkið út í haust. Síðar er áætlað að leggja 175 milljónir kr. í veginn um Handarhald á Sléttuströnd í Reyðarfirði en báðar þessar framkvæmdir verða óþarfar ef jarðgöng koma milli Reyðarfjarð- ar og Fáskrúðsfjarðar. Lítið fjár- magn er hins vegar ætlað til vegagerðar í Kambaskriðum, á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdals- víkur. Verður hægt að hefja þær framkvæmdir með peningunum sem merktir voru Vattar- nesskriðum. Arnbjörg Sveins- dóttir alþingismaður sem flutti á dögunum tillögu til þingsályktun- ar um undirbúning umræddra jarðganga segir að með ákvörðun þingmanna kjördæmisins sé gef- inn kostur á endurskoðun ákvörð- unar um lagningu vegar um Vatt- arnes, í samræmi við umræðu um jarðgöng. Spurð að því hvort hún líti á ráðstöfunina sem fyrirheit um að jarðgöng milli Fáskráðs- fjarðar og Reyðarfjarðar verði fyrsti kostur í gangagerð á Aust- urlandi segir Arnbjörg að menn vilji að minnsta kosti skoða málið út frá þessum forsendum. Samþykkt langtímaáætlun Tillaga Ambjargar um undir- búning jarðganga á Austurlandi var afgi’eidd á síðustu dögum þingsins. Við afgreiðslu hennar tók samgöngunefnd þingsins mjög mið af tillögu Magnúsar Stefánssonar o.fl. um langtíma- áætlun í jarðgangagerð. Niður- staðan varð sú að fela samgöngu- ráðherra að vinna langtímaáætlun um gerð jarðganga á Islandi: „Aætlunin feli í sér úttekt á kost- um sem taldir eru á jarðganga- gerð á landinu, kostnaðarmat og arðsemismat einstakra fram- kvæmda og forgangsröðun verk- efna. Sérstaklega verði horft til framkvæmda sem rjúfa vetrarein- angrun, koma í stað annarrar kostnaðarsamrar vegagerðar, stytta vegalengdir eða stækka at- vinnusvæði. Aætlunin liggi fyrir áður en lokið verður við næstu reglulegu endurskoðun vegaáætl- unar.“ „Mér líst vel á þetta. Með til- löguflutningi mínum náðist fram mikil samstaða meðal Austfirð- inga um að jarðgangagerð á Aust- urlandi skuli hefjast með göngum milli Reyðarfjarðar og Fáskráðs- fjarðar. Þá er byrjað að ræða jarðgangagerð á Islandi af fullri alvöru á nýjan leik,“ segir Ai-n- björg. ■ Framkvæmdum flýtt/12 ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Islands, setti Skíðamót Islands í troðfullri Isafjarðar- kirkju í gærkvöldi og er þetta í fyrsta sinn sem forseti lýðveld- isins setur skíðalandsmót. Upphaflega átti mótssetning- in að fara fram á Silfurtorgi en vegna veðurs var ákveðið að fara með athöfnina inn í kirkj- una. Snjókoma og skafrenning- ur var á Isafirði í gær og varð að fresta fyrstu grein lands- mótsins, skíðagöngu karla og kvenna, til dagsins í dag. 60 ar eru liðin síðan Skíða- mót Islands var fyrst haldið á Isafírði. Undirbúningur móts- ins hefur staðið í nokkra mán- uði og hafa heimamenn lagt metnað sinn í að gera mótið sem glæsilegast. 