Morgunblaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 MORGUNB LAÐIÐ LISTIR Islensk TOJVIjIST Laugarneskirkja SÖNGTÓNLEIKAR Sigrún Jónsdóttir mezzósópran og Olafur Vignir Albertsson píanó- leikari fluttu íslensk sönglög. Laugardag kl. 17. SIGRÚN Jónsdóttir, ung mezzósópransöngkona, lagði til atlögu við perlur íslenskra söng- laga á þrennum tónleikum í síð- ustu viku og kaus að styrkja krabbameinssjúk böm með af- rakstri miðasölu. Meðleikari hennar á tónleikunum var Olaf- ur Vignir Albertsson. Þama gat að heyra flest þau lög sem þjóð- inni em kærast, lög Páls Isólfs- sonar, í dag skein sól, Vögguvísu og Kossavísur; lög Sigvalda Kaldalóns, Betlikerlinguna, Ég lít í anda liðna tíð og Þú eina hjartans yndið mitt; lög Áma Thorsteinssonar, Rósina, Nótt og Vorgyðjan kemur; og lög Karls O. Runólfssonar, Intervi- ew, I fjarlægð og Síðasta dans- inn. Eftir hlé var haldið áfram með lag Fjölnis Stefánssonar, Litla bam með lokkinn bjarta; lög Árna Bjömssonar, Rökkur- ljóð og Horfínn dag; lög Jóns Ásgeirssonar, Haldið’ún Gróa hafí skó, Hjá lygnri móðu, Bamagælu frá Nýa Islandi og Vor hinsti dagur er hniginn, og loks þi-jú lög eftir Þórarin Guð- mundsson, Þú ert, Minningu og Kveðju. Það er alltaf gaman að heyra sönglögin okkar sungin, þegar auðheyrt er að vinna hefur verið lögð í verkið, og einhver hugsun liggur að baki túlkun þein-a. Sigrún Jónsdóttir söng íslensku lögin af tilfinningu; hvert lag var unnið og mótað og sungið af alúð. Rödd Sigrúnar er mjög stór og mikil, og í því felst bæði lán hennar og vandi sem söng- konu. Miðsvið raddarinnar er hljómfagurt og tónninn vel ag- aður. Neðsta raddsviðið virkar hins vegar þvingað og forserað, og einhverra hluta vegna velur söngkonan sér oft dýpri tónteg- undir en henta röddinni. Þetta átti til að mynda við um Vöggu- vísu Páls ísólfssonar, Betlikerl- inguna eftir Sigvalda Kaldalóns klassfk og Nótt eftir Ama Thorsteins- son. Ef þessi lög hefðu verið sungin allt að þríund hærra hefði rödd Sigrúnar notið sín mun betur í þeim, því ekki vant- ar hana hæð. Efsta raddsvið Signinar er nefnilega óvenju mikið og gott og vísast á röddin eftir að þroskast mun meira í þá áttina en á dýptina. Þar er verk að vinna við að finna tóninum hinn rétta farveg og beisla hinn mikla og oft óhamda hljóm með réttri öndun og raddbeitingu. Með sömu natni og Sigrún sýndi í úrvinnslu sönglaganna er ekki við öðru að búast en að þessi mikla rödd geti enn bætt sig. Sigrún Jónsdóttir söng margt afar fallega, og sýndi mikla smekkvísi^ í túlkun. Sam- spil hennar og Olafs Vignis var mjög gott, enda Olafur Vignir sennilega þrautreyndasti píanó- leikari sem íslenskir söngvarar eiga völ á að vinna með. Leikur hans var mjög fallegur og ljóst að skilningur hans á þessum lögum er djúpstæður. Flutning þeirra Sigrúnar og Ólafs Vignis bar hátt víða. f laginu í dag skein sól voru atriði eins og dramatískur þungi upphafs- hljóms píanósins og andstæðan í sólskinsbjörtum hljómunum sem á eftir koma sérstaklega fallega mótuð; í Betlikerling- unni var dramatískt ris lagsins mjög fallega útfært og synd- andi hljómaflóðið í undirspili lagsins Þú eins hjartans yndið mitt var eins og skínandi sindur á hafinu sem aðskilur ljóðmæl- anda frá ástinni sinni í örmum villtra stranda. í laginu Rósinni var of frjálslega farið með tempó; - það var órólegt, og galt lagið þess. Ég lít í anda liðna tíð var ákaflega fallega flutt, en missti nokkuð áhrifa- mátt sinn við það að vera tví- tekið, þótt slíkt sé oftar en ekki gert. Lög Jóns Ásgeirssonar vora öll mjög vel flutt, - sér- staklega Barnagæla frá Nýa ís- landi, sem var hrífandi í ein- lægri túlkun, og Vor hinsti dag- ur