Morgunblaðið - 15.08.1999, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999 E 15
Spennandi innkaupastarf
með mikla framtíðarmöguleika
Hagkaup er
smásölujyrirtœki sem
býður upp á breitt úrval
af vörum til daglegra
þarfa jafnt í matvöru sem
sérvöru. Hagkaup
skuldbindur sig til að
stunda starfsemi sina á
það hagkvœman hátt að
viðskiptavinir geri ávallt
betri kaup í Hagkaupi.
Hagkaup óskar að ráða aðstoðarinnkaupamann i innkaupadeild sérvöru. Starfið
er fólgið í innkaupum á dömufatnaði og eru verkefhin m.a. gerð
innkaupaáætlana og ákvörðun á vöruúrvali í samvinnu við innkaupamann,
innkaupaferðir erlendis, gerð pantana, samskipti við starfsfólk verslana og
stjómun á vömflæði auk almennrar skrifstofuvinnu, tölvuvinnslu og
skýrslugerðar fyrir innkaupaskrifstofuna.
Við leitum að starfsmanni sem hefur þekkingu og áhuga á dömufatnaði og þvi
markaðsumhverfi sem Hagkaup starfar í. Aðstoðarinnkaupamaður þarf að geta
unnið sjálfstætt, vinna vel undir álagi og sýna fmmkvæði í starfi.
Umsóknum skal skilað til starfsmannaþjónustu Baugs hf í Skútuvogi 7, eigi
síðar en mánudaginn 23. ágúst og skulu þær merktar "Innkaup -
Dömufatnaður".
HAGKAUP
Meira úrvad -jbeggflcsup
WSSSSSSSSSk
FISKBUÐIN NETHYL
Fiskbúðin Nelhyl erstofnuð 1992 ogtóku núverandi eigendur
við rekstrinum snemma árs 1994. Fiskbúðin Nethyl erfjölskyldu-
fyrirtæki og rekið með háu þjónustustigi við neytendur.
Markmið okkar er að bjóða upp á ferskt fyrsta flokks hráefni,
fjölbreytt vöruúrval og góða þjónustu til viðskiptavina f verslun
og mötuneytum.
► Matreiðslumaður
Leitum að matreiðslumanni í fjölbreytt og krefjandi
dagvinnustarf.
Meðal helstu viðfangsefna eru:
►- Vöruþróun sjávarrétta
Fullvinnsla og matreiðsla
► Ráðgjöf og sala
Við leggjum áherslu á:
► Að nýta alla þá möguleika sem sjávarfang hefur uppá
að bjóða sem matvæli.
►- Að stuðla að fjölbreyttu framboði unninna sjávarafurða
með því að stunda virka vöruþróun.
Helstu viðskipti okkar eru til viðskiptavina í verslun okkar
að Nethyl, fyrirtækjamötuneyta og verslana.
Auk þess er Fiskbúðin Nethyl umboðsaðili og annast
afgreiðslu fyrir Reykhúsið Utey við Laugarvatn sem reykir
fisk fyrir veiðimenn.
Nánari upplýsingar veitir Benjamín Axel Árnason
hjá Ábendi.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem
trúnaðarmál.
Vinsamlegast sækið um á eyðublöðum sem liggja
frammi á skrifstofu okkar sem fyrst, en í síðasta lagi
fyrir hádegi mánudaginn 23. ágúst 1999
Starfsfólk
á leikskóla
Félagsstofnun stúdenta á og
rekur Sólgarð en rekur
Mánagarð samkvæmt samn-
ingi við Reykjavlkurborg.
Helstu markmið með starfinu
eru að börnin læri að virða
hvertannað, skoðanir, lang-
anir og þarfir hvers annars,
með því að hlusta, tjá sig,
framkvæma, sýna tillitsemi,
virða reglurog leysa deilur.
Fálagsstofnun stúdenta er
sjálfseignastofnun með sjálf-
stæða fjárhagsábyrgð og rek-
ur sex deildir. Aðhenni
standa stúdentar innan Há-
skóla Islands, HÍog mennta-
málaráðuneytið.
Félagsstofnun stúdenta óskar eftir
leikskólakennara ífuiit starf og
tónmenntakennara í hiutastarf
til starfa í Leikskóla FS.
Leikskólarnir eru: Mánagarður,
þriggja deilda leikskóli fyrir börn á
aldrinum eins árs til sex ára og
Sólgarður, tvcggja deilda leikskóli
fyrir börn á aldrinum sex mánaða til
tveggja ára.
Upplýsingar veitir leikskólastjóri í
síma 562 4022, virka daga kl. 11 -13.
f
fll Félagsstofnun stúdenta
MÝRARHÚSASKÓL
Lausar stöður
skólaárið 1999-2000
Seltjarnarnesbær óskar eftir að ráða
hugmyndarika og metnaðarfulla starfsmenn.
