Morgunblaðið - 18.08.1999, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kvennamiðstöð opnuð
í Sarajevo í Bosníu
Stofnuð að
frumkvæði ís-
lenskra kvenna
íslensk stjórnvöld og íslensk kvenfélög eru
meðal fjölmargra sem leggja lið uppbygg-
ingu kvennamiðstöðvar í Sarajevo. Dr. Vil-
borg ísleifsdóttir hefur haft forgöngu um
að útvega miðstöðinni eigið húsnæði, en hún
hefur víða leitað stuðnings fyrir verkefnið.
VILBORG Isleifsdóttir-Bickel,
doktor í sagnfræði, er búsett í
Þýskalandi en þar er hún gjald-
keri Þýskalandsdeild-
ar BISER. I samvinnu
við BISER í Sarajevo
stendur félagið um
þessar mundir að því
að lagfæra hús í
Ilidza sem er úthverfi
Sarajevo en þar verð-
ur opnuð kvennamið-
stöð í næsta mánuði.
„Opnun kvenna-
miðstöðvar í Sarajevo
hefur verið okkar
baráttumál síðan
1997,“ segir Vilborg
sem er einn stofn-
enda BISER í Þýska-
landi. „Þegar við
keyptum húsið var
það illa farið af
skotárásum og búið að stela úr
því öllu steini léttara - meira að
segja höfðu rafmagnsleiðslurnar
verið dregnar úr,“ segir Vilborg
og bætir við að mikil vinna liggi
að baki lagfæringum á húsinu.
Húsið keypti BISER á fjórar
miiljónir og hefur
safnað fé til þess að
gera það nothæft
undir starfsemi. Á
því voru gerðar
gagngerar breyting-
ar, það stækkað um-
talsvert og keyptar
innréttingar og hús-
gögn. „Þetta er
kannski enginn lúxus
en þarna er allt nýtt
og snyrtilegt," segir
hún.
Stofnað fyrir
flóttakonur
Félagið BISER er
upphaflega bosnískt
kvenfélag sem stofn-
að var árið 1992 í kringum
kvennamiðstöð í Króatíu fyrir
bosnískar flóttakonur sem flúðu
til Zagreb. Fljótlega eftir það
Vilborg
Ísleifsdóttir-Bickel
Alþjóðleg
Má.Dl„Ulá:f:r.D
Nú sem fyrr er Ferðamálaskóli íslands leiðandi skóli fyrir þá, sem
vilja auka menntun sína í ferðaþjónustu. Ferðamálaskóli íslands
var fyrstur skóla til að byrja með alþjóðlegt IATA/UFTAA
(Alþjóðasamband flugfélaga) nám, sem er viðurkennt um allan
heim og hlotið hefur miklar vinsældir hér á landi.
Ferðamálaskóli íslands hefur nú fyrstur skóla fengið samþykki
IATA/UFTAA til að bjóða uppá nýtt námsefni, sem IATA/UFTAA
hefur hleypt af stokkunum og á örugglega eftir að verða hagnýtt
og eftirsótt nám.
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
Söluráðar Verðlagning
Markaðsrannsóknir
Markaðsumhverfið
Markaðshlutun
Arðsemi
Árstíðarsveiflur
Dreifing
Auglýsingar
Samkeppni
Markaðsáæltanir
Markaðsvirkni
Sölustjórnun
Sölutækni
Markmið
Stefnumótun
Ferðaþjónusta á íslandi
Námið er alls 300 stundir og kennt verður þrisvar í viku frá
kl. 18.15-22.00.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekið er próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem
áhuga hafa og vílja auka
þekkingu sína á ferðaþjónustu.
Ferðamálaskóli Islands
Bfldshöfða 18
567 1466
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Húsið var illa útleikið eftir skotárásir og því hefur mikil vinna verið
lögð í lagfæringar. Aukið var um eina hæð og er húsið nú 420 fermetr-
ar en var áður 260 fermetrar.
skutu stuðningsfélög upp kollin-
um í Þýskalandi, Sviss og
Chicago.
„Eftir átökin sem átt hafa sér
stað á Balkanskaganum frá 1992,
hafa konur átt mjög erfitt með
að fóta sig í hversdaglegu
amstri. Meðal bosnískra kvenna
er mikið ólæsi og það gefúr
augaleið að slikar konur eiga
minnsta mögleika á atvinnu-
markaðnum," segir Vilborg.
„Konur á Balkanskaganum hafa
verið mjög háðar fjölskyldum
sínum, en nú þegar svo stór hluti
karlmanna á góðum aldri er fall-
inn er nauðsynlegt að þær taki til
hendinni."
BISER í Þýskalandi vinnur að
áætlun sem hefur að markmiði
að opna kvennamiðstöðvar og
skóla fyrir bosnískar konur.
Þijár kvennamiðstöðvar hafa lit-
ið dagsins Ijós síðan 1993, í
Tuzla, Travnik og Sarajevo. Vil-
borg kveður Þýskalandsdeildina
hafa þá sérstöðu að geta sótt um
rekstrarstyrk til Evrópusam-
bandsