Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Kmverski herinn með viðbunað við Taívansund „Atök gætu blossað upp hvenær sem er“ Peking, Taipei. Reuters, AFP. KÍNVERSKI kommúnistaflokkur- inn herti í gær þrýsting sinn á Taí- vana vegna meintrar aðskilnaðar- stefnu þeirra og eitt af blöðum hans varaði við því að átök gætu blossað upp hvenær sem væri. Taívan óskaði aftur eftir aðild að Samein- uðu þjóðunum en Kínverjar sögðu að beiðninni yrði hafnað og sökuðu Taívana um að hafa mútað ríkjum til að styðja hana. „Sverðin og bogamir hafa verið teknir upp,“ sagði kínverska blaðið Global Times, sem málgagn kín- verska kommúnistaflokksins, Dag- blað alþýðunnar, gefur út. „Hemað- arátök milli þessara tveggja aðila gætu blossað upp hvenær sem er.“ Kommúnistaflokkurinn hefur oft notað Global Times til að koma á framfæri skilaboðum og viðhorfum sem era ekki leyfð í Dagblaði alþýð- unnar. Mikil spenna hefur verið í sam- skiptum Taívana og Kínverja frá því Lee Teng-hui, forseti Taívans, lýsti því yfir fyrir mánuði að líta bæri á Kína og Taívan sem tvö ríki. Kínverjar hafa hins vegar lagt áherslu á að Taívan sé aðeins hérað í Kina og hafa hótað að senda þang- að hersveitir lýsi Taívanar yfir sjálf- stæði. Global Times sagði að hersveitir í Fujian-héraði við Taívansund væru í viðbragðsstöðu og kínverski flug- herinn hefði hafið æfingar. Miklar matvælabirgðir hefðu einnig verið sendar í herstöðvar í héraðinu. Blaðið birti einnig mynd af loft- bardaga sem sett var saman úr myndum af kínverskum og taí- vönskum orrustuflugvélum. Daginn áður hafði annað kín- verskt dagblað sagt að ef stríð blossaði upp yrðu Taívanar knúðir til uppgjafar innan fimm daga. Sakaðir um mútur Kínverska utanrQdsráðuneytið sagði í gær að tilraun Taívana til að fá aðild að Sameinuðu þjóðunum myndi mistakast. „Eins og allir vita eru Sameinuðu þjóðimar alþjóðleg sam- tök ríkisstjóma sjálfstæðra ríkja,“ sagði í yfirlýsingu frá ráðuneytinu. „Taívan er hérað í Kína og hefiir alls engan rétt til að ganga í SÞ.“ Ráðuneytið bætti við að utanrík- isráðherra Taívans hefði farið til Mið-Ameríku í því skyni að múta ríkjum til að styðja aðildarbeiðnina. David Lee, aðstoðaratanríkisráð- herra Taívans, sagði í gær að tólf ríki hefðu lagt fram tillögu um að stofnuð yrði nefnd til að fjalla um aðildarbeiðnina. Þessi ríki era: Gambía, Svasfland, Líbería, Búr- kína Fasó, Senegal, Sankti Vinsent og Grenadíneyjar, Grenada, Mars- halleyjar, Salómonseyjar, Níkarag- va, E1 Salyador og Hondúras. Taívanar hafa sex sinnum áður óskað eftir aðild að Sameinuðu þjóðunum en þetta er í fyrsta sinn sem þeir byggja beiðnina á því að „Taívan hefur verið undir stjóm sérstakrar ríkisstjómar frá 1949“. Reuters BLAÐASALI í Peking selur eintak af dagblaðinu Global Times þar sem varað var við því að átök gætu bloss- að upp milli Kína og Taívans. Með fréttinni var birt samsett mynd af loftbardaga. George W. Bush neitar enn að sverja af sér meinta eiturlyfjaneyslu Asakanir fær- ast í aukana GEORGE W. Bush, ríkisstjóri í Texas og sonur fyrrverandi for- seta Bandaríkjanna, sem nú sæk- ist eftir útnefningu Repúblikana- flokksins fyrir forsetakosningarn- ar á næsta ári, þarf að láta sér