Morgunblaðið - 18.08.1999, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Umhverfísáhrif álvers
í Reyðarfirði rædd
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Málin voru ákaft rædd þegar gert var kaffihlé á fundinum.
Magni Kristjánsson, bæjarfulltrúi og fundarstjóri, Magnús Ásgeirsson,
verkefnisstjdri STAR, og Valgeir Kjartansson, ritstjóri matsskýrslunnar.
HVH-ráðgj afahópurinn
vinnur nú að gerð
matsskýrslu um um-
hverfísáhrif fyrirhug-
aðs álvers í Reyðar-
fírði. Erla Skúladóttir
sat opinn kynningar-
fund um umhverfísmat-
ið á mánudag og komst
að því að áhugi heima-
manna á álverinu er
áhyggjum blandinn.
STAR, starfshópur um álver
í Reyðarfirði, og HVH, hóp-
ur ráðgjafa frá verkfræði-
stofunum Hönnun og ráð-
gjöf ehf., VST hf. og Hönnun hf.,
stóðu fyrir kynningarfundi um mat
á umhverfisáhrifum álvers í Reyð-
arfirði á mánudag.
Eingöngu voru til umræðu á
fundinum áhrif álversins sjálfs og
starfsemi þar á umhverfið en ekki
orkuöflun til álversins sem mikið
hefur verið til umræðu að undan-
fömu. Fundurinn var liður í gerð
matsskýrslu HVH-ráðgjafahópsins
um téð efni. Um svokallað frummat
er að ræða sem unnið er að tilstuðl-
an framkvæmdaraðila og er undan-
fari athugunar skipulagsstjóra á
umhverfisáhrifunum. Fyrirhugað er
að skila skýrslunni varðandi álverið
í Reyðarfirði til skipulagsstjóra í
september.
Fjórar framsögur voru fluttar á
fundinum. Að framsögum loknum
sátu skýrsluhöfundar og rannsókn-
araðiiar fyrir svörum.
Fyrsti áfangi álvers í Reyðarfirði,
ef af byggingu þess verður, mun að
öllum líkindum hafa 120.000 tonna
afkastagetu á ári. Gert er ráð fyrir
að verksmiðjan geti þá veitt 240
manns vinnu. Möguleiki er á að
stækka álverið í tveimur áföngum.
Landsbyggðin öðlast
nýtt vægi
Guðmundur Bjamason, bæjar-
stjóri Fjarðabyggðar, setti fundinn
og notaði tækifærið til að ræða
væntingar sínar til hins fyrirhugaða
álvers. Hann sagði trú þeirra sem
sæti eiga í bæjarstjóminni að álver-
ið rísi. „Við munum leggja okkar af
mörkum til að vinna þessu máli
brautargengi," sagði Guðmundur.
Hann telur að bygging fyrsta
áfanga álvers í Reyðarfirði muni
snúa íbúaþróun á Austurlandi við.
Bæjarstjórinn sagði að gera
mætti ráð fyrir að um 800 manns,
starfsmenn og fjölskyldur þeirra,
flytji til Austurlands vegna hinna
nýju starfa sem skapast við álverið
og tengda þjónustu. Jafnframt muni
bygging álversins hafa jákvæð áhrif
á aðra atvinnustarfsemi í sveitarfé-
laginu. „Bygging fyrsta áfanga ál-
versins gæfi landsbyggðinni nýtt
vægi í íslensku samfélagi," sagði
Guðmundur. Að hans mati mun efl-
ing Austurlands í efnahagslegu til-
liti auka einkaneyslu og eftirpum
eftir menningarefni, afþreyingu og
þjónustu og gera svæðið búsældar-
legra og eftirsóknarverðara fyrir
ferðamenn jafnt sem nýja íbúa en
nú er. Bæjarstjórinn telur ljóst að
gerðar verði ýtmstu kröfur til
væntanlegs álvers varðandi meng-
unarvarnir og umhverfismál al-
mennt.