130 keppend- ur taka þátt í mótinu og þar af eru 20 erlendir, frá sjö þjóðum. í dag verður keppt í alpagrein- um og göngu, en mótinu lýkur fímmtudaginn 1. apríl en þá tekur við Skíðavika á Isafírði. Frjálslyndi flokkurinn Sverrir fram í Reykjavík SVERRIR Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, verður í efsta sæti á lista flokksins í Reykjavíkur- kjördæmi við alþingiskosningarnar í vor, en Guðjón A. Kristjánsson skip- stjóri verður í efsta sæti á lista flokksins í Vestfjarðakjördæmi. Sverrir staðfesti þetta við blaða- mann Morgunblaðsins í gær. Hann segir að gengið verði frá nítján efstu sætum listans í Reykjavík í dag. Valdimar Jóhannesson, fyirverandi blaðamaður, verður í efsta sæti á framboðslista flokksins í Reykjanes- kjördæmi, en í öðru sæti verður Grétar Már Jónsson skipstjóri, Sandgerði. Guðjón A. Kristjánsson skipstjóri skipar fyrsta sæti framboðslista flokksins á Vestfjörðum og Pétur Bjarnason fræðslustjóri skipar ann- að sæti. Þá verður Sigurður R. Þórð- arson, matvælafræðingur í Reykja- vík, efsti maður á iista flokksins á Vesturlandi en Kjartan Eggertsson, tónlistarstjóri í Ólafsvík, verður i öðru sæti. Sigfús Jónsson á Söndum fer fyrir lista flokksins í Norður- landskjördæmi vestra og Guðmund- ur W. Stefánsson, bóndi á Vopna- firði, verður í forystu fyrir lista flokksins í Austurlandskjördæmi. Æfa golf í Eyjum NÚ er runninn upp sá tími árs þegar íslenzkir kylfingar flykkjast til sólaríanda til að iðka íþrótt sína. En meðlimir unglingalandsliðs íslands töldu sig ekki þurfa að leita jafn langt til æfinga því þeir brugðu sér til Vestmannaeyja til að búa sig undir keppnis- tímabilið. Morgunblaðið/Sigurgeir Áform um sameiningu Alusuisse-Lonza og VIAG fóru út um þúfur Alusuisse-Lonza áfram í sviss- neskum höndum ZUrich. Morgunblaðið. ÁFORM um sameiningu sviss- neska fyrirtækisins Alusuisse- Lonza, eiganda ÍSAL, og VIAG í Þýskalandi fóru út um þúfur í gær. VIAG tilkynnti Alusuisse að yfir- ráð fyrirtækisins hefði samþykkt að hlutur hluthafa Alusuisse í nýja fyrirtækinu yrði 32,5% en ekki 35% eins og Alusuisse hafði reiknað með. Stjómendur svissneska fyrir- Breikkun Reykjanesbrautar JVJ ehf. bauð lægst JVJ ehf. Hafnarfirði átti lægsta tilboðið í framkvæmdir Vega- gerðarinnar við breikkun Reykjanesbrautar frá Nýbýla- vegi að Fífuhvammsvegi. Fimm tilboð bárust í malbikun og steypu og fjögur að auki í malbikun eingöngu. JVJ ehf. bauð tæpar 187 millj. í malbikun og rúmar 205 millj. í steypu. Kostnaðaráætlun er tæpar 245 millj. í malbikun og rúmar 258 millj. í steypu. Hæsta boð átti ístak hf. sem bauð 290 millj. í malbikun og rúmar 311,7 millj. í steypu. tækisins ákváðu umsvifalaust að hætta við sameiningu fyi-irtækj- anna. Fréttir fyrir helgi hermdu að vafi léki á sameiningu. Theodor M. Tschopp sagði af sér sem stjórnar- formaður Alusuisse á fundi stjórn- arinnar á sunnudag og á mánudag var talið víst að mannabreytingar í stjórninni myndu auðvelda samein- ingu fyrirtækjanna. Martin Ebner, stóreigandi í Alusuisse, er fyrir- hugaður eftirmaður Tschopps. Hann sagði í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi, að Alusuisse myndi halda sínu striki og keppa áfram að því að vera best á sínu sviði. Framleiðslusvið Alusuisse og VIAG eiga vel saman en margir hafa efast um að rekstur fyrirtækj- anna ætti saman. VIAG er enn að hluta til ríkisfyrirtæki í Bæheimi en Alusuisse hefur ávallt verið einkafyrirtæki. Bæði fyrirtækin halda fundi með fréttamönnum í í dag SfjiíjirtijfiiattPTOP I Barcelona á leiðinni til Kænugarðs/B13 Geir og Júlíus til liðs við Valsmenn/B1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is A ÞRIÐJUDÖGUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.