er hniginn, sem var virkilega glæsilegt í flutningi þeirra Sig- rúnar Jónsdóttur og Ólafs Vignis Albertssonar. Bergþóra Jónsdóttir .FLUTNINGURINN var sérstæður viðburður, þar sem orð eiga sér í raun enga nálgun, því tíminn er eins og tónninn, „sem verður til en deyr um leið“,“ segir meðal annars í dómnum. Um endalok tímans TOMJST Hafnarbo rg TRÍÓ REYKJAVIKUR/ SIGURÐUR SNORRASON flutti tríó eftir Haydn og Jón Nordal og kvartettinn um endalok tímans, eftir Messiaens. Sunnudagurinn 28. mars 1999. LOKATÓNLEIKAR Tríós Reykjavíkur á þessum starfsvetri voru haldnir í Hafnarborg, menn- ingar- og listastofnun Hafnarfjarð- ar, og eftir að hafa um nokkurn tíma þegið tónleika í Salnum í Kópavogi, var ánægjulegt að end- urlifa sérlega góða hljómana í Hafnarborg. Tónleikarnir hófust á tríói eftir Joseph Haydn, sem ýmist er sagt vera nr. 19 eða 21, eftir flokkun hol- lenska sagnfræðingsins Anthony van Hoboken, í ski'á þeirri sem hann vann að frá 1957-71. Lítið er vitað hvenær verkið er samið en skemmtilegt er það, uppfullt af músikantískum leik og glaðværð, sem var mjög vel mótuð af flytjend- um, þótt vel megi sérstaklega lofa píanóleikarann, Peter Máté, fyrir einstaklega fágaðan leik en píanóið er, eins og í flestum tónum frá þessum tíma, leiðin um útfærslu tónhugmyndanna. Annað verkið á tónleikunum var tríó efth’ Jón Nordal, sem hann nefnir Andað á sofinn streng, sér- lega fallegt verk, er var afburða vel flutt og líklega var hér um að ræða einstakan flutning, þar sem allar hinar fíngerðu tónhugmyndir Jóns vora einstaklega fallega mótaðar og tilfinningaleg nálgun verksins af hálfu flytjenda gædd hugleiðslu, trega og á köflum sársauka, samof- inni við undarlega kyn-ð þessa fagra verks, sem við endurheyrn lifnaði með sérstökum hætti. Það má segja að verk Jóns, And- að á sofinn streng, hafi verið eins konar inngangur að hugleiðslu í tónum, sem er aðal kvartettsins, Um endalok tímans, eftir Oliver Messiaen. Þetta verk varð til við sérstakar aðstæður, í fangelsi og vitnar um skjól það er menn finna í æðri gildum, sem hafin era yfír allt amstur daganna og eru í raun ósnertanleg en umvefja allt, sem er heimsins raunvera. Að hlýða verkinu, er eins og dvelja um stund í óræðu rými tímans, sem er upphafið og endalokin, ofin í eina andrá. Flutningur Tríós Reykjavíkur og Sigurðar I. Snon-asonar átti sér tíma í þessari undarlegu andrá, sem hvorki er mörkuð upphafi eða endalokum, en er. Þessi stund reis hæst í einleiksþáttum verksins, klarinettþættinum, sem Sigurður I. Snorrason lék frábærlega vel, selló- leiknum, þar sem Gunnar Kvaran náði að snerta sjálfan tímann, við lukkuundirleik Peter Máté á píanó- ið. í ofsafengnum dansi lúðranna sjö, sem er einradda, eins og þrum- andi váboðin, var leikui’ allra stór- brotinn og í lokakaflanum deyr tím- inn út í undursamlegum lofsöng, sem Guðný Guðmundsdóttir lék mjög fallega af sterlu-i tilfinningu. Flutningurinn var sérstæður við- burður, þar sem orð eiga sér í raun enga nálgun, því tíminn er eins og tónninn, „sem verður til en deyr um leið“. Jón Ásgeirsson Æskuglaður flutningur Morgunblaðið/Karl NEMENDURNIR fluttu allt frá klassískum verkum til dægnrlaga. Fimmtíu flytjendur á skólatónleikum TOM.IST Listasaln íslands KÓRTÓNLEIKAR Kór Menntaskólans í Reykjavík undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar flutti íslensk og erlend kórlög og fyrsta þáttinn í Carmina Burana, eftir Carl Orff. Laugardagurinn 27. mars 1999. TÓNLEIKARNIR hófust á gömlu stúdentalagi, Du alte Burchen herrlichkeit, í kórgerð Ró- berts A. Ottóssonar og á eftir fylgdi íslenska þjóðlagið, sem sungið er við kvæðið Vinaspegill, eftir Guð- mund