Morgunblaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Passíusálmarn-
ir lesnir í Akra-
neskirkju
í FYRRA var tekin upp sú ný-
breytni í Akraneskirkju á fóstudag-
inn langa að Passíusálmarnir voru
lesnir þar í heild sinni. Féll sú til-
raun í góðan jarðveg hjá sóknar-
bömum, sem fjölmenntu til kirkju
af því tilefni.
I ár verður söfnuðinum aftur boð-
ið að hlýða á lestur Passíusálmanna.
Sóknarnefndarfólk mun lesa þá
ásamt núverandi og fyirverandi
sóknarpresti. Katalin Lörinez mun
leika á orgelið á milli lestra. Unnur
H. Arnardóttir syngur einsöng þeg-
ar lesturinn er hálfnaður.
Akurnesingar eru hvattir til þess
að koma í kirkju sína, hlýða á og
hugleiða með lesuranum píslarferil
frelsarans. Kirkjugestum er heimilt
að koma og fara eftir því sem þeim
sjálfum hentar.
Sóknarprestur.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverð-
ur. Samverustund foreldra ungra
barna kl. 14-16. Fundur í æskulýðs-
félaginu kl. 20.
Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf kl.
20.30.
Dómkirkjan. Barnastarf fyrir 6-9
ára börn kl. 10.15 og kl. 14.15 í safn-
aðarheimilinu.
Grensáskirkja. Kvrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um. Passíusálmalestur og orgelleik-
ur kl. 12.15. Æskulýðsfélagið Örk
(yngri deild) kl. 20.
Háteigskirkja. Starf fyrir 6-9 ára
börn kl. 17.
Langholtskirkja. Passíusálmalestur
og bænastund kl. 18.
Laugarneskirkja. „Þriðjudagur
með Þorvaldi“ kl. 21. Lofgjörðar-
stund.
Seltjarnarneskirkja. For-
eldramorgunn kl. 10-12. Passíu-
sálmalestur kl. 12.30.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu kl. 10-12. Páska-
föndur.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja. Æskulýðsstarf kl.
17.15 á vegum KFUM & K og
Digi-aneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
EDaoDg® y Negro
Skólavörðustíg 21 a »101 Reykjavík
sími/fax 552 1220
Akraneskirkja.
9- 10 ára stúlkur kl. 17.30. Æsku-
lýðsstarf fyrir 8. bekk kl. 20.30.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18. Prédikunarklúbbur
presta kl. 9.15 í umsjá dr. Sigurjóns
Áma Eyjólfssonar.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10- 12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 7-9 ára böm frá kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 8-9
ára börn kl. 17-18.30. Aftansöngur
og fyrirbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. TTT-starf
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30 í Vonar-
höfn Strandbergs. Kristin íhugun í
Stafni, Kapellu Strandbergs, kl.
21.30- 22. Heimsborgin - Rómverja-
bréfið, lestur í Vonarhöfn kl.
18.30- 20.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl.
14-16. Starfsfólk verður á sama
tíma í Kirkjulundi.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. Mömmumorgunn
í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og
12. Helgistund í kirkjunni sömu
daga kl. 18.30.
Hvammstangakirkja. For-
eldramorgunn kl. 10-12 á prests-
setrinu.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Ailir velkomn-
ir.
Lágafellskirkja. Æskulýðsstarf
fermingarbama á miðvikudögum kl.
20. Umsjón Sigurður Rúnar Ragn-
arsson.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
KFUM og K fyrir 9-12 ára kl. 16.
Biblíulestur í Sæborg kl. 20.
Bahá’í. Bahá’í-samfélagið í Hafnar-
firði býður alla hjartanlega vel-
komna á kynningu á bahá’í-trú á
efri hæð Gúttó v/Suðurgötu í kvöld
kl. 20.30.
HUGBÚNAÐUR
FYRIRWINDOWS
Frábær þjónusta
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 * Sími 568 8055
www.islandia.is/kerlislhroun
Pallbílaeigendur
Þeir sem hafa áhuga á að
panta pallhús fyrir sumarið
hafið samband við okkur hið
fyrsta: Höfum enn fjölbreyttara
úrval og nýjar gerðir að bjóða.
m * e
f'- .Ti." m 3 .
Pallhús sf., Armúla 34,
símar 553 7730 og 561 0450
í DAG
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Sel atkvæðið
dýrt
NÚ ER ég klökkur.
