Morgunblaðið - 30.03.1999, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 39
ar þá telja 51% starfsfólks náms-
kröfur of litlar. Hér þyrfti að kanna
í hverju munurinn liggur þótt
væntanlega megi skýra hann að
einhverju leyti með ólíkri stöðu
þessara hópa.
Flestir nemendur telja að náms-
kröfur séu hæfilegar og þeir telja
einnig að samræmi sé á milli þess
sem kennt er og prófa. Það bendir
til þess að kennarar í Menntaskól-
anum við Sund viðhafi fagleg vinnu-
brögð.
Iþróttir og tómstundir
28% nemenda stunda annað tóm-
stundastarf en íþróttir og 15%
nemenda stunda annað nám með
skólanum. 53% nemenda MS
stunda íþrótth’, 58% stráka og 49%
stúlkna. Þessi mikla íþróttaiðkun er
mjög jákvæð, sérstaklega þar sem
nýlegar rannsóknir á Islandi sýna
fylgni á milli íþróttaiðkunar og góðs
námsárangurs.
Ástundun
Aðeins 13% nemenda segjast
stunda námið jafnt og þétt yfir önn-
ina. Munur kemur fram eftir ein-
kunnum nemenda. 25% nemenda
með einkunn 7-10 stunda námið
jafnt og þétt en aðeins 5% nemenda
með einkunn 3-5,9 og 6-6,9.
Þessa niðurstöðu þurfa nemend-
ur að íhuga vel því jöfn ástundun
virðist vera ávísun á góðan námsár-
angur. 77% þeirra sem stunda nám-
ið jafnt og þétt eru með einkunn á
bilinu 7-10. Leiða má líkur að því
að ef nemendur með einkunnir
3-5,9 myndu lesa jafnt og þétt yfir
önnina gætu þeir bætt námsárang-
ur sinn til muna.
Kennsluaðferðir
Athyglisvert er að skoða hvað
nemendur segja um kennslustund-
irnar. 35% nemenda telja að þær
nýtist vel eða mjög vel til náms og
51% segja að þær nýtist sæmilega.
Áhyggjuefni er hve lágt hlutfall
nemenda telur að kennslustundim-
ar nýtist vel. Hér þarf að bæta úr
og hugsanlega gerist það með
breyttum kennsluaðferðum. Þær
aðferðir sem nemendum líkar best
eru að læra fyrir próf, skrifa rit-
gerðir eða glósur af glærum eða
töflu. Hópvinna virðist hins vegar
henta nemendum illa og einungis
um 33% nemenda segja að sér
henti fyrirlestraform í kennslu.
I viðhorfskönnun starfsmanna
kemur fram að 48% þeirra telja
nemendur vannýta kennslustundir.
Nauðsynlegt er að leita leiða til að
nýting kennslustunda batni bæði að
dómi nemenda og kennara og ein
þeirra getur verið að draga úr fyr-
irlestrum og hópvinnu.
Heimanám og vinna með námi
Niðurstöður um heimanám eru
athyglisverðar. 66% nemenda verja
5 klukkustundum eða minna í
heimanám á viku. Munur eftir ein-
kunnum nemenda er töluverður.
Nemendur með einkunn á bilinu
7-10 nota mun meiri tíma til heima-
náms en nemendur með lægii ein-
kunn.
Starfsfólk telur að nemendur
komi illa undirbúnir í tíma og ein-
ungis 4% þess telja nemendur vel
undirbúna. Bæði viðhorfskönnun
nemenda og starfsfólks bendir til
þess að heimanám sé lítið og hefja
þurfi markvissan áróður fyrir gildi
þess.
56% nemenda stunda launa-
vinnu auk námsins, þar af helm-
ingur í 10 klukkustundir eða meira
á viku. Meðaltalið er 13 klst. á
viku. Athygli vekur hve margir
nemendur í 4. bekk, 71%, vinna
með námi. Þykir skólanum miður
að nemendur geti ekki helgað sig
náminu óskiptir vegna vinnuálags
utan skólans.
Munur á launavinnu kemur fram
bæði eftir kyni og bekk. 44% stráka
Morgunblaðið/Þorkell
BJORN Bjarnason menntamálaráðherra kyimir Jafnrétti til menntunar.
en 66% stúlkna stunda vinnu með
námi. Vera má að launamunur
kynjanna valdi því að stúlkur vinna
mun meira en strákar.
