Morgunblaðið - 30.03.1999, Síða 12

Morgunblaðið - 30.03.1999, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Sjöður AP Muller styrkir íslenska námsmenn 21 sttídent fékk tæpar þrjár milljónir FRÉTTIR Morgunblaðið/Ái*ni Sæberg f TÖLVUHERBERGINU. Frá hægri: Dögg Pálsdóttir, stjdrnarmaður í Skráningarstofunni, Haraldur Jo- hannessen formaður, Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra og Karl Ragnars forstjóri. Skráningarstofan í nýtt húsnæði Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. SJOÐUR AP M0ller fyrir íslenska stúdenta í framhaldsnámi í Kaup- mannahöfn afhenti í vikunni 21 stúdent samtals 250 þúsund dansk- ar krónur, tæpar þrjár milljónir ís- lenskra, en í þetta skiptið sóttu 44 um hann. Styrkurinn er veittur einu sinni á ári, en sjóðurinn var stofnaður 1936 af AP Möller skipa- miðlara. Að sögn Ove Hornby, fram- kvæmdastjóra sjóðsins, hefur þó verið aukið við stofnfé hans mörg- um sinnum síðan og síðast í fyrra var styrkupphæðin tvöfölduð. „Við viljum gjarnan að styrkurinn sé þannig að hann skipti máli fyrir námsmennina," sagði Hornby í samtali við Morgunblaðið, er styrkirnir voru afhentir. „Þeir eru allir þurfandi,“ sagði Steen Lindholm kórstjóri með bros á vör, en í fornyrtum skilyrðum sjóðsins segir að styrkinn eigi að veita Hafnarstúdentum, sem séu þurfandi og eigi styrk skilið. Lind- holm situr í úthlutunarnefnd ásamt Hornby og Jonnu Louis Jensen, prófessor við Hafnarháskóla, en þau Lindholm og Jonna eru bæði í stjórn Dansk-Islandsk samfund, sem stendur að úthlutuninni. Upp- haflega var hugmyndin að sjóður- inn létti á húsnæðiskostnaði, en nú geta námsmenn sótt um styrk bæði til að létta á framfærslu, en eins til að standa undir öðrum kostnaði tengdum náminu. Upphaflegu skil- yrði um að styrkir væru veittir til Hafnarstúdenta hefur verið haldið. Styrkþegunum kom saman um að styrkurinn væri ánægjuleg vís- bending um að þeir væru að gera eitthvað sem skipti máli. Rannveig Sverrisdóttir, sem leggur stund á málvísindi við Hafnarháskóla og hlaut tuttugu þúsund danskar krónur í styrk, segir styrkinn létta sér lífið. Námslánið dugi ekki að öllu leyti og styrkurinn muni von- andi gera sér kleift að vinna að verkefni í sumar. Guðmundur B. Friðriksson, sem stundar verk- fræðinám við danska Tækniháskól- ann og hlaut tíu þúsund danskar krónur, segist ætla að nýta sér styrkinn til tölvukaupa í tengslum við lokaverkefni sitt. Léttir undir með námsmönnum Friðrik Olafsson, sem einnig stundar verkfræðinám, hlaut 20 þúsund danskar krónur í styrk, sem létti á framfærslunni. Hann segir námsmenn almennt lifa við kröpp kjör. Lánasjóðurinn sé ósveigjanlegur í ki'öfum sínum um að tilskildum prófum sé lokið. Sjálfum hefur honum tekist að standast kröfurnar en segir að þar megi hvergi út af bera. Auk þessara hlutu eftirfarandi tuttugu þúsund króna styrk: Aðal- heiður Guðrún Sigurjónsdóttir, Charlotta Oddsdóttir og Halldóra Tómasdóttir. Þeir sem hlutu tíu þúsund danskar krónur eru: Berg- lind María Tómasdóttir, Harpa Birgisdóttir, Bjarni Þór Þórólfs- son, Baldur Gísli Jónsson, Kristín Bjargey Gunnarsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir, Guðbjörn Gústafsson, Hannes Haraldsson, Bjarki Valtýsson, Agnes Hildur Hlöðversdóttir, Bjarki Þór Har- aldsson, Helga Jóhannesdóttir og Sigurður Orn Jónsson. Þær Ingi- björg María Guðmundsdóttir og Sesselja Theódóra Ólafsdóttir hlutu fímm þúsund danskar krónur