Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 Mermmgardagskrá í Listesafni Islands í tiLefni 5 ára afmælis Símans GSM verður sérstök menningar- og tónlistarhátíð í Listasafni ísLands í dag. Lifandi jasstónlist mun óma um safnið meðan þú nýtur listarinnar. Einnig koma fram nokkrir af fremstu listamönnum landsins á sviði klassískrar tónlistar og Ljóðlistar. í tilefni dagsins verður safnið opið tiL kL. 19.00 og er aðgangur ókeypis fyrir viðskiptavini Símans GSM. Degskrá 16:00 Jazztríóið SvartfugL: Siguróur Rosason, saxófónn, Bjöm Thoroddsen, gítar og Gunnar Hrafnsson, kontrabassi. 17:00 Sigurbjörg Þrastardóttir, LjóðaLestur 17:15 Einar Jóhannesson, klarinettuLeikari Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó 17:30 Jazztríóið SvartfugL 17:45 Sardas kvartettinn: Martin Frewer, fiðla, Kristján Mattíasson, fiðla, Mark Reedman, víóla og Amþór Jónsson, selló. 18:15 Sindri Freysson, LjóðaLestur 18:30 ÁshiLdur HaraLdsdóttir, þverfLauta Iwona Yagla, píanó 18:45 Kristján Þórður Hrafnsson, LjóóaLestur SÍMINN GSM WWW.GSM.IS ______________________MQRGUNBLABIÐ LISTIR Ur vinnustofum þriggja listamanna „KRÍSUVÍK", málverk eftir Oliver Comerford. HLUTI af verki Áslaugar „Úr vinnustofu listamannsins“. MYMILIST Nýlislasalnid ÁSLAUG THORLACIUS Opið alla daga nema mánudaga frá 14-18. Til 22. ágúst. HLUTI af aðdráttarafli listaverks er ekki aðeins hvað listamaðurinn sýnir með því, heldur ekki síður hvað listaverkið sýnir um listamanninn. Það hefur lengi tíðkast að líta á lista- verkið sem afhjúpun á tilvist og per- sónu listamannsins. Sömuleiðis má segja, að sköpun listaverks felist öðrum þræði í því að setja sig í hlut- verk listamannsins, hvernig sem það nú er. Hvort sem þetta er gert á meðvitaðan eða ómeðvitaðan hátt verður varla hjá því komist að lista- maðurinn „sýni sig“ í verkum sínum, með einum eða öðrum hætti. Og áhorfendur hafa gaman af því að koma upp um listamanninn með því að spá í verkin og sálgreina hann í gegnum þau. Eg held það megi skilja sýningu Áslaugar Thorlacius sem tilraun til að storka þessum sjálfsánægða „lestri“ áhorfandans á verki lista- mannsins, með því að leggja spilin á borðið, ef svo má segja. Sýningin ber yfirskriftina „Úr vinnustofu lista- mannsins“ og neðanmáls stendur skrifað manifestó listamannsins: „Ég er listamaður, ég vinn heima, ég set mér hagfræðileg, heimspekileg og fagurfræðileg markmið og stefni að þeim af einurð og staðfestu, er ham- ingjusöm, hlutverkið frelsar mig.“ Á myndunum er hins vegar hvergi að sjá neitt sem minnir á vinnustofu listamanns. Teikningarnar eru gerð- ar með blýanti á glerfíberstriga og sýna útlínur af umhverfi listamanns- ins, sem er „varpað" á efni sem líkist einna helst veggfóðri. Á teikningam- ar eru límdar myndir af hlutum, klipptum út úr ljósmyndum, sem teknar voru á myndbandsvél og prentaðar út. Hlutirnir, sem standa stakir á hvítu veggfóðrinu, eru t.d. hekluð motta í gluggakistu, óhreint leirtau í vaski, prjónadót og augnhár og varir á kvenmannsfígúru. Manni getur ekki fundist annað en að það sé óbrúanleg gjá milli „hag- fræðilegra, heimspekilegra og fagur- fræðilegra markmiða listamannsins" og heklaðrar blómapottamottu. Við getum ekki séð fyrir okkur hvernig hið fyrra getur verið tákn um hið síð- ara, eða öfugt. Allir þeir hlutir sem Áslaug stillir upp sem augljósum vís- bendingum í myndunum, era allt saman hlutir sem eni á „spássíunni“ í lífí listamannsins, smáatriði sem sjaldnast er tekið eftir. Sem þýðir annað hvort, að við vitum ekki neitt um listamanninn og erum á algjöram villigötum í leit okkar að vísbending- um, eða að listamaðurinn er algjör- lega týndur í umhverfi sínu. En það er kannski þannig sem hagfræðileg, heimspekileg og fagurfræðileg markmið Áslaugar sýna sig. PAPPÍR í SIGTINU KRISTVEIG HALLDÓRSDÓTTIR I Bjarta og Svarta sal er sýning sem er allt annars eðlis en þær sem eru á hæðunum fyrir ofan og neðan. Bakgrannur Kristveigar Halldórs- dóttur