Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ GRÆNAKINN 2 og 4. ;ú':ú-ú JÓFRÍÐARSTAÐAVEGUR er stjörnugata bæjarins. Viðurkenningar fyr- ir fallegt umhverfi Hafnarfjörður VEITTAR voru viðurkenn- ingar fyrir fallega garða, snyrtimennsku og fagurt umhverfi í Hafnarfirði í gær. Fegrunarnefnd bæjarins verðlaunaði nokkra garða, gamla og nýja og mismun- andi að gerð og uppbygg- ingu. Jófríðarstaðavegur er stjörnugata Hafnarfjarðar í ár. Asthildur Ragnarsdóttir og Jón Rúnar Halldórsson fengu viðurkenningu íyrir fallegan og hlýlegan garð í Birkibergi 8. Garðurinn í Fjóluhvammi 6 þykir fjölskylduvænn og fallegur. Eigendur hans eru Helga Sigurðardóttir og Ólafur Sverrisson. Húsin í Grænukinn 2 og 4 eru ný í grónu hverfi. Sigrún Einarsdóttir og Páll B. Guð- mundsson búa i Grænukinn 2 og Hallfríður Reynisdóttir og Guðjón Sigurðsson í hús- inu í Grænukinn 4. Þau hlutu viðurkenningu fyrir fallega aðkomu og garð. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir HÚSIÐ á Suðurgötu 15. f garðinum á Hringbraut 39 fær náttúran að njóta sín. Eigendur hans, Valgerður Jónsdóttir og Pétur Ólafs- son, fengu viðurkenningu fyrir frumlegan og fallegan garð. Elín Ó. Hafberg og Ey- NÁTTÚRAN fær að njóta sín í garðinum á Hringbraut 39. steinn Hafberg búa við Kelduhvamm 12a. Garður þeirra þykir fallega útfærð- ur við erfiðar aðstæður. Guðlaug Karlsdóttir fékk viðurkenningu fyrir garð sinn á Merkurgötu 3 sem er gamalgróinn og hefur verið fallegur í áraraðir. Eigendur garðsins við Sævang 25, Sigurrós Skarp- héðinsdóttir og Hrafn G. Johnsen, fengu viðurkenn- ingu fyrir fallega útfærslu á garði í hrauninu. Inga Dís Guðjónsdóttir, Steinar Steinarsson, Júlíana Símonardóttir og Bjarni E. Bjarnason voru verðlaunuð fyrir fallegan endurgerðan garð við tvíbýlishús. íbúar við Furuhlíð 7-11, Guðmundur Karl Björnsson, Ebba Ásgeirsdóttir, Stein- grímur Arnason, Eygló Sig- urliðadóttir og Birgir Páls- son hlutu viðurkenningu íyrir fallega aðkomu, garða og samvinnu við umhverfis- fegrun. Fegrunarnefnd Hafnar- fjarðar ákvað að húsið á Suðurötu 15 sem byggt var árið 1905 yrði merkt með nafni og byggingarári. Eigendur Fjörukrárinnar fengu einnig viðurkenningu fyrir fallegt umhverfi í hjarta Hafnarfjarðarbæjar. Bflastæðin við Laugardalsvöll malbikuð Langþráð framkvæmd Laugardalur FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við malbikun bílastæðanna við Laugardals- völl. Frá upphafi hafa bflaeig- endur orðið að leggja á óskipulögðu malarsvæði við völlinn. Það hefur haft ýmis vandkvæði í for með sér ásamt óþrifnaði vegna ryk- og sandfoks af stæðunum. Að sögn Jóhanns S. Kristinsson- ar vallarstjóra er þetta langþráð framkvæmd og gleðiefni að loksins hilli undii- að hægt verði að bjóða vallar- gestum upp á viðunandi aðkomu að Laugardagsvelli. Malbikun bílastæðanna er framhald af frágangi stæð- anna við norðurenda vallar- ins, en þar var búið að mal- bika og merkja 250 stæði í þremur hólfum. Nú er ætlun- in að malbika allt svæðið að hringtorginu við Reykjaveg og eins nálægt Engjavegi og hallinn þar leyfir. Gengið verður frá svæðinu að núver- andi miðasöluskúrum, en eftir er að skipuleggja svæðið það- an að nýreistu félagsheimili Þróttar við gervigrasvöllinn. Áætlað er að ljúka malbikun í byrjun september. Við þessa breytingu fjölgar malbikuð- um og merktum bílastæðum um 400, sem verða í sams konar hólfum og fyrir eru. Á milli hólfa verða gang- brautir og grassvæði og mun gróður setja talsverðan svip á svæðið. Það mun einnig bjarg eitt mikið gera sem verið hef- ur á stæðunum um langan tíma. Að sögn Jóhanns var strax ljóst að vilji væri til að halda steininum mikla og er búið að teikna hann inn á svæðið. Ekki sagðist Jóhann vita til þess að hulduverur ættu bústað í bjarginu, en sagðist vonast til að góðar vættir fylgdu honum, ef ein- hverjar væru. Ánægðir fbúar og vallargestir Með tilkomu skipulagðra stæða verður aðkoma og brottför vallargesta með mun betra móti en áður. Hingað til hafa menn iagt þvers og kruss og oft komið upp á að bflar hafi verið lokaðir af vegna þess hvernig aðrir lögðu. Þetta verður nú úr sög- unni og sagði Jóhann að bíl- um, sem ekki yrði lagt í merkt stæði, yrði kippt burt af svæðinu hið snarasta. Auk betra skipuiags verður svæðið allt snyrtilegra en áð- ur. „Þegar þú komst inn á völl- inn var það eins og að stíga út úr bfl uppi á öræfum. Annaðhvort steigstu ofan í drullupoll, hátt gras eða möl,“ sagði Jóhann. Hann sagði einnig allan þrifnað stórlag- ast með malbikun stæðanna. Þegar vindur blési væri oft mikið starf að þrífa stúkuna sem er opin á móti stæðun- um. Þá sagðist Jóhann reikna með að íbúarnir nálægt vell- inum yrðu fegnir þessum framkvæmdum og að vera lausir við rykið sem fallið hef- ur á þvottinn á snúrunum. Miðar seldir á Netinu Svæðið frá núverandi miðasöluskúrum að Þróttar- húsinu bíður seinni tíma skipulagningar. Jóhann segir að stefnt sé að því að fjar- lægja skúrana með tilkomu nýrrar tækni í miðasölu. Ætl- unin er að bjóða fólki upp á að panta sér miða á Netinu. Þar mun fólki birtast mynd af Morgunblaðið/Eiríkur P. UNNIÐ er að því að setja nýtt undirlag á bílastæðin, en reiknað er með að malbikun ljúki í byrjun september. vellinum á skjánum, þar sem stúkunum er skipt í merkt hólf og sætin eru númeruð. Sjást mun hvaða sæti er búið að kaupa og getur fólk pantað sér einhver þeirra sæta sem laus eru. Að því loknu er hægt að fara á ákveðna staði til að sækja miðana. Jóhann segir að þetta feli í sér verulega hagræðingu, jafnt fyrir vallargesti sem starfsmenn. Nú standa yfir viðræður við íslenskar get- raunir og annað fyrirtæki um írágang og framkvæmd miðasölunnar á Netinu og stefnt er að því að hægt verði að bjóða upp á þessa söluað- ferð fyrir næsta stórleik á Laugardalsvellinum. JÓHANN S. Kristinsson vallarstjóri styður hendi á bjargið góða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.