Bergþórsson og kórklætt af Róberti. Strax var gefinn tónninn, að hér ætti sönggleðin inni og í næsta lagi, sem er ofið um Breið- firðingavísur eftir Ólínu Andrés- dóttur, fallegar náttúrustemmning- ar, var fallega sungið í góðri radd- setningu kórstjórans. Hjá séra Bjarna er þetta sérkennilega lag samritað við heldur grófa vísu úr Andrarímum. Undirritaður átti tvö næstu lög, er vora mjög smekklega mótuð. Ung söngkona, Sigrún Jóns- dóttir, söng með æskuþokka, Per la gloria, eftir Bononcini og var undir- leikari Krystyna Cortes. Þá tók kórinn við og söng mjög fallega, Gefðu að móðurmálið mitt, í tvísöngsgerð Róberts. Lítil smá- perla, Ó undur lífs, eftii' Jakob Hall- grímsson, við kvæði Þorsteins Valdimarssonar, var einnig vel sungin. Hallelúja, dýrð sé Drottni, var hressilega sungið við sálmalag Lúthers, í raddfærslu meistara J.S. Bach. Öll voru áðurnefnd viðfangs- efni vel sungin, svo að af lýsti æsku- fögur sönggleðin. Það mátti og merkja að unga fólkið fæst við tón- list af ýmsu tagi. Guðný Þóra Guð- mundsdóttir fiðluleikari og Lára Bryndís Eggertsdóttir píanóleikari, fluttu prelúdíu og gikk (gigue) eftir rauðhærða prestinn Vivaldi. Guðný er vel á vegi með að verða góður fiðlari og var flutningurinn í heild nokkuð góður. Ástarljóðavalsana, op.52, samdi Brahms 1868 og eru þeir alls 18 að tölu, en fjórir þeirra voru fluttir hér, við þýðingu Þorsteins Valdi- marssonar. Þessir söngvar era venjulega sungnir af þjálfuðum ein- söngvurum en þrátt fyrir grann- hljómandi æskuhljóm söngvaranna, var söngurinn í heild gæddur trúnni á að ástin sé megininntak lífsins. Til liðs við kórinn komu píanóleikar- arnir Anna Guðný Guðmundsdóttir og Krystyna Cortes, er gáfu til með unga fólkinu faglega vel mótaðan undirleik. Eftir hlé var fluttur inngangurinn og fyrsti þátturinn í Carmina Burana, eftir Carl Orff og þar geisl- aði allt af æskufjöri og var eftirtekt- arvert hversu framburður söngvara var sérlega góður. Kórstjórinn skipti kórnum upp í smáhópa, bæði í vorkaflanum og á útiskemmtun- inni (á flötinni), sem gaf flutningn- um fallega áferð. Hljómsveitarþátt- inn léku Anna Guðný Gumundsdótt- ir og Krystyna Cortes, ásamt þriggja manna slagverkssveit, þeim Eggerti Pálssyni, Steef van Oster- haut og Jóhanni Hjörleifssyni, er öll áttu sinn þátt í að gera flutninginn í heild verulega góðan. Stjómandinn, Marteinn H. Frið- riksson stýrði sínu liði af röggsemi og náði oft að magna upp mikla stemmningu, t.d í innganginum, 0 fortuna og Fortuna plango vulnera, sem fjallar um hverfulleika ham- ingjunnar og einnig í lokakafla úti- skemmtunarinnar, Were diu werlt alle min. Kór Menntaskólans í Reykjavík er ekki sérlega fjölmenn- ur en bætti upp það sem á vantaði í þrumandi hljómi, með sérlega elskulegum og æskuglöðum flutn- ingi. Jón Ásgeirsson Grundarfjörður. Morgunblaðið. NEMENDUR úr tónlistarskólun- um á Vesturlandi, þ.e. frá Tónlistar- skóla Borgarfjarðar, Akranesi, Dalasýslu, Hellissandi, Ólafsvík, Stykkishólmi og Grandarfirði, komu saman í Grandarfjarðarkirkju og héldu tónleika nýverið. Um hundrað manns var saman komið, nemendur, kennarar og aðrir tón- leikagestir. Það vora nemendur sem era lengra komnir í námi sínu sem léku fyrir gesti. Á tónleikunum komu fram nem- endur sem ýmist léku einleik á hljóðfæri sín eða þá tvö eða fleiri saman og léku m.a. á ásláttarhljóð- færi, blásturshljóðfæri og strengja- hljóðfæri. Um fimmtíu flytjendur fluttu allt frá frá klassískum verk- um til dægurlaga. Þetta er í sjöunda sinn sem tón- leikar á þessum vettvangi eru haldnir. Næstu tónleikar verða í Stykkishólmi að ári. f i !
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.