Morgunblaðið - 30.03.1999, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURLANDSBRAUT verður tvöfölduð á kafla í sumar og umferðar-
ljós sett upp við gatnamót Álfheima og Paxafens. Að auki verður ráð-
ist í gerð undirganga undir Skeiðarvog.
Suðurlands-
braut tvöfölduð
Undirgöng undir Skeiðarvog'
BREIKKUN Suðurlandsbrautar
frá Grensásvegi að Skeiðarvogi
þannig að hún verður tvöfölduð
verður boðin út á næstunni. Að sögn
Sigurðar Skarphéðinssonar gatna-
málastjóra er einnig verið að undir-
búa undirgöng íyrir fótgangandi
undir Skeiðai*vog og verður sú
framkvæmd boðin út síðar í vor. A
framkvæmdaáætlun borgarinnar er
gert ráð íyi-ir um 110 milljónum til
þessara framkvæmda, sem ljúka á
við fyrir 1. september n.k.
Sigurður sagði að samþykkt hefði
verið að setja upp götuljós við
gatnamót Suðurlandsbrautar og
Alfheima og við gatnamót Faxafens
og Suðurlandsbrautar en þau
gatnamót væru með þeim erfiðustu
í borginni. „Við ætlum að ganga í
fráganginn umhveríis Suðurlands-
braut og lagfæra verulega göngu-
leiðir," sagði Sigurður. „Eg reikna
með að jafnvel verði tekið af fjár-
veitingu sem ætluð er til göngu-
stíga. Síðan erum við að undirbúa
undirgöng fyrir gangandi undii'
Skeiðarvog rétt við hringtorgið en
þetta er mjög íjölfarin gönguleið.
Þau göng verða boðin út í vor og
ætlum við að notfæra okkur að
Skeiðarvogur lokast fljótlega vegna
framkvæmda við mislægu gatna-
mótin við Miklubraut. Verður lokað
fyrir alla umferð þar innan
skamrns."
Undirskriftir á Kjalarnesi
Mótmæla banni við
hundahaldi
MEIRIHLUTI kosningabærra
íbúa Kjalarness hefur undirritað
mótmæli gegn hugmyndum um
bann við hundahaldi á Kjalarnesi en
drög að breyttri samþykkt um
hundahald í Reykjavík og Kjalar-
nesi hafa verið lögð fram í borgar-
ráði.
Ibúamir krefjast þess að við end-
urskoðun samþykktarinnar verði
tekið tillit til þeirra reglna um hunda-
hald sem giltu í Kjalameshreppi fyr-
ir sameiningu við Reykjavík og
þeirra aðstæðna sem ríkja í dreifðri
byggð Kjalamess, eins og fyrirheit
voru gefin um f'yrir sameiningu sveit-
arfélaganna. Ennfremui' er marg-
faldri hækkun hundaeftirlitsgjalds
mótmælt og farið fram á að veittur
verði afsláttur af gjaldinu á svæði of-
an við Leirvogsá líkt og fordæmi era
fyrir um gatnagerðargjöld.
Til sölu MMC Pajero V6 3000, árgerð 1995, bensín, 5 dyra,
sjálfskiptur. Ekinn 69.000 km. Ásett verð kr. 2.580.000, skipti á
ódýrari. Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi Heklu í
símum 569 5500 og 569 5660.
opnunartími:
mánud.- föstud. kl. 9-18,
laugardagar kl. 12-16.
uiiapii i icr\iu i
BÍLAÞING HEKLU
W O T A Ð I R Jmm B í L A R
LAUGAVEGI 174 • SlMI 569 5660 • FAX 569 5662
Umferðarljós
verða sett upp
Undirgöng
i undir-
ii> únvAiiD Á iu iniAtíou (i>r,r,AK,
WWW.IH r, L A »I s
MK-flugfélagið bíður leyfís til Bandaríkjaflugs
Sótt um leyfí til frakt-
flugs fyrir rúmu ári
MK-flugfélagið, sem stundar
leiguflug með frakt með tveimur
DC-8-þotum, sótti fyrir ári um
leyfi til leiguflugs með frakt milli
Islands og Bandaríkjanna en hef-
ur enn ekki fengið heimild sam-
gönguráðuneytisins til flugsins
þrátt fyrir að hafa gild flugi-ekstr-
arleyfi og flugrekendaskírteini.
Ingimar Ingimarsson, fram-
kvæmdastjóri MK-flugfélagsins,
telur ráðuneytið ekki hafa efnis-
leg rök til að neita félaginu um
leyfið.
„Þetta stendur í svolitlu stappi
því við sóttum um leyfi til flugs
milli Islands og Bandaríkjanna 25.
mars í fyrra og við bíðum enn og
sjáum engin rök fyrir því svari
ráðuneytisins að við uppfyllum
ekki skilyrði til flugsins, lögfræð-
ingar okkar telja þau rök ekki gild
og tetja neitun ráðuneytisins
stangast á við íslensk lög,“ sagði
Ingimar í samtali við Morgunblaðið
í gær. Ingimar segii' að samkvæmt
loftferðasamningi Bandaríkjanna
og Islands geti yfirvöld landanna
tilnefnt flugfélög til að sinna frakt-
flugi og megi þau tilnefna eins
mörg félög í hvoru landi og þau
kjósi. Slík leyfi hafi Flugleiðir, Atl-
anta og nú síðast Islandsflug.
