Morgunblaðið - 30.03.1999, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Sjálfstraust og frum-
kvæði á vinnumarkaði
NÝLEGA var haldin
hér á landi athyglisverð
ráðstefna á vegum Le-
onardo starfsmenntaá-
ætlunar Evrópusam-
bandsins undir yflr-
skriftinni „Sjálfstraust
og frumkvæði á vinnu-
markaði". A ráðstefn-
unni voru kynnt evr-
ópsk samstarfsverkefni
sem eiga það sameigin-
legt að leggja áherslu á
aukið sjálfstraust og
frumkvæði þjóðfélags-
hópa sem staðið hafa
höllum fæti á vinnu-
markaði eða átt í erfið-
leikum með að stíga sín
fyrstu skref í atvinnulífinu. Má þar
nefna ungt fólk, konur sem hafa
verið heimavinnandi í langan tíma,
fólk sem hefur verið lengi atvinnu-
laust, fatlaða, þroskahefta og fólk
með aðra sérstaka námsörðugleika.
Nýjar áherslur
Það er löngu ljóst að átak af
þessu tagi er nauðsynlegt í nútíma
menntakerfi þar sem reynt er að
sníða nám að þörfum sem flestra.
Reynslan sýnir að skólakerfið hefur
misst mikið af hæfileikafólki sem
ekki hefur getað stundað nám með
þeim hefðbundnu aðferðum sem
tíðkast hafa fram til þessa. Þetta
fólk bíður oft tilfinningalegt skip-
brot og fær skerta sjálfsmynd í
kerfinu. Þetta á t.d. við um ungt
fólk sem dettur út úr námi í lengri
eða skemmri tíma, vegna þess að
námið hentar ekki endilega á þeim
tíma sem skólakerfið stendur við-
komandi til boða. Hið sama getur
átt við um ungar mæður sem falla
út úr hinu hefðbundna menntakerfi.
Til þess að ná aftur til þeirra er
falla á þennan hátt út úr skólakerf-
inu, er verið að þróa nýjar aðferðir
um alla Evrópu og voru nokkrar
þeirra kynntar á þessari ráðstefnu
Leonardo áætlunarinnar, sem
minnst var á hér að framan. Margir
ráðstefnugesta voru á þeirri skoðun
að e.t.v. þyrfti að koma upp nýju
kerfi við hlið þess er við búum við í
dag. Keifi sem ynni á frumlegri
hátt en nú tíðkast og beitti óhefð-
bundnum aðferðum við að nálgast
þessa hópa sem af einhverjum
ástæðum hafa dottið út úr skóla-
kerfinu en hafa vilja og getu til þess
að hefja nám að nýju. Styrkleiki
þessa nýja kerfís og aðferðarfræði
myndi m.a. felast í náinni samvinnu
milli þeirra aðila sem hafa það að
atvinnu að hjálpa þessum hópum í
hinum ýmsu Evrópulöndum. Sam-
starfsverkefni í ætt við þau sem
starfsmenntaáætlanir ESB hafa
fjármagnað undanfarin ár eru því
kærkominn vettvangur í framtíðinni
á þessu sviði.
2.000 fyrirtæki
Fjölmörg verkefni voru kynnt á
ráðstefnunni og vöktu þau flest
mikla athygli og umræðu. Sérstaka
athygli vakti hópur verkefna í Sví-
þjóð sem rekin eru undir merkjum
samtakanna „Young Enterprise"
sem starfrækt eru um allan heim. I
máli verkefnisstjórans og fram-
haldsskólakennarans, Christell Za-
bell, kom fram að um 2.000 fyrir-
tæki eru rekin af nemendum í
sænskum framhaldsskólum um
þessar mundir. Áðurnefndum verk-
efnum er ætlað að efla frumkvæði
sænski-a framhaldsskólanema og
hafa þau vakið mikla athygli og í
tengslum við þau hafa verið stofnuð
fjölmörg verkefni í Svíþjóð auk al-
þjóðlegra samstarfsverkefna. Um
er að ræða bandaríska fyrirmynd
sem á rætur sínar að rekja til ársins
1912 þegar samtökin Young Enter-
prise voru stofnuð. Þau eru nú rekin
í 100 löndum um allan heim og í öll-
um löndum EES svæðisins nema á
Islandi. Samtökin hafa verið rekin í
Svíþjóð síðan á áttunda áratugnum,
en það er ekki fyrr en
á síðustu 5 árum sem
frumkvöðlastarfsemin
hefur farið að skila
verulegum árangri.
Christell Zabell segir
að markmiðið sé að
kenna ungu fólki
grundvallaratriði í
stofnun og rekstri fyr-
irtækja, ýmist með
námskeiðum og starfs-
þjálfun hjá fyrirtækj-
um í atvinnulífinu. Hún
segir það mikilvægt að
virkja hið frjóa hug-
myndaflug unga fólks-
ins sem hafí skilað
mörgum arðsömum
nýjungum út í sænskt atvinnulíf.
Nemendurnir fá mikla aðstoð við
reksturinn í skólunum og þurfa ekki
að greiða skatta til ríkisins. Hagn-
aðurinn er síðan notaður til náms-
ferða. Ef einstakir nemendur hafa
Leonardo
Það er löngu ljóst að
átak af þessu tagi er
nauðsynlegt í nútíma
menntakerfi, segir
Sigurður Guðmunds-
son, þar sem reynt er
að sníða nám að þörf-
um sem flestra.
