Morgunblaðið - 30.03.1999, Page 60

Morgunblaðið - 30.03.1999, Page 60
,60 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ KJARTAN BALD URSSON skemmtilegur og hafði alltaf tíma til að tala við okkur krakkana. Ef við * vorum í Hvalfu’ði þá labbaði hann með okkur í fjörunni og sagði okkur hvað skeljarnar og kuðungarnir hétu. Ef við fórum í ferðalag til dæmis þegar við fórum í Hom- strandaferðina 1995 þá gaf hann sér tíma til að labba með okkur út um allt því hann var búinn að labba þar um oft áður og vissi svo margt um Hornstrandir. Mest þótti okkur gaman þegar hann sýndi okkur tófu- grenið í Hælavík. Einu sinni fórum við í útilegu með honum í Asbyrgi og Vesturdal og þar fór hann um allt með okkur og sagði okkur sögur um tröll og risa. Hann vissi hvað öll tré og blóm hétu og hann kenndi okkur að ganga vel um náttúruna. Hann spilaði líka 17111’ okkur allt sem okk- ur datt í hug og kunni hann öll þau lög sem við vildum heyra. Svo kynntist hann Ásdísi en samt hafði hann tíma til að spila fyrir okkur. Við urðum svo glöð þegar við fréttum að hann væri að verða pabbi en þegar við fengum að vita þegar hann veiktist fannst okkur eins og himnarnir væru að hrvnja ofan á alla fjölskylduna. Aldrei kom okkur til hugar að hann fengi ekki að sjá litla barnið sitt fæðast og vaxa. Það var því mikið áfall þegar hann dó. En hann er núna hjá Guði og fylgist þaðan með baminu og sér vonandi um að allt verði í lagi. Elsku amma og afi og Asdís og allir hinir í fjölskyldunni, við mun- um Kjartan eins og hann var og segjum barninu hans frá honum þegar það stækkar og sjáum um að það fái að heyra allt um pabba sinn. Takk íyrir allt sem við áttum með Kjartani, það verður aldrei frá okk- ur tekið. Katrín Birna og Stefán Þór. Það var árið 1988 sem Kjartan Baldursson gekk til liðs við hljóm- sveitina Hvísl sem bassaleikari. Sem bassaleikari, því fljótlega kom í ljós að Kjartan var ekki við eina fjölina felldur hvað varðaði hljóðfæraleik. Fyrir utan að vera fær bassaleikari var hann góður gítar- og hljóm- borðsleikari. Þegar Kartan gekk til liðs við Hvísi hafði hljómsveitin starfað frá árinu 1985 og eins og all- ir vita sem í hljómsveitum hafa verið getur stundum verið erfitt að ganga til liðs við starfandi hljómsveitir þar sem ákveðnar venjur og siðir hafa skapast. En fyi-ir Kjartan reyndist þetta ekki stórt mál, gott skap, létt- ur „húmor“ og óbilandi bjartsýni gerðu það að verkum að hann sam- lagaðist hljómsveitinni um leið. Og ekki var það verra að hann var óhemju músíkalskur maður, fundvís á hljóma og góðar bassalínur. Upp frá þessu lék Kjartan oft með Hvísli á móti bassaleikai’anum Sigurði Inga Asgeirssyni eða allt fram til ársins 1992. Oft var glatt á hjalla og margar góðar stundir áttum við með Kjart- ani bæði hér heima og ekki síst á ferðalögum erlendis. Og nú þegar Kjartan Baldursson er farinn yfir móðuna miklu, langt fyrir aldur fram, er því ekki að neita að hugur- inn hvarflar aftur til spilaáranna okkar í Hvísli og ég minnist hans með þakklæti. Þakklæti fyrir allai- góðu og skemmtilegu stundimar sem við áttum saman, þakklæti fyrir að fá að spila með svo góðum tónlist- armanni og þakklæti fyrir svo góðan ferðafélaga á ferðum okkar erlendis. Ég votta fjölskyldu og aðstand- endum Kjartans Baldurssonar mína dýpstu samúð og vil að lokum segja að þar fór góður drengur. Hilmar J. Hauksson. - Góður vinur er genginn langt um aldur fram. Ég sit hér miður mín og veit ekki hvað ég á að segja, tómur og finnst að örlögin séu ekki réttlát gagnvart vini mín- um Kjartani Baldurssyni sem kvaddur er burt í blóma lífsins frá eiginkonu, fóstursyni, ófæddu