Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 52
>52 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BORGARLEIKHÚSIÐ
*
Stóra svið kl. 20.00:
Litta knjllúufítúðui
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
I kvöld fös. 13/8, fáein sæti laus
lau. 14/8, fáein sæti laus
fös. 20/8, nokkur sæti laus
lau. 21/8, nokkur sæti laus
fös. 27/8, laus sæti
lau. 28/8, nokkur sæti laus
fös. 3/9, laus sæti
lau. 4/9, laus sæti
fös. 10/9, laus sæti
iau. 11/9, laus sæti.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Miöasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýn-
ingu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
5 30 30 30
M&sab q*i H 12-18 og Iram að sýnngu
OpBlráll tyrt'h
HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 1200
Fös. 13/8, Mið. 18/8, Rm. 19/8.
Fös 13/8 kl. 23.00, örfá sæti laus.
Fös 20/8 kl. 23.00.
Ath! Allra siðustu sýningar
TJARNARDANSLBKUR
laugardag 14.8.
Magga Stína og Hr.lngi.R leika fyrir
dansi.
TBLBOÐ TIL LEIKHUSGESTA!
20% atsláttur af mat fyrir leikhúsgesti í Iðnó.
Bonðaparitanir i síma 562 9700.
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Háskólabíó hefur teklð til sýninga nýjustu mynd spænska
leikstjórans Pedros Almodóvars, Allt um móður mína, með Ceciliu Roth og
Marisu Parades í aðalhlutverkum.
Frumsýning
GRÍSKT orðatiltæki segir að
aðeins konur sem hafa laugað
augu sín tárum geti séð skýrt.
Það á ekki við um Manúelu
(Marisa Parades), aðalpersón-
una í nýjustu mynd spænska
leikstjórans Pedros Álmodó-
vars, Allt um móður mína.
Hún missir son sinn, Esteban,
í bílslysi og í stað þess að sjá
skýrar verða nútíð og framtíð
að þvoglukenndu myrkri. Hún
kemst að því að sonur hennar
þráði að hitta föður sinn en
Manúela hafði logið að honum
að faðirinn hefði látist áður en
drengurinn fæddist. I minn-
ingu sonarins heldur hún frá
Madríd til Barcelónu í leit að
föðumum en það verður ekki
auðveld leit fyrir hana.
Pedro Almodóvar er án efa
þekktasti núlifandi spænski
kvikmyndaleikstjórinn og er
Allt um móður mína hans
nýjasta mynd. Myndir hans
hin seinni árin hafa flestar ef
ekki allar verið sýndar hér á
landi og nægir að nefna Konur
á barmi taugaáfalls, Haltu
mér, slepptu mér og Kiku en
enginn hefur fjallað af eins
miklu innsæi um spænskar
konur og Almdóvar. Hann
heldur áfram á þeirri braut í
nýju myndinni.
Almodóvar segir að heiti
hennar sé vísun í heiti hinnar
fomfrægu bandarísku myndar
Allt um Evu eða „AU Ábout
Eve“ eftir Joseph. L. Manki-
ewicz. „Hún fjallar meðal ann-
ars um konur og leikkonur,"
skrifar leikstjórinn spænski.
„Þrjár eða fjórar konur á tali
saman táknar fyrir mig upp-
rana lífsins en einnig uppruna
Almodóvar
og konurnar
PENELOPE Cruz er í hlutverki nunnu í mynd Almódovars, Allt um móður mína.
MARISA Parades er móðirin sem allt snýst um.
skáldskaparins og frásagnar-
listarinnar.“
Hann segir Allt um móður
mína ekki aðeins fjalla um
konur og leikkonur heldur
hreinlega vera tileinkaða
þeim, og sérstaklega þeim
leikkonum sem hafa einhvem-
tíma þurft að leika leikkonur.
Almodóvar segist alltaf hafa
haft áhuga á myndum sem
fjölluðu á einhvern hátt um
heim kvikmyndanna, um leik-
stjóra og leikara og handrits-
höfunda og framleiðendur en
sérstaklega segist hann vera
áhugasamur um bíómyndir
sem fjalla um leikkonur og
nefnir þrjár sem haft hafa
áhrif á hann: „Opening Night“
með Gena Rowlands, Allt um
Evu með Bette Davis og
„L’important c’est d’amier"
með Romy Schneider.
