Morgunblaðið - 13.08.1999, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Héraðsddmur í máli norska nótaskipsins Österbris
Skipstjóri dæmdur
til að greiða sekt
við Noreg, ísland og Færeyjar. í
máli skipstjórans kom jafnframt
fram að nótin hafi verið alveg ný og
alvanalegt sé að ný nót sé aðeins
þrengri en gömul nót.
I niðurstöðu dómsins kemur fram
að ekki sé deilt um niðurstöðu mæl-
ingar Landhelgisgæslunnar á nót
norska skipsins, heldur eingöngu um
mæliaðferðina, þ.e. að mæla innan-
mál möskvans í stað heilmöskvans,
frá miðjum hnút í miðjan hnút.
Einnig kemur fram að alls sé ósann-
að að útgerðarmaður skipsins hafi
hagnast á veiðum skipsins þrátt fyrir
stærð möskvans í poka nótarinnar
og er því félagið sýknað af refsikröfu
ákæruvaldsins.
Að því er varðar sök skipstjórans
verður að telja að hún sé fullsönnuð
og rétt færð til refsiákvæða í ákæru-
skjölunum. Ásgeir Pétur Ásgeirsson
héraðsdómari kvað upp dóminn.
Aukin vinna - fólksfjölgun
SKIPST.JÓRI norska nótasldpsins
Österbris, John Harald Östervold, var
í Héraðsdómi Norðurlands eystra í
gær dæmdur til að greiða 600.000
krónur í sekt til Landhelgissjóðs ís-
lands, fyrii- loðnuveiðibrot innan land-
helgi Islands í síðasta mánuði. Útgerð
skipsins, Havbraut A/S, var hins vegar
sýknuð af refsikröfu.
Skipstjóranum er gert að greiða
sektina innan fjögurra vikna frá birt-
ingu dómsins, ella sæti hann fangelsi
í 60 daga. Þá var verðmæti nótapoka
skipsins, að fjárhæð 3,5 milljónir
króna, gert upptækt í Landhelgissjóð
Islands svo og verðmæti loðnuafla að
fjárhæð um 600.000 kr. Skipstjóran-
um vai- jafnframt gert að greiða sak-
arkostnað að undanskildum kostnaði
við mat veiðarfæra og skipuðum
verjanda sínum 200.000 kr. í
málsvarnarlaun. Málskostnaður út-
gerðar fellur hins vegar á ríkissjóð.
Sýslumaðurinn á Akureyri höfðaði
mál gegn skipstjóra og útgerð skips-
ins, með tveimur ákæruskjölum, þar
sem ákærðu er gefið að sök að hafa
framið loðnuveiðibrot í íslenskri
landhelgi sunnudaginn 18. júlí sl. og
frá fimmtudeginum 22. júlí til laug-
ardagsins 24. júlí sl. og notað við
veiðarnar loðnunót með möskva und-
ir lágmarksstærð, samkvæmt mæl-
ingum skipveija á varðskipunum
Óðni og Ægi. I báðum tilvikum var
norska skipinu fylgt til Akureyrar af
varðskipunum.
Skipstjórinn neitaði sök
Á dómþingi hinn 20. júlí neitaði
skipstjóri norska skipsins sök og
upplýsti að sér væri kunnugt um
þær reglur sem giltu um loðnuveiðar
í íslenskri landhelgi. Keypt hafi verið
lögleg nót á alþjóðlegan mælikvarða
sem var leyfileg á Grænlandsmiðum,
Að sögn Gylfa eru að jafnaði um
10-15 manns í vinnu hjá Sigurbimi
ehf., eftir því hversu vel veiðist, en
þó mest á sumrin. „Unglingamir
hafa fengið vinnu á sumrin á milli
bekkja og er það mikilvægt að hafa
unga fókið hér í eyjunni, en við höf-
um einnig ráðið til okkar aðkomu-
fólk sem hefur reynst okkur mjög
vel. Að vísu er staðan núna sú að
okkur vantar fólk vegna mikillar
veiði. Það sem er svo jákvætt fyrir
samfélagið er að nokkur af bömum
okkar, sem hafa flutt í burtu, em
komin hingað aftur til frambúðar.
Vinna hér í Grímsey hefur aukist og
okkur er að fjölga. Ég giska á að
fólksfjölgunin síðastliðið ár sé um
8-10%,“ sagði Gylfi.
Messa á Grenivík
Morgunblaðið/Kristj án
Buslað í Leirutjörninni
Morgunblaðið/Margit Elva
GYLFI Þ. Gunnarsson, útgerðarmaður og einn eigenda Sigurbjarnar
ehf., með hluta bátaflota Grímseyinga í baksýn og má þar sjá tvo af
nýju bátunum, sem eru Víkingabátar.
Bátum Grímsey-
inga fjölgar
Grímsey. Morgunblaðið.
ÁTTÁ nýir bátar bættust í flota
Grímseyinga í sumar og einn er í
smíðum sem von er á um miðjan
næsta mánuð. Bátunum hefur fjölg-
að um sex en þrír bátar hafa farið.
Eigendur Sigurbjamar ehf. eiga
hlut í fjóram af nýju bátunum.
„Með kaupunum á bátunum era
Grímseyingar að bæta kvótastöðu
sína og við í leiðinni að efla fyrir-
tækið okkar,“ sagði Gylfi Þ. Gunn-
arsson, útgerðarmaður og eigandi
Sigurbjarnar ehf. Aðrir eigendur
fyrirtækisins era Sigrún Þorláks-
dóttir, eiginkona Gylfa, Garðar Óla-
son útgerðarmaður og kona hans,
Áslaug Alfreðsdóttir.