Þátttaka almennings
í mati mikilvæg
Tilgangur laga um mat á um-
hverfisáhrifum er að tryggja að
metin séu þau áhrif sem tilteknar
framkvæmdir geta haft á umhverf-
ið. Leiði matið í ljós umtalsverð
áhrif á umhverfið ber að gera ráð-
stafanir sem koma í veg fyrir eða
draga úr þeim áhrifum eins og kost-
ur er.
Ef mats er þörf vinna fram-
kvæmdaraðilar eða ráðgjafar þeirra
matsskýrslu. Gerður Stefánsdóttir,
sérfræðingur í mati á umhverfisá-
hrifum hjá Skipulagsstofnun, lagði
á það ríka áherslu í framsögu sinni
að almenningur komi athugasemd-
um sínum við mat á umhverfisáhrif-
um á framfæri, ekki síst við fram-
kvæmdaraðila eða ráðgjafa sem
standa að gerð matsskýrslu því hún
sé aðalferlið í raun og veru. Gerður
segir afar mikilvægt að tryggja að-
gang almennings að upplýsingum
og gögnum um framkvæmdir áður
en þær hefjast. „Aðkoma almenn-
ings að matsferlinu er meðal annars
á kynningarfundum sem þessum,"
sagði hún.
Matsskýrslan kemur til athugun-
ar Skipulagsstofnunar, þá er hægt
að senda inn athugasemdir. Stofn-
unin leitar umsagna sérfræðistofn-
ana og hlutaðeigendi sveitarstjóma
auk þess sem hún kynnir skýrsluna
almenningi. Að loknum kynningar-
tíma fer skipulagsstjóri yfir þær at-
hugasemdir og umsagnir sem borist
hafa og úrskurðar í framhaldi af
því. Úrskurðurinn getur sætt kæru
til umhverfisráðherra.
Framkvæmdir og
framleiðsla
Sigurður Arnalds lýsti hinni fyr-
irhuguðu framkvæmd stuttlega fyr-
ir fundarmönnum í máli og mynd-
um. Hann sagði gert ráð fyrir
120.000 tonna ársframleiðslu af áli í
fyrsta áfanga álversins samanborið
við 160.000 tonna ársframleiðslu ál-
versins í Straumsvík. „Menn vilja
ekki fara af stað með svona verk-
smiðju nema þeir hafi möguleika á
stækkun vegna þess að það eykur
þagkvæmni,11 sagði Sigurður. Hann
segir spádóma um hvort af stækkun
verður eða hvenær ekki endanlega
á þessu stigi, það ráðist af ýmsum
aðstæðum. Stærsta mögulega verk-
smiðja með 480.000 tonna ársfram-
leiðslu hefði 650 manns í vinnu.
„Það er gríðarlega stór verksmiðja
á heimsvísu,“ sagði Sigurður.
Sigurður greindi lauslega frá
framleiðsluferlinu í hinni fyrirhug-
uðu verksmiðju. „Nú til dags eru
svona verksmiðjur afar hreinlegar.
Starfsemin fer fram í lokuðum ker-
um sem ekki eru opnuð nema þegar
þarf að skipta um skaut,“ sagði Sig-
urður.
Sigurður opnaði fyrir umræðu
um útblástur úr álverinu, þurr-
hreinsibúnað og vothreinsibúnað.
„Þegar fjallað er um umhverfisáhrif
af álverksmiðjum ber útblástur oft-
ast hæst í umræðunni," sagði hann.
„I öllum álverum nú til dags er setL
ur upp þurrhreinsibúnaður. I
Skandinaívu er af ýmsum ástæðum
gengið einu skrefi lengra og bætt
við svonefndum vothreinsibúnaði.
Tilgangurinn með honum er fyrst
og fremst að ná burtu brennisteins-
samböndum," sagði Sigurður. Það
veltur á kröfum Hollustuverndar
hvort koma þurfi upp vothreinsi-
búnaði í fyrirhuguðu álveri í Reyð-
arfirði eða þurrhreinsibúnaður lát-
inn nægja.