Niðurstöður úr fleiri spumingum
sýna sömu tilhneigingu, nemendur
eru uppteknir af vinnu og tóm-
stundum og læra lítið heima. Að-
eins 19% nemenda setja heimanám
efst á forgangslistann þegar spurt
er um verkefni utan skólatíma.
Kennarar og nemendur verða í
sameiningu að finna viðmiðanir um
hve miklum tíma á að verja til
heimanáms á viku.
Félagslíf nemenda
Félagslífið við skólann virðist
gott samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar. Yfir helmingur nem-
enda lýsir yfir ánægju með busa-
dag, árshátíð, hæfileikakeppni og
leiklistarhóp. 82% eru ánægð með
söngkeppni nemenda og 81% eru
ánægð með félagslífið í heild. Þess-
ar niðurstöður eru í samræmi við
þann orðróm innan skólans að
margir velji MS vegna þess að þar
sé öflugt félagslíf.
Breytt skólastarf
I viðhorfskönnun starfsmanna
kemur fram að 64% þeirra líst vel á
að takast á við breytingar í kjölfar
nýrra laga, skólastefnu og
námskrár. Það vekur bjartsýni um
bætt skólastarf og að kennarar
muni finna leiðir til að draga úr
þeim vanda sem skólanum er búinn
af mikilli vinnu og lítilli ástundun
nemenda. Skólayfirvöld verða
einnig að horfast í augu við ofan-
greindar niðurstöður og leita úr-
bóta.
Að lokum
Hér hafa aðeins verið raktar ör-
fáar niðurstöður úr viðhorfskönn-
unum sem lagðar voru fyrir í skól-
anum og drepið á nokkur atriði
hópastarfs. Hópar starfa enn að
ýmsum málum, t.d. er verið að
skoða boðleiðir innan skólans, fé-
lagslíf nemenda, hvernig opnir tím-
ar nýtast og kennarar heimsækja
hverjir aðra í kennslu. Hópur sem
er að vinna úr viðhorfskönnun nem-
enda frá síðasta vetri heldur áfram
sínum störfum og jafnframt verður
unnið úr könnuninni sem lögð var
fyrir í byrjun mars.
Sjálfsmat er tímafrekt, krefj-
andi og dýrt og engin töfralausn.
Þrátt fyrir þessa annmarka veitir
það aðhald og upplýsingar í skóla-
starfi, kennurum og stjórnendum
dýrmæta endurgjöf og nemendum
tækifæri til að koma sínum hug-
myndum um góðan skóla á fram-
færi. Samvinna nemenda og kenn-
ara við skoðun og úrbætur á skóla-
starfi hefur jákvæð áhrif. Stefnt er
að því að sjálfsmat verði fastur lið-
ur í starfi Menntaskólans við
Sund.
Jafnrétti
til mennt-
unar
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur gefið út smárit um jafnrétti
til menntunar. Markmiðið er að
hvetja skólafólk og foreldra til að
huga að jafnréttismálum í skólun-
um. Bæklingurinn er afrakstui’ af
starfí nefndar ráðuneytisins sem
fjallar um jafnréttismál.
Smáritið Jafnrétti til menntunar
var kynnt núna í mars með þeim
orðum að „Jafnrétti til náms er
fólgið í því að bjóða nemendum
nám og kennslu við hæfi og gefa
þeim kost á að spreyta sig á við-
fangsefnum að eigin vali.“
í bæklingum eru meðal annars
hugtök skýrð, sagt frá lögum um
jafrétti kynjanna í skólastarfi, jafn-
rétti í einstökum námsgreinum. I
honum er bent á leiðir til að stuðla
að jafnrétti í skólastarfí en honum
er ætlað að vekja kennara og annað
skólafólk til umhugsunar um lög-
bundið jafnrétti kynjanna til
menntunar.
Heilsan I lag
með öflugum úðavítamínum • 90% nýting beint í blóðrásina*
Megrunarúði: .....Slær á hungurtilfinningu, eykur fitubrennslu, inni-
heldur fitubrennarana L-Carnitine, Chromium Picol-
inate og önnur vítamín.
