Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 17
T óbaksvarnanefnd í 5. gr. laga um tóbaksvarnir stendur orðrétt: 5.1. Ráðherra skipar tóbaksvarna- nefnd til fjögurra ára í senn. I nefndinni eiga sæti þrír menn og skulu a.m.k. tveir vera sérfróðir um skaðsemi tóbaks eða tóbaks- vamir. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Ráðherra skipar einn nefndarmann formann. 5.2. Hlutverk tóbaksvamanefndar er fyrst og fremst: 1. Að vera ríkisstjóm, heilbrigð- ismálaráðherra, Hollustuvernd rlkisins, Vinnueftirliti ríkisins og öðrum opinberum aðilum til ráðuneytis um allt er að tóbaks- vömum lýtur. 2. Að gera tillögur til stjómvalda um ráðstafanir til þess að vinna gegn neyslu tóbaks í samræmi við lög þessi. 3. Að hvetja aðra aðila til átaks í reykingavömum og leitast við að samræma störf þeirra. 4. Að veita aðstoð og leiðbein- ingar varðandi tóbaksvarnir, m.a. með þvi að gefa út og út- vega fræðslurit og önnur fræðslugögn. 5. Að fylgjast með tóbaksneyslu í landinu. 6. Að nýta reynslu og þekkingu annarra þjóða á sviði tóbaks- vama. 5.3. Fjármálaráðuneytið skal hafa samráð við tóbaksvarnanefnd um stefnumörkun varðandi inn- flutning og verðlagningu tóbaks. 5.4. Leita skal álits nefndarinnar um allar reglugerðir sem snerta tó- baksvamir og tóbakssölu. 5.5. Tóbaksvamanefnd starfar í sam- vinnu við Hollustuvemd ríkisins og Vinnueftirlit rikisins. 5.6. Ráðherra er heimilt að setja nán- ari ákvæði um hlutverk og störf tóbaksvamanefndar í reglugerð. 17 „Að mínum dómi mætti verð á tóbaki vera ennþá hærra en það er.“ Við búum við fordómaleysi Reykingamenn segja oft: „Ef þér er illa við tóbak, þá er þér illa við mig. Svar þitt gæti hæglega verið: Hvers vegna? Ert þú ekki manneskja eins og ég? Mér er kannski illa við hvitlaukslykt, en það þýðir ekki að mér sé illa við þá sem borða hvítlauk. Á mér að vera illa við tengaforeldra mína, bróður minn og mágkonu og frændur mína og frænkur bara vegna þess að þau reykja? Ég set ekki samasemmerki milli mannskepnunnar og þess sem hún gerir. Af hverju gerir þú það?“ Það er nefnilega vandamálið. Peir sem reykja hafa ákveðið að þeir og tóbakið séu eitt og hið sama. Af þeim sökum kemur röksemdarfærslan - ef þér er illa við tóbak, er þér illa við mig. Ef þú hins vegar kemst að sláandi stað- reyndum um skaðsemi matvæla, heilsudrykkja, áfengis, eiturlyfja eða vítamína er þér boðið að hrópa þær staðreyndir af húsþökum og fólk kemur til þín og segir: „Þakka þér fyrir að vara mig við.“ Staðreyndum um sígarettuna er hins vegar tekið sem persónulegri árás. Reykingamenn eru engu að síður flestir sammála um að hvetja unga fólkið til að byrja ekki að reykja. Hvað veldur? Svarið er líklega hið sama og svárið við því hvers vegna böm eru sífellt „þrasandi" í foreldrum sínum um að hætta að reykja. Vænt- umþykja veldur því að fólk reynir að vara við. En það er hins vegar oftast tilgangslítið og stundum betra að láta eins og ekkert sé og halda áfram að sýna væntumþykjuna - án tillits til þess hvort einstaklingurinn reykir, drekkur, borðar of mikið, tekur inn eiturlyf eða annað það sem þjóðfélag- ið lítur homauga. Ef tækifæri gefst má miðla upplýsingum án fordóma. Pað er full ástæða til að benda þeim sem reykja á að miðlun staðreynda um tóbak er ekki persónuleg árás. Á móti er ágætt að benda þeim, sem ekki reykja og eiga það til að vera for- dómafullir, á að kasta ekki steinum úr glerhúsi, vera málefnalegir og gera sér strax grein fyrir því að þeir sem reykja em ekki annars flokks. Sýnum skyn- semi, tillitssemi og þolinmæði - það borgar sig alltaf að lokum. G.B. SÍF hf. - Sölusamband íslenskra fiskframleiðanda hf. Orkuveita Reykjavíkur Sorpa Tryggingamiðstöðin hf. Vestmannaeyj abær Sparisjóðurinn í Keflavík ^St 0i*tLu úrvalið! 'Siji vörutegundir á frábæru verði! SiS 5? Skeifan • Smáraforg • Akureyri • Njarðvík HAGKAUP Meira úrval - betri kaup ingian^.hæð %..S>

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.