hvor. NÝTT aðsetur Skráningarstof- unnar hf. var opnað í Borgartúni 30 í Reykjavík í gær, en þar hef- ur fyrirtækið yflr að ráða hús- næði á þremur hæðum. Meðal nýrra verkefna Skráningarstof- unnar verður rekstur tölvukerfís fyrir Schengen-vegabréfaeftirlit sem notað verður á landamæra- stöðvum landsins. Haraldur Johannessen, ríkis- Iögreglustjóri og stjórnarformað- ur Skráningarstofunnar, sagðist við opnunina viss uin að hægt yrði að auka þjónustu við borgar- ana í þessu nýja húsnæði með endurbættum búnaði og betri staðsetningu, en fyrirtækið var áður til húsa við Hestháls. Hið nýja aðsetur Skráningarstofunn- ar hf. kostaði um 170 milljónir króna fullbúið. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra sagði að nú væri að fullu Iokið þeirri breyt- ingu sem hafist hefði með að- skilnaði bifreiðaeftirlits, sem ver- ið hefði einkavætt, og þeirrar umsýslu og stjómsýsluverkefna sem áfram yrðu á vegum hins op- inbera varðandi skráningarmál. Sjá um vernduð tölvukerfí Karl Ragnars forstjóri tjáði Morgunblaðinu að starfsmönn- um myndi líklega fjölga úr 25 í 30, m.a. vegna aukinna verkefna sem fylgdu tölvuumsjón Schengen-eftirlitsins sem Skrán- ingarstofunni hefðu verið falin. Sagði hann landamærastöðvar landsins eiga að tengjast því tölvukerfi sem tekið yrði í gagn- ið haustið 2000. Auk þess sér Skráningarstofan hf. um rekstur tölvukerfis fyrir dómsmálaráðu- neytið og snýr að lögregluemb- ættum landsins. Sagði Karl fyr- irtækið þannig sjá um umfangs- mikil tölvukerfi sem yrðu að vera mjög vel vernduð. Önnur verkefni Skráningarstofu eru umsjón með bifreiðaskráningu, skoðunarmálum og tjónaskrán- ing bfla sem nú er að heíjast. Alþingismenn hafa gert með sér samkomulag um skiptingu viðbótarfjárveitinga til vegamála Framkvæmdum flýtt á Tjörnesi, Klettshálsi og Bröttubrekku STÆRSTI hluti viðbótarvegafjár Vestflrðinga fer í vegabætur milli Patreksfjarðar og Gilsfjarðarbrú- ar, mest í Klettsháls. A Vestur- landi verður lögð áhersla á kafla vegarins úr Dölum og upp að Bröttubrekku, allt vegafé Norður- landskjördæmis eystra verður not- að í lagningu nýs vegar á Tjörnesi og á Norðurlandi vestra er lögð áhersla á-veg yfír Þverárfjall. Þingmenn kjördæmanna hafa að mestu lokið við ráðstöfun þeirra tveggja milljarða samtals sem rík- isstjórnin hefur ákveðið að verja aukalega til vegaframkvæmda næstu fjögur árin í samræmi við tillögur nefndar með fulltrúum allra þingflokka sem skipuð var til að fjalla um byggðamál í tengslum við breytingar á kjördæmaskipan. Byrjun á Bröttubrekku Vesturland fær til ráðstöfunar alls 326 milljónir kr. samtals á þessum fjórum árum. Þingmenn kjördæmisins ákváðu að ráðstafa helmingi fjárins nú, það er að segja fjárveitingunum í ár og næsta ár, en deila út seinni tveimur árunum við næstu endurskoðun vegaáætl- unar. Stærsta verkefnið á þessum tveimur árum er lagning vegar frá Breiðabólsstað í Dölum að Bröttu- brekku. Fara samtals um 107 millj- ónir í verkið. Er þetta fyrsti áfangi lagningar nýs vegar um Bröttu- brekku. Magnús Stefánsson þing- maður segir að þessi kafli sé tilbú- inn til framkvæmda og unnt sé að ráðast í verkið með litlum fyrir- vara. Hins vegar þurfí fram- kvæmdir við sjálfan fjallveginn lengri undirbúning, Ijúka þurfí hönnun og gera ákveðnar rann- sóknir. Töluverðum fjármunum verður einnig bætt við fjárveitingu í Útnesveg á Snæfellsnesi og veg- inn frá Arnarstapa niður að Helln- um. Loks verða 5 milljónir kr. not- aðar til að flýta rannsóknum og undirbúningi vegar um Kolgrafar- fjörð á Snæfellsnesi. Kröfur eru uppi um að byggð verði brú yfir fjörðinn eða vegfylling í stað þess að leggja veginn inn með firðinum. Klettsháls fær mest Vestfirðingar verja meginhluta þeirra 418 milljóna kr. sem þeir hafa samtals til ráðstöfunar næstu fjögur árin í lagfæringar á veginum frá Patreksfirði um Barðastrand- arsýslur að Gilsfjarðarbrú. 