Morgunblaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 67 , BREF TIL BLAÐSINS Fyrirmyndir í vímu Frá Kristni Snæland: TIL er fólk sem virðist af alvöru leggja þeini hugsun lið, að landið okkar verði vímuefnalaust og setur sér jafnvel tiltekið ár í því sam- bandi. Forgangsverkefnj þessa ágæta fólks virðist vera börnin og unglingarnir okkar, eins og þar sé lausn vandans. Ég sé vandann í öðru ljósi, ég sé vandann í afstöðu og umgengni fullorðinna varðandi vímuefni. Hvernig má búast við árangri í baráttu gegn vímuefnum þegar t.d. borgarstjórinn í Reykjavík, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, heykist undan hótunum boltabullna og framlengir ólöglega vínveitinga- leyfi á knattspyi'numóti sem sótt er af öllum aldursflokkum? Eru slík vinnubrögð hluti af vinnu gegn vímuefnum? Reyndar er átakan- legt dómgreindarleysi að veita vín- veitingaleyfi við slíkar íþróttasam- komur. Það má líka spyrja hvort það sé liður í baráttu Reykjavíkurborgar að halda á vegum Dagvistar barna í Reykjavík drykkjusamkvæmi í íþróttahúsi Fram hér á dögunum. Þetta var undir stjórn Arna Þórs Sigurðssonar og væntanlega með góðlátlegu samþykki Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem auk þess að sitja í stjórn Dagvistar barna í borginni er m.a. stjórnannaður í íþróttafélaginu Fram sem lagði til húsnæðið undir drykkjuna. Einhverjar mögnuðustu drykkju- samkomur sem fram fara í borginni eru gjarnan skólaböll framhalds- skólanna en nemendur þeirra eru flestir undir löglegum drykkjualdri. Kennarar og skólastjórnendur horfa á þetta ráðalausir enda varla von til aðgerða þar sem þeir hafa sjálfir, a.m.k. margir hverjir, út- skrifast úr Kennaraháskóla Islands en í húsakynnum hans fara oft fram fjölmennar drykkjusamkomur. Fullorðna fólkið ætti að skoða myndirnar í „hringiðu“ DV en þar getur að líta fullorðna fólkið sem er mætt á „menningarsamkomu“, opnun nýs íyririækis, myndlistar- sýningar eða annað sem frásagnar- vert er talið. A myndum þeim er fullorðna fólkið oft með vínglös í höndunum og þó vissulega kunni að vera óáfengt í sumum glösum þá fer það ekki leynt að áfengi er oft- ast í boði. Glasafólkið á myndunum er allt frá íyi-rverandi forseta landsins upp í almenna óþekkta borgara. Þetta fólk er trúlega með vínglösunum að leggja vímuefna- lausu landi lið, eða hvað? Er von til þess að unglingarnir hafni áfengi þegar hinir fullorðnu gera félagsheimili íþróttafélaganna að drykkjubúllum? Ofögur eru di-ykkjulætin við og í íþróttahúsun- um á stundum og ófagurt umhverfí þeh-ra stráð bjórdósum, flöskum og plastmálum. Ekki eru það ungling- arnir okkar sem standa fyrir slíku eða bera þar á ábyrgð. Gróðafíkn íþróttaforystunnar sem í hálfgerðri vitfirringu reynir að gera hvert íþróttafélag og hvert lið að dulbúnu atvinnumannaliði hrekur hina full- orðnu út í bjórsölu í fjáröflunar- skyni. Kaldhæðnin í ruglinu er svo að rökrétt væri að svona í besta lagi eitt eða tvö félög gætu stundað at- vinnumennsku hér á landi ef miðað væri við mannfjölda. Hvers vegna ætli bæði félögin á Akureyri skuldi einhverjar tugi milljóna, og er ekki stór vandi fyrir dyrum á Olafsfirði vegna dulbúinnar atvinnumennsku í íþróttum? Er ekki líka í gangi at- vinnumennsku-skrípaleikur hjá fé- lögunum á höfuðborgarsvæðinu, jafnvel svo að farið er að selja þau sem hlutafélög? Ekki furða að hinir fullorðnu finni sig tilneydda til að selja áfengi, jafnvel innan íþróttafé- laganna. Hvernig getur nokkur fullorðinn ætlast til að bömin okkar hafni vímunni þegar svona er í pottinn búið? Það er sorglegt að horfa á niður- lægingu fullorðna fólksins sem tel- ur það jafnvel fínt að þvælast um göturnar milli kráa með áfengisglös í höndunum og ekki kemst það heiman frá sér niður á næstu