er i handverki og hönnun og hún hefur numið við textfldeild MHI og þar til pýlega við listiðnaðarhá- skólann í Ósló. Sýningin verður þó að teljast á mörkum textfllistar og skúlptúrlistar. Verkin eru gerð úr hörtrefjum og bývaxi. Hör er notað bæði í tau og í pappír, en í þessu tilviki er efnið ekki ofíð, heldur er bývaxið notað til að binda hörinn og mynda þunnar ark- ir, alsettar reglulegum götum. Ark- irnar era mjög léttar að sjá, gegn- sæjar og brothættar, eins og gata- sigti. Samt líkist efnið ekki pappír, því vaxið gerir að verkum að það verður eins og lífræn himna, sem er uppþornuð og storknuð. Kosturinn við sýninguna er ótví- rætt hin óvenjuleg meðferð á efninu. Þau form og þær útfærslur, sem hún kýs að vinna með, eru hins vegar ekki eins spennandi. Manni fínnst stundum brenna við að listamenn, sem era mjög uppteknir af efni og áferð, lendi í frekar klisjukenndum formstúdíum, sem skilja lítið eftir sig. En ég hef í sjálfu sér litlar áhyggjur af því hvað Kristveigu varðar, því það á eftir að reyna á það hvernig hún kemur til með að vinna úr hlutunum. Aftur á móti tekst henni á skemmtilegan hátt að not- færa sér andstæðurnar milli birtu Bjarta salarins og myrkurs Svarta salarins, með því að spila á andstæð- ur í formi og uppsetningu verkanna. MÁLAÐ ÚT UM BÍLGLUGGANN OLIVER COMERFORD Það er hægt að nálgast ljós- myndaraunsæi í málverki á tvennan ólíkan hátt. Sumir reyna að komast svo nærri Ijósmyndinni að málverkið hverfur, málarinn blekkir augað þannig að það heldur að það sé að horfa á ljósmynd en ekki málverk. Þetta hefur verið kallað hyper-real- ismi (og vafalaust fleiri nöfnum). Aðrir spenna í sundur málverkið og ímyndina, þannig að það er augljóst að myndin er máluð, en ímyndin heldur Ijósmyndalegum eiginleikum sínum. Dæmi um þetta er ljós- myndaraunsæi Gerhards Richters. Comerford velur seinni kostinn, sem mér finnst einnig áhugaverðari. Það er yfírleitt lítið fengið með fyrri nálguninni, annað en aðdáun á tæknilegri snilld (sem maður skyldi þó ekki vanmeta). Comerford málar eftir ljósmynd- um sem teknar eru á ferðalagi hans um þjóðvegi og út um bílgluggann á fleygiferð. Sumar ljósmyndirnar sem hann hefur málað eftir era teknar hér á landi á fjögurra daga ferð hans, eins og sést t.d. af málverkinu „Krísuvík“. Hringur Jóhannesson málaði eftirminnilegar myndir af út- sýni út um bílglugga, en bíllinn var ávallt kyrrstæður (eða leit út fyrir að vera kyrrstæður). Sú athöfn að mála krefst kyrrstöðu en hér er allt á hreyfingu. Tré og girðingarstaurar í forgrunni eru hreyfð eins og þau séu að þjóta hjá á miklum hraða. í mál- verkum Comerfords verða ákveðnir eiginleikar ljósmyndarinnar, tækni- leg atriði varðandi ljósmyndatöku, eins og hraði, ljósop og fókus, að neðanmálsgrein við málverkið. Myndirnar eru málaðar á spjald, ekki striga, og yfirborðið sem hann málar á, ásamt hlutföllum og stærð- um flatarins auka enn frekar á tengslin við ljósmyndaformið. Ljósmyndatæknin gróf undan raunsæi málverksins, en það skemmtilega við þessa tilraun Comerfords er að hér er málverkið notað til að grafa undan raunsæi ljósmyndarinnar. Þau atriði sem verða ósýnileg í ljósmyndinni, vegna þess að raunveraleikinn er svo ágengur í þeim, verða að sýnilegum og ágengum eiginleikum í málverki Comerfords. Raunsæi í málverki á líklega ýmislegt eftir. Gunnar J. Árnason Morgunbla3ið/Jón Sigurðsson EITT af verkum Kristine Elfride á sýningu sem nú stend- ur yfir í kaffihúsinu Við ár- bakkann á Blönduósi. Sýningu Kristine að ljúka Blönduósi. Morgunblaðið. SÝNINGU Kristine Elfride frá Blönduósi á svokölluðum þrívíðum amerískum klippimyndum sem verið hefur í kaffíhúsinu Við árbakkann á Blönduósi lýkur þriðjudaginn 17. ágúst. Kristine, sem heldur sína aðra einkasýningu, sýnir þarna tuttugu og sex klippimyndir. Kristine kynnt- ist þessari listgrein í Kanada og fór sjálf að vinna myndir árið 1995.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.