234 milljónir kr. fara í veginn milli Kollafjarðar og Vattarfjarðar en þar er Klettsháls sem er mesti far- artálminn á umræddri leið. Að sögn Einars K. Guðfínnssonar al- þingismanns munu framkvæmdir við þennan kafla komast á skrið á árunum 2000 til 2002 en þó ekki ljúka. Þá verða 106 milljónir kr. lagðar í framkvæmdir á Kleifa- heiði, milli Patreksfjarðar og Barðastrandar og lýkur fram- kvæmdum við lagningu bundins slitlags árið 2002. Þá verða 26 milljónir notaðar til að flýta fram- kvæmdum á milli Brjánslækjar og Flókalundar. Vestfirðingar nota einnig hluta af sínu vegafé til að flýta framkvæmdum á Djúpvegi og bæta við þær fjárveitingar sem fyr- ir hendi eru. Einnig er veitt viðbót- arfé til vegagerðar í Kollafirði á Ströndum. Flýta Þverárfjallsvegi Norðurlandskjördæmi vestra fær í sinn hlut 140 milljónir kr. og Norðurlandskjördæmi eystra fær 414 milljónir kr. Þingmenn Norð- urlands vestra hafa ákveðið að leggja allt fjármagnið í það að flýta lagningu vegar yfír Þverárfjall, milli Skagafjarðar og Austur- Húnavatnssýslu. Segir Hjálmar Jónsson þingmaður að þingmenn kjördæmisins hafí talið fjárveiting- unni best varið til að styrkja byggð með þeim hætti. Allir peningarnir í Tjörnes Þingmenn Norðurlands eystra hafa ákveðið að nota alla sína fjár- veitingu til að flýta lagningu nýs vegar um Tjörnes, frá Húsavík í Kelduhverfi. Að sögn Valgerðar Sverrisdóttur alþingismanns verð- ur byrjað á 6 kílómetra kafla, frá slitlagsenda norðan við Húsavík, svipaður kafli verður tekinn fyi'ir á næsta ári og á árunum 2001 og 2002 verður austurhluti vegarins tekinn fyrir, það er að segja svokölluð Auðbjargarstaðabrekka. Ekki hefur verið ákveðið hvort nýr vegur verður lagður á svipuðum stað um brekkuna eða færður í svo- kallaða Fjallahöfn. Ýmsir kaflar á Austurlandi Þingmenn Austurlands fá 446 milljónir og ráðstafa þeim til nokk- urra verkefna víðsvegar um kjör- dæmið. Arnbjörg Sveinsdóttir al- þingismaður segir að byrjað verði á vegaköflum sem tilbúnir eru til framkvæmda. Eru þeir í Jökuldal, Álftafirði og Lóni. Á næsta ári verður tekinn fyrir níu kílómetra kafli í Hofsárdal í Vopnafirði og lokið við verkefni í Jökuldal. Alls verða lagðir 13 km í Jökuldal á þessum tveimur árum. Á tveimur seinni árum áætlunarinnar verður unnið fyrir viðbótarvegaféð í Berufirði, Hamarsfirði og á Sand- víkurheiði. Brú yfir Hvítá Loks koma 256 milljónir kr. í hlut Sunnlendinga, 64 milljónir kr. á ári. Þingmenn kjördæmisins hafa ákveðið að leggja áherslu á bygg- ingu brúar yfír Hvítá hjá Bræðra- tungu. Sett er byrjunarfjárveiting í svokallaðan Suðurstrandarveg, sem liggur milli Þorlákshafnar og Grindavíkur, og segir ísólfur Gylfí Pálmason alþingismaður að litið sé á það sem viðleitni til að hefja þá framkvæmd. Þá er varið fé í ýmsar smærri framkvæmdir, til dæmis brú á Djúpá í Vestur-Skaftafells- sýslu og Þverá við Hvolsvöll og breikkun brúar á Skógá, svo nokk- uð sé talið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.