Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ 44 {— FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 MINNINGAR KIRKJUSTARF AGNAR WILHELM AGNARSSON Agnar Wilhelm Agnars- son fæddist í Reykjavík 10. september 1951. Hann lést á heimili sínu 14. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 26. júlí. Jarðsett var í grafreit ása- trúarmanna í Gufunesi. Ef einhver var skilgetið afkvæmi kalda stríðsins, þá var það Agnar Agnarsson. Móðir hans, Betty, kom til íslands í kjölfar seinni heimsstyrj- ' aldarinnar til að flýja atvinnuleysi Þýskalands eftirstríðsáranna. Faðir hans, Agnar Hreinsson frá Hofs- stöðum í Garðahreppi, var einn stofnfélaga Kommúnistaflokks ís- lands og það nægði honum til að komast á mála hjá bandaríska hern- um sem vildi hafa veður af bylting- arbrölti verkalýðssinnanna. Betty hafði eyðilagt annað lungað í vinnu- slysi á stríðsárunum í þegnskyldu- vinnu við framleiðslu á eitruðu gasi. Eftir það fékk hún vinnu við njósnir í Noregi og Frakklandi. Bandaríska hernámsliðið sendi Agnar Hreins- son á vettvang til að hafa auga með Betty sem vann sem vinnukona á bóndabæ eftir komuna til íslands. í Þau felldu hugi saman og Agnar yngri Agnarsson var ávöxtur ástar þeirra. Hann var augasteinn foreldra sinna enda margt til lista lagt. Mynd- listarhæfileikar hans komu snemma fram sem og glöggt auga fyrir við- skiptum. Að loknu námi við Verslunarskól- ann starfaði hann við fjármáladeild Reykjavíkur sem og við heildsölu fóður síns. Hann var ávallt reiðubú- inn að gefa vinum og kunningjum holl ráð í viðskiptum og ófáum stund- um eyddi hann í að liggja yfir skatta- skýrslum þeirra. Það var æði oft gestkvæmt á Leifsgötunni og nutu gestir og gangandi góðs af eðlislægri gestrisni Agnars og foreldra hans. Endalok Agnars voru snögg og óvænt líkt og margar uppákomur í hans lífi. Þegar Bakkus blandast inn í ágreiningsmál gamalla félaga þarf ekki að spytja að leikslokum. Niður- staðan verður oftar en ekki óskiljan- legur harmleikur. Agnars verður sárt saknað af þeim mikla fjölda fólks sem leitaði ráða hans þegar öll sund virtust hafa lokast. Honum var lagið að hressa upp á sálartetrið með sam- blandi af lífsspeki og gálgahúmor. Hvíl í friði, gamli félagi, þín verður minnst á góðra vina fundum. Gísli Þór Gunnarsson. Safnaðarstarf Utiguðsþjón- usta og fjöl- skylduhátíð í Laugardalnum ÚTIGUÐSÞJÓNUSTA verður haldin á Laugardalsvelli sunnudag- inn 15. ágúst næstkomandi. Við at- höfnina syngur 1.000 manna kór undir stjóm Jóns Stefánssonar og 60 manna lúðrasveit leikur undir. Kristinn Sigmundsson syngur ein- söng og biskup Islands, sr. Karl Sigurbjörnsson prédikar. Að úti- guðsþjónustunni á Laugardalsvelli standa allir kristnir söfnuðir í Reykjavíkurprófastsdæmi. I framhaldi af útiguðsþjónust- unni verður fjölbreytt fjölskyldu- hátíð í Laugardal. Slegið verður upp tjöldum víðs vegar um dalinn þar sem kristin trúfélög, söfnuðir og ýmis félagasamtök innan þjóð- kirkjunnar kynna starfsemi sína. I sölutjöldum verða veitingar á boðstólum og minni samkomur. Leikfélagið Sýnir flytur leikritið Nýir tímar eftir Böðvar Guð- mundsson. Það var sýnt víða um land við frábærar undirtektir. Jón Ólafsson stjórnar gospeltón- leikum í Laugardalshöll kl. 16. Þar koma fram listamenn eins og Kangakvartettinn, Páll Rósin- krans, Sigríður Guðnadóttir, Stef- án Hilmarsson og Margrét Eir. Léttsveitin frá Kvennakór Reykja- víkur mun stíga á svið auk Gospel- systra. Gospeltónleikarnir verða eini atburðurinn sem selt er inn á. Ágóðinn af tónleikunum rennur til málefna geðfatlaðra barna í sam- ráði við foreldrafélag þeirra. Tón- leikunum lýkur um kl. 18. Hátíð- inni lýkur um kvöldið með sameig- inlegri æskulýðssamkomu allra kristinna safnaða í Skautahöllinni. Hátíðin í Laugaralnum er liður í hátíðarhöldum í tilefni af þúsund ára afmæli kristnitöku á Islandi. Þau eru sameiginleg á vegum Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og vestra og þriggja sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæj- ar og Seltjarnarneskaupstaðar. / Arrisul og vakandi kirkja ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda morgunbænir í Laugarneskirkju hvern virkan dag kl. 6.45-7.05. Morgunstund gefur gull í mund, segir máltækið og það er reynsla kristinna manna að þegar henni er varið í bæn til Jesú gefur það lífínu öllu ferskari blæ. I tilefni af Kristnitökuhátíð Reykjavíkurprófastsdæmanna sem haldin verður í Laugardalnum á sunnudaginn kemur, 15. ágúst, hefjum við morgunbænirnar þann sunnudag og biðjum fyrir kristn- inni í borginni og hátíðinni sem framundan er, en annars verða þær alltaf bundnar virkum dögum. Er það vissa okkur að hér sé um nýjan þátt í lífi Laugarnessafnaðar að ræða sem veita muni blessun og birtu inn í mannlífið. Hvetjum við Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. sem allra flesta til að vera með og njóta morgunbæna í Laugarnes- kirkju. Morgunhópurinn. Laugarneskirkja. Mömmumorg- unn kl. 10-12. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í Strandbergi laugardagsmorgna. Trú og mannlíf, biblíulestur og kyrrðarstund. Hofskirkja. Kirkjuskóli kl. 13.30. Sjöunda dags aðventistar á ís- landi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bi- blíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11.15. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Guðsþjónusta kl. 10.15. Biblíufræðsla eftir guðsþjón- ustu. Ræðumaður Sigríður Krist- jándóttir. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað- ur Eric Guðmundsson. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn- arfírði: Samkoma kl. 11. Einar Valgeir Arason. Fermingar Grafarvogskirkja. Fermingar- guðsþjónusta á morgun laugardag kl. 13.30. Fermdir verða Andri Egilsson og Högni Egilsson. Heimilisfang þeirra á íslandi er: Ofanleiti 9, Reykjavík. Prestur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti Hörður Bragason. Prestarnir. Víltll CþXUGiA í Kluistlll’? Rýr DdtingA- og skcmmtisUÚir, KUustriðscm opnaíur ucrCur í lok mÁUAðstrins, óslur ejtir Ábyrgum, jÁkoAÍum, þjónustuliprum og rcglusömum einsuktingum til stArfv. Vi5konunöi þurfa AðbafA ÁbugA Á þuí AÖbyggjA upp lifAnði og skcmmtilcgAn oinnusuðscm befur þAðAðmArkmið sínu AðociU fyrstA flokks þjónustu. ♦ A&to&ufólk í elðbús ~ fúllt stArf ♦ piötusnúðar ~ pclgAruinnA ♦ A&toðnfólk í saIí og Á bAri ~ fullt stArf ♦ SUrfsfólk í fÁubengi ~ belgAruinnA ♦ Aðsto&rfólk í saU og Á bAri ~ kuölð og belgAmnnA ♦ Sutfsfólk í uppuAsk ~ betgArmnnA ♦ DyrAucrðr ~ belgAminnA ______ KLAUSTRID UpplýsingAr í símum $64 4022 og 552 6022 frÁ kl. 14 -1$ aIIa ÓAgA mkumur Grunnskólinn í Grindavík Lausar kennarastöður Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður: Bekkjarkennsla yngri nemenda og myndmennt. Grindavík er blómlegt bæjarfélag með 2200 íbúa í aðeins 50 km fjarlægð frá höfuðborginni. Nemendur eru um 380 í 1,—10. bekk. I skólanum er unnið framsækið starf af áhugasömu starfsliði. Yfir- standandi eru miklar byggingaframkvæmdir við skólann og verður hann einsetinn að þeim loknum. Grindavíkurbær greiðir álag á föst laun kennara auk þess sem sérstök fyrirgreiðsla er í boði fyrir nýja kennara. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar- skólastjóri í vs. 426 8555, hs. 426 8504 og ;426 8363. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst. Skólastjóri Amma óskast Ung hjón með 2 börn á skólaaldri óska eftir barngóðri konu til að vera heima frá kl. 9—15 mánudaga—fimmtudaga. Upplýsingar í síma 586 1366 eftir kl. 19. Vilt þú slást í hópinn? Erum að leita að hressu og ábyggilegu fólki til vinnu á líflegum veitingastöðum okkar í Rvk., Kóp. og Hafnarf. Eftirtalin störf eru í boði: • Vaktstjórar í grill og sal. • Starfsmenn í grill. • Starfsmenn í sal. Góð laun í boði. Lögð er áhersla á góðan starfsanda og samrýmdan hóp. Umsóknareyðublöð liggja fyrir á veitingastöðunum og upplýsingar gefnar í síma 568 7122. Bessastaðahreppur Grunnskólakennarar Álftanesskóli óskar eftir áhugasömum og hugmyndaríkum kennurum til starfa. Við óskum eftir kennara í almenna bekkjar- kennslu 70-100% starf og í tækni-textílmennt (hönnun/smíði) 50-100% starf. Álftanesskóli er einsetinn grunnskóli frá 1.-7. bekk. Fjöldi nemenda er 215.1 skólanum er unnið öflugt og metnaðarfullt skólastarf sem gerir kröfurtil starfsmanna með áherslu á náttúru og umhverfi. Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og HÍK vid Launanefnd sveitafélaga. Auk þess var gerður samningur við kennara um við- bótargreiðslur sem gildir til 31. des 2000. Umsóknarfrestur er til 23. ágúst nk. Umsóknir beristtil skólastjóra. Upplýsingar um störfin veita Sveinbjörn Markús Njálsson, skólastjóri síma 565 3662 eða 565 3685 og Ingveldur Karlsdóttiraðstoðarskólastjóri síma 565 3662 eða 565 2657. Blaðbera vantar í Flatir, Garðabæ. Upplýsingar gefnar í síma 569 1122. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa i Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.