Kaupið mitt hækkar um
heil 7%. Þetta era 4000
krónur á mánuði. Hvað á
ég að gera við öll þessi
ósköp? Fara í Bónus og
kaupa mér um það bil
hálfa kerru af nauðsynj-
um? Fara í Kolaportið og
kaupa mér gallabuxur?
Það veit sá sem allt veit
að ég verð í vandræðum
með allt þtta fé á milli
handanna.
Eg veit bara það eitt að
Davíð okkar og allt hans
lið hefur mitt atkvæði á
hreinu. Eg lét að því
liggja að ég vissi ekki
hvar ég ætti að setja
krossinn minn í komandi
kosningum en nú er sá efi
úr sögunni. Eg verð að
játa að ég sel atkvæðið
mitt nokkuð dýrt en ég
get ekki hafnað svona
góðu boði. Eg verð bara
að passa að eyða ekki öllu
þessu fé í einhverja vit-
leysu. Eg lá andvaka í
nótt og velti dæminu fyrir
mér. 7% af engu er engin
smá tala. Heilar 4000
krónur. Eg er bara að
vona að þetta setji ekki
ríkiskassann á hausinn.
En ég veit að um ríkis-
kassann halda það sterk-
ar hendur að við fórum
okkur ekki að voða.
Ég vil svo bara að end-
ingu skora á alla öryrkja
og aldraða sem hafa þurft
að lifa í okkar heilnæma
lofti að setja nú krossinn
sinn hjá okkar ástkæru
ríkisstjórn og hætta nú að
jarma. Það er ekkert lítið
sem þið getið gert fyrir
4000 krónur. Kjósið Davíð
og allt hans lið og ekkert
mun breytast hjá ykkur.
Hrafn Hauksson,
Reynimel 51.
Örlæti
ER ekki borgarstjórinn
okkar að verða fullörlátur
við okkur skattgreiðend-
ur. Nú hefur hún sett vin-
konu sína í nýtt embætti
framkvæmdastjóra mið-
bæjar. Við höfum alla
borgarstjórnina á fullu
kaupi, um 20 manns, er
það ekki þeirra að taka
þetta starf að sér. Verður
næst skipaður fram-
kvæmdastjóri Árbæjar-,
Breiðholts-, Grafarvogs
o.s.frv. Þessi nýi fram-
kvæmdastjóri er líffræð-
ingur að mennt en hefur
ekki stjórnunar- eða
skipulagsmenntun. Ég
held að vinavæðingin sé
farin að ganga nokkuð
langt. Og af hverju er
miðbærinn okkar orðinn
eins ömurlegur og hann
er.
Hólmfríður Jónsdóttir.
Nútíma
þrælahald
Sigrún O. Marinósdóttir
skrifai’ í Velvakanda 18.
mars sl. um nútíma
þrælahald. Hverf orð er
hún ritar er 100% rétt.
Undirritaður starfaði hjá
fyrirtæki hér í borginni.
Á þeim var vinnustað var
laugardagsskylduvinna,
menn sem ekki gátu þá
mætt, gátu fundið sér
annað að gera. Þegar
þetta fyrirkomulag var
rætt við forsvarsmenn
stéttarfélagsins Eflingar
var bara yppt öxlum og
svarað að það væri ekki
hægt að skylda menn til
að vinna á laugardögum.
Dofinn í þessu félagi er til
skammar og félagsmönn-
um er þangað koma til að
leita réttar síns er sýndur
hroki í afgreiðslu. Þetta
ágæta stéttarfélag tekur
á móti félagsgjöldum, em
að fara að byggja hús en
ég held að það væri
sterkara að byggja upp
félagið og styrkja það og
sýna og sanna að félags-
menn séu þar velkomnir.
Hafliði Helgason.
Völvufelli 50.
SKÁK
Fmíijóii Margeir
I’étursson
38. Df4+ - g5 39. Dd6+ -
Hg6 40. Df8+ - Hg7 41.
Dxg7 mát) 37. Hd7 og
svartur gafst upp, því mátið
blasir við.
STAÐAN kom upp
á árlega Melody
Amber atskák- og
blindskákmótinu í
Mónakó. Staðan
kom upp í atskák.
Veselin Topalov
(2.700), Búlgaríu,
hafði hvítt og átti
leik, en Ljubomir
Ljubojevic (2.570)
var með svart.
36. Bg8+! - Kh8
(Eða 36. - Hxg8
37. Hd7+ - Kh6 HVÍTUR mátar í sjötta leik.
COSPER
NÚ er síminn til þín.
Víkveiji skrifar...
