Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5091100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Leikskólar á höfuðborgarsvæðinu
Arnarvarp heppnaðist vel annað árið í röð
Jiúmlega 3.000
~börn á biðlista
UM 3.100 börn eru á biðlistum eftir leikskólavist í Reykjavík, Hafnar-
firði, Kópavogi og Garðabæ. Langflest eru þau fædd 1997 eða síðar.
Börn fædd árið 1997 á biðlista eru um 1.170 talsins, um 600 í Reykjavík,
220 í Hafnarfirði, um 230 í Kópavogi og um 70 í Garðabæ. Börn fædd
1998 og 1999 á biðlistum eru um 1.790, en Garðabær er ekki með í þess-
ari tölu þar sem ekki er tekið við umsóknum um vistun svo ungra barna
þar. Þetta er svipuð staða og undanfarin ár, segja leikskólafulltrúar bæj-
anna og Bergur Felixson, framkvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur.
Skýring á biðlistum er einkum
tvenns konar, annars vegar fjölgun
innan sveitarfélagsins, eins og t.d. á
Éið í Kópavogi. Sesselja Hauksdótt-
ir, leikskólafulltrúi í Kópavogi, seg-
ir að þrátt fyrir mikla uppbyggingu
hafi ekki tekist að stytta biðlista, en
rúmlega 500 börn bíða eftir leik-
skólaplássi þar. Hin meginskýring-
in á biðlistunum er stóraukin ásókn
í heilsdagsvistun, sem virðist nokk-
uð hafa komið á óvart. Fjölgun
plássa í Reykjavík hefur t.d. mikið
farið í að lengja dvöl bama í leik-
skólanum, úr hálfum í heilan dag.
Bergur Felixson segir þær áætl-
U^jiir sem gerðar hafi verið um upp-
byggingu leikskóla í Reykjavík
hafa gert ráð fyrir hálfsdagspláss-
um, en raunin sé sú að eftirspum
eftir þeim hafi minnkað en stórauk-
ist eftir heilsdagsplássum. Þetta
hafi riðlað þeim áætlunum að koma
öllum tveggja ára börnum fyrir á
leikskóla.
■ Langir biðlistar/30
Skipstjóri Österbris
dæmdur til
sektargreiðslu
“Utgerðin
sýknuð
26 ungar úr 19 hreiðrum
ARNARVARP gekk vel í sumar,
annað árið í röð, að sögn Kristins
Hauks Skarphéðinssonar fugla-
fræðings, en alls komu 19 am-
arpör 26 ungum á legg. 34 pör
urpu svo vitað sé, en varpið mis-
fórst hjá 15 pörum, auk þess sem
ekki er vitað hvort sjö önnur pör
urpu eða ekki, aðeins að þau
komu ekki ungum upp.
„Þetta er í fyrsta skipti í 12-15
ár sem við fáum tvö góð ár í röð.
Helst þyrftum við að fá tíu slík ár,
en allt um það, útlitið verður að
teljast þokkalegt," sagði Kristinn.
Ástæður þess að varp misfórst í
fimmtán tilvikum sagði Kristinn
Haukur vera af ýmsum toga. I
sumum tilvikum væru ófijó eða
ung pör að þreifa fyrir sér, og í
öðrum tilvikum væri bæði um
ómeðvitaða og meðvitaða tmflun
af mannavöldum að ræða. „Það
em yfirleitt sömu svæðin þar sem
eminum gengur vel og illa. Faxa-
flóinn var góður í sumar, þar
komust níu ungar úr sjö hreiðmm
og hefur aldrei verið betra sfðan
fyrir aldamót. Á sínum tíma hurfú
emir úr Faxaflóa, en komu aftur
fyrir um 25 ámm og hafa náð
þessari fótfestu. Það gengur
einnig yfirleitt vel við sunnan-
verðan Breiðafjörðinn, en í hon-
um norðanverðum og á VestQörð-
um fer ástandið versnandi," sagði
Kristinn.
Hann sagði að í fyrsta skipti í
áratugi væri útlit fyrir amarvarp
við Húnaflóa. Amarpar er sest
upp, en varp ekki í vor. „Þetta er
ungt par. Stundum rennur alit út
í sandinn, en þetta par gæti tekið
upp á því að verpa þarna á næstu
ámm,“ sagði Kristinn.
■
sm,:
■
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra dæmdi í gær skipstjóra
norska nótaskipsins Österbris til að
greiða 600 þúsund króna sekt fyrir
að hafa notað ólöglegt veiðarfæri
við loðnuveiðar innan landhelgi ís-
lands í síðasta mánuði. Utgerð
skipsins var hins vegar sýknuð.