Pedro Almodóvar er fædd-
ur í Calzada de Calatrava í La
Mancha og hóf að gera stutt-
myndir á árunum 1974 til
1979. Hann gerði sína fyrstu
mynd í fullri lengd árið
1980, “Pepi, Luci, Bom yotras
chicas del montón“ og vakti
sívaxandi athygli landa sinna
með myndum sem fyigdu í
kjölfarið fram undir miðjan
níunda áratuginn. Fyrsta
myndin hans sem sýnd var á
íslandi hét „Matador" en hún
varð fyrsta Almodóvar-mynd-
in til að vekja athygli á leik-
stjóranum utan Spánar. Hann
öðlaðist heimsfrægð með
Konum á barmi taugaáfalls
árið 1987 og hefur haldið á
lofti spænskri kvikmyndagerð
æ síðan.
Með aðalhlutverkin í Allt
um móður mína fara Cecilia
Roth, Marisa Paredes og
Penélope Craz.
mbl.is
auua
EYJALÖGIN vinsælust eftir versl-
unarmannahelgina.
Tónlist
minning-
anna
Nr. var vikur Diskur Flytjandi Otgefandi
1. Nýtt Nýtt í dalnum: Eyjalögin sivinsæl Ýmsir íslenskir tónar
2. Nýtt Nýtt Verslunarmannahelgin Ýmsir Skífan
3. 4 4 88/99 SSSól íslenskir tónar
4. 2 3 Poftþétt Sumar ýmsir Pottþétt
5. 2 10 Best of Smokie Disky
6. Nýtt Nýtt Greece, Traditional Songs Ýmsir MCI
7. 12 8 lcelandic Folk Favourites Ýmsir (slenskir Tónar
8. 8 10 Boyzone By Request (Greatest hits] Universal
9. 11 45 Gling Gló Björk Smekkleysa
10. 13 5 Gold Abba Universal
11. 7 15 Classical Piano Moods Ýmsir tóusic Collection
12. 3 8 Best ever dassics Ýmsir Disky Intemot.
13. 16 4 Appetite for destruction Guns and Roses Universal
14. 17 20 Acoustic Moods Ýmsir MCI
15. Nýtt Nýtt Songs of Irelond The Evergreens MCI
16. My Iron Lung Radiohead EMI
17. íslandsklukkur Ýmsir M&R Records
18. 9 4 Allt sem þú ert Ari Jónsson Tónaflóð
19. Sings Bocharach & Dovid Dionne Warvick Music Collection
20. Dýrin í Hólsaskógi Ýmsir Spor
Unnið of PricewaterhouseCoopers í somstorfi við Sombond hljómplötuframleiðendo og Morgunblaðið.
VINSÆLASTA plataná Tónlistan-
um Gamalt og gott er í dalnum:
Eyjalögin sívinsælu og má gera því
skóna að nýafstaðin verslunar-
mannahelgi eigi stóran þátt í að
koma henni á toppinn, enda margir
sem fóru til Eyja og eiga kannski
góðar minningar við mörg lögin. í
kjölfar hennar kemur safnplatan
Verslunarmannahelgin svo Ijóst er
að nú ylja landsmenn sér við minn-
ingar frá þessari stærstu ferðahelgi
sumarsins.
SSSól eru í þriðja sæti með plöt-
una 88/99 og safnplatan Pottþétt
sumar í því íjórða. Bestu lög sveit-
arinnar Smokie verma 5. sætið en í
því 6. eru þjóðlög frá Grikklandi en
verið getur að Grikklandsfarar hafi
á sama hátt og þeir sem sóttu Þjóð-
hátíð Eyjamanna heim hafi þyrpst í
verslanir til að ná sér í tónlist til að
vekja upp minningar úr ferðalag-
inu. Ferðalangar á íslandi hafa
einnig verið duglegir að versla síð-
ustu tvær vikur því vinsæl íslensk
þjóðlög upp á ensku eru í 7. sæti.
Besta mynd
Hitchcocks?
ALÞJÓÐLEGT ráð kvik-
myndaleikstjóra úr fremstu
röð hefur valið spennu-
myndina „Psycho" sem
meistaraverk Alfreds
Hitchcocks. Leikstjórarnir,
sem era m.a. Martin Scor-
sese frá Hollywood og Baz
Lurhmann frá Ástralíu,
voru beðnir um að velja
helstu mynd Hitchcocks af
tímaritinu Sight and Sound
í tilefni af því að 100 ár era
liðin frá fæðingarári hans.
Hin blóði drifna
„Psycho", sem fjallar um
Norman Bates og móður
hans á skuggalegu hóteli,
varð hlutskarpari en
„Vertigo" og „Notorious".
Ritstjóri Sight and Spund,
Nick James, sagði: „Á sjö-
unda og áttunda áratugnum
var „Psycho“ flokkuð sem
áleitin hrollvekja en á und-
anfömum árum hefur hún
skipað mun meiri virðingar-
sess. Hver myndarammi er
stórkostlegur og líklega hef-
ur engin mynd haft viðlíka
áhrif síðan „Citizen Kane“.