Morgunblaðið - 13.08.1999, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ
>54 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999
og Sport
Músik og Sport ehf. - Reykjavíkurvegi 60 - Símar 555 2887 og 555 4487
FOLK I FRETTUM
KVIKMYNDIR/Stjörnustríð: Fyrsti hluti eftir George Lucas hefur verið
frumsýnd í Regnboganum, Bíóhöllinni, Kringlubíói, Laugarásbíói, Nýja bíói
Akureyri og Nýja bíói Keflavík en með aðalhlutverkin í henni fara Liam
Neeson, Ewan McGregor og Natalie Portman.
JAR Jar og drottningin Amidala.
Upphaf geim-
óperunnar
GEORGE Lueas hafði ætíð í
hyggju að gera fleiri en
þrjár Stjömustríðsmyndir
en segja má að hann hafí byrjað á
miðhluta sagnabálksins fyrir rúm-
um tveimur áratugum. Hann leik-
stýrði sjálfur fyrstu myndinni,
Stjörnustríði, árið 1977,
sem hann sagði að væri
fjórði kafli sögunnar og hélt áfram
með „The Empire Strikes Back“
árið 1980, sem var þá fimmti kafli,
og lauk trílógíunni með Jedinn
snýr aftur árið 1983. Eftir hana
kom sextán ára hlé, sem Lucas
notaði til undirbúnings fyrir áfram-
haldið.
Hann segist hafa beðið í öll þessi
ár vegna þess að kvikmyndatæknin
bauð ekki upp á það sem hann vildi
gera fyrr en með tilkomu tölvu-
teikninganna. Hann og fyrirtæki
hans, Industrial Light & Magic,
eiga stóran þátt í þeirri þróunar-
vinnu sem liggur að baki töluvu-
brellum slíkum sem við sáum t.d. í
Júragarðinum. Og loks var það fyr-
ir tveimur árum sem Lucas til-
kynnti að tæknin væri orðin svo
viðráanleg að hann treysti sér í
áframhald geimóperunnar.
Stjörnustríð Fyrsti hluti: Ógn-
valdurinn er sumsé fyi-sti kaflinn í
nýrri ti-ílógiu og gerist um þrjátíu
árum fyrir atburði fyrri myndanna
þriggja. Hún segir af tveimur Jedi-
riddurum, sem Liam Neeson og
Ewan McGregor leika, og friðar-
ferð þeirra til plánetunnar Naboo
en hún á í vanda því Verslunarsam-
bandið hefur stöðvað allar leiðir til
og frá henni. Þeir bjarga hinni
ungu drottningu, Amidala (Natalie
Portman), úr höndum illvirkjanna
og koma við á annarri plánetu,
Tatooine. Þar hitta þeir fyrir ung-
an dreng, Anakin geimgengil (Jake
ifvjuVý tekf* á víVj n
Lloyd), sem virðist gæddur sér-
stökum hæfileikum og er þar kom-
inn maðurinn sem á eftir að verða
hinn ógurlegi Svarthöfði er gekk
hinu Illa heimsveldi á hönd.
Lucas segir að myndirnar verði
ekki fleiri en sex (áður var talað
um að þær yrðu níu) og segist ætla
sjálfur að leikstýra næstu mynd,
mynd númer tvö. Hann segir að
þriðja myndin verði myrkust af
þeim þremur en í henni verður lík-
legast sagt frá því þegar Svart-
höfði gengur hinu illa á hönd.
Stjömustríðsbálkurinn með öll-
um sínum söluvarningi hefur frá
árinu 1977 gefið eigendum sínum
4,5 milljarða dollara í aðra hönd.
Mikill hluti gróðans fer í vasa
Lucasar og með honum hefur hann
byggt sitt eigið kvikmyndaveldi en
það er á honum að heyra að pen-
ingar séu ekki allt. „Það varðar
mig miklu meira hvernig allar sex
myndirnar koma til með að virka
saman en hvernig hverri og einni
þeirra vegnar í miðasölunni," segir
hann. „Það tala allir um aðsóknar-
metin sem maður á eftir að slá og
peningana sem eiga eftir að
streyma í kassann. Þeir halda að
góð mynd sé mynd sem slái að-
sóknarmet. Hvað kemur það mál-
inu við? Hvern varðar um það, í al-
vöru?“
Vegna vegaframkvæmda
Fjögurra króna afsláttur af hverjum
eldsneytislítra við sjálfsafgreiðslu
á Gagnveginum!
+80 aurar
á hvern lítra
á Safnkortið
Frumsýning
%[œturgatinn
Smiðjuvegi 14, ‘Kópavojji, sími587 6080
\ kvölcl og laugardags-
kvöld leikur danssveitin
Cantabile
frá Akureyri
Opið frá kl. 22—3
Næturgalinn þar sem sfudió er
og alltaf lifandi tónlist
í
Hver vill ekki hafa 200.000 á mánuði?
56-1-HERB
)