áhuga á að halda rekstri fyrirtækja
áfram að námi loknu geta þeir leitað
til annarra stoðaðila sem hjálpa
ungu athafnafólki fyrstu skrefin í
rekstri fyrirtækja á hinum frjálsa
markaði. Athygli vekur að samtökin
„Young Enterprise“ skuli ekki vera
starfrækt hér á íslandi og leyfi ég
mér að lýsa eftir aðilum sem hafa
áhuga á að stofna samtök af þessu
tagi hér á landi.
Norskir frumkvöðlar
Svipuð frumkvöðlaverkefni hafa
verið rekin með góðum árangri í
norður Noregi. Þannig kynnti Dag
Ofstad frá Bodö í Noregi Leonardo
verkefni þar sem atvinnulausu fólki
á aldrinum 20-30 ára var hjálpað við
að stofna fyrirtæki. Þar var lögð
áhersla á að útvega raunveruleg
fyrirtæki og fagstofnanir til að taka
hin nýstofnuðu íyrirtæki í fóstur til
skamms tíma. Þetta skilaði það góð-
um árangri að í mörgum tilfellum
ákvað „móður“fyrirtækið að fjár-
festa í fyrirtækjum unga fólksins
sem að sama skapi var ávísun á ár-
angursríkan rekstur.
Framkvæmdakonur
Af verkefnum með íslenskri þátt-
töku má nefna Framkvæmdakonur
eða „Women in Business", sem
framleitt hefur margmiðlunarefni
fyrir konur sem hafa hug á að hefja
eigin atvinnurekstur. Verkefnið er
styrkt af NOW áætlun ESB um ný
tækifæri fyrir konur. Frumkvæðið
kemur frá Wales með samstarfsað-
ilum frá íslandi, Ítalíu og írlandi. í
kennsluefninu er lögð áhersla á ráð-
gjöf við stofnun og rekstur fyrir-
tækja, aðgang að upplýsingabanka
þar sem reynsla annarra kvenna er
til staðar og í þriðja lagi er hægt að
taka próf til þess að fá vísbendingar
um hvort viðkomandi er tilbúin að
hefja eigin atvinnurekstur. Fengist
hefur styrkur frá Leonardo starfs-
menntaáætluninni til að gera ís-
lenska útgáfu af efninu.
Af þessu má sjá að ýmislegt hefur
verið gert til þess að efla sjáfstraust
og frumkvæði þeirra hópa sem minna
mega sín á vinnumarkaði. En einnig
er mikið óunnið á þessu sviði og því
vonandi að íslensk stjómvöld sýni
þessu máli sama skilning og Evrópu-
sambandið hefur gert með rausnar-
legum stuðningi undanfarin ár. Nán-
ari upplýsingar um ráðstefnuna og
verkefnin má nálgast á heimasíðu:
httpy7www.rthj.hi.is/amrek99/
Höfundur er verkefnisstjóri hjá
Landsskrifstofu Leonardo á Islandi.
Ný sending
af frökkum
og sumar-
illpiim
h}á~Q&&nfhhilcli
Engjateigi 5,
sími 581 2141.
Opið virka daga
frá kl. 10.00-18.00,
laugardaga frá kl.
10.00-15.00.
Sigurður
Guðmundsson
ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999
í'Q'.p, //' '■ ' ' '/
';'/, ':/y\ f - ? '
Í0%éi%'Ya::'4
Hr i
- mnma
■<;, ■ii
:/; /■
"■ ' ->/■ < y
?-;/-;///''///'/'/'' / /,''■P/AAAAjíAAAAAAm /•/
s
' V, " ■"'- ' -- - vv.
;£Mi ý- //'
■
l m
?■/ /
mMÆ/; , .Ææ?-',
■''■'■''■:://. /■/ .■;
■'//, /"’.'-pw
, <-' Jlllilll
I,■■/./■ /"■/"/ X-; ;, \
;;
: *
.■.:■:■■■■■
Astro Baby 6.900 kr. Margir litir.
Lýsingarhönmn 61 lampabúnaður Skipholt 37 • 105 RVK • Sími 568 8388
Fréttir á Netinu ^mbl.is ALLTyK/= eiTTH\SA£> NÝTl
E U Ivl E i\l I
EumeniaT lítii on nett
en stendur þeim storu fyllilega á sporði
í afköstum. Hún er afar vönduð, með
bilanatíðni í algjöru lágmarki - og pað heyrist
varla í henni. Þetta er vélin sem hentar inni
á baði, í eldhúsið eða í litla þvottahúsið.
3 kg, 600 eða 800 snúninga,
hœd/breidd/dýpt: 67,5 an/46 cm/46 cm
» 3kg, lOOO snuninga,
hœð/breidd/dýpt: 67,5 cm/46 cm/46 cm
■ 4 kg, 1200 snunmga,
hæð/breidd/dýpt: 82 cm/54,6 cm/56 cm
■ 4 kg, 700 snúninga
með innbyggðum þurrkara fyrir 2 kg,
hœð/breidd/dýpt: 78 cm/53 cm/55 cm
Frá 49.900 kr. staðgr
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 • SlMI 569 1500
úrvalstæki, einstök þjónusta
0.