Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 11 FRÉTTIR Hólahátíð á sunnudag HÓLAHÁTÍÐIN 1999 verður á sunnudaginn kemur, 15. ágúst, og hefst með guðsþjónustu í dóm- kirkjunni kl. 14. Herra Sigurbjörn Einarsson biskup prédikar. Vígslubiskup og prestar úr stiftinu þjóna fyrir altari. Organisti er Rögnvaldur Valbergsson. Jóhann Már Jóhannsson og Gerður Bolla- dóttir leiða almennan safnaðar- söng. Að lokinni guðsþjónustu verður veitt kaffi í Bændaskólanum. Hátíðarsamkoma hefst í dóm- kirkjunni kl. 16.30. Forsætisráð- herra, Davíð Oddsson, flytur hátíð- arræðu. Gestir frá Noregi, Reidun Horvei söngkona og Einar Mjols- nes fiðluleikari, flytja tónlist frá heimalandi sínu. Allir eru velkomnir heim að Hól- um þennan dag. Andlát KRISTJAN GISLASON KRISTJÁN Gíslason, fyrrverandi verðlags- stjóri, er látinn í Reykjavík, 77 ára að aldri. Kristján fæddist 1. september 1921 að Sel- látrum í Tálknafirði, sonur hjónanna Gísla Guðbjartssonar sjó- manns og konu hans, Jónínu Kristjánsdóttur. Hann lauk prófi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni árið 1941 og prófi frá Samvinnu- skólanum árið 1944. Starfaði við ýmislegt á Tálknafirði og Patreksfirði til ársins 1944, en gerðist þá starfsmaður Skömmtun- arskrifstofu ríkisins 1945-46. Starf- aði á endurskoðunarskrifstofu Ár- elíusar Ólafssonar 1946-47 og á um- ferðarmálaskrifstofu póststjórnarinnar 1947-50. Þá fór hann til starfa hjá verð- gæslustjóra til ársins 1953 og var síðan hjá Landssmiðjunni 1953- 56. Kristján varð verð- lagsstjóri 1. janúar 1957 og gegndi því starfi til ársloka 1974. Eftir það starfaði hann við gerð laxaflugna, sem hann var þekktur fyrir, auk þess sem út komu þrjár bækur eft- ir hann um stangveiði. Kona Kristjáns var Sólrún Elsa Stefánsdóttir frá Illugastöðum í Laxárdal í Austur-Húnavatnssýslu, en hún lést árið 1994. Þeim varð fjögurra bama auðið. Morgunblaðið/Golli S Atak gegn ofbeldi REGNIÐ draup á þátttakendur í athöfn Rauða kross íslands á Ingólfstorgi í gær, en þar var 50 ára afmælis Genfarsamninganna minnst með táknrænum hætti. Undir tónlist frá Nýju-Gfneu vitnuðu sjálfboðaliðar Rauða krossins í Genfarsamningana og fóru með tilvitnanir í fólk sem upplifað hefur stríðsátök á und- anförnum árum. Þátttakendur mynduðu tvo hópa sem tákn um þær 40 milljónir manna sem lát- ist hafa af völdum átaka eftir siðari heimsstyrjöldina. Annar hópurinn táknaði hermenn en hinn óbreytta borgara. í þeim síðarnefnda voru mun fleiri og hann mynduðu bæði börn og fullorðnir en samkvæmt upplýs- ingum Onnu Þrúðar Þorkels- dóttur, formanns Rauða kross íslands, var það gert til að minna á að stríðsátök hafa breyst á síðastliðnum áratugum. „Áður voru það fremur her- RAUÐI kross íslands hélt táknræna athöfn á Ingólfstorgi í gær í til- efni 50 ára afmælis Genfarsamninganna. Anna Þrúður Þorkelsdöttir ávarpaði hópinn að henni lokinni og bauð fólki að setja lófafar á lér- eftsdúk í baráttunni gegn ofbeldi. menn og stríðandi aðilar sem létu lífið í átökum, en nú eru það óbreyttir borgarar.“ Hún kvaðst einnig mjög ánægð með þátttök- una á Ingólfstorgi. Eftir athöfnina, sem tók um stundarfjórðung, tók Anna Þrúður Þorkelsdóttir til máls og bauð almenningi að taka afstöðu gegn ofbeldi með því að þrykkja Iófafar sitt á Iéreftsdúk. Rauði krossinn stendur á þessu ári fyr- ir átaki „Gegn ofbeldi“, og í þrjá daga mun ungmennahreyfing Rauða krossins verða á Ingólfs- torgi og gefa fólki kost á að taka þátt í baráttunni gegn of- beldi með þessum hætti. iHovjjunblnííiti - úr VERINU $0 SERBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG lenska sjávarútvegssýningin I Smáranum í Kópavogi f.- a. septemhBr Sýnendur athugið! í tilefni af íslensku sjávarútvegssýningunni verður sérblaðið Úr verinu sérprentað 1. september nk. og aukaupplagi dreift á sýningunni sjálfri. ( þessari sérútgáfu verður sýningin kynnt í máli og myndum, greint frá helstu nýjungum og birt kort af sýningarsvæðinu. Þá verða ýmis fyrirtæki kynnt og viðtöl birt við fjölmarga aðila sem að sýningunni standa. Jafn- framt mun Morgunblaðið greina daglega frá helstu viðburðum á meðan á sýningunni stendur. Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 þriðjudaginn 24. áaúst. Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild í síma 569 1111. AUGLÝSINGADEILD Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is Handklæði Amerísk gæðahandklæði frá CANNON 645 kr. I lamlkla'Ai 4()\’7() sm 895 kr. I landklu'öi ()7\130 sm HÚSASMIÐJA_ Sími 525 3000 • www.husa.is :........
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.