Hann segir bandarísk yfirvöld hafa
tilnefnt öll bandarísk félög, sem
hafi flugrekstrarleyfi, til flugs milli
landanna og hafi í bréfi til ís-
lenskra yfirvalda boðið þeim að
gera það einnig.
Verkefni í Afríku og
Suður-Ameríku
„Þar sem við höfum öll leyfi
skiljum við ekki af hverju íslensk
yfirvöld geta ekki veitt öllum ís-
lenskum flugfélögum sams konar
heimild og Bandaríkjamenn hafa
veitt sínum félögum. Við höfum
undirbúið málið bæði hér og
vestra og viðskiptamenn okkar
bíða bara eftir að við getum hafist
handa,“ sagði Ingimar ennfremur.
„En ég get ekki annað en verið
bjartsýnn á að leyfið fáist á næst-
unni.“
MK-flugfélagið á eina DC-8-þotu
og leigir aðra og eru þær báðar
búnar hljóðdeyfum. Á nægtunni á
að ganga í gildi bann í Evrópulönd-
um við flugi á þotum af þessari
gerð nema þeim sem fyrir ákveð-
inn tíma hafa verið búnar hljóð-
deyfum. Þotur MK-félagsins era
nú í fraktverkefnum milli Evrópu
og Afríkulanda og þaðan til landa í
Suður-Ameríku. Segir Ingimar að
um leið og leyfi fáist. til flugs frá Is-
landi til Bandaríkjanna verði þot-
umar gerðar út frá íslandi og segir
hann verkefni verða næg fyrir þær.
Hefur félagið m.a. gert Flugleiðum
tilboð um að annast fraktflugið
sem félagið stundar nú milli Is-
lands og Evrópu með sérstakri
fraktvél. Þegar leyfi til Bandaríkja-
flugsins fæst segir Ingimar ráðgei't
að hafa daglegar fraktferðir milli
landanna.
„ Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
SYSLUMAÐUR V-Skaftafellssýslu ásamt tveim hinna ákærðu gekk á vettvang ákæru
í gær með veijanda og dómara.
Réttað í Víkurskála í Vík í gær
Lausaganga
hrossa orðin að
dómsmáli
AÐALMEÐFERÐ í ákæramáli
sýslumannsins í V-Skaftafellssýslu
gegn ábúendum á svokallaðri Sól-
heimatorfu, sem eru bæirnir Ytri-
Sólheimar II og III, Eystri-Sól-
heimar og Framnes í Mýrdals-
hreppi, vegna lausagöngu hrossa,
lauk í gær í Vlk í Mýrdal.
Málið var höfðað með ákæru dag-
settri hinn 10. nóvember og hafði
sýslumaður sent ábúendum um-
ræddra bæja áminningu vegna
lausagöngu hrossanna áður en
ákæran var gefin út.
Málsaðilar fóru á vettvang í gær
og skoðuðu aðstæður í nágrenni
Jökulsár á Sólheimasandi og að því
loknu hófust vitnaleiðslur og mál-
flutningur í Víkurskála, sem leigð-
ur var til réttarhaldanna. Búist er
við dómsniðurstöðu innan fárra
vikna.
Rafmagnsgirðing biluð
Að sögn Sigurðar Gunnarssonar,
sýslumanns, er ekki girt meðfram
þeim þjóðvegarkafla, sem land um-
ræddra bæja liggur að, en sett hef-
ur verið upp rafmagnsgirðing, sem
hefur verið biluð með þeim afleið-
ingum að hross fara jafnóðum yfir
hana aftur eftir að hafa verið rekin
inn fyrir hana.
Að sögn Sigurðar er girt á flest-
um stöðum meðfram þjóðveginum í
sýslunni þar sem vegurinn liggur í
gegnum gróðurlendi en á gróður-
snauðum svæðum, svo sem á Mýr-
dalssandi, í Eldhrauni og á Skóga-
sandi sé ekki girt. Hann segir að
ekki hafi hafi orðið slys af völdum
hrossaákeyrslna en engu að síður
gerist það einu sinni til tvisvar á ári
að ekið sé á hross í sýslunni.
Talsmaður ákærðu kaus að tjá sig
ekki um málið að svo komnu máli er
Morgunblaðið leitaði álits ákærðu í
málinu.
Dómari í málinu er Olafur Börkur
Þorvaldsson, héraðsdómari og verj-
andi ákærðu er Páll Arnór Pálsson
hæstaréttarlögmaður.
Skarpheðinn
Þórisson
skipaður rík-
islögmaður
FORSÆTISRÁÐHERRA hef-
ur skipað Skarphéðin Þórisson,
hæstaréttarlögmann, í embætti
ríkislög-
manns frá og
með 1. maí
næstkom-
andi.
Skarphéð-
inn Þórisson
er fæddur
16. nóvem-
ber ái'ið 1948
og lauk embættisprófi í lög'
fræði frá lagadeild Háskóla Is-
lands árið 1973 og lagði efth'
það stund á framhaldsnám \
Noregi. Hann öðlaðist réttindi
til málflutnings fyrir héraðs-
dómi 1975 og fyrir hæstarétti
árið 1980.
í tilkynningu frá forsætis-
ráðuneytinu kemur fram, að
Skarphéðinn hefur frá árinu
1974 haft lögmannsstörf að aðal-
atvinnu og frá árinu 1979 rekið
eigin lögmannsstofu í samvinnu
við aðra. Þá hefur hann setið í
nokkrum nefndum, ráðum og
stjórnum á vegum stjórnvalda
og lögmannafélagsins.