lynda sífellt fleiri ásakanir um meinta notkun kókaíns. Hann neit- ar enn sem fyrr að svara spurning- um þess efnis, sem gæti orðið hon- um dýrkeyptara en að svipta hul- unni af fortíðinni. Bush á nú á brattann að sækja í kosningarbaráttunni um útnefn- ingu forsetaframbjóðanda repúbl- ikana, en hann hefur talist lfldeg- astur til sigurs enn sem komið er. Samkvæmt grein The Washington Post er hann eini frambjóðandinn sem neitar að svara staðlaðri spurningu dagblaðsins The New York Daily News um hvort hann hafi á áram áður neytt kókaíns. Málið, sem í byrjun taldist smá- atriði, virðist ætla að verða eitt að- al hitamál kosningabaráttunnar og er það nú eitt vinsælasta efni um- ræðuþátta bandarískra sjónvarps- stöðva. Fram til þessa hefur Bush neitað að svara spurningum um æsku sína sem hann kýs að kalla ábyrgðarlausu árin í lífi sínu. Hann hefur þó viðurkennt að hafa George W. Bush orðið á mistök og segir að drykkjuvenjur sínar hafi verið óviðunandi og hann hafi þess vegna hætt að snerta áfengi um fertugt. „Ég kann ekki við slúður í stjómmálum. Ef ég svara slíkri vitleysu gef ég mig á vald slúðurs- ins og gef þeim er halda því á lofti byr undir báða vængi,“ var haft eftir Bush í dagblaðinu The Times á dögunum. Þögnin gæti reynst dýrkeypt Að öllum líkindum mun Bush þurfa að þola vangaveltur í fjöl- miðlum um kókaínneyslu sína þar til hann leysir frá skjóðunni. A1 Gore, sigurstranglegasti frambjóð- andi Demókrataflokksins, hefur viðurkennt hassreykingar á náms- árunun. Hafði uppljóstranin engin áhrif á gengi hans í skoðanakönn- unum. Neysla kókaíns er þó litin alvarlegri augum og auk þess gæti laumingur í kringum málið orðið Bush dýrkeyptur. Warren Beatty kveðst íhuga forsetaframboð Washington. AFP. BANDARÍSKI leikarinn og leik- stjórinn Warren Beatty sagðist í samtali við The New York Times í vikunni íhuga að bjóða sig fram tál forseta í kosningunum árið 2000. Beatty, sem verið hefur virkur meðlimur Demókrataflokksins í fjöldamörg ár, sagðist óánægður með frambjóðendur í forkosning- um flokksins, þá A1 Gore, varafor- seta Bandaríkjanna, og Bill Braley, Warrcn Bcatty Flensufar- aldrar frá kjúklingum? Sydney. Reuters. HÆTTA er á, að gífurlegt kjúklingaeldi í Asíu geti orðið uppspretta nýrra inflúensufar- aldra á borð við þann, sem lagði tugi þúsunda manna í gröfina 1968. Kom þetta fram hjá vís- indamönnum Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar, WHO, á ráð- stefnu veirafræðinga í Sydney í Ástralíu. Bandaríski vísindamaðurinn Robert Webster sagði, að það væri einkum tvennt, sem gæti komið af stað nýjum faraldri. í fyrsta lagi mikil kjúklinganeysla í Ásíu og í öðru lagi, að fleiri veirar tækju sér bólfestu í kjúklingun- um. Sagði hann, að í Asíu væri kjúklingurinn næstum því í guða- tölu og þegar saman kæmu allir kjúklingamir og manngrúinn, væri faraldur óhjákvæmilegur. „Fuglaílensa" kom upp í Hong Kong fyrir tveimur áram og varð sex manns að bana. Talið er, að hún hafi komið úr kjúklingum en yfirleitt berst flensuveiran í menn úr svínum. Bragðust yfir- völd við með því að láta slátra 1,4 milljónum fugla og er ekki vitað tfl, að „fuglaflensunnar" hafi orð- ið vart síðan. Vísindamenn telja