barni, öðrum ættingjum og vinum. > Margs er að minnast og margt er hægt að segja um góðan dreng en kynni okkar og vinátta hafa staðið óslitið frá barnæsku eða um 40 ár og á þá vináttu hefur aldrei fallið skuggi. Við sáumst fyrst smástrák- ar sex ára gamlir, fluttumst síðan báðir í Kópavoginn í nágrenni hvor við annan, gengum í sama skóla og áttum margar góðar stundir sam- an á uppvaxtarárunum. En ævin líður fljótt og þegar þú nú erf skyndilega kallaður burt er ég all- ur dofinn og sakna þín sárt en góð- ar minningar verma hjartarætur. Þú varst sannur gleðigjafi og sást alltaf eitthvað gott í öllum mönn- um og sagðir að alla galla mætti laga. Ekkert samkvæmi var gott nema Kjartan væri þar mættur með gítarinn eða hljómborðið og seiddi fram ljúfa tóna öllum til gleði. Kjartan spilaði á öllum meiriháttar tímamótum í lífi fjöl- skyldu minnar og fyrir það þökk- um við honum öll og ótai gleði- stundir aðrar. Kjartan var alltaf sami ljúfi og góði drengurinn. Við ákváðum það ungir menn að hitt- ast a.m.k. einu sinni á ári og síðan höfum við haldið saman áramóta- gleði í mörg mörg ár. Það er sárt að skilja við góðan vin en góð minning geymist. Far þú í friði, vinur, og hafðu þökk fyrir allt. Eiginkonu þinni og fjölskyldu votta ég og fjölskylda mín innilega samúð. Birgir Reynisson. Hver spilar fyrir okkur í næsta afmæli, brúðkaupi eða hleypur í skarðið fyrir okkur þegar það vant- ar hljóðfæraleikara í bandið? Nú höfum við ekki lengur hann Kjart- an til að bjarga okkur. Ég hitti Kjartan fyrst fyrir þrettán árum, þegar Kalli félagi minn fór að spila með hljómsveit suður með sjó. Síð- an hittumst við aftur 1988 þegar verið var að setja saman hljóm- sveit, sem átti að fara á þjóðlagahá- tíð í Skotlandi. A næstu árum fór- um við í átta utanlandsferðir sam- an, sem stóðu allt frá einum sólar- hring upp í þrjár vikur. Við spiluð- um líka saman við ýmis tækifæri, á árshátíðum, þorrablótum og á öðr- um mannfögnuðum. Minnisstæðast úr utanlandsferðunum er kannski sérviska hans á ýmsum sviðum, hann hafði jú búið einn ansi lengi og skapað sér ákveðinn lífsstíl. Eg minnist þess þegar við fórum til Portúgals, þar sem við vorum í tvær vikur. Kjartan hafði aldrei farið til sólarlanda og vissi kannski ekki alveg á hverju hann átti von. A fyrsta degi komumst við að því að hann átti ekki stuttbuxur og ákváð- um við að bregðast skjótt við því. Kjartan skoðaði marga rekka af stuttbuxum en heim fór hann stutt- buxnalaus, því aldrei fann hann þær réttu. Eins var það með sólar- vörnina sem við báðum hann að bera sérstaklega vel á sig, en Kjart- an sagðist þola sólina svo vel að hann þyi’fti enga vörn. Kjartan fór heim með sólarexem og skaðbrunn- inn. í þessari sömu ferð komumst við að því hversu mikil bamagæla hann var. Kalli var með nokkurra mánaða dóttur sína í ferðinni, sem þá var mikil mannafæla. Eitt kvöld- ið leyfðum við foreldrunum að fara út að borða og tókum að okkur að gæta hennar. Þar sýndi Kjartan á sér nýja hlið, hann hafði einstak- lega gott lag á henni og þreyttist ekki á að halda á henni á hand- leggnum og spjalla við hana og raula, þannig að barnapössunin varð leikur einn. Við tónlistarmenn þekkjum það að tíminn sem við eyðum með spila- félögunum er oft lengri en tíminn sem við eyðum með okkar nánustu. Þannig verða kynnin mikil og náin og oft reynir á umburðarlyndi og samstarfshæfileika. Það var gott að vinna með Kjartani, alltaf var hann mættur fyrstur hvort heldur var æfing eða ball og alltaf var hann til- búinn með það efni sem vinna átti úr. Hann var með afbrigðum tón- viss og gat nánast spilað hvaða tón- list sem var, hvort