FYRIR nokkru eða hinn 18.
marz skrifaði Víkverji um
stóm happdrættin og lýsti því þar
að væri miði ekki seldur, þyrftu
happdrættin að sjálfsögðu ekki að
greiða út vinninginn, sem upp á
númerið kæmi. Þetta er auðvitað
auðskilið mál. Víkverji hélt því
hins vegar aldrei fram að það væri
einhver hagnaður happdrættanna
af slíkum vinningi og auðvitað
hagnast happdrættið ekki, nema
sem flestir miðar séu seldir. Hagn-
aðurinn hlýtur að felast í því að
miðar seljist.
Þrátt fyrir það og þótt ekki hafi
verið í einu orði minnst á Happ-
drætti Háskóla Islands skrifar for-
stjóri þess, Ragnar Ingimarsson,
Víkverja eftirfarandi bréf
xxx
RAGNAR Ingimarsson segir:
„í Mbl. 18. mars veitist Vík-
verji enn að happdrættisrekstri
með svipuðum hætti og fyrr þ.e.
með því að láta að því liggja að
flokkahappdrættin hagnist á því
að geta ekki selt alla útgefna miða
- þau hljóti þá sjálf hluta vinninga
og greiði þar af leiðandi út lægra
vinningshlutfall en auglýst sé.
Það er nú reyndar ekki svo að
Víkverji sé einn um að fá svona
flugur í höfuðið - undirritaður hef-
ur í tímanna rás þurft að útskýra
svipuð mál fyrir einstaklingum
sem hafa orðið fastir í álíka hugs-
anavillum, en sem betur fer hefur
slíkt nær undantekningarlaust
endað með því að viðkomandi hef-
ur lýst því yfir að nú skilji hann
málið og falhst á að ekki sé hallað
á viðskiptavinina.
Eftirfarandi dæmi gæti hjálpað:
Hugsum okkur happdrætti með
1000 útgefnum miðum sem hver
kostar 1000 kr. Vinningar skulu
vera 100, hver að verðmæti 700
krónur. Ef allir miðamir seljast
verða heildartekjurnar þvi
1 000 000 kr., vinningar verða
samtals 700 000 kr. og vinnings-
hlutfallið óumdeilt 70%. Happ-
drættið fær í sinn hlut 300 00 kr.
sem ágóða og til að standa undir
kostnaði við rekstur.
Hugsum okkur nú að aðeins 500
miðar seljist, þ.e. heildartekjurnar
verði 500 000 kr. Drögum sem
fyrr út 100 vinninga, hvern á 700
kr. þ.e. vinninga að heildarverð-
mæti 700 000 kr.
Þarf happdrættið nú að greiða
út 700 000 kr. af tekjum sem voru
aðeins 500 000 kr., þ.e. að tapa
200 000 kr. á fyrirtækinu? Sem
betur fer ekki, að minnsta kosti
fyrir happdrættið.
Líklegast er að 50 útdreginna
vinninga hafi lent á seldum miðum
og 50 á óseldum. Það sem happ-
drættið þarf þá að greiða út era
50x700=350 000 kr. Happdrættið
fær nú í sinn hlut þar sem eftir var
af heildarsölutekjunum þ.e.
500 000-350 000=150 000 kr. Og
hvert er þá hið raunverulega vinn-
ingshlutfall? Því er fljótsvarað:
það er 350 000 af 500 000 eða 70%
- alveg eins og til stóð.
En hvað með vinningana sem
féllu á óseldu miðana? Ja - hvar
skyldi þá peninga vera að finna?
Þeir eru öragglega ekki hjá happ-
drættinu - það á bara 150 000 kr.
eftir - helmingi minna en það hefði
átt eftir ef allir miðarnir hefðu
selst - svo ekki hafði það ávinning
af minnkandi sölu. Viðskiptavin-
irnir fengu hins vegar í sinn hlut
það sem lofað hafði verið í vinn-
inga, þ.e. 70% af heildarsölutekj-
um.
Vona ég að ljóst sé af ofan-
greindu að flokkahappdrættin hafa
engan ávinning af óseldum miðum
nema síður sé.“
xxx
SVO MÖRG voru orð forstjóra
Happdrættis Háskólans og nú
ætti öllum lesendum Víkverja að
vera ljóst, að hagnaður happdrætt-
anna byggist á seldum miðum en
ekki óseldum. Víkverji hvetur fólk,
sem vill styðja góðan málstað
happdrættanna til þess að kaupa
sér miða, því að það er þó alltjent
ljóst, að enginn vinnur í happ-
drætti, nema hann kaupi sér miða
og hvatningarorðin „miði er mögu-
leiki“ era í fullu gildi.