Morgunblaðið - 13.08.1999, Page 36

Morgunblaðið - 13.08.1999, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ 36 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 Kynbótadómar á Heimsmeistaramóti , Meiri sátt um dómana en fyrr _______Hestar___________ (> ii 1 Matheshof f hýskalanili KYNBÓTADÓMARÁ HEIMSMEISTARAMÓTI DEILDAR meiningar hafa verið um ágæti þess að vera með kyn- bótahross og dóma á þeim á heims- meistaramótunum en eftir ágæt- lega heppnaðan þátt kynbótahrossa á nýafstöðnu móti í Þýskalandi virðist sem staða þeirra í þessum mótum sé nú sterkari en áður. Þjóðverjar voru eftir mótið í Nor- egi fyrir tveimur árum mjög ósáttir við þá dóma sem hross þeirra fengu ^og voru háværar raddir um að þeir sendu ekki hross á mótið nú. Það þótti hinsvegar ekki við hæfí að gestgjafarnir hunsuðu einn þátt mótsins og sendu þeir prýðileg hross til leiks og virðist nú ríkja góð sátt um dómana. Að vísu voru Þjóðverjar ekki allskostar sáttir þegar ein hryssan af þremur sem þeir tefldu fram, Hrönn frá Godemoor, sem Jóhann G. Jóhann- esson sýndi, var dæmd úr leik. Ástæðan var sú að hófhlífarnar fuku af í dómnum og voru settar aðrar hlífar á sem ekki voru vigtaðar. Fjögur gull af sex Útkoma hrossanna frá Islandi var prýðileg, fjögur gull af sex verður að teljast vel viðunandi. Að vísu verður að taka með í reikning- inn að Hrönn frá Godemoor var efst í 5 vetra flokknum áður en hún var dæmd úr leik. Hæst dæmda hross mótsins var Hylling frá Korpúlfsstöðum, sem Tómas Ragn- arsson sýndi, hlaut 8,55 í aðalein- kunn. Hún var sýnd í flokki hryssna sjö vetra og eldri og hlaut hún þrjár níur í einkunn dómar- anna fyrir hæfileika, fyrir fet, vilja og fegurð í reið. Hún hlaut sömu- leiðis þrjár níur fyrir sköpulag, fyr- ir höfuð, háls og herðar og sam- ræmi. Hún hækkaði heldur fyrir sköpulag frá því dómum hér heima og bætti verulega við sig í hæfíleik- um, bæði frá dómum heima og eins hækkaði hún í yfirlitssýningu á laugardeginum. Hylling var góður fulltrúi íslenskrar ræktunar á mót- inu en næst henni kom Svört frá Aldenghoor, sem var fulltrúi Hollands í flokki hryssna sjö vetra MÚRFLEX Á SVALIR 06 ÞÖK SVEIGJANLEGT VATNSÞÉTTIEFNI Sl steinprýði Stangarhyl 7, sími 567 2777, fax 567 2718. FRÁ Heimsmeistaramótinu í hestaíþróttum. Valdimar Kristinsson og eldri. Knapi á henni var annar tvegg)a eigenda, Ralf Wohllaib, en hann á einnig stóðhestinn Reyk frá Hoftúni, sem Sveinn Ragnarsson hefur keppt mikið á undanfarin ár við góðan orðstír. Svört er með nokkuð jafnar einkunnir, eina níu fyrir skeið en flestar einkunnir á bilinu 8,0 til 8,5. Fönn varð að Funn í þriðja sæti varð svo hryssa sem skrifuð er Funn en átti víst að heita Fönn og er sú fædd í Þýskalandi en ekki kennd við neina ræktun. Þórð- ur Jónsson sýndi hryssuna og fannst mörgum hún heldur vandæmd, hlaut 8,17 fyrir tölt, sem segir að ekki hafi verið fulkomin eining meðal dómaranna um hvort hún hlyti 8 eða 8,5. Þá hlaut hún að- eins 8 fyrir skeið, sem mörgum þótti naumt skammtað. Fönn hlaut eina níu, fyrir vilja. Fjórða hryssan í þessum flokki fór einnig yfir 8 í einkunn en það var fulltrúi frænda vorra Dana. Það var hryssan Fluga frá Strö, sem Sören Witt sýndi. Hún hlaut 9,0 fyrir vilja og skeið en var lág fyrir sköpulag. Jörp frá Schnorrenberg bar af sex vetra hryssunum og átti full- trúi íslands, Eygló frá Hólum, enga möguleika á að skáka henni. Jörp hlaut þrjár níur, fyrir tölt og fegurð í reið og sömuleiðis fyrir háls, herðar og bóga og samtals með 8,51 fyrir hæfileika. Andreas Trappe sýndi Jörp en hann er einnig eigandi hennar. Eygló kom næst en hana sýndi Anton Páll Ní- elsson. Hún hlaut enga níur en býsna oft með 8,5 og með 8,08 í að- aleinkunn. , Af fimm vetra hryssum stóð efst Ásrún frá Ey sem Erlingur Erl- ingsson sýndi og vakti hún mikla athygli. Hágeng og sköruleg í fram- göngu en hlaut þó enga níu en þess