Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 29 Skipulagsslys á Hveravöllum og verndun hálendisins EINS og flesta rekur efalaust minni til, hófst atlaga forsvarsmanna Svínavatnshrepps gegn Ferðafélagi Islands og hinni hófsamlegu ferða- mannaaðstöðu félagsins á Hveravöllum fyrir nokkrum misserum. Um er að ræða harka- lega árás sveitarfélags, sem telur nokkra tugi fastra íbúa, gegn fjöl- mennum almannasam- tökum, sem' rekin eru á grundvelli hugsjóna og jafnframt sjálfboða- starfs að verulegu leyti, auk þess sem fyrirhug- aðar stórframkvæmdir Svínvetninga á þessum fagra en við- kvæma stað samræmast ekki viður- kenndum kröfum um náttúruvernd. Á ferli sínum í meir en sjö tugi ára hefur Ferðafélagið, sem er öllum op- ið og á sér þúsundir félagsmanna um land allt, beitt sér fyrir hollri úti- vist, landkynningu og ferðalögum fyrir almenning og verið brautryðj- andi á ýmsum sviðum ferðamála hérlendis. Er það framlag félagsins til almannaheilla reyndar kunnara en frá þurfí að segja. Hæstiréttur Islands hefur skorið úr því, að Auðkúluheiði öll, ásamt Hveravöllum, sé ekki undirorpin eignarrétti þeirra hreppa, þ.m.t. Svínavatnshrepps, sem nytja þetta landsvæði sem afrétt fyrir sauðfén- að sinn, og er því tvímælalaust um þjóðlendu að ræða í skilningi þeirra laga, sem þar um gilda. Hveravellir eru þannig réttmæt sameign alþjóð- ar eins og vera ber um landsvæði inni á miðju hálendinu. Illu heilli urðu þau mistök við nýlega laga- setningu á Alþingi, eins og mörgum er minnisstætt, að óbyggðunum var skipt í tugi „tertusneiða" og hrepp- um þeim, sem land eiga að hálend- inu, áskilinn skipulagsréttur á þess- um furðulegu skákum. Var þetta gert enda þótt fullljóst sé, að Hæstiréttur hafi mark- að þá stefnu að mestöll öræfin lúti ekki eignar- rétti hreppanna. Virð- ast ímyndaðar beitar- þarfir fyrir búsmala bænda einkum hafa ráðið ferðinni við þessa lagasetningu - eins þar sem ekkert er undir annað en sandur, hraun og jöklar! Þetta hraklega fyrir- komulag býður að sjálfsögðu upp á hörmuleg slys í skipu- lagsmálum. Fyrstu dæma þess er ekki langt að leita. Verkin tala: Forsvarsmenn Svína- vatnshrepps nýttu sér skipulagsvald sitt á Hveravöllum til að leitast við að ónýta og afmá aðstöðu Ferðafé- lags Islands þar, sem staðið hefur í meir en sex tugi ára, en úthlutuðu hreppnum sjálfum þess í stað afar- stórum byggingarreit í námunda við hverasvæðið, sem bersýnilega er ætlað að rúma tröllaukna þjónustu- starfsemi, á þann mælikvarða sem tíðkanlegur hefur verið við manna- ferðir á hálendinu. Rangar hug- myndir Svínvetninga um þarfir ferðamanna á öræfum uppi, óraun- hæfar ætlanir þeirra um óskir há- lendisfara og misskilningur á því hvað leyfist í umgengni við landið réðu þar ferðinni. Hafa forsvars- menn hreppsins síðan fylgt fyrirætl- unum sínum afar fast eftir þrátt fyr- ir harða andstöðu Ferðafélagsins og jafnframt einörð og rökstudd mót- mæli allra annarra samtaka útivist- ar- og umhverfísverndarmanna í landinu sem og náttúruvemdaryfir- valda. Allt er þetta knúið fram í skjóli illa fengins eða a.m.k. illa gmndaðs skipulagsréttar, og jafn- gilda þessi róttæku byggingaráform Páll Sigurðsson Ekki láta undan! AÐ undanförnu hafa lesendur Morgun- blaðsins barið augum greinar eftir harða stuðningsmenn Jónas- ar Þórs Guðmundsson- ar, sem býður sig fram til formanns SUS, þar sem látið er í það skína að stjóm Heimdallar muni láta ómálefnaleg sjónarmið ráða vali stjómarinnar á fulltrú- um félagsins. Þeir sem til þekkja sjá vitaskuld í gegnum þennan ósmekklega áróður. Markmiðið er að gera Heimdall tortryggileg- an og þvinga stjórnina til þess að velja stuðningsmenn Jónasar sem sus Markmið skrifanna, segir Arnar Þór Ragn- arsson, er að þvinga stjóm