Morgunblaðið - 06.07.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 19
AKUREYRI
Morgunblaðið/Ásdís
SVEINN Ásgeirsson fjarstýrir járnpressunni. í baksýn má sjá hluta haugsins og tvo bfla sem síðar enda
sem fýrirferðarlitlir kassar.
Brotajárn endurunnið í Krossanesi
HEILMIKILL brotajárnshaugur
hefur myndast á svæðinu fyrir
ofan Krossanesverksmiðjuna.
Þar má sjá vél hamast við að
tæta járnarusl og breyta heilu
bflunum í fyrirferðarlitla kassa.
Þarna er á ferðinni járnpressa
frá fyrirtækinu Hringrás sem er
endurvinnslufyrirtæki. Þeir eru í
samvinnu við Sorpeyðingu Eyja-
fjarðar og sveitarfélögin á Eyja-
fjarðarsvæðinu sem sjá um mót-
töku á járnarusli. Hringrás kem-
ur svo hingað með járnpressuna
og pressar járnið sem síðan er
flutt út til bræðslu. Að sögn
Sveins Ásgeirssonar hjá Hring-
rás þá hefur mikið breyst frá því
sem áður var þegar mest allt
járn var urðað og sáralítið end-
urunnið.
Sveinn segir að í næsta mánuði
verði uppskipun á járni til að
flytja út til bræðslu, úr brota-
járninu er síðan unninn mótavír
og járn til að framieiða bíla og
ýmislegt fleira sem framleitt er
úr járni. Hann segir að stefnt sé
á að ná um 2500 tonnum af sam-
anpressuðu járni. Hann segir að
á Islandi falli til um 20.000 tonn
af járni árlega og því sé mjög
mikilvægt að ná að endurvinna
sem mest. „Eftir að umhverfislög
voru hert þá jókst endurvinnsla á
járni til muna og við höfúm nóg
að gera við að pressa brotajárn
út um allt land,“ sagði Sveinn.
Sveinn sagði að stefnt væri á að
flyfja út tvo til þrjá farma af
þessu svæði í sumar en einn
farmur hefði farið fyrir ári síðan.
Akureyrarbær veitir styrki
til kennaranáms
Þrjátíu og
ein umsókn
SKÓLANEFND Akureyrarbæj-
ar auglýsti fyrir nokkru styrki til
náms í kennara- og leikskóla-
kennaradeild Háskólans á Akur-
eyri. Upphæð styrkjanna verður
60.000 krónur á mánuði eða alls
um 560.000 krónur yfir skólaárið.
Skilyrði fyrir umsókn eru að
styrkþegar skuldbindi sig til að
inna af hendi vinnuframlag 'við
leik- og grunnskóla Akureyrar,
eitt ár fyrir hvert styrkár. Að
sögn Ingólfs Armannssonar hjá
Akureyrarbæ þá barst þrjátíu og
ein umsókn um styrki og fór það
fram úr björtustu vonum for-
svarsmanna kennslusviðs Akur-
eyrabæjar.
Ingólfur sagði að styrkimir
væri ein leið til að fjölga rétt-
indakennurum í bænum og laða
fólk til náms. „Við fáum efnilegt
fólk til að mennta sig í bænum
sem síðan skuldbindur sig síðan
til að vinna hjá okkur í ákveðinn
tíma. Háskólinn hér á Akureyri
hagnast líka á því að fá til sín
efnilega nemendur enda tekur
hann þátt í þessu með okkur,“
sagði Ingólfur. Hann sagði að nú
færu í hönd sumarfrí hjá starfs-
mönnum bæjarins og óvíst væri
hvenær unnið yrði úr umsóknun-
um en stefnt væri að því að nið-
urstaða lægi fyrir ekki seinna en
10. ágúst.
Minjasafnið á Akureyri
Fyrsta söngvakan
SÖNGVÖKUR Minjasafnsins á
Akureyri eru yfirlit íslenskrar
tónlistarsögu í tali og tónum en
fyrsta söngvakan fer fram í
kvöld, þriðjudagskvöldið 6. júlí,
kl. 21, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Flytjendur á
söngvökunni eru Rósa Kristín
Baldursdóttir og Hjörleifur
Hjartarson. Allir þeir sem vilja
eiga notalega og jafnframt fræð-
andi kvöldstund eru hvattir til að
mæta, segir ennfremur í frétta-
tilkynningunni.
Aðgangseyrir er 700 krónur
og er heimsókn í Minjasafnið
innifalin, en safnið verður opið á
þriðjudagskvöldum milli kl. 20
og 23, auk venjulegs opnunar-
tíma sem er frá ld. 11 til 17.
Halló! Horföu hingað. Komdu nær.
Allir sem skrá sig vikuna 5. til 11. júlí fá fyrstu þrjá mánuðina fría.
Fyrstu 200 sem skrá sig fá að auki bókina Internetiö á eigin spýtur.
Mótald 1.190
ISDN 64 1.690
ISDN 128 2.190
Samskipti eru góð.
Ókeypis samskipti eru samt betri.
Komdu í heimsókn mam
Síminn Internet, Grensásvegi 3, sími 800 7575, simnet@simnet.is
SÍMINN internet
-tengir þig við lifandi fólk