Á síðasta ári velti Sigurbjörn
ehf. tæpum 200 milljónum króna
sem telst góð afkoma. Gylfi segist
vera ánægður með það sem af er
árinu og er fullur bjartsýni á fram-
tíðina.
Bikarmót
í hesta-
íþróttum
BIKARMÓT Norðurlands í
hestaíþróttum verður haldið á
vellinum við Hringsholt í Svarf-
aðardal um næstu helgi, dag-
ana 14. og 15. ágúst. Þátttöku-
rétt á mótinu hafa hestaíþrótta-
deildir úr Þingeyjar-, Eyja-
fjarðar-, Skagafjarðar- og
einnig Húnavatnssýslum. Á
mótinu verður keppt í öllum
hefðbundnum greinum hestaí-
þrótta, auk 150 m skeiðs.
Mótið hefst á laugardag kl. 9
með fjórgangi fullorðinna og
fjórgangi unglinga. Að þvi
loknu verður keppt í fimm-
gangi, tölti fullorðinna og tölti
unglinga. Þá verður keppt í 150
m skeiði, hlýðnikeppni og
hindranarstökki. Um kvöldið
verður síðan haldin grillveisla.
Á sunnudag hefst keppni kl.
10:30 með úrslitum í fjórgangi
fullorðinna og unglinga. Úrslit í
fimmgangi verða kl. 13 og þá
verða einnig úrslit í tölti. Mót-
inu lýkur svo með gæðinga-
skeiði og verðlaunaafhending.
Aðgangur að mótinu er
ókeypis.
Engin þensla
á lands-
byggðinni
STJÓRN Verkalýðsfélags
Húsavíkur hefur sent frá sér
eftirfarandi samþykkt vegna
frétta í fjölmiðlum um að
stjórnvöld hyggist slá á þensl-
una í þjóðfélaginu með því m.a.
að fresta framkvæmdum við
Húsavíkurhöfn. í fréttatilkynn-
ingunni segir að þensla sé eitt-
hvað sem hafi farið fram hjá
landsbyggðarfólki og því komi
hugmyndin veralega á óvart.
Samþykktin hljóðar svo:
„Stjórn Verkalýðsfélags Húsa-
víkur tekur heilshugar undir
ályktun og meðfylgjandi grein-
argerð Hafnarnefndar Húsa-
víkur þar sem skorað er á
stjórnvöld og alþingismenn
Norðurlandskjördæmis eystra
að falla frá öllum hugmyndum
sem uppi kunna að vera um
frestun hafnarframkvæmda á
Húsavík, og að ríkið stuðli frek-
ar að uppbyggingu atvinnulífs í
bænum með því að flýta þeim
framkvæmdum eins og frekast
er unnt.“
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Greni-
lundi, Grenivík, sunnudaginn 15.
ágúst kl. 16. og era allir velkomnir.
ÞAÐ var heldur betur líf og
ijör við Leirutjörnina á Akur-
eyri í gærmorgun er þangað
- RAÐGJOF -
Feng-Shui er forn kínversk aðferð sem jafnar „Chi" í um-
hverfi okkar og hefur óhrif ó heilsu, samskipti og farsæld.
Athena lærði Feng-Shui í American Feng-Shui Institute undir
leiðsögn Larry Sang, heimsþekkts Feng-Shui meistara. Hún
hefur einnig verið í einkakennslu hjó Kartar Diamond sem
er mjög þekktur ráðgjafi fræga fólksins í Los Angeles.
Athena tekur að sér að koma í heimahús og fyrirtæki til
ráðgjafar um allt land.
Vft
RAÐGJOF
Athena
Spiegelberg,
sími 862 4477,
fax 461 5130.
E-mail: arnia@est.is
kom hópur barna og starfsfólk
á leikskólanum Pálmholti.
Börnin komu til að prófa þessa
líka flottu báta sem þau höfðu
smíðað og skreytt í leikskólan-
um og einnig til að busla ofur-
lítið. Börnin byrjuðu frekar ró-
lega og fóru út í ijörnina í stíg-
vélum og pollabuxum og léku
sér þannig þar til þau voru
flest komin upp fyrir stígvélin
og orðin blaut í fæturna. Þau
létu það ekki á sig fá og drifu
sig bara úr stígvélunum og
blautu fötunum og busluðu ber-
fætt. Voru sum þeirra komin á
brókina en það skipti ekki máli
enda veðrið gott.
Portrait of Iceland
Jónas Viðar
sýnir í Ósló
JÓNAS Viðar myndlistarmaður
opnar málverkasýningu í IsKunst
Gallery í Ósló laugardaginn 14.
ágúst. Þar sýnir hann málverk úr
myndröðinni Portrait of Iceland.
Þetta er 14. einkasýning hans en
Jónas hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga hér heima og erlendis. í
myndröðinni Portrait of Iceland
nálgast Jónas Viðar náttúra Islands
á sérstæðan hátt, þar sem þekktir
staðir sem óþekktir eru skoðaðir í
nærmynd.
Sýningin stendur yfir frá 14.
ágúst tO 2. september og eru Is-
lendingar sem leið eiga um Ósló
hvattir tO að skoða hana, einnig er
hægt að skoða verkin á heimasíðu
Stone art and Paintings og er slóð-
in: http:www.islandia.is/~jvs.
Flóamarkaður
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akur-
eyri heldur í dag flóamarkað í hús-
næði sínu að HvannavöUum 10.
Flóamarkaðurinn er opinn kl. 10-18
og segir í fréttatUkynningu að þar
sé að finna mikið úrval af alls konar
vamingi.