þó, að hún geti skotið upp kollin- um hvenær sem er. Kæmi upp skæð flensa myndi hún berast um heim allan á skömmum tíma vegna þess hvernig samgöngum er háttað nú á dögum. Segja vísindamenn, að jafnvel þótt bóluefni fyndist við henni, tæki það að minnsta kosti hálft ár að framleiða nóg af því til að stemma stigu við far- aldrinum. Stóraukin ítök rússnesku mafíunnar á svissneskum fjármálamarkaði Varað við hrinu ofbeldisverka Genf, Reuters. SVISSNESK yfirvöld telja að um 300 fyrirtæki á innlendum fjármála- markaði séu tengd skipulagðri glæpastarfsemi rússnesku mafíunn- ar. Yfirmaður dómsmálaráðuneytis- ins, Carla del Ponte, óttast að pen- ingaþvætti mafíunnar innan banka- kerfisins veiki stoðir svissnesks efnahagslífs og varar jafnframt við ofbeldishrinu í kjölfar aukinna um- svifa hennar. Carla del Ponte, Iöngum erkiand- stæðingur svissnesku einkabank- anna, sagði aðspurð að goðsögnin um svissnesku bankaleyndina væri aðalástæða þess að rússneska mafí- an veldi þá undir peningaþvætti. Sviss er stærsta miðstöð fjár- málaviðskipta í skattaparadísum heimsins, en um hana fer um j)riðj- ungur auðs alls markaðarins. I aprfl síðastliðnum samþykkti þingið ný lög sem draga áttu úr svokölluðum þvotti illa fengins auðs og bæta orðstír svissneska bankakerfisins. Þrátt fyrir lögin hefur svissnesk- um yfirvöldum ekki tekist að draga úr peningaþvætti og umsvifum rússnesku mafíunnar á þarlendum fjái-málamarkaði. En rússneskir glæpamenn era taldir hafa falið um 40 milljarða bandaríkjadala á sviss- neskum bankareikningum. Á síð- ustu misserum hefur margsinnis verið haft eftir Del Ponte að rúss- neska mafían sé ein helsta ógn er steðji að landinu. Hún segist með- vituð um að mafían hafi engan áhuga á að draga að sér athygli með ofbeldisverkum svo lengi sem millj- arðamir séu óhultir, en sú staða gæti breyst fljótlega. íyrrverandi öld- ungadefldarþing- mann. „Það er ekki ofsögum sagt að ég sé frjálslynd- ur demókrati,11 sagði Beatty í símaviðtali fi"á íbúð sinni í Los Angeles. „Ég hef mjög sterkar skoðanir þar sem um- bætur á þeim reglum sem gilda um fjármögnun framboða vega ekki síst þungt, því þær hafa áhrif á öll önnur málefni. Ég óttast að við sé- um að nálgast auðvaldsstjórn í meiri mæli en við viljum og ég tel að innst inni vilji fólk gera eitthvað til að koma í veg fyrir það.“ Beatty gaf í skyn að hann myndi bjóða sig fram sem frjálslyndur demókrati eða jafnvel óháður. Þá hefur hann átt í viðræðum við frjálslynda stjómmálamenn eins og Steve Cobble, sem vann að for- setaframboði Jesse Jacksons. El- len Miller, yfirmaður Public Campaign-samtakanna sem hvatt hafa til breytinga á fjármögnun framboða, er einnig meðal þeirra sem Beatty hefur átt í viðræðum við. „Hann er að íhuga það mjög al- varlega," sagði Miller um framboð Beattys. Beatty sagði marga hafa lagt til við hann að hann byði sig fram og sagði hann að enginn ætti að efast urn skilning hans á stjómmálum né áhuga. „Ég hef tekið virkan þátt í stjómmálum í 35 ár,“ sagði Beatty, sem nú síðast lék skeleggan öld- ungadeildarþingmann í kvikmynd- inni Bulworth, er ræddi bandarísk stjómmál án þess að draga nokkuð undan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.