heldur var á bassa, gítar eða hljómborð, en með bassann fannst mér hann alltaf bestur. Kjartan var afar bóngóður maður og ef hann mögulega gat gerði hann allt fyrir þig. Ég minnist þess sér- staklega þegar við hjónin báðum hann að spila í brúðkaupinu okkar, svona rétt á meðan gestimir væru að koma í hús. Það fannst Kjartani ekki mikið mál, var mættur við hljómborðið klukkan sjö og var þar enn þegar síðasti gestur fór heim um nóttina. Kjartan veiktist á síðasta ári af sjúkdómi þeim, sem á endanum hafði betur í baráttunni. Það var að- dáunarvert að heimsækja hann síð- ustu vikurnar og sjá lífsviljann og bjartsýnina og finna hvað hann átti enn auðvelt með að sjá spaugilegu hliðarnar á lífinu og tilverunni og hlusta á hann gera óspart grín að sjálfum sér. Með vonina að vopni og styrk fjölskyldunnar að baki barðist hann hetjulega fram á síðasta dag. Það var mikið lán fyrir Kjartan að kynnast Ásdísi og Snorra Erni. Kjartan hafði lengi talað um og dreymt um að stofna fjölskyldu og er ánægjulegt að það skyldi geta orðið. Það eru óneitanlega erfið sporin sem Ásdís stígur núna og biðjum við algóðan Guð að styrkja hana og fjölskylduna. En oft er að- eins andartak á milli sorgar og gleði. Gleði mun íylgja litla ófædda barninu þeirra Kjartans og Ásdísar, sem svo brátt kemur í heiminn, og mun það án efa hjálpa til við að þerra tárin og sefa sorgina. Eitt er víst að Kjartan mun vaka og halda verndarhendi yfir þeim. Við Anna Sigga sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur og þökkum Kjartani samfylgdina síð- astliðin ellefu ár. Minningin um góðan vin lifir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Mai’gs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyi’ir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þið blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. {V. Briem) Geir Gunnlaugsson. Kær vinur okkar, Kjartan Bald- ursson, er látinn. Við kynntumst Kjartani fyrst sem vinnufélaga á Kópavogshæli. Þar sem við systur höfum mikinn áhuga á söng og tón- list fór ekki hjá því að þá hluti bæri á góma og fundum við strax að tón- listin var hans hjartans mál. Síðan stofnuðum við saman bandið „Kjartan og stuðsystur" og lékum við saman á mörgum skemmtunum víðs vegar um landið í tæp þrjú ár. Kjartan var vanur hljómlistar- maður og kenndi hann okkur ótal margt á því sviði, sem við búum að síðan. Kjartan var einstaklega ljúf- ur maður í samskiptum, glaðvær en hafði þó sínar föstu skoðanir á hlut- unum. Með þessum línum viljum við votta Kjartani okkar bestu þakkir fyrir góðar samverustundir og óska honum alls góðs á ókunnum leiðum. Hin þráða hvild er komin. Kær mun hún þeim, er háði erfitt stríð. Gott er þá að finna frið og ró. Það er sælt að sofna inn í vorið og seiðandi tóna njóta er vaknar andinn upp til nýja dagsins við endurminningu um fegurð sólarlagsins. (R.S.G.) Við vottum Ásdísi og öðrum að- standendum okkar dýpstu samúð. Friður sé með minningu hans. Ragna Berg Gunnarsdóttir og Aðalheiður Margrét Gunnarsdóttir. JÓNH. BJÖRNSSON + Jón Henrik Björnsson, ræð- ismaður í Minnea- polis, fæddist í Minnesota 9. febrú- ar 1919. Hann lést á heimili sinu hinn 11. mars síðastliðinn. Faðir hans, Gunnar, hafði komið íjög- urra ára gamall til Bandaríkjanna ásamt móður sinni í fyrsta hópi ís- lenskra innflytj- enda árið 1876. Móðir _ hans, Ingi- björg Ágústa Jónsdóttir, kom til Minnesota frá Islandi árið 1901. Hinn 8. mars 1944 kvæntist Jón eftirlifandi konu sinni, Matt- hildi Kvaran, dóttur Ragnars Jón útskrifaðist sem blaðamaður frá háskólanum í Minnesota árið 1941 og skömmu síðar gekk hann í herskóla bandaríska