Morgunblaðið - 06.07.1999, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 21
Samtök Eiðavina
Benda á
mikilvægi
Eiðaskóla
AÐALFUNDUR Samtaka Eiða-
vina var haldinn á Eiðum nýverið.
Um 40 manns sóttu fundinn. For-
maður samtakanna, Vilhjálmur
Einarsson, greindi frá störfum
stjórnar, sem einkum hafa beinst
að því að vekja athygli sveitar-
stjóma á Austurlandi og ríkis-
stjórnar á mikilvægi þess að Eiða-
skóli geti haldið áfram að vera það
setur mennta og menningar sem
hann hefur verið í rúma öld og að
húsakynnum og öðrum eignum
hans verði ekki ráðstafað til ýmissa
aðila fyrir óskylda starfsemi.
„Sumarið 1998 kannaði stjórnin
áhuga stofnana og samtaka á Aust-
urlandi til fjölnota nýtingar Eiða-
skóla fyrir námskeið eða hress-
ingu, og fékk mjög jákvæð svör.
Samtökin hafa lagt áherslu á að
ríkið hafi skyldum að gegna við
viðhald og uppbyggingu staðarins,
en talið æskiiegt að austfirskir aðil-
ar tækju að sér reksturinn í um-
boði þess. Það hefur nú gerst, með
því að menntamálaráðherra samdi
við stjóm Austur-Héraðs um leigu
á skólahúsum til tveggja ára, með-
an leitað er að framtíðarhlutverki,“
segir m.a. í fréttatilkynningu frá
samtökunum.
„Samtökin hafa reifað þá hug-
mynd að komið verði á fót sjálfs-
eignarstofnun, með þátttöku ríkis
og sveitarfélaga í Múlasýslum, er
tæki við eignum Eiðaskóla og ann-
aðist rekstur í þágu fjölþættrar
menningarstarfsemi.
Nýkjörin stjórn Eiðavina er
þannig skipuð: Vilhjálmur Einars-
son (form.), Kristján Gissurarson
(gjaldkeri), Sigrún Harðardóttir,
Sævar Sigurbjarnarson og Þórhall-
ur Borgarsson. I tengslum við
fundinn var haldið „Eiðamót" fyrr-
verandi nemenda Eiðaskóla,“ segir
þar ennfremur.
Um 230 manns hafa skráð sig í
samtök Eiðavina.
---------------
Reykjanes við Djup
• •
Ornefna-
merkingar
og loftmynd
ísafirði - Lokið er við að merkja 28
ömefni í Reykjanesi við Isafjarðar-
djúp. Einnig hefur verið sett upp
stór loftmynd af nesinu sem ör-
nefnin eru merkt inn á.
Frumkvöðull að þessum merk-
ingum er Páll Aðalsteinsson, fyrr-
verandi skólastjóri í Reykjanesi, og
kostaði hann gerð merkjanna og
myndarinnar. Hann kom vestur
fýrr í þessum mánuði og setti
merkin upp ásamt börnum sínum
og barnabörnum, með góðri aðstoð
heimafólks í Reykjanesi og Svans-
vík.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
RAGNHEIÐUR Jónsdóttir og Andrés Pálmason skoða liípmur á
Mýrdalssandi. I baksýn má sjá Mýrdaisjökul.
Lúpínubreiður
á Mýrdalssandi
Fagradal - Þegar ekið er yfir
Mýrdalssand sjá menn ekki leng-
ur eingöngu svartan sand heldur
breiður af lúpínu og grasi sem
hefur verið sáð í sandinn í hund-
ruðum hektara, en Mýrdalsand-
ur er að verða einn stærsti fræ-
banki landgræðslunnar á land-
inu.
Á þessum tíma árs er lúpinan
einstaklega fallega fagurblá á að
líta. Lúpinan er líka einstök að
því leyti að henni er einungis sáð
og ekki má bera á hana tilbúinn
áburð til að hún vaxi því að rótin
framleiðir köfnunarefni úr and-
rúmsloftinu og undirbýr jarð-
veginn fyrir aðrar plöntur.3
skv. könnun braska
timaritsins What Car?
návToe
ORUGGUR
í SPACE STAR er tryggilega séð fyrir öllu, seni snýr
að öryggi farþeganna. SPACE STAR uppfyllir
rúmlega allar kröfur um öryggi samkvæmt
stöðlum Evrópusambandsins og hefur staðist allar
árekstrarprófanir þvi samfara með stakri prýði.
RUMGOÐUR
Þessi fimm dyra hlaöbakur er meö góöa lofthæð
og veitir allt þaö rými, sem þörf er á fyrir 5 manns
ásamt nauðsynlegum farangri.
Mjög auövelt er aö breyta sætaskipan þannig aö
hún hæfi aðstæðum hverju sinni.
SPARNEYTINN
SPACE STAR er hagkvæmur í rekstri. Þrátt fyrir aö
86 hestafla hreyfillinn sé léttbyggöur og spar á
eldsneyti, gefur hann stærri hreyflum ekkert eftir
í afli og snerpu.
ÞÆGILEGUR
SPACE STAR er með afbrigðum auðveldur í akstri
og lipur i meðförum. Hann er alhliða bill
notagildis og þæginda. Sætabunaöur er þannig
gerður að allri fjölskyldunni á að líða vel á
ferðalögum.
HAGSTÆTT VERÐ
MITSUBISHI SPACE STAR, er rétti kosturinn fyrir
fjölskyldur sem vilja öruggan, rúmgóöan,
sparneytinn og þægilegan bíl á hagkvæmu verði.
MITSUBISHI
■ímiklum melum!