Morgunblaðið - 15.08.1999, Page 18
18 E SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
GARÐABÆR
Tómstundaheimili Flataskóla
Starfsmenn
Garðabær auglýsir laus til umsóknar störf
við Tómstundaheimili Flataskóla skólaárið
1999-2000.
Um er að ræða fjögur 50% störf. Óskað er
eftir starfsmönnum með uppeldismenntun
eða góða reynslu af starfi með bömum.
Starfsemi Tómstundaheimilisins fer fram eftír
hádegi alla virka daga.
Launakjör em samkvæmt kjarasamningum
Launanefndar sveitafélaga og
Starfsmannafélags Garðabæjar.
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst nk.
Umsóknum skal skila til
Helgu Kristjánsdóttur, forstöðumanns, sem
veitir nánari upplýsingar um störfin
í síma 565-7082 og 861 5440.
Grunnskólafulltrúi
Fræðslu- og mertningarsvið
Þjónustustjóri og
íslandsbanki hf. auglýsir stöðu þjónustustjóra
í Keflavík lausa til umsóknar. Þjónustustjóri er
jafnframt lánasérfræðingur útibúsins.
Umsækjandi þarf að hafa viðskiptafræðimenntun
eða sambærilega menntun, góða skipulags- og
söluhæfileika og eiga gott með að umgangast
samstarfsmenn og viðskiptavini bankans. Hann
þarf auk þess að vera jafnvígur á hópvinnu og
sjálfstæði i vinnubrögðum.
Nánari upplýsingar veitir Una Steinsdóttir, útibúinu
í Keflavík.
Umsóknir berist Guðmundi Eiríkssyni, starfsmanna-
þjónustu íslandsbanka hf., Kirkjusandi, 155 Reykja-
vík, fyrir 1. september 1999.
Kaffistofur stúdenta þjónusta
stúdenta við Hðskóla Islands.
Þær eru staðsettar í
Aðalbyggingu Hi, Árnagarði,
Eirbergi, Lögbergi og Odda.
Meginmarkmið þeirra er að
stuðla að heilbrigðu mataræði
háskólastúdenta með þvíað
bjóða fjölbreytt oggott vöru-
úrval á Iðgmarksverði. Kaffi-
stofur stúdenta erein afsex
rekstrareiningum Félags-
stofnunar stúdenta sem er
sjálfseignarstofnun með sjálf-
stæða fjárhagsébyrgð. Að
henni standa stúdentar innan
Háskóla íslands, HÍ og
menntamálaráðuneytið.
Starfskraftur
á kaffistofu
Félagsstofnun stúdenta óskar
eftir starfskrafti á Kaffistofu
stúdenta í Lögbergi frá og með
1. september n.k.
Vinsamlega sendið skriflega umsókn
til Atvinnumiðstöðvarinnar, Stúdenta-
heimilinu v/Hringbraut, 101 R., eða
tölvupóst til atvinna@fs.is,
fyrir 24. ágúst n.k.
Upplýsingar veitir
Eyrún Maria Rúnarsdóttir
hjé Atvinnumiðstöðinni
ísima 5 700 888.
an
atvinna@fs.is
f
m i
Félagsstofnun stúdenta
Grunnskóli
Siglufjarðar
www.sigloskoli.is
Við Grunnskóla Siglufjarðar er laus
kennarastaða yngri barna.
Siglufjarðarkaupstaður lauk stefnumörkun í
skólamálum 1997 og stendur í endurbyggingu
á skólahúsnæðinu. Unnið er að auknum
gæðum náms þriðja árið í röð eftir breska
IQEA vinnuferlinu (Improving the Quality of
Education for All).
Skólinn verður einsettur næsta skólaár.
Áhugasamir hafi endilega samband við skóla-
stjóra í síma 467 2037 eða aðstoðarskólastjóra
í síma 467 1449.
Greinargóðar upplýsingar er einnig að finna
á www.sigloskoli.is
Sérstakur bær með sérstakt mannlíf
Gamli síldarbærinn Siglufjöröur stendur I afar fallegu umhverfi, nyrst-
ur allra kaupstaða á Íslandi. Lifandi sagan speglast i gömlum og
nýjum húsum og grónum stígum. Viðureign við hafið og náttúruöfl
hafa mótað sérstakt mannlíf, sem í dag einkennist af miklu félagslífi
og fjölbreyttu íþróttastarfi. i bænum er nýr leikskóli, góður tónskóli,
öflug heilsugæsla, nýlegt íþróttahús, sundlaug, eitt af betri skíðasvæð-
um landsins og svo mætti lengi telja.
Verið hjartanlega velkomin
til Siglufjarðar.
