Morgunblaðið - 30.03.1999, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
PRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 31
> *
Urslitatilraunir til að leysa afvopnunardeiluna á N-Irlandi
Blair og Ahern leggja
lóð sín á vogarskálarnar
Belfast. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og Bertie Ahem, forsætisráð-
herra írlands, komu báðir til Belfast
á Norður-írlandi í gærkvöldi í því
skyni að leggja lóð sín á vogarskál-
amar í úrslitatilraunum til að finna
lausn á afvopnunardeilunni, en
hætta er talin á að friðammleitanir
fari út um þúfur og alda ofbeldis
hefjist á ný í héraðinu, takist ekki að
finna viðunandi lausn í þessari viku.
A sama tíma vora uppi háværar get-
gátur um að írski lýðveldisherinn
(IRA) hygðist lýsa því yfir að stríði
IRA „væri lokið“ í því skyni að
þrýsta á sambandssinna um að láta
af kröfum sínum um að IRA byrji af-
vopnun áður en Sinn Féin, stjórn-
málaarmi IRA, verði veitt aðild að
heimastjóm.
I gær tók IRA skref í þessa átt
þegar herinn sagði að hann myndi
tilkynna hvar lík níu manna, sem
herinn hefur látið „hverfa“, eru nið-
urkomin; en það hefur lengi verið
krafa aðstandenda að fá að veita
horfnum ástvinum sómasamlega út-
fór.
Eitt ár liðið frá því
samkomulag náðist
Á föstudaginn langa er nákvæm-
lega eitt ár liðið síðan Belfast-frið-
arsamkomulagið náðist en það
ákvæði, sem staðið hefur fram-
kvæmd samningsins fyrir þrifum,
snýr að afvopnun öfgahópa kaþ-
ólikka og mótmælenda. Leiðtogar
sambandssinna neita að setja á fót
heimastjórn í héraðinu með aðild
Getgátur uppi um
að IRA lýsi því
yfír að „stríðinu
sé lokið“
Sinn Féin nema IRA byrji afvopnun
fyrst, en Sinn Féin, sem á rétt á
tveimur sætum í stjórninni, segir
hins vegar slíkar kröfur ekki eiga
sér stoð í friðarsamkomulaginu.
IRA hefur einnig margítrekað lýst
því yfir að afvopnun komi ekki til
greina, eins og mál standa nú.
Nú er svo komið að úrlausn deil-
unnar verður ekki frestað lengur.
Mo Mowlam, N-írlandsmálaráð-
herra bresku ríkisstjórnarinnar,
hefur tilkynnt að á miðvikudag eða
fimmtudag muni hún hefjast handa
við myndun heimastjórnarinnar
hvernig svo sem mál standa að öðru
leyti. Næsta víst er að David
Trimble, leiðtogi stærsta flokks
sambandssinna (UUP) og verðandi
forsætisráðherra, muni þá leggja
fram tillögu um að Sinn Féin verði
útilokaður frá stjóminni, sem mun
hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar,
jafnvel gæti farið svo að IRA aflýsti
vopnahléi sínu. Reyni Mowlam að
taka fram fyrir hendur Trimbles er
hins vegar hætta á að öfgahópar
sambandssinna rjúfi sitt vopnahlé, í
það minnsta gaf stærsti öfgahópur
þeirra, UVF, annað eins til kynna í
síðustu viku.
David Trimble er sagður svart-
sýnn á árangur í viðræðunum í þess-
ari viku en hann kveðst engu að síð-
ur sannfærður um að IRA muni á
endanum gefa eftir, og hefja afvopn-
un; leiðtogar IRA hafi bara ekki gert
upp við sig hvenær og hvar þessi af-
vopnun eigi að hefjast. Mörgum
fréttaskýrendum finnst þó ekki
harla líklegt að IRA komi til móts
við kröfur Trimbles rétt fyrir páska,
einmitt á þeim tíma þegar lýðveldis-
sinnar halda í heiðri minningu þeirra
frelsishetja sem féllu í páskaupp-
reisninni í Dublin árið 1916.
Sýnir IRA sveigjanleika
í vikunni?
Samkvæmt venju mun IRA gefa
frá sér yfirlýsingu við hátíðarhöld,
sem haldin verða til að minnast
páskauppreisnarinnar, og er sagt
frá því í The Daily Telegraph í gær
að herinn hyggist fljótlega gera yf-
irlýsinguna opinbera og sýna þar
nokkurn sveigjanleika í afvopnunar-
málum, ef ekki til annars en tryggja
að Trimble verði kennt um, fari
friðarumleitanirnar út um þúfur,
fremur en lýðveldissinnum. Segir í
síðdegisblaðinu The Belfast Tel-
egraph í gær að sögusagnir séu
uppi um að IRA muni lýsa því yfir
að vopnaðri baráttu hersins fyrir
sameiningu Irlands sé lokið. IRA
muni útiloka afvopnun fram að því
að Sinn Féin verði hleypt í heima-
stjórnina en halda þeim möguleika
opnum að láta fljótlega hluta vopna
sinna af hendi verði Sinn Féin
hleypt í stjómina.
I
I
35mm mynaavei meö
innbyggðu flassi.
Kodak Gold Ultra 24
mynda filma, rafhlöður
og Stereo vasadiskó
fylqir með.
Kringla og Smáratorg
Lítill og léttur sjónauki.
Luxon sjónauki
10x25 DCF/NBR
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
VI ER
IKKE
GOTT
FOLK
(Við erum ekki Gott fólk.)
Að gefnu tilefni viljum við
tilkynna að símanúmerið hjá
norska sendiráðinu er
Frá og með 6. apríl nlc. er
símanúmerið hjá Góðu fólki
5 700 200
Vandið valið!