Skýrslan langt komin
Valgeir Kjartansson, ritstjóri
matsskýrslunnar, sagði frá því að
skýrslan væri langt komin og gerði
grein fyrir gerð hennar. Hann vakti
athygli á því að aðrir aðilar stæðu
að gerð skýrslna um orkuöflun og
hafnarmannvirki vegna álversins.
480.000 tonna álver byggt í þrem-
ur áföngum liggur til grundvallar
matinu nú. Valgeir greindi frá því
að STAR stæði að gerð skýrslunn-
ar, sá hópur samanstendur af full-
trúum Fjarðabyggðar, orku- og
stóriðjunefndar samtaka sveitarfé-
laga á Austurlandi og Fjárfesting-
arstofunnar - Orkusviðs. Hann seg-
ir að leitað hafi verið álits fjölda að-
ila við gerð skýrslunnar.
I skýrslunni er meðal annars
fjaliað um áliðnaðinn, hvemig fram-
leiðsluferli í fyrirhuguðu álveri mun
eiga sér stað, tilgang framkvæmd-
araðila með framkvæmdinni, út-
blástur og fyrirhugaðan mengunar:
varnabúnað, að sögn Valgeirs. I
skýrslunni eru færð rök fyrir stað-
ai’vali fyrir álverið.
Valgeir ítrekaði að kynningar-
fundurinn væri liður í gerð skýrsl-
unnar, spurningar og svör á fundin-
um komi inn í skýrsluna.
Staðhættir, skipulag og atvinnu-
mál eru tekin til umfjöllunar í
skýrslunni auk annars.
I lok skýrslunnar er tekið saman
mat á umhverfisáhrifum á einstaka
þætti, að sögn Valgeirs. Þar verður
gerð grein fyrir því hvort mótvæg-
isaðgerðir til að takmarka viðkom-
andi umhverfisáhrif séu fyrirhugað-
ar eða hvort áhrifin teljist innan við-
unandi marka.
Jákvæðar niðurstöður
rannsókna
Magnús Ásgeirsson, verkefnis-
stjóri STAR, greindi frá rannsókn-
um sem farið hafa fram vegna um-
hverfismatsins og helstu niðurstöð-
um þeirra. Fjölmargir aðilar hafa
staðið að sérrannsóknum á svæðinu
sem nú eru orðnar ríflega 20, að
sögn Magnúsar.
Veðurmælingar hafa farið fram á
Hrauni frá því í aprfl á síðasta ári
og munu standa hið minnsta fram í
apríl á næsta ári. Til dæmis um
rannsóknir sem framkvæmdar hafa
verið má nefna að gerð hefur verið
loftdreifingarspá, gróðurfar hefur
verið kannað svo og dýralíf. Gerðar
hafa verið rannsóknir á náttúruvá á
svæðinu, lífríki sjávar og fjöru,
dreifingu mengunarefna í sjó, hljóð-
og sjónmengun. Þá hafa félagsleg
og efnahagsleg áhrif álvers í Reyð-
arfirði verið könnuð. Niðurstaða
þeirrar könnunar er í grófum drátt-
um sú að álver hefði jákvæð áhrif á
efnahag og íbúaþróun á Mið-Aust-
urlandi, að sögn Magnúsar.
Magnús segir ekkert hafa komið
fram í rannsóknunum sem hrein-
lega komi í veg fyrir byggingu ál-
vers á staðnum, til að mynda séu
engar sjaldgæfar plöntur eða dýr í
hættu.
Mengunarvarnir
mikilvægar
Margir gripu tækifærið til spurn-
inga að framsöguræðunum loknum.
Mengunarvarnir virtust ofarlega í
huga fundarmanna sem sýndu því
mikinn áhuga að vothreinsibúnaði
yrði komið upp í hinu fyrii'hugaða
álveri. Þeir sem standa að matinu
svöruðu því til að kröfur Hollustu-
vemdar réðu því hvort búnaðurinn
yrði í álverinu. Þeir telja líkur til
hans verði ekki þörf við fyrsta
áfanga álversins og sjá ekki ástæðu
til að ganga lengra í mengunarvöm-
um en yfirvöld telja nægjanlegt.
Líklegt er að krafa verði gerð til
uppsetningar vothreinsibúnaðar í ál-
verinu ef til stækkunar þess kemur.
Framkvæmdaraðilar héldu því
fram að notast yrði við nýjustu
tækni í hinu nýja álveri sem hefði
litla mengun i för með sér. Þeir
vora spurðir að því hvort þeir vissu
til að sjúkdómar á borð við astma
væm algengari meðal starfsmanna
álvera og íbúa í grennd við þau en
almenrtt gerðist. Fulltrúi Norsk
Hydro svaraði því til að með þeirri
tækni sem ný álver búa við í dag
merki menn ekki mun á fjölda ast-
matilfella meðal starfsmanna álvera
og íbúa í grenndinni og því sem al-
mennt gengur og gerist. Sú var hins
vegar raunin áður fyrr þegar notast
var við eldri tækni.
Verður álverið reist?
Menn virtust misjafnlega hrifnir
af hugmyndinni um álver í Reyðar-
firði. Einn fundarmanna spurði
hvað þyrfti til að hætt yrði við
áform um byggingu þess og lét í
ljósi þungar áhyggjur af mengun í
tengslum við álverið. Annar fundar-
gestur hafði áhuga á að vita hvað
heimurinn „hagnaðist" mikið á því
að reisa álver á íslandi miðað við þá
mengun sem sambærileg álverk-
smiðja hefði í för með sér í landi þar
sem kynda þarf með kolum.
Fundargestur vakti athygli á því
að hugmyndir um byggingu álvers í
Reyðarfirði hefðu lengi verið í um-
ræðunni en aldrei hefði orðið úr
framkvæmdum. Hann sagðist hafa
horft á eftir börnum sínum úr
byggðarlaginu og lék forvitni á að
vita hve miklar líkur væm á að
verksmiðjan risi nú. Hann fékk þau
svör að ómögulegt væri að segja til
um hve líkurnar væm miklar en
þær væra þónokkrar, þróun mála
hefði aldrei fyrr verið jafn langt
komin og nú.
Mörgum lék forvitni á að vita
hver borgaði gerð skýrslunnar sem
HVH vinnur að. Garðar Ingvarsson,
framkvæmdastjóri Fjárfestingar-
stofunnar - Orkusviðs og formaður
STAR svaraði því til að byggður
hefði verið upp gagnabanki á löng-
um tíma sem gagnist við matið nú.
Ymsir aðilar hafa kostað þær rann-
sóknir sem þar liggi að baki. Fyrir
þær rannsóknir sem unnar hafa
verið á vegum STAR að undanfömu
greiði hins vegar framkvæmdaraðil-
ar, Hydro Aluminium er einn
þeirra.
Áhrif á íbúaþróun
og efnahag
Sigfús Jónsson hjá Nýsi hf. varð
fyrir svömm um áhrif álversins á
íbúaþróun og efnahag á Austur-
landi. Nýsir rannsakaði þann þátt
og fékk kanadíska aðila til liðs við
sig. Sigfús sagði rannsóknina meðal
annars hafa leitt í Ijós að áþreifan-
lega skorti atvinnutækifæri fyrir
ungar konur á svæðinu og þær flytj-
ist á brott fyrr en karlamir.
Sigfús segir að talið sé að 1 starf í
álverinu leiði af sér 2,3 til 2,5 störf í
öðmm greinum. Lfldega muni þó
ekki öll þessi störf koma fram á
Austurlandi. Að mati Sigfúsar mun
1 starf í álveri í Reyðarfirði leiða af
sér 1 starf í annarri grein á svæð-
inu. Hann telur að álverið myndi
hafa þau áhrif að fólk verði eftir á
Austurlandi sem annars hefði flutt á
brott. ,Álverið skapar fjölmörg
tækifæri. Ég get samt ekki lofað
ykkur að það bæti úr kvenmanns-
skorti hér,“ sagði Sigfús að lokum.