Frá Háskóla íslands
Námsbraut
í hjúkrunarfræði
Hjá námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla
íslands er laust til umsóknar 50% starf deildar-
stjóra.
í starfinu felst m.a. umsjón með kynningar-
og alþjóðastarfi og verkefnum er tengjast rann-
sóknartengdu famhaldsnámi við námsbraut
í hjúkrunarfræði. Háskólamenntun er nauðsyn-
leg. Laun eru skv. kjarasamningi hlutaðeigandi
stéttarfélags og fjármálaráð-
herra. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með
15. september nk.
Skriflegum umsóknum skal skila til starfs-
mannasviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu
við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Öllum umsókn-
um verður svarað og umsækjendum tilkynnt
um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur
verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún
Kristjánsdóttir, formaður stjórnar námsbráutar
í hjúkrunarfræði, í síma 525 4960 (netfang:
gkrist@hi.is).
http://www.starf.hi.is
Embætti
héraðsdómara
Embætti héraðsdómara sem dómsmálaráð-
herra veitir, er lausttil umsóknar. Embættið
verður án fasts sætis en fyrsta starfsstöð vænt-
anlegs dómara verður Héraðsdómur Suður-
lands.
Staðan verður veitt frá 1. október 1999.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu, Arnarhvoli, eigi síðar en 1. sept-
ember 1999.
Umsóknir þar sem umsækjandi óskar nafn-
leyndar verða ekki teknar gildar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
10. ágúst 1999.
Sérhæft
skrifstofustarf
Opinber stofnun óskar eftir að ráða
starfskraft í sérhæft skrifstofustarf. Um
er að ræða krefjandi framtíðarstarf þar
sem mikillar nákvæmni er þörf og mikið
reynir á mannleg samskipti.
Leitað er að einstaklingi sem hafi eftir-
farandi hæfileika:
• Fullkomna kunnáttu í Word og Excel
• Góða íslenskukunnáttu
• Geti sjálfstætt ritað bréf og greinar-
gerðir
• Geti greint aðalatriði frá aukaatriðum
• Sé skipulagður, geðprúður og sam-
starfsfús
• Sé talnaglöggur, afkastamikill og röskur
• Hafi góða háskólamenntun eða sam-
bærilegt nám.
í boði eru góð launakjör og góð vinnuað-
staða miðsvæðis í Reykjavík. Áhugaverð
verkefni í reyklausu umhverfi.
Öllum umsóknum verður svarað og full-
um trúnaði er heitið.
ítarlegar umsóknir er m.a. greini aldur,
menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu
Mbl. merktar: „Sérhæft — 8493".
^ KÓPAVOGSBÆR
Frá Smáraskóla
Síðasta
einstaka tækifærið
fyrir góðan kennara
Fjórði bekkurinn okkar var að springa — úr
þremur bekkjardeildum í fjórar! Af þeim sökum
vantar okkur enn einn hugmyndaríkan, jákvæð-
an, skapandi og kraftmikinn kennara, til að taka
þátt í að byggja upp þennan yndislega skóla
með okkur hinum. Fámenn bekkjardeild, góður
bekkjarandi, jákvæðir foreldrar og styðjandi
og traustir vinnufélagar. 30% kennaranna við
skólann eru karlmenn. Kópavogsbær greiðir
kennurum sérstaklega fyrir að þróa skólanám-
skrá til samræmis við nýja aðalnámskrá.
Síðasta einstaka tækifærið fyrir góðan kennara!
Laun skv. samningi KÍ og HÍK og launanefndar
sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst nk.
Upplýsingar veita: Valgerður Snæland Jóns-
dóttir, skólastjóri (s. 554 6100, 554 5099) og Ell-
en Heiðberg Lýðsdóttir (s. 554 6100, 861 4645).
Starfsmannastjóri.
Víðines
hjúkrunarheimili aldraðra,
Kjalarnesi, 116 Reykjavík.
Starfsfólk óskast
í eftirtalin störf á hjúkrunardeildir
frá 1. september 1999
Hjúkrunarfræðinga á fastar næturvaktir.
Sjúkraliða eða starfsfólk við umönnun.
Vaktavinna.
Starfsmann í býtibúr o.fl. Dagvinna.
Upplýsingar veitir Borghildur Ragnarsdóttir,
í síma 566 8811 eða 566 8815.
Eldhús
Starfsfólk óskast í tvær 50% stöður.
Vaktavinna.
Upplýsingar veitir Magnús í síma 566 8812
kl. 12-14.
Víðines er staðsett á fallegum og friðsælum
stað ca 10 km fyrir utan Mosfellsbæ.
Akstur greiddur samkvæmt reglum þar um.