landgönguliðs- ins. Á stríðsárunum vann hann meðal annars í gagnnjósnadeild hersins og í stríðslok starfaði hann um tíma með fóðurlandsvinum í dönsku andspymuhreyfingunni. Eftir stiíð settust Jón og Matta að í Minneapolis og starfaði Jón þar lengst af sem kynningar- og auglýs- ingastjóri hjá Northwestem National Bank. Jón bryddaði þar upp á fjölmörgum nýjungum, svo sem „The WeatherbalT sem var risastór kúla uppi á þaki höfuðstöðva bankans í miðborginni. Hún sást víða að og breytti um lit eftir hvort von var á kólnandi eða hlýnandi veðri. Hann var meðlimur i Minnesota Advertising Club og Norske Tor- skeklubben og sat í stjórn Minnesota Press Club. Jón var ræð- ismaður Islands í rúm tíu ár og fet- aði þar í fótspor föður síns og þriggja bræðra, sem allir störfuðu Kvaran og Þórunn- ar Hafstein. Þeim varð fjögurra barna auðið: 1) Ragnar, kvæntur Nancy, 2) Henrik, kvæntur Barböru, 3) Edda, gift Scott Connell, og 4) Erika. Barnabörnin em fjögur: Lindsey, Kristína, William og Erin. Af systkin- uni Jóns eru Hjálm- ar, Valdimar, Helga og Björn látin. Eftir lifir Stefanía Den- bow, sem býr í Athens í Ohio. Utför Jóns Henriks fór fram frá St. Peter’s Lutheran Church í Minneapolis 15. mars. sem ræðismenn íslands í Minnea- polis. Jón var hæglátur maður, vin- gjarnlegur og hlýr og hafði góða kímnigáfu. Hann var afburða hag- leiksmaður og stundaði m.a. hús- gagnasmíði í frístundum. Hann smíðaði fjölda fallegra gi’ipa sem prýða glæsilegt heimili þeirra Möttu og nánustu ættingja. Á málefnum Islands hafði Jón brennandi áhuga og sinnti starfi sínu sem ræðismaður landsins af stakri kostgæfni og trúmennsku. Hann vann ötullega að eflingu skiptinemasambands þess sem ver- ið hefur milli Háskóla Islands og Minnesotaháskóla um árabil. Gestrisni Jóns og Möttu var róm- uð og var heimili þeirra ávallt opið öllum löndum sem hér voru um lengri eða skemmri tíma. Jóns Björnssonar verður sárt saknað af Islendingahópnum hér í tvíburaborgunum. Blessuð sé minning hans. Orn Arnar. HILDIG UNNUR ENGILBERTSDÓTTIR Hildigunnur Engilbertsdóttir fæddist, í Súðavík 10. janúar 1939. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 15. mars síðastlið- inn og fór útfór hennar fram frá Akraneskirkju 23. mars. Elsku Vaddý. Síðast sá ég þig hressa og káta 1. febr- úar sl. Þá fylgduð þið Ási mér á Sjúkrahús Reykjavíkur þar sem ég átti að fara í stóra aðgerð. Ég var hrædd og kvíðin, en þið voruð bjartsýnin uppmáluð og stöppuðuð í mig stál- inu. Báðar höfðum við í sömu vik- unni greinst með krabbamein. Þú fórst í skurðaðgerð en ég í geisla- meðferð. Þetta var svart skamm- degi og erfitt bæði fyrir okkur og fjölskylduna. En fólkið okkar stóð þétt saman, bað fyrir okkur og gerði líf okkar bærilegt. Um miðj- an janúar fékkstu þær gleðifréttir að tekist hefði að lækna þig. En því mið- ur var það skammgóð- ur vermir. Þú fékkst einhverja pest, sem því miður var annað og verra. Elsku Vaddý, þér var ætlað annað og stærra hlutverk hjá Honum sem öllu ræð- ur. Við höfum heyrt fréttir utan úr heimi þar sem skjólstæðing- ar þínir, börn og aldr- aðir, eiga um sárt að binda í stríði og hung- ursneyð. Hann vantaði konu eins og þig til að hjálpa sér. Enga þekki ég betri en þig í það hlutverk. Elsku bróðir, börn, tengdabörn og barnaböm, söknuður ykkar er mikill. Að lokum vil ég þakka ykk- ur fyrir alla þá ástúð sem þið hafið sýnt mér í mínum veikindum. Það gleymist aldrei. Guð blessi ykkur öll. Samúðarkveðjur, Guðmundína Samúelsdóttir (Mumina). Skilafrestur minningargreina EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf gi-ein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.