krá, án þess að borinn sé bjór eða áfengisflaska. Fátt er ömurlegra en uppábúið fullorðið fólk sem svo vafrar um með ölglas eða bjór- flösku í höndunum. Verst er að þetta þykir svo sjálfsagt að fáir finna að. Ekki er þess að vænta að gróða- pungarnir sem óforskammað aug- lýsa bjór ætli sér vímuefnalaust land og linkind gagnvart ólöglegum áfengisauglýsingum vekur ekki vonh- um vímuefnalaust land. Er það svartsýni að ætla að það taki nokkrar aldir að siðmennta svo ís- lenska þjóð að hún hafni vímunni og komi sér á nokkuð svo menning- arlegt stig í meðferð og neyslu áfengis? KRISTINN SNÆLAND, Engjaseli 65, Reykjavík. ANNAR hópur italskra fjallamanna af tveimur sem heimsóttu ísland sl. sumar. Aukmn áhugi Itala á Islandi Frá Ara Trausta Guðmundssyni: EKKI hefur farið framhjá fólki í ferðaþjónustunni og mörgum öðr- um að æ fleiri ítalskir ferðamenn koma árlega til landsins. Að nokkru leyti er þetta töluvert miklu kynn- ingarstarfi að þakka og bættum samgöngum. í aðra röndina ræður nokkru sú staðreynd að margir Italir líta til fjarlægra staða með lítt snortinni náttúru til þess að komast úr þrengslum helstu úti- vistarsvæða Evrópu. Þetta á mjög svo við Norður-Italíu, t.d. Dóló- míta-fjöllin og Austur-Alpana. Flestir ítölsku ferðamennirnir sem hingað koma enj allefnað fólk með áhuga á að skoða náttúru og menn- ingu og þeir fara í hóflega erfiðar skoðunarferðir og búa bærilega að svefnstöðum, mat og drykk. En nú hafa ítalskir fjallamenn beint sjón- um sínum að landinu og erfíðari ferðum. Fyrst er vitað til að hingað hafi komið ítali að klífa fjöll 1936, dr. Pollitzer að nafni. Hann komst m.a. á Bárðarbungu. En áratugum saman hafa svo fáir „alpinisti" kom- ið frá Italíu til Islands. Nú kann það að breytast. I Róm starfar Vináttufélag Is- lands (og Italíu) eða Associazione Amici dell’Islanda af heilmiklum krafti, m.a. að landkynningu. Þar á bæ stjórnar starfinu dr. Wladimiro Bombacci, Islandsvinur til margra ára sem þekkir land og þjóð prýði- lega. Wladimiro Bombacci er sjálf- ur fær fjallamaður, einkum á yngri árum, og hefur gott samband inn í ítalska Alpasambandið (CAI) en þar eru 320.000 félagar. Að hans fnimkvæði lagði forseti CAI til í íyrra að komið skyldi á sérstöku vináttusambandi milli Islenska Alpaklúbbsins (ÍSALP) og ís- lenskra fjallamanna almennt, og Hvert fara framliðnir? Frá Atla Hraunfjörð: í SÍÐASTA lesendabréfí sem birt- ist í Morgunblaðinu 6 mars, fjallaði ég um skilning dr. Helga Pjeturss um efnislega veröld framliðinna, skilning byggðan á lestri hundruða framlífsbóka. í bréfinu benti ég á, að með vísindalegri víðsýni geti glöggir efnishyggjumenn, líkt og dr. Helgi, greint við flokkun lýsinga framliðinna á umhverfi sínu, að verustaðir þeirra framliðnu eru mismunandi, séu lýsingar þeirra skoðaðar út frá náttúru og jarð- fræði, auk samfélagslegi'i viðmiðun. Vísindamenn, t.d. stjarnfræðingar, stjarneðlisfræðingar og jarðfræð- ingar, geta ef þeir lesa vel og flokka lýsingar framliðinna á jarðfræði staðanna áttað sig á, að staðirnir eru jarðneskir og hljóta að vera á öðrum hnöttum. Það eitt er víst, að ekki er um að ræða einn stað sam- kvæmt áður sögðu, þar sem fólkið lýsir fyrirbærum sem eru með öllu óþekkt hér á jörðu. Eins og áður hefur komið fram, er niðurstaða dr. Helga, að framlíf er í efni og eigi sér stað á öðrum jörðum í öðrum sólkerfum út í ver- aldarrúminu. Augljóst er að sumar lýsingar framliðinna geta átt við hnetti með bundinn möndulsnún- ing. Það er að segja, hnötturinn snýr ætíð sömu hlið að sólu og á móti, sömu hlið undan sólu. Á annarri hliðinni er alltaf sól en á hinni sífellt myrkur, en á mörkum birtu og dimmu, allt frá eilífum morgni til eilífs kvöldroða. Hnett- irnir hafa í aldanna rás stöðvast með öllu. Sumir