PMS gleðiúði: . ..Við fyrirtíðarspennu, kvíða, þreytu, inniheldur öll
B-vítamín, steinefni, kvöldvorrósarolíu o.fl.
Blágrænir þörungar Gott við síþreytu, psoriasishúðvandamálum o.fl.
Pro Bio Mist .....Sterkasta andoxunarefni náttúrunnar.,,
Arthriflex: ......Öflugt við vefja- og liðagigt.
Bráðvantar söluaðila - Evrópa óplægður akur
Slmi 557 8791/897 8260 Bjami og 891 6888 Fjóla.
Engar pillur
Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál
Gegn
legu
Fimmta rammaáætlunin
- styrkir
FIMMTA rannsóknar og þróunar-
áætlun ESB er nú loks farin af stað
og öllum opin með umsóknarfresti
Y k' "1 fram í miðjan
- . - r - I júní. Nánari upp-
lýsingar er að finna á netsíðunni
http://www.cordis.lu/fp5/home.html
Einnig aðstoðar starfsfólk KERs-
ins við að nálgast þessi gögn. í síma
525 4900 netfang:
grimurk(á;rthj .hi.is
Skaðlegt efni
á Internetinu
Nýlega var samþykkt áætlun á
vegum ESB er miðar að því að
berjast gegn ólöglegu og skaðlegu
efni á Intemetinu, sérstaklega því
er snýr að börnum, þrælasölu eða
útbreiðslu kynþáttafordóma og út-
lendingahaturs. Nánari upplýsing-
ar um áætlunina og auglýsta styrki
til verkefna á hennar vegum má
finna á veftslóðinni:
Upplýsingatækni-
verðlaunin 1999
Frumlegum upplýsingatækniaf-
urðum með mikla markaðsmögu-
leika er boðið að sækja um evr-
ópsku upplýsingatækniverðlaunin
1999. Veitt verða þrenn aðalverð-
laun uppá 200.000 evrar hvert og
skað-
efni
25 aukaverðlaun uppá 5000 evrar.
Metið verður útfrá þáttum eins og:
gæðum, nýstárlegu innihaldi,
möguleikum á að bæta samkeppn-
isstöðu, mai-kaðsmöguleikum,
möguleikum á atvinnusköpun og
framlag til bætts samfélags. Um-
sóknarfrestur er til 18. maí. Nánari
upplýsingar og umsóknargögn má
nálgast á netslóðinni:
http://www.it-prize.org
Rannóknir á
margmiðlunarmarkaði
Framkvæmdastjórn ESB hefur
auglýst eftir tilboðum í fram-
kvæmd fjögurra rannsókna sem lið
^ í að undirbúa að-
*
*
gerðh’ í kjölfar
INF02000 áætl-
unarinnar. Rann-
saka skal: Að-
gengi að fjármagni fyrir inntaks-
iðnaðinn í Evrópu; Nýtingu opin-
ben-a upplýsinga til hagsbóta fyrir
atvinnulíf; Útflutningsmöguleika
og tungumálalega aðlögun á raf-
rænum afurðum og þjónustu; Áhrif
INF02000 áætlunarinnar á marg-
miðlunarmarkaðinnn. Umsóknar-
gögn þarf að panta fyrir 10. apríl.
Nánari upplýsingar era hjá
MIDAS-NET skrifstofunni í síma
511 5568. Veffangið er
http://www.midas.is.
http://www.echo.lu/iap/index.html
Klæjar ykkur í iljarnar
að komast í hitann?
Þið verðið svöl í
þessum...
Slate-Slide sandalar
Vandaðir sandalar
gúmmísóli heldur þér á jörðinni. Kr,
úr leðri, fóðraðir með neoprene. Stamur
......... ‘ ".6.990.-
Columbia
Sportswear Company*
Fitrieaftghoþ
Skeifunni 19 - S. 568 1 71 71
BLUSSUR mSJIIB0Ð
™ f -yæðastál
-tvöí. botn
1990
^ ÚRVAL • ALLAR STÆRÐIR • BETRA VEBÐ
Aðeins
kr. 3900,-
(SHieHe
VERSLUN
DALVEGI 2 • KÓPAVOGI
SÍMI: 564 2000