Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 21 VIÐSKIPTI Stofnun einkahlutafélags um jarðgufuvirkjun í Grensdal við Hveragerði Kostnaður um 2,5 milljarðar SIGURÐUR Þráinsson, stjórnarmaður í eignarhaldsfólagi Hveragerðis og Ölfuss, Gísli Páll Pálsson, for- seti bæjarstjómar Hveragerðis, og Kristján Jónsson, forstjóri RARIK, við stofnun Sunnlenskrar orku ehf. RARIK, Hveragerðisbær og Ölfuss hafa undirritað samning um stofn- un einkahlutafélags um jarðgufu- virkjun í Grensdal skammt frá Hveragerði og hefur félagið hlotið nafnið Sunnlensk Orka ehf. RARIK mun eiga um 90% í hinu nýja félagi en sveitarfélögin samanlagt 10% hlut, með möguleika á að auka hlut sinn í 25% síðar, samkvæmt hlut- hafasamningi. Áætlanir félagsins miða við að unnið verði að rannsóknum og um- hverfismati í Grensdal og er gert ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið árið 2001. Vonast er tO að þá verði unnt að hefjast handa um byggingu 30 MW gufuaflsvirkjunar og mun framkvæmdum við hana verða lokið árið 2004, gangi áætlanir eftir. Heildarkostnaður við framkvæmdir er áætlaður um 2,5 milljarðar ís- lenskra króna. I framtíðinni er stefnt að því að hægt verði að stækka virkjunina, þannig að hún muni geta framleitt allt að 200 GWh. Vilja auka eigin orkuöflun „Rafmagnsveitur ríkisins hafa á undanfömum árum verið að skoða virkjunarmöguleika víða um land, aðallega með virkjanir af stærðinni 20-50 MW í huga, sem hæfa okkar markaði," segir Kristján Jónsson, forstjóri RARIK. „Ástæðan er sú að viljum auka okkar eigin orkuöfl- un og þannig búa okkur undir boð- aðar breytingar á raforkulögum." Iðnaðarráðherra mun á næstunni leggja fram nýtt frumvarp til raf- orkulaga þar sem gerðar verða breytingar á markaðsumhverfi raf- orkuiðnaðar í landinu. „Við viljum með aukinni eigin orkuvinnslu búa okkur undir aukna samkeppni í greininni. Hingað til höfum við keypt um 85% af þeirri orku sem við seljum af Landsvirkjun en ein- ungis framleitt um 15% sjálf. Til nánari skýringar má nefna að mesta álag sem RARIK þarf að anna er um 200 MW, meðan okkar eigin framleiðsla er einungis 20 MW. Þetta er auðvitað liður í við- leitni okkar að leita hagkvæmra kosta í orkuöflun fyrir okkar við- skiptavini. Við höfum í þessu skyni hafist handa um að kanna mögu- leikum á virkjun í Villinganesi í Skagafirði í samstarfi við heima- menn, sem yrði 30—40 MW vatns- aflsvirkjun." Fyrir réttu ári gerðu RARIK og sveitarfélögin Hveragerðisbær og Ölfus með sér samstarfssamning með það að markmiði að vinna sam- eiginlega að því að fá yfirráð yfir jarðhitaréttindum í þeim hluta Hengilssvæðisins sem er innan marka Ölfuss og Hveragerðisbæj- ar. Grensdalur hggur skammt norður af Ölfusdal en þar voru á ár- unum 1958-1961 boraðar 8 djúpar holur og er afl þeirra með því mesta sem þekkist hér á landi. Yegna nálægðar við efstu holur í Ölfusdal er jarðhitasvæðið í Grens- dal flokkað sem þekktur virkjunar- staður og eru vinnslueiginleikar jarðhitans þar taldir góðir til raf- orkuvinnslu. „Það sem gerir þátttöku RARIK mögulega er sú breyting sem gerð var á orkulögum í vetur. Með þeim hefur RARIK fengið heimild til að stofna og eiga í hlutafélögum á orkusviði. Við komum á fót sam- starfsnefnd fyrir réttu ári og var henni falið að vinna að undirbúningi virkjunar, afla tilskilinna heimilda og stofna hlutafélag um fram- kvæmdir. Leyfi til rannsókna fékkst hjá ráðherra í júní og með því fylgir fyrirheit um forgang að nýtingarleyfi. Gangi áætlanir okkar eftir munu niðurstöður rannsókn- anna liggja fyrir haustið 2000. Á grundvelli þeirra verður svo ákveð- ið um framhaldið, með tilliti til markaðsaðstæðna o.s.frv.,“ segir Kristján. Umframmagn nýtist í iðnaði Gísli Páll Pálsson, forseti bæjar- stjórnar í Hveragerði, segist binda vonir við að ef til virkjunar kemur verði hluti af framkvæmdunum í höndum heimamanna. „I raun má segja að jarðhitinn hér sé það sem útgerðin er fyrir mörg önnur sveit- arfélög á landinu, þetta er okkar auðlind og hefur lítið sem ekkert verið nýtt. Við bindum vonir við að fyrirtækið verði arðbært fyrir sveitarfélögin og sjáum einnig fyrir okkur að byggja megi upp ferða- þjónustu í kringum hugsanlega virkjun. Grensdalur er mjög falleg- ur og hægt væri að blanda saman fræðsluheimsóknum í virkjunina og náttúruskoðun á svæðinu." Gísli segir að mikið umframmagn af heitu vatni verði til við virkjun- ina og á bilinu 70-80% af orkunni verði eftir þegar búið er að fram- leiða rafmagn. „Þetta umframmagn munum við reyna að nýta í einhvers konar iðnað en ekki hefur nánar verið ákveðið hvað í því felst, þótt margar góðar tillögur séu til skoð- unar,“ segir Gísli. HAGKAUP Meira úwal - betrikaup í Krsnglu og Smáratorgi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.