hnettir hafa sam- kvæmt frásögn framliðinna aðra liti í andrúmslofti sínu og umhverfi, vegna litar sólarinnar, sem t.d. er bláleit ellegar hún er rauðleit. Dr. Helgi áttaði sig á lögmálinu sem ræður því hvar framliðnir lenda eða raðast niður til framlífs og gaf því nafnið stillilögmál. Lögmálið ræður hvar menn lenda til framlífs, en það mótast af lífí þeirra og hugsun og á móti, hugsun annarra til þeirra í samræmi við hegðun er þeir sýna af sér, eða eins og sagt er, „sækjast sér um líkir“. Það er að segja, gerð- ir mannsins stilla hann til staða þar sem aðrir hans líkai' koma saman til framlífs. Glöggir rannsakendur sem lesa og flokka frásagnir framliðinna sjá það strax, að það er fylgni á milli staðháttalýsinga þess framliðna og framferðis í lifanda lífi, hvar hann lendir til framlífs. Því dimmara sem umhverfíð er, því ljótara lífi lifði hinn framliðni á meðal okkar og á hinn bóginn, því bjartara umhverfi þess framliðna, því þroskaðri var hann í mannlegum samskiptum. Þegar líkaminn ónýtist og lífið fjar- svo CAI og ítalskra fjallamanna. í framhaldi af því komu tveir stórir hópar ítalskra fjallamann til ís- lands sl. sumar. Sá ferðaskrifstofan Landnáma um framkvæmd ferða hér heima en hluti fjallamannanna gekk m.a. á Hvannadalshnúk. For- maður ISALP og greinarhöfundur hittu hópana og kynntu fyrir þeim fjallamennsku á Islandi. I bréfi dr. Bombacci (12.3.) segir að Italirnir hafi verið sérlega ánægir með ferð sína til Islands og að hingað sé mik- ið að sækja. I sumar stendur íslenskum fjalla- mönnum til boða að heimsækja ítölsku Alpana þar sem þeim verð- ur gert kleift að nýta skála CAI og fá aðstoð þai'lendra „alpinisti". Þá er einnig fyrirhugað að fleh-i ítalsk- ir hópar komi hingað í svipaðar ferðir og farnar voru sl. sumar. Þegar þess er gætt hve margir fé- lagar eni í Italska Alpasambandinu og hve fjölbreytta ferðamennsku er unnt að stunda á Islandi má sjá að þessi viðbót við íslensku ferðaflór- una er einkar ánægjuleg. Islenskir fjallamenn geta auðvitað líka sótt sér reynslu í ítölsku Alpana. ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON, jarðeðlisfræðingur. ai' út, geislumst við til þess staðar sem við höfum samstillst með lífí okkar, þ.e. með hegðun og hugsun (stillilögmálið) og byggjum upp nýjan líkama úr efnum nýrrar jarð- ar og höldum áfram að lifa, á öðrum stað óravegu frá hinum fyrri. Það er að segja, lífafl okkar kemur hreyfingu á efnið og þéttir það til mótunar á nýum líkama. Þar með hefst nýr kafli í þroskasögu manns- ins sem stefnir til framfara á öllum sviðum líkamlegrar fegurðar og andlegs þroska og lífsfyllingar. Mismunandi er hve fljótt einstak- Ungurinn er að ná áttum, en að lok- um, ef einhver lok eru, verður hann bjartur og skínandi og stefnir til fullrar þátttöku í eflingu lífs í al- heimi. Áð lokum vil ég endurtaka lykilatriði málsins eins og í síðasta bréfi. 1. Hugsanaflutningur er viður- kennd staðreynd. 2. Framlíf er viðurkennd stað- reynd. 3. Allt líf er í efni, samkvæmt niðurstöðu líffræðinnar. 4. Staðhæfing: Þar sem allt líf er í efni og framlíf er viðurkennd stað- reynd, hlýtur framlíf að vera í efni. 5. Staðhæfing: Hugsanaaflið er undirstaða alls lífs í alheimi. ATLI HRAUNFJÖRÐ, Marargi-und 5, Gai'ðabæ. CLINIQUE á allra vörum í Lyfju Kópavogi CLINIQUL 100% ofnæmisprófað í tilefni af opnun Lyfju Kópavogi verður ráðgjafi frá Clinique í versluninni í dag og á morgun frá kl. 13.00-18.00. Frí húðgreining á Clinique-tölvuna og ráðleggingar um Clinique- snyrtivörur og notkun þeirra. Að lokinni húðgreiningu færð þú varalit að gjöf frá Clinique meðan birgðir endast. Vinsamlegast pantið tíma eða lítið inn. LYFJA Hamraborg 11, sími 554 0102.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.