Mýrarhúsaskóli er einsetinn skóli fyrir 1.-7. bekk
með um 550 nemendur.
• Við óskum eftir að ráða stuðningsfulltrúa til að
vinna með fötluðum nemendum inni í bekk undir
leiðsögn kennara.
• Einnig óskum við eftir að ráða starfsfólk í Skóla-
skjól (heilsdagsskóia).
Æskilegt er að umsækjendur hafi uppeldismenntun,
hafi áhuga á að starfa með börnum og séu liprir f
mannlegum samskiptum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Starfs-
mannafélags Seltjarnarness við Launanefna sveitar-
félaga.
• Ennfremur óskum við eftir að ráða starfsfólk í
ræstingu.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi stéttar-
félagsins Eflingar.
Umsóknir berist til Regínu Höskuldsdóttur skóla-
stjóra Mýrarhúsaskóla, sem veitir allar nánari
upplýsingar um stöðurnar. Símar 561-1980 og
899 7911, netfang: regina@selnes.is.
Heimasíða skólans: http://rvik.ismennt.is/~myrarhus
§
| Umsóknarfrestur
| er til 23. ágúst 1999.
I
o>
Grunnskólafulltrúi
Seltjarnarnesbær
Viltu reyna eitthvað nýtt?
Við leitum að fólki á öllum aldri til sölu- og
kynningarstarfa. Við hvetjum sérstaklega þá sem aldrei
hafa stundað sölustörf að kynna sér málið og hafa samband
við sölustjóra okkar í síma
562 0487 og 696 8555.
Við bjóðum:
• Áhrifaríka starfsþjálfún
• Skemmtilega starfsfélaga
• Föst laun eða prósentur
• Góða vinnuaðstöðu
• Mikla tekjumöguleika
• Sveigjanlegan vinnutíma
Bókaútgáfan Iðunn ehf. Bræðraborgarstíg 16
MÝRARHÚSASKÓLI
Lausar kennarastöður
skólaárið 1999-2000
Seltjarnarnesbær óskar eftir að ráða
hugmyndaríka og metnaðarfulla starfsmenn.
Mýrarhúsaskóli er einsetinn skóli fyrir 1.-7. bekk
með um 550 nemendur. Starfsaðstaða er góð og
skólinn ervel búinn kennslutækjum. Starfsmönnum
gefst kostur á að vinna að umbóta- og nýbreytnistarfi
í skólanum.
• Við óskum eftir að ráða bekkjarkennara á yngsta
stig og miðstig. Æskilegt er að umsækjendur hafi
ensku, náttúrufræði, stærðfræði og eðlisfræði sem
valgreinar.
• Ennfremur óskum við eftir að ráða sérkennara
í 1/1 starf og heimilisfræðikennara í 2/3 starf.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum KÍ
og HÍK við Launanefnd sveitarfélaga. Auk þess
hafa verið gerðir samningar við kennara um við-
bótargreiðslur fyrir vinnu til eflingar skólastarfs á
Seltjarnarnesi allt að 12 stundir á viku.
Samningurinn gildir til 31. desember árið 2000.
Umsóknir berist til Regínu Höskuldsdóttur skóla-
stjóra Mýrarhúsaskóla, sem veitir allar nánari
upplýsingar um stöðurnar. Símar 561-1980 og 899
7911, netfang: regina@selnes.is.
Heimasiða skólans: http://rvik.ismennt.is/~myrarhus
Við óskum sérstaklega eftir að ráða starfsfólk sem
er tilbúið til að takast á við spennandi en krefjandi
= verkefni og telur sig vera frumkvöðla á sínu sviði.
i Seltjarnarnesbær
| Umsóknarfrestur
| er til 23. ágúst 1999.
i
g>
3
<
Grunnskólafulltrúi
tCæiimenis/rafyirlo
Brunnar hf. er ungt, framsækið og
öflugt framleiðslufyrirtæki í málm-
og kæliiðnaði. Fyrirtækið hefur m.a.
sérhæft sig í búnaði fyrir
sjávarútvcginn og framleiðslu á
Brontec ísþykkniskerfum. Hefur
fyrirtækið nú þegar haslað sér völl
með framlciðsluvörur sínar erlcndis.
Vegna aukinna umsvifa vantar okkur
nú þegar mjög vanann kælimann
með mikla reynslu og þekkingu á
kælikerfum, ásamt tveimur vönum
mönnum með þekkingu í kælitækni
til starfa í framleiðsludeild.
Einnig auglýsum við eftir
rafiðnaðarmanni til töflusmíði og
tenginga á búnaði. Búast má við
ferðalögum.
AUar nánari upplýsingar veitir
framleiðslustjóri og skriílegar
umsóknir berist fyrir 23.08. n.k. merkt:
Brunnar hf.
B/t. Framleiðslustjóra
Skútahraun 2
220 Hafnarfirði