Heimdallar til að velja stuðningsmenn Jónsar Þórs sem full- trúa á SUS-þingi, hvað sem líður þátttöku þeirra í starfí félagsins. þingfulltrúa, hvað sem líður þátt- töku þeirra í starfi félagsins. Hót- unin sem að baki býr er sú að full- trúavalinu fylgi hol- skefla árása og svívirð- inga, verði hún ekki Jónasi og stuðnings- mönnum hans þóknan- leg. Staðreyndin er sú að öll félög ungra sjálf- stæðismanna lúta sams konar reglum og fulltrúavalið fer fram með sama hætti í þeim öllum. Þar hefur Heimdallur enga sér- stöðu. Stuðningsmenn Jónasar beina spjótum að Heimdalli vegna þess að hann er íangstærsta aðildarfé- lag SUS og öllum er kunnugt að þar nýtur framboð Jónasar Þórs takmarkaðs stuðnings. Ef stór hópur virkra félagsmanna hefði haft raunverulegar áhyggjur af því að stjórn Heimdallar beitti félags- menn „skoðanakúgun“, eins og einn stuðningsmaður Jónasar kall- aði það, hefðu þeir auðvitað boðað almennan félagsfund sem er æðsta vald í félaginu milli aðalfunda og þar hefði verið hægt að ganga frá valinu. Fundurinn var ekki boðað- ur, enda vita stuðningsmenn Jónasar Þórs að stjórnin nýtur trausts félagsmanna. Ég hvet stjóm Heimdallar til þess að láta ekki undan hótunum og þrýstingi stuðningsmanna Jónasar, kaupi sér ekki frið heldur vinni af sanngirni og heilindum. Höfundur situr i stjórn SUS og er fyrrv. stjórimrnmöur { Heimdnlli. Arnar Þór Ragnarsson Hálendið Þetta hraklega fyrir- komulag, segir Páll Sigurðsson, býður að sjálfsögðu upp á hörmuleg slys í skipulagsmálum. hreppsins með þeim landspjöllum, er þeim fylgja, grimmdarverkum gegn mönnum og náttúru ef þau komast til framkvæmda - eins og því miður virðast allar horfur á að verði. Munu þess vissulega fá sem engin dæmi hérlendis, að fyrirtæki hefji starfsemi sína í óþökk jafn margra manna eins og verða mun í þessu tilviki, því að vitað er að mikill meiri hluti þjóðarinnar hefur óhug á og er fullkomlega andvígur þessu tiltæki hreppsins eins og berlega kom fram fyrir fáum misserum þeg- ar umræðan um málið var hvað heit- ust í fjölmiðlum. Eins og vænta má hefur Ferðafé- lag íslands reynt að fá skipulagstil- lögum hreppsins hnekkt með til- styrk æðstu skipulagsyfirvalda og unnið þar nokkra áfangasigra eins og efni stóðu til, nú síðast fyrir fáum vikum þegar úrskurðarnefnd skipu- lagsmála ógilti enn einu sinni tillögu Svínvetninga að deiliskipulagi fyrir Hveravelli. Það eitt hrekkur þó skammt því að Svínvetningar munu nú herðast í sókn sinni og nýta sér vald sitt af alefli. Ný tillaga að deiliskipulagi, þar sem flest verður þó við það sama, mun brátt líta dagsins ljós. Við blind öfl er þar að eiga, sem ekki verður unnið á nema með samstilltu átaki fjöldans. Aldrei hefur verið meiri þörf en nú á al- mennum og kröftugum mótmælum gegn yfirvofandi skipulagsslysi á Hveravöllum. Vonandi munu Ferða- félagsmenn heldur ekki hvika í nauðvörn sinni. Þeir eru að sjálf- sögðu friðsamir eins og góðum mönnum sæmir, en friði á þessum vettvangi verður þó ekki náð eða honum haldið uppi á röngum for- sendum. Verður að taka mið af þeirri staðreynd í öllum samskiptum við forsvarsmenn Svínvetninga. Fyrirhugað stórhýsi á Hveravöll- um (með „sjoppu" og öðru tilheyr- andi) hefur í máli manna réttilega verið nefnt „Svínvetningabúð" - og er orðið „búð“ þá væntanlega notað í fornri merkingu, þ.e. „aðsetur", fremur en það vísi sérstaklega til sölubúðarinnar miklu þar á staðn- um. Meðal sumra umhverfisvemd- armanna hefur þó komið fram til- laga um heitið „Stóra hryllingsbúð- in“ en hér skal ekki tekin afstaða til þeirrar nafngiftar. Tíminn einn mun leiða í ljós, hvaða heiti almenningur telur best hæfa hinum miklu mann- virkjum Svínvetninga í hjarta öræf- anna, ef eða þegar reist verða. Að sjálfsögu má öllum