Greiði skipstjórinn ekki sektina
innan fjögurra vikna ber honum að
Iftæta 60 daga fangelsisvist sem
vararefsingu. Með dóminum var
jafnframt andvirði nótapoka skips-
ins, sem er 3,5 m. kr. virði, og 600
þúsund króna aflaverðmæti gert
upptækt í Landhelgissjóð íslands.
/ # # # iviorgunDiaoio/gg
HALLGRIMUR Gunnarsson fuglaáhugamaður merkir arnamnga í hreiðri við Faxaflóa.
Stjórnarfundur Scandinavian Holding sem haldinn var í gær
Sala á hlutabréfum
félagsins í FBA samþykkt
Deilt um aðferð,
ekki niðurstöður
í niðurstöðum Ásgeirs Péturs Ás-
geirssonar héraðsdómara segir að
ekki sé deilt um niðurstöðu mæling-
ar Landhelgisgæslunnar á nót
norska skipsins, heldur eingöngu
l^fn mæliaðferðina, þ.e. að mæla inn-
anmál möskvans í stað þess að
mæla frá miðjum hnút í miðjan
hnút. Ósannað sé að útgerð skipsins
hafi hagnast á veiðum þess þrátt
fyrir stærð möskvans í poka nótar-
innar. Því var útgerðarfélagið sýkn-
að af refsikröfum. Sekt skipstjórans
hins vegar talin sönnuð.
■ Skipstjóri/16
FUNDUR stjórnar Scandinavian Holding, fé-
lags í eigu Sparisjóðanna, Kaupþings og Spari-
sjóðabankans, var haldinn í gær. Félagið seldi
nýverið dótturfélag sitt ásamt 22,5% hlut þess í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins til eignar-
haldsfélagsins Orca S.A. í Lúxemborg. Á stjóm-
arfundinum var salan samþykkt, að sögn Guð-
mundar Haukssonar, stjórnarformanns Scandi-
navian Holding. Stjóraarfundur hjá Kaupþingi
var einnig haldinn í gær.
Guðmundur staðfesti að sum ákvæði samn-
ingsins sem Scandinavian Holding og Orea S.A.
gerðu með sér krefðust samþykkis stjórnarfund-
ar félagsins. Hins vegar vildi hann ekki greina
nánar frá hvaða ákvæði um væri að ræða.
„Aðalmál fundarins var salan á hlutabréfaeign-
inni í FBA. Við tókum fýrir þá samninga sem fyr-
ir lágu og ákveðin atriði í þeim lúta að stjórn til
yfirferðar. Allt það sem að stjórninni sneri var
samþykkt og afgreitt. Samningar af þessum toga
eru flóknir og snerta mjög marga aðila og því
ekki hægt að greina frá einstökum atriðum. Við
fórum yfir samningana eins ítarlega og hægt var
og samþykktum þá,“ segir Guðmundur.
Málið skoðað ítarlega
Fundurinn dróst nokkuð á langinn og var
Guðmundur spurður hvort stjórnarmenn hefðu
verið ósammála. „Nei, það er ekki ástæðan,
mörg mál voru til skoðunar á fundinum og
stjórnarmenn gáfu sér tíma til að skoða þau
mjög ítarlega en þetta tiltekna mál var fyrirferð-
armest. Sala hlutabréfanna í FBA var samþykkt
af yfirgnæfandi meirihluta stjórnannanna."
Áð sögn Guðmundar hefur stjórn Scandinavi-
an Holding ekki ályktað um það hvort æskilegt
væri að hluthafar í Orea S.A. gæfu sig fram.
„Það er ekki hlutverk stjórnar Scandinavian
Holding en ég get auðvitað sagt það að við erum
almennt fylgjandi því að sem mestar og bestar
upplýsingar liggi fyrir um fyrirtæki sem skráð
eru á markaði. Þar hljóta að fara saman hags-
munir hluthafa og félaga.“
Guðmundur segir dágóðan hagnað af sölunni
og með henni styi’kist staða Sparisjóðanna enn
frekar. „Með sameiningu Kaupþings og FBA
mætti að vísu ná fram mikilli hagræðingu og við
erum vissulega fjær því marki nú. Hlutverk
Kaupþings er að kaupa og selja verðbréf og þeir
eru alltaf að skoða nýja fjárfestingarmöguleika
og gætu allt eins fjárfest í FBA.“
Guðmundur segir fjárfestingarstefnu Scandi-
navian Holding ekki ákveðna en hlutverk félags-
ins muni skýrast á næstu mánuðum.