Morgunblaðið - 13.08.1999, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
Verðmæti fiskafians í maí 1998 og 1999
4.450 milljónir kr.
Botnfiskafli
3.286
Uppsjávarafli
778
Skel, krabbi
og annaö
666
362
1998 1999
1998 1999
1998 1999
Verðmæti aflans
5 milljörðum meira
HEILDARVERÐMÆTI fiskafla
okkar í rnaí 1999 var rétt rúmir 5
milljarðar króna. Pað er aukning
um tæpar 300 milljónir króna miðað
við sama mánuð í fyrra. Þá var
heildai-verðmætið rúmlega 4,7 millj-
ai'ðar króna. Heildarverðmæti fisk-
aflans fyrstu 5 mánuði ársins var
27,5 milljarðar króna, sem er aukn-
ing um 5 milljarða miðað við sama
tíma í fyrra.
Verðmæti botnfiskaflans í maí-
mánuði var tæpir 4,5 milljarðar
króna, en það var 3,3 milljarðar í
sama mánuði í fyrra. Verðmæti
þorskafla jókst úr tæpum 2 millj-
örðum króna í rúmlega 2,4. Skýr-
ingin á aukningunni er aukinn afli,
aukið vinnsluvirði og hærra afurða-
verð almennt, sem skilar sér í
hærra verði upp úr sjó.
Verðmæti afla uppsjávarfiska,
loðnu, síldar og kolmunna, dróst
verulega saman. Það varð nú aðeins
275 milljónir króna, en var í maí í
fyrra 778 milljónir. Þar ræður
mestu minni afli og veruleg lækkun
afurðaverðs, sem leiddi til lækkunar
á verði upp úr sjó. Verðmæti skel-
fiskaflans lækkaði úr 666 milljónum
króna í maímánuði í fyrra í 326
milljónir nú. Þar veldur mestu mik-
ill aflasamdráttur.
Verðmæti þorskafla hefur aukizt
úr tæplega 10,7 milljörðum í 16,1
milljarð. Verðmæti uppsjávarfisk-
aflans er nú rúmlega 3,3 milljarðar
en var fyrstu 5 mánuði síðasta árs
um 4 milljarðar. Verðmæti skelfisk-
afla hefur dregizt saman um millj-
arð og er nú tæplega 1,8 milljarðar
króna.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
FRÁ hluthafafundi Básafells. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Hinrik
Kristjánsson, Einar Oddur Kristjánsson, Sigurbjörn Magnússon,
Hjálmar Kristjánsson og Guðmundur Kristjánsson.
Ný stjórn kjörin
hjá Básafelli hf.
FJÖRIR nýir stjórnarmenn voru
kosnir á hluthafafundi Básafells hf.
sem haldinn var í gær. Guðmundur
Kristjánsson, útgerðarmaður frá
Rifi, náði þá meirihluta í stjórninni í
kjölfar þess að hann hefur keypt um
það bil 40% hiut í fyrirtækinu.
Ljóst var að breytingar myndu
verða á stjórn félagsins í ljósi hluta-
fjárkaupa Guðmundar á hlutabréfum
Arnars Kristinssonar og Olíufélags-
ins hf. Guðmundur á nú rúmlega
40% hlut í Básafelli og það dugði
honum til þess að tryggja sér meiri-
hluta í stjórn félagsins. Hann fékk
kjörna þrjá af fimm stjórnarmönn-
um í krafti eignarhlutans. Ásamt
Guðmundi sjálfum sitja Hjálmar Þór
Kristjánsson, bróðir Guðmundar, og
Sigurbjörn Magnússon, lögfræðing-
ur, í stjórninni. Gunnar Hjaltalín,
löggiltur endurskoðandi í Hafnar-
firði, situr í krafti hlutafjáreigenda á
Flateyri, þeirra á meðal eru þeir
Hinrik Kristjánsson og Einar Oddur
Kristjánsson, og Pétur Sigurðsson
situr í stjórn fyrir hönd verkalýðsfé-
lagsins Baldurs og Lífeyrissjóðs
Vestfjarða.
Athygli vekur að Isafjarðarbær á
ekki lengur mann í stjórn. Andri
Árnason, lögfræðingur í Reykjavík,
er varamaður í stjórninni fyrir hönd
bæjarfélagsins.
Eftir hluthafafundinn hélt hin ný-
kjörna stjórn fund. Á honum var
Guðmundur kosinn formaður stjórn-
ar og Sigurbjöm varaformaður.
Þarf aö endurnýja rafíögnina?
Gerum verðtilboð
Smáverkaþjónusta
RAFLAGNIR ISUNDS ehf
Skipholti 29« 105 Reykjavík Þjónustudeild sími 511 1122
ERLENT
± Reuters
HVIRFILBYLURINN gengur yfir miðborg Salt Lake City. Bylurinn er sá versti sem komið hefur í Utah-ríki.
Miðborgin líkust
vígstöðvum
Salt Lake City. AFP.
MIÐBORG Salt Lake City líktist
helst vígstöðvum í gær í kjölfar
þess að hvirfilbylur gekk yfir borg-
ina skömmu eftir hádegi að staðar-
tíma í fyrradag. Einn lést og 79
slösuðust, þar af fjórir lífshættu-
lega. Bylurinn er sá versti sem
komið hefur í Utah-ríki, þar sem
hvirfilbyljir eru fátíðir, og þetta er í
fyrsta sinn sem dauðsfall verður
þar af þessum völdum.
