Morgunblaðið - 13.08.1999, Síða 19

Morgunblaðið - 13.08.1999, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 19 Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 1,5% undanfarna þrjá mánuði Hækkunin jafngildir 6,3% verð- bólgu á ári UNDANFARNA þrjá mánuði hef- ur vísitala neysluverðs hækkað um 1,5% sem jafngildir 6,3% verðbólgu á ári. Vísitala neysluverðs miðað við verðlag í ágústbyrjun 1999 var 190,2 stig og hækkaði vísitalan um 0,4% frá fyrra. mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis var 191,6 stig og hækkaði um 0,3%. I frétt frá Hagstofu íslands kem- ur fram að um 8,5% verðlækkun á fötum og skóm, sem aðallega stafar af sumarútsölum, leiddi til 0,49% lækkunar á vísitölu neysluverðs. Verðhækkun á matvörum um 3,3% hafði í för með sér 0,48% hækkun vísitölunnar, en af einstökum mat- vöruliðum hækkaði grænmetisverð um 18,2%, sem olli 0,22% hækkun vísitölu, og verðhækkun á ávöxtum um 11% leiddi til 0,10% vísitölu- hækkunar. Verð á bensíni og olíu hækkaði um 3,4% sem olli 0,14% hækkun neysluverðsvísitölunnar, og 2,7% hækkun húsaleigu hafði í för með sér 0,07% hækkun á vísitölunni. Vísitala neysluverðs í ágúst 1999, þ.e. 190,2 stig, gildir til verðtrygg- ingar í september. Vísitala fyrir eldri fjái'skuldbindingar, sem breyt- ast eftir lánskjaravísitölu, er 3.755 stig fyrir september 1999. Verðbólgan á íslandi 1,3% frá júní 1998 til júní 1999 Fram kemur í frétt Hagstofunnar að síðastliðna tólf mánuði hafi vísi- tala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,2%. Sem fyrr segir hefur vísi- tala neysluverðs hækkað um 1,5% undanfama þrjá mánuði og jafn- gildir það 6,3% verðbólgu á ári. I frétt Hagstofunnar kemur fram að verðbólgan í EES-ríkjum frá júní 1998 til júní 1999, mæld á sam- ræmda vísitölu neysluverðs, hafi verið 1,0% að meðaltali. í Austur- ríki hækkaði neysluverðlag um 0,2% og í Þýskalandi, Frakklandi og Svíþjóð um 0,4%. Á sama tímabili var verðbólgan á Islandi 1,3% og í helstu viðskiptalöndum íslendinga 1,4%. Fjárfestingarbanki atvinnulífs- ins spáir 4,3-4,5% verðbólgu Fjárfestingarbanki atvinnulífsins birti í gær endurskoðaða verðbólgu- spá í samræmi við þróunina undan- farið og horfur í verðlagsmálum. Spá bankans frá því í júní gerði ráð fyrir 3,6-3,9% verðbólgu, en endur- skoðuð spá hlóðar hins vegar upp á 4,3-4,5% hækkun milli janúar 1999 og janúar 2000. Fram kemur í greiningu FBA á þróun verðlags og horfum að helstu skýringar á hærri spá séu meiri verðhækkanir á bens- íni og olíum en áður var gert ráð fyrir og einnig hafi gengi krónunnar ekki styrkst eins mikið og spáð var í júní. Þá segir í greiningunni að hækkun á matvörulið vísitölu neysluverðs sé mun meiri en FBA hafi gert ráð fyrir og skýrist það að langmestu leyti á meiri hækkun ávaxta og grænmetis vegna inn- komu nýrrar innlendrar framleiðslu á markaðinn en vænst var. Fréttir á Netinu mbl.is -ALL.7yKf= Œ/TTH\SA& iVÝTT Breytingar á vísitölu neysluverðs Mars 1997 = 100 Tölur í svigum vísa til vægis einstakra liða. Frá júlí til ág. 1999 01 Matur og óáfengar drykkjarvörur (17,0%) 011 Matur (15,0%) 0113 Fiskur (0,8%) 0117 Grænmeti, kartöflur o.fl. (1,4%) 02 Áfengi og tóbak (3,2%) 03 Föt og skór (5,2%) -8,5% 031 Föt (4,2%) -9,3% I 04 Húsnæði, hiti og rafmagn (18,0%) 041 Greidd húsaleiga (2,5%) 05 Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. (5,3%) 051 Húsgögn og heimilsbúnaður (2,1 %) 06 Heilsugæsla (3,0%) 07 Ferðir og flutningar (18,1 %) 08 Póstur og sími (1,6%) 09 Tómstundir og menning (13,1%) 10 Menntun (1,0%) 11 Hótel og veitingastaðir (5,2%) 12 Aðrar vörur og þjónusta (9,3%) £ +2,9% +3,3% □ +2,9% I o,o% +0,06% ~n +2,7% -0,6% | 1,7% □ -0,6% | +0,6% 3 +1,2% 0 +0,4% I 0,0% B +0,2% B +0,4% VÍSITALA NEYSLUVERÐS f ÁGÚST: 106,6 stig | +0,4% Verðbólga í nokkrum ríkjum Breyting samræmdrar neysluverösvísitölu frá júni 1998 til júní 1999 frland Portúgal Spánn Holland* Noregur Bandaríkin Danmörk Grikkland ftalía Bretland S ísland Finnland Lúxemborg Belgfa Sviss Frakkland* Japan* Þýskaland Svíþjóð Austurríki* 2,1% 2,1% 2,1% 2,1% 2,1% 2,0% 1,9% 1,8% 1,4% 1,4% 1,3% 1,2% 1,2% Viðskiptalönd' Meðaltal ESB* Meðaltal EES* Meðaltal EMU* * Bráðabirgðatölur * Samkvæmt gengisvog Seðlabanka Islands í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðs- visitölu en í Bandar., Japan og Sviss við neysluverðsvisitölur. N Ol AlTlUlN NÓATÚN NÓATÚN117 • R0FABÆ 39 • HAMRAB0RG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP. • ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68 HEIMASÍÐA NÓATÚNS WWW.noatUn.ÍS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.