Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 51, I DAG Árnað heilla (\/\ÁRA afmæli. í dag, í/V/föstudaginn 13. ágúst, verður níræð Kristín Jónsdóttir, Dalbraut 27, Reykjavík. Eiginmaður hennar var Helgi Kristjánsson, vélstjóri, sem lést 1976. Kristín er að heiman í dag. BRIDS llmsjón (iuðmundur I'áll Arnarson heimsmeistaramót ungamenna (25 ára og yngri) stendur nú yfir í Fort Lauderdale í Flórída. Sext- án þjóðir hafa unnið sér þátttökurétt og spila fyrst innbyrðis 20 spila leiki, en síðan taka við útsláttarleikir hjá átta efstu sveitunum. Evrópa á rétt á íj'órum þjóð- um og í þeim hópi eru frændur okkar Danir og Norðmenn. Israelsmenn og Italir eru hinar Evrópuþjóð- irnar, og þegar þetta er skrifað (eftir fjórar umferð- ir) eru Italir langefstir með 87 stig, en bandaríska A- sveitin rekur lestina með 43 stig. Lítum á spil úr fyrstu umferðinni: Norður gefur; allir á hættu: Norður ♦ G9 V Á542 ♦ ÁD10862 *G Vcstur * K8743 VG ♦ - + ÁD107632 Austur * 52 V D10963 ♦ KG9543 + _ Suður + ÁD106 VK87 ♦ 7 + K9854 í leik bandarísku sveit- anna voru spiluð þrjú grönd í suður á öðru borðinu, einn niður; en þrír tíglar dobiaðir í norður hinum megin, sem fóru þrjá niður. Eftir opnun norðurs á tígli er ósköp eðli- legt að fara í þrjú grönd, en samningurinn virðist harla vonlítill. Egyptinn Hishmat fann þó leið að níu slögum eftir þessar sagnir: Norður Austur Suður 1 tígull Pass 1 spaði Pass Pass Dobl 2 hjörtu Pass 2 grönd 3 tíglar Dobl 3 grönd Pass Dobl Pass Pass Pass Vestur kom út með smátt lauf og gosinn í blindum átti slaginn. Hishmat svínaði í spaðanum og vestur drap strax og spilaði spaða um hæl. Hishmat tók alla spaðaslagina og austur henti tígli og hjarta. Þá tók Hishmat tvo efstu í hjarta og sendi austur inn á þriðja hjartað. Austur gat tekið tvo slagi á litinn, en varð svo að spila tígli upp í margfald- an gaffal. Þar kom áttundi slagurinn, og sá níundi skömmu síðar þegar Hish- mat spilaði litlum tígli og neyddi austur til að spila sér aftur í óhag. Vel gert. I7PÁRA afmæli. í dag, I Oföstudaginn 13. ágúst, verður sjötíu og fimm ára Þórunn Gunnarsdóttir, húsmóðir, Hjallabraut 33, Hafnarfirði. Þórunn og eig- inmaður hennar, Matthfas Björnsson, munu taka á móti gestum í dag í sam- komusal á Hjallabraut 33, Hafnarfirði, eftir kl. 19.30. ^fTÁRA afmæli. í dag, I t/föstudaginn 13. ágúst, verður sjötíu og fimm ára Guðmundur Benedikts- son, fyrrverandi ráðuneyt- issljóri f forsætisráðuneyt- inu, Reynistað við Skild- inganes í Reykjavík. ^/"|ÁRA afmæli. í gær, I VJfimmtudaginn 12. ágúst, varð sjötugur Pálmi Guðmundsson, Hringbraut 52, Keflavík. Af því tilefni tekur hann og eiginkona hans, Jófríður Jóna Jóns- dóttir, á móti ættingjum og vinum í sal Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, Víkinni, Hafnargötu 80, kl. 16. /?/\ÁRA afmæli. í dag, OV/föstudaginn 13. ágúst, verður sextug Renata Vilhjálmsdóttir, kennari og leiðsögumaður f Brekkugerði í Biskups- tungum. Hún og maður hennar, Gunnlaugur Skúla- son, dýralæknir f Laugar- ási, taka á móti gestum á heimili sínu frá kl. 17 á af- mælisdaginn. SKAK limsjón Margeir Pótursson Staðan kom upp á heimsmeistara- mótinu í Las Vegas sem nú stendur yf- ir. Rússinn Fedorov (2.655) hafði hvítt og átti leik gegn Boris Gulko (2.615), Bandaríkjunum sem lék síðast 28. - Ha8-g8 og tvöfald- aði hrókana á g-lín- unni. 29. Bxe5! - Hxg5 30. Hh7+ - Ke6 31. Bh2+ - Re5 32. Bf7+ - Kf6 33. Hfl+ - Ke7 34. Bxg8+ og Gulko gafst upp og var þar með úr leik á mótinu. HVÍTUR leikur og vinnur LJOÐABROT DRAUMUR HJARÐSVEINSINS í birkilaut hvfldi ég bakkanum á, þar bunaði smálækjar spræna. Mig dreymdi, að í sólskini sæti ég þá hjá smámey við kotbæinn græna. Og hóglega í draumnum með höfuð ég lá í hnjám hinnar fríðustu vinu, og ástfanginn mændi ég í augun hin blá, sem yfir mér Ijómandi skinu. Úr fíflum og sóleyjum festar hún batt, þær fléttur hún yfir mig lagði. Þá barðist mér hjartað í brjóstinu glatt, en bundin var tungan og þagði. Loks hneigir hún andlitið ofan að mér, svo ilmblæ af vörum ég kenni. Ó, fagnaðar yndi, hve farsæll ég er, nú fæ ég víst kossinn hjá henni. Steíngrímur Thorstelnsson (1831/1913) Ljóðið Draumur hjarðsveins- ins En rétt þegar nálgaðist munnur að munn, að meynni var faðmur minn snúinn, þá flaug hjá mér þröstur, svo þaut við í runn, og þar með var draumurinn búinn. STJÖRNUSPÁ eftir Frances Itrake Afmælisbarn dagsins: Þú ert rómantískur og byggir mikið á sterkum sambönd- um við aðra. Reyndu að halda þig á jörðinni. Hrútur (21. mars - 19. aprfl) "3F* Það getur verið ósköp nota- legt að rifja upp bemskuna og ótrúlegt hvað margt má af atvikum hennar læra. Naut (20. apríl - 20. maí) Láttu ekki dagdraumana ná tökum á þér. Þeir em skemmtilegir þegar við á en geta eyðilagt fyrir manni á öðmm sviðum. Tvíburar __ (21. maí -20. júní) M Þú hefur úr fjölmörgum tæki- færam að velja og þarft hvergi að óttast það að þú ráðir ekki við hlutina. Vand- inn er bara að velja. Krabbi (21. júní - 22. júlí) (fWZ Það er með ólíkindum hvað nýir hlutir era í raun gamal- dags ef við bara kunnum að nýta okkur þá reynslu sem lífið hefur fært okkur. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ákveðið eftii hefur lengi blundað með þér og nú er rétti tíminn til að festa það á blað fyrir sjálfan þig og svo aðra ef þú kýst að deila því með þeim. Meyja (23. ágúst - 22. september) <D&> Það er alltaf gott að gleðjast við þegar vel gengur en mundu að allur árangur verð- ur ekki metinn í krónum og auram. (23. sept. - 22. október) W Þú hefúr staðið á beit að und- anfömu og nú er komið að því að halda í við sig og ná aftur íyrri þyngd. Settu þér samt ekki of stíf mörk. Sporðdreki „ (23. okt. - 21. nóvember) Þótt heima sé best geturðu nú alveg látið það eftir þér að bregða undir þig betri fætin- um og njóta náttúrafegurðar landsins. Bogmaður % ^ (22. nóv. - 21. desember) ft-r Áður en sumri lýkur skaltu skoða hvort markmið þín hafa staðist og leggja svo niður fyrir sér áætlanir fram að áramótum. Hafðu forgangs- röðina í lagi. Steingeit (22. des. -19. janúar) Það þýðir ekkert að liggja með hendur í skauti og barma sér heldur hertu upp hugann, brettu upp ermamar og farðu að takast á við verkefnin. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) CSil Láttu þér ekki bregða þótt eitthvað komi á óvart heldur taktu bara þátt og hafðu gam- an af öllu saman því svona lagað er ekki daglegt brauð. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þeir era margir sem vilja ná athygli þinni en þú veist vel að ekki er hægt að gera svo öllum líki. Hugsaðu því fyrst og fremst um sjálfan þig. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar é traustum grunni visindalegra staðreynda. Ég er kominn aftur heim eftir árs dvöl í útlöndum. Hef hafið störf aftur á HÁRGREIÐSL USTOFUNNI GREIFANUM og býð gamla og nýja viðskiptavini velkomna. ‘ftyhtKcci 'pftecffi SteýóK&UM,. Þakkir Hjartans þakkir sendi ég öllum vinum og vandamönnum mínum sem minntust mín með gjöfum, blómum og skeytum d áttrœðisafmœli mínu hinn 23. júlí síðastliðinn. Sérstakar þakkir til barna, tengdabarna og barnabarna sem gerðu okkur hjónunum þennan dag ógleymanlegan. Lifið heil! Friðbjörn Þórhallsson. STEINAR WAAGE Breiðir, vandnðir og fallegir Jip-skór. Góðir fyrir laus innlegg og styðja vel við hæl. Domus Medica 551 8519 Kringlunni 568 9212 Toppskórinn 552 1212 Verð fró: 3.995,- Tegund: Jip 21901 Brúnt, rautt, svart og vínrautt leður í stærðum 21-40 Kátasta kráim í búenuino Heitip o £ -Sætir um nel^ina Sá brúni frá Newcastle noóetir • • > ísúmt Olmundli Astralsk^ fnarstraeti 4 Útsölulok í Kringlunni 20% afsláttur af öllum vörum Skemmtiíegt prúttborð föstudag og laugardag Kringlunni 8-12 - Sími 5682221

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.