I gærmorgun var enn rafmagns-,
gas- og símasambandslaust í mið-
borginni þar sem bílar sátu grafnir
undir brotnum trjám og braki úr
húsum.
Lögregla lokaði helstu leiðum til
miðborgarinnar til þess að koma í
veg fyrir að óprúttnir menn létu
greipar sópa þar. Þrjátíu og fimm
hús eyðilögðust í veðrinu og
skemmdir urðu á hátt í níutíu öðrum.
Borgarstjórinn, Dedee Corradini,
benti á að þrátt fyrir allt hefðu
hamfarirnar haft jákvæða hlið.
„Þetta var, að mörgu leyti, ki'afta-
verki líkast,“ sagði hann á miðviku-
dagskvöld. „Þetta hefði getað farið
miklu verr.“ Ríkisstjórinn í Utah,
Michael Leavitt, lýsti yfir neyðará-
standi í borginni.
Vindhraðinn var um 180 km á
klukkustund, að sögn veðurfræð-
inga, og skall fárviðrið á rétt fyrir
klukkan 13 að staðartíma, eða 19 að
íslenskum tíma. Hvirfilbyljir koma
að meðaltali einu sinni til tvisvar á
ári í Utah og margir borgarbúa
trúðu ekki eigin augum þegar þeir
sáu bylinn skella á. Corradini sagði
að ekki hefði gefist nokkur tími til
að vara fólk við yfirvofandi hættu.
Áfengissýki
algeng í
Rússlandi
Moskvu. AFP.
UM fjörutíu prósent allra rúss-
neskra karlmanna og sautján
prósent kvenna þjást af áfengis-
sýki, að því er dagblaðið
Segodnia greindi frá í gær, en
heimildir þess ku vera fengnar
úr rússneska heilbrigðisráðu-
neytinu.
Að sögn blaðsins eru hins
vegar einungis sjö prósent
áfengissjúklinga tilbúin að við-
urkenna að þau eigi við vanda
að stríða og að þau þurfi á
áfengismeðferð að halda.
Rannsóknii- þykja sýna að
áfengisneysla Rússa nemur að
jafnaði fjórtán og hálfum lítra af
sterku víni á hverju ári, og er
vodkinn enn vinsælastur meðal
þeirra. Um 24 þúsund manns
deyja á ári hverju af neyslu illa
bruggaðs áfengis.
Eftirmál „díoxínfársins“ í Belgíu
Fallizt á kröfu ESB um
gæðaprófun matvæla
Brussel. AP.
BELGÍSK stjómvöld hafa fallist á
að hlíta kröfu Evrópusambandsins
(ESB) um að matvæli sem flytja á
út frá Belgíu skuli undirgangast
ströng gæðapróf til að gengið sé úr
skugga um að þau séu ekki menguð
af díoxíni, sem talið er vera krabba-
meinsvaldandi.
Magda Aelvoet, heilbrigðisráð-
herra Belgíu, sagði belgísk stjóm-
völd munu fara að samþykkt ESB
frá því í byrjun þessa mánaðar um
að matvæli sem ætluð eru til út-
flutnings og innihalda meira en 2%
fitu skuli sæta gæðaprófun, en það
kostar bæði fé og tíma sem útflytj-
endum er óljúft að missa.
Um helgina hafði Aelvoet tjáð
fréttamönnum að skilyrðið um að
allur matur með yfir 2% fituinnihald
- þar á meðal em vöflur, majones,
sem og nærri allar kjötafurðir -
skuli falla undir hinar nýju ESB-
reglur væri allt of strangt. Sagði
hún Belgíustjóm munu hafa þessi
ýr * ^ ^ Á,
EVROPA^
tilmæli ESB að engu og skylda að-
eins þau útflutningsmatvæli í „dí-
oxínpróf‘ sem hafa yfir 20% fitu-
innihald.
Þessi orð hennar stungu í stúf við
fyrri yfirlýsingar Belgíustjómar
þess efnis, að hún myndi hlíta ósk-
um ESB um þetta efni; virtist því
sem yfirlýsing heilbrigðisráðherr-
ans kæmi Belgíu upp á kant við
ESB. Eftir að belgískir embættis-
menn áttu viðræður á mánudag við
fulltrúa matvælaiðnaðarmála hjá
framkvæmdastjórn ESB í Brassel
varð hins vegar niðurstaðan sú að
Aelvoet sagði að Belgíustjórn
myndi fara að ESB-tilmælunum.
„Þau skilaboð sem matvælaiðnaðin-
um era send, eru skýr: Við horfum
fram á algjört útflutningsbann hlít-
um við ekki reglum ESB,“ sagði
Aelvoet á blaðamannafundi.
Kröfur um útflutningsbann
Frá því í maímánuði hafa frá-
sagnir gengið í Belgíu af díoxín-
mengun í eggjum, kjúklingum, kjöti
og mjólkurafurðum. „Díoxínfárið"
leiddi til þess að innan sem utan
Belgíu komu upp kröfur um að allar
vörur sem ástæða þætti til að óttast
að væri díoxínmengaðar yrðu tekn-
ar af markaðnum og útflutningur
þeirra bannaður. En eftir að belgísk
stjómvöld greindu frá því fyrir
nokkmm vikum að verið gæti að
dreifing díoxínmengaðs dýrafóðurs
hefði verið meiri en fyrri rannsóknir
hefðu leitt í Ijós komu upp kröfur
um strangt eftirlit með matvömm
sem ætlaðar væru til útflutnings.