ljóst vera, að þau málefni Hveravalla, sem hér hefur verið vikið að, fela ekki í sér einangrað úrlausnarefni heldur verður að líta á þetta tilvonandi skipulagsslys í ljósi þeirrar almennu umræðu, sem nú er uppi um vernd- un hálendis Islands. Slysfarimar á Hveravöllum, sem við munu blasa innan tíðar að öllu óbreyttu, em skýrt dæmi þess hvað orðið getur og verða mun víðar - í flestum eða e.t.v. öllum þeim tugum hreppa, sem nú teljast hafa skipulagsvald yfir óbyggðunum. Eina úrræðið til varn- ar er að almenningur haldi vöku sinni og þoli ekki yfirgang og nátt- úruspjöll, sem einvörðungu ráðast af hagsmunum (oft reyndar ímynduð- um hagsmunum) mjög fárra en valdamikilla manna í hálfeyddum byggðum, er liggja að öræfunum. Sá mikli áhugi og sldlningur, sem allur almenningur í landinu hefur nú öðl- ast á verndarþörf hálendisins og náttúru landsins alls, ber góðan vott um vaxandi menningarþroska ís- lendinga. Alþjóð skilur einnig, að umræðan um framtíð Hveravalla tengist þeirri merku þjóðfélagsum- ræðu, sem nú fer fram um þau ómælanlegu verðmæti, er felast í stórbrotinni náttúru landsins, og gegnir meginhlutverki í baráttunni gegn skammsýnisákvörðunum mis- viturra ráðamanna. Höfundur er prófessor í lögfræði við Háskóla Islands. Reynir Hjálmarsson Þóra Sverrisdóttir Agnar Sveinsson Sigurður Þór Guðmundsson Styðjum Jónas Þór sem formann SUS EINS OG fram hefur komið í nokkrum greinum hér í Morgun- blaðinu líður senn að þingi Sam- bands ungra sjálfstæðismanna þar sem ungir hægrimenn alls staðar af landinu hittast til að móta stefnu félagsins og velja fólk til áhrifa- starfa innan þess. Ungir sjálfstæð- ismenn eru stoltir af félagi sínu enda eru alls tæplega 10.000 ein- staklingar á aldrinum 16-35 ára í félaginu. Það er að mörgu að vinna á þinginu, sem haldið verður í Vestmannaeyjum dagana 20.-22. ágúst, og ekki síst því að velja for- mann SUS næstu tvö árin. Jónas öflugur Fyrir okkur sem höfum starfað í félögum á Norðurlandi vestra um nokkurt skeið skiptir höfuðmáli að einstaklingur veljist til formennsku í samtökunum sem gjörþekkir starf þeirra og er reiðubúinn að sinna starfmu af elju og dugnaði. Jónas Þór Guðmundsson hefur undanfarin tvö ár gegnt starfi 1. varaformanns SUS. Höfum við kynnst áhuga Jónasar á starfinu og hefur hann sérstaklega beitt sér fyrir því að tengja starf lítilla fé- laga á landsbyggðinni við starfið á höfuðborgarsvæðinu. Jónas hefur Formannskosningar Við skorum á fulltrúa á þinginu, segja Reynir Hjálmarsson, Þóra Sverrisdóttir, Agnar Sveinsson og Sigurður Þór Guðmundsson, að veita Jónasi brautar- gengi til að leiða sam- tökin inn í nýja öld. komið í þrjár til fjórar heimsóknir í félög í kjördæminu en fáir gera sér grein fyrir því hversu mikilvægt það er fyrir ungt fólk á lands- byggðinni að fá stjórnendur félags- ins í heimsókn. Styrkjum landsbyggðina Með það að leiðarljósi að Jónas hefur sinnt félögum á landsbyggð- inni eins vel og raun ber vitni hefur aldrei annað komið til greina en að kjósa Jónas til formennsku. Þar er á ferð duglegur einstaklingur, áhugasamur og reynslumikill. Ein- staklingur sem hefur hagsmuni samtakanna ávallt að leiðarljósi á sama hátt og hann hlúir vel að þeirri mikilvægu hugsjón sem samtökin standa fyrir. Við skorum á fulltrúa á þinginu að veita Jónasi brautargengi til að leiða samtökin inn í nýja öld og vinna enn betur að því starfi sem samtökin standa fyrir. Ileynir er formaður Víkings, f.u.s. Sauðárkróki, Þóra er formaður Jörundar, f.u.s. A-Húnavatnssýslu, Agnar er formaður Njarðar, f.u.s. Siglufirði, og Sigurður Þór er formaður Bersa, V-Húnavatnssýslu. ERTU FITUB0LLA? Viltu snúa við blaðinu? Hjálp fæst! S. 426 7426 f. hádegi. Díana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.