Morgunblaðið - 18.07.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1999 31?
SKODUN
Þéttbýlisstaðir á VesHjörðum v«»,)ar
settir a suðvesturhorn landsms p
taxafloi
Mynd nr. 3
að talið er að göngin undir Hval-
fjörð, vegurinn yfir GOsfjörð og
göngin í gegnum Breiðadalsheiði
hafi veruleg áhrif á tekjuhliðina eru
þessar framkvæmdir teknar með,
auk þess sem 20-30 mOljarðar eru á
langtímaáætlun Vegagerðarinnar.
Raunverulegar viðbótarfram-
kvæmdir nema því 110-120 mOlj-
örðum kr.
Segja má að allar tölur arðsemis-
áætlunarinnar séu fengnar með
grófum áætlunum eða rökstuddum
ágiskunum. Hins vegar er reynt að
hafa kostnaðarhliðina frekar í
hærri kanti en tekjuhliðina í lægri
kanti. Hér gæti því verið um að
ræða einhverjar ábatasömustu
framkvæmdir fyrir þjóðarbúið sem
um getur. Það er svo annað mál að
þessar tölur þarf að athuga miklu
betur með umfangsmiklum rann-
sóknum. Séu þær sæmOega réttar
þegar á heildina er litið virðist
mega gera ráð fyrir að þær séu
ekki einungis þjóðhagslega hag-
kvæmar fyrir landið í heild heldur í
hverju verðandi sveitarfélagi fyrir
sig, þ.e. einnig á Vestfjörðum og
Austfjörðum þar sem gert er ráð
fyrir að framkvæmdirnar verði um-
fangsmestar. Astæðan er sú að
betri samkeppnisstaða fyrirtækja
og spamaður hins opinbera er
einmitt mestur þar sem smáir þétt-
býlisstaðir eru margir.
Á síðastliðnum 5 árum hefur
fækkað um nálægt 3500 manns utan
stóru þéttbýlissvæðanna þar af um
2500 manns í þorpum og bæjum.
Það mun vera í fyrsta skipti sem
beinlínis fækkar í öHum landshlut-
um utan stóru þéttbýUssvæðanna.
Fram að því fluttist einungis megn-
ið af fjölguninni tO þeirra. Nú er því
spáð að það fækki um 5 þús. manns
á næstu 5 árum. Að óbreyttu má
reikna með enn meiri fækkun á ár-
unum þar á eftir.
Gert er ráð fyrir því að aðgerð-
irnar geti forðað fækkun fólks utan
stóru þéttbýlissvæðanna sem nem-
ur 25 þús. manns á 30 árum og talið
að fólksflóttinn tO Reykjavíkur-
svæðisins kosti a.m.k. 3 mOlj. kr. á
hvert mannsbarn sem fækkar um
úti á landi.
Ekki er hér gerð tOlaga um að nú
verði einfaldlega vaðið í fram-
kvæmdir. Áður en það er gert af
einhverjum krafti þurfa að fara
fram umfangsmiklar rannsóknir á
sérhverju atriði sem hefur verið til
umfjöllunar hér að ofan tO staðfest-
ingar eða höfnunar á ágæti hug-
myndarinnar.
Framkvæmd
Þáttur ríkisvaldsins er
langstærstur í þessu máli. Hann
byggist á þremur meginmálum:
1. Fjármögnun þeirra rannsókna
sem fjallað er um í þessum skrifum.
Kostnaður gæti hæglega numið fá-
einum tugum mOljóna.
2. Fjármögnun, forgangsröðun
og skipulagning framkvæmda.
3. Aðgerðir og hvatning til
stækkunar sveitarfélaga.
Þáttur sveitarfélaganna felst í
því að halda áfram sameiningar-
vinnunni þannig að sífellt sameinist
stæn-i einingar, halda umræðunni
gangandi og þrýsta á stjómvöld um
frekari flutning verkefna tO þeirra
eftir því sem þróunin skríður fram.
Að lokum
Hér að framan hafa verið leidd
nokkur rök að hagkvæmni stór-
felldra vegabóta og stækkunar
sveitarfélaga. Ekki er unnt að gera
verkinu betri skO meðan rannsókn-
ir á öllum meginatriðum málsins
vantar. Það er því ekki seinna
vænna að hefja þær og vinna að
þeim af alvöru og krafti. Hætt er
við að sums staðar á landinu a.m.k.
þýði hik sama og tap.
Greinin er birt í fullri lengd,
ásamt myndum og töflum, innan
flokksins ‘Umræðan, á heimasíðu
Morgunblaðsins: www.mbl.is.
Höfundur er rekstrarverkfræðing-
ur og rekstrarráðgjafi.
Ljósahlífar
á flestar tegundir bifreiða
Þú kemst í sól
300 viðbótarsæti!
Höfum fengiö 300 viðbótarsæti til Benidorm
og Mallorca í ágúst og byrjun september.
Þú átt enn kost á aö komast í sól í sumar.
Austurstræti 12: 569 1010 Hótel Saga viö Hagatorg: 562 2277 Hafnarfjöröur: 565
1155 Keflavtk: 421 3400 Akranes: 431 3386 Akureyri: 462 7200 Vestmannaeyjar.
4811271 ísafjöröur: 456 5390 Einnig umboösmenn um land allt.
Samvinnuferðir
Landsýn
Á verði fyrir þig!
UTSALA
Ein sú magnaðasta!
Jakkaföt frá kr. 12.900
Stakir jakkar frá kr. 6.900
Stakar buxur frá kr. 3.900
Flauelsbuxur frá kr. 4
Skyrtur frá kr. 1.990
Peysur frá kr. 2.900
Úlpur frá kr. 6.900
Laugavegi 47
Sími 552 9122