Morgunblaðið - 13.08.1999, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Hreinsun á Kjarvalsmálverkinu lokið
Sett á sölu
eftir helgi
MÁLVERKIÐ eftir Kjarval, sem
keypt var á flóamarkaði í Svíþjóð
fyrir 500 krónur í haust verður sett
á sölu í Galleríi Fold eftir helgi, að
sögn Tryggva P. Friðrikssonar,
annars eiganda gallerísins.
Málverkið, sem er 41 cm x 57 cm
á stærð og af landslagi með fossi,
hefur verið í hreinsun og viðgerð
hjá Ólafi Inga Jónssyni í Morkin-
skinnu í rúman mánuð, en hann
skilaði verkinu af sér í gær. Ólafur
Ingi sagði að verkið hefði verið í
mjög góðu ástandi. Hann sagði það
hafa verið nokkuð skítugt en lítið
skemmt.
Ólafur Ingi sagðist þó hafa tekið
eftir einu ankannalegu þegar hann
fór að skoða verkið því niðri við jað-
arinn á því hefði verið fjögurra stafa
númer, sem hann taldi líklegt að
hefði verið símanúmer hjá fyrrver-
andi eiganda verksins, en hann
þorði þó ekkert að fullyrða um það.
Hann sagði að þótt verkið væri
dauður hlutur ætti það sér e.t.v.
mjög litríka sögu, sem fróðlegt væri
að fræðast um og bætti hann því við
að sérstaklega væri gaman að vita
hvernig það hefði endað á flóamark-
aði í Gautaborg.
Að sögn Tryggva verður verkið
sett á sölu um leið og búið verður að
ramma það inn og taldi hann líklegt
að það myndi gerast efth- helgi.
Hann sagði að verkið kæmi til með
að kosta um 400 þúsund krónur, en
ef það seldist ekki í almennri sölu
yrði það sett á uppboð í seinni hluta
september.Það er Svíinn Karl And-
erson sem á verkið en hann keypti
það á flóamarkaði í Gautaborg eins
og áður sagði. Hann bauð verkið
upp hjá Bukowskis-uppboðshúsinu í
Stokkhólmi í byrjun maí og þá barst
tilboð upp á um 150 þúsund krónur
en því var ekki tekið. I framhaldi af
því var haft samband við Gallerí
F old um að koma verkinu í verð hér
á landi.
Morgunblaðið/Bukowskis: Christer Carlsson
KJARVALSMÁLVERKIÐ eins og það var þegar það
var keypt á flóamarkaðinum í Gautaborg
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
DANIRNIR Sander Viscor og Marius Mathiesen frá fyrirtækinu Th. Frobenius & Sonner, sem smi'ðaði orgelið í
Kristskirkju fyrir tæpum fimmtíu árum, taka það nú í sundur og flytja til Danmerkur til viðhalds og endurbóta.
Orgel Landakotskirkju
í viðgerð til Danmerkur
TVEIR danskir orgelsmiðir
vinna nú að þvi að taka í sundur
orgelið í Kristskirkju í Landa-
koti. Stór hluti þess verður síðan
fluttur til Danmerkur til við-
gerða hjá fyrirtækinu Th. Fro-
benius & Sonner, sem snn'ðaði
orgelið fyrir tæpum fimmtíu ár-
um. Viðgerðinni og samsetningu
orgelsins á að vera lokið fyrir jól.
Agúst George, prestur í
Landakotskirkju, segir að söfn-
unarnefnd, sem starfað hefur
vegna viðgerðanna, hafi þegar
aflað tæplega ijögurra milljóna
króna hjá fyrirtækjum, einstak-
lingum og opinberum aðilum, en
ennþá vanti rúma eina milljón
króna.
Meðal annars hafa verið haldn-
ir styrktartónleikar þar sem
listamenn hafa gefíð vinnu sína,
haldnar hafa verið bflskúrssölur,
skemmtanir í Hlaðvarpanum fyr-
ir jól og gíróseðlar hafa verið
sendir út til velunnara kirkjunn-
ar. Þá er einnig hægt að nálgast í
kirkjunni.
Auk viðgerðanna verða gerðar
nokkrar endurbætur á orgelinu.
Marius Mathiesen orgelsmiður
segir að meðal annars verði skipt
um mótor í blásara, en gamli
mótorinn er nokkuð hávær.
Mathiesen segir að töluvert muni
um þessa breytingu vegna þess
hversu hljómburðurinn er góður
í kirkjunni. Mathiesen áætlar að
orgel af því tagi sem er í kirkj-
unni myndi nú kosta um 50-60
milljónir íslenskra króna. Má af
því sjá hvflíkt þrekvirki það hef-
ur verið hjá fámennum söfnuði
kaþólskra á íslandi árið 1950 að
láta smíða orgelið.
Morgunblaðið/Golli
MÁLVERKIÐ eftir að búið er að hreinsa það.
þín ávöxtun
¥
BUNAÐARBANKljvIN
VERÐBRÉF
- byggir á trausti
Uppskerutíminn í kartöflurækt nær hámarki í september
Horfur eru ólíkar
eftir landshlutum
ÞAÐ verður í mesta lagi þokkaleg
kartöfluuppskera í Þykkvabænum í
haust, en útlitið á Fljótsdalshéraði
og í Eyjafirði er hinsvegar gott.
Þetta kom fram í samtölum við
kartöflubændur í gær.
„Það eru ennþá ansi mörg „ef ‘ í
gangi en góðir dagar undanfarið
hafa breytt miklu og ef ágúst helst
góður þá gæti orðið svona þokkaleg
uppskera," sagði Sigurbjartur Páls-
son, kartöflubóndi á Skarði í
Þykkvabæ. „Þetta fór allt svo hægt
af stað, kuldar miklir í júní og
reyndar einnig í júlí og mikil væta.
Þetta verður mun lakara ár en í
fyrra, enda var það mjög gott ár.“
Hagstæð veðrátta
á Austurlandi
Sigurbjartur sagði að fyrstu kart-
öflumar frá honum hefðu komið í
verslanir vikuna fyi’ir verslunai'-
mannahelgina og framboðið væri
eitthvað að aukast.
„Það hefur nú komið í ljós, eins
og ég hélt fram, að neytendur taka
ekki síður gömlu kartöflurnar en
þær nýju, enda eru þær ódýrari og
gæðin mjög góð.“
Á Fljótsdalshéraði er útlitið gott,
að sögn Braga Gunnlaugssonar á
Setbergi. „Hér hefur verið Flórída-
veður í sumai', fyrir utan nokkra
daga í júlí, og sólin og hitinn gera
það að verkum að kartaflan vex vel
og núna þegar tekur að dimma fer
undirvöxturinn í gang,“ sagði Bragi.
Hann sagði að á Austurlandi væri
sáð seinna en á Suðurlandi og því
reiknaði hann ekki með því að
senda fyrstu kartöflurnar í búðir
fyrr en um mánaðamótin. Hann
sagði að um miðjan september næði
uppskeran síðan hámarki.
Horfumar á Eyjafjarðarsvæðinu
eru mjög góðar, að sögn Bergvins
Jóhannssonar á Ashóli, en fyrstu
kartöflurnar frá honum fóru í versl-
anir síðustu vikuna í júlí.
„Það er gott hljóðið í kartöflu-
bændum hér, þó maður viti náttúr-
lega aldrei hver endirinn verður,"
sagði Bergvin. Hann sagðist búast
við því að uppskeran nú yrði á svip-
uðu róli og síðustu ár, þó aðeins
vænni en í fyrra.