oftar 8,5. Ásrún er hágeng klár- SÉRVERSLUN HESTAMANNSINS Háaleitisbraut 68 . . Austurver Sími 568 4240 hryssa með háa sköpulagseinkunn, 8,20, sem vafalaust á eftir að skila hærri tölum verði hún sýnd á nýjan leik. Góður með aukavigt að framan Glaður frá Hólabak, sem nú er sýndur öðru sinni fyrir Islandshönd á HM, hlaut hæstu einkunn stóð- hesta, 8,41. Hinrik Bragason sýni hestinn að þessu sinni en hann og Angantýr Þórðarson eiga hestinn saman. Hann fær feiknahátt fyrir sköpulag, 8,33, og þar af er hann með 9,5 fyrir réttleika og 9 fyrir bak og lend. Þá fær hann 9,0 fyrir stökk vilja og fegurð í reið og sam- tals 8,46. Glaður var ekki sannfær- andi á yfirlitssýningu né við verð- launaafhendingu og stóð engan veginn undir þessari hæfileikaein- kunn þar. Það vekur athygli með þennan hest hversu mikil breyting verður á honum þegar hann fær aukavigt á framfætur en það vita þeir sem séð hafa hestinn á þeim vettvangi þar sem það er leyft. Þá er hesturinn stórbrotinn í allri framgöngu. Næstur var fulltrúi Þýskalands í flokki sjö vetra stóðhesta og eldri, Kátur frá Störtal, sem hefur unnið sér það tii frægðar að vera fyrsti hesturinn sem fæddur er erlendis og keppir fyri hönd Islands á al- þjóðlegu móti en knapinn á honum, Sigurður Óskarsson, keppti á hon- um á Norðurlandamótinu í fyn-a. Hann hlaut 9 fyrii- tölt og vilja, af- skaplega taktfastur og lyftingar- góður töltari. Ekki spillir liturinn því hann er leirljós með mjög ljóst tagl og fax. Hestarnir frá Wetsinhe Næstur kemur Kongur frá Wets- inge en hann er hálfbróðir Káts, báðir undan Kolskeggi frá Ás- mundarstöðum, en hann var fulltrúi Hollands í þessum flokki. Kóngur fær afar lágt fyrir sköpulag, 7,58, en hæfileikarnir í góðu lagi þótt hvergi slái hann í 9,0. Fær alls 8,29 fyrir hæfileika og vakti hann at- hygli fyrir skemmtilega fram- göngu. Nicle Kempf sýndi Kóng en hún er annar tveggja eigenda. Annar hestur frá Wetsinghe vakti ekki síður mikla athygli en þar var á ferðinni Trúr, sem er undan þeim fræga hesti Tý frá Rappenhof, og vildu margir halda því fram að þarna færi föðurbetr- ungur og í það minnsta jafningi. Ósagt skal það látið en nóg fékk hann af níunum. Til dæmis fékk hann 9,5 fyrir stökk, 9,17 fyrir feg- urð í reið og 9,0 fyrir tölt, brokk, fet og vilja. Engar smátölur og hæfi- leikarnir fóru í 8,48, sem verður að teljast gott hjá skeiðlausum hesti enda meistaralega sýndur af Karly Zingsheim. Mjög athyglisverður hestur þaraa á ferð enda átti Ögri frá Háholti enga möguleika á að skáka þeim hollenska úr fyrsta sæt- inu þegar ofan á bættist að hann var ekki með sjálfum sér, hvorki í yfirliti, verðlaunaafhendingu né dómunum í upphafi. Ögri hækkaði í sköpulagi frá því í dómum hér heima, hlaut tvær níur fyrir höfuð og bak og lend. Var hann mjög ósannfærandi og ekkert líkur því sem hann hefur verið að sýna best heima á Fróni. Fulltrúi Þjóðverja, Alsvinur frá Osterberg, kom næst- ur og náði yfir 8,0 í aðaleinkunn, sýndur af Tönju Gundlach. Fékk engar níur en ágætt fyrir hæfileika, 8,29, og 8,04 í aðaleinkunn. Létt hjá Hrafni Hrafn frá Garðabæ fór létt í fyrsta sæti í flokki fimm vetra hesta með 8,24 í einkunn. Hann hlaut fjórar níur, hæst 9,17 fyrir brokk og 9,0 fyrir tölt, stökk og feg- urð í reið og 8,33 fyrir hæfileika. Sigrún Brynjarsdóttir sýndi Hrafn með sóma en hann er sem kunnugt er í eigu nýbakaðs heimsmeistara í slaktaumatölti, Will Covert, og á leið til nýiTa heimkynna í vestri. Kristall frá Sagstaðir í Dan- mörku náði einkunn yfir 8,0 og varð annar fimm vetra hesta með 8,02 og yfir 8,0 fyrir bæði hæfileika og sköpulag. Jafn hestur, hvergi lægri en 7,5 og ekki spillir liturinn, sótrauðskjóttur. Nýbakaður heims- í Hver vill ekki hafa 200.000 á mánuði? 56-1-HERB } <=* Upplýsingamiðstöðin c_m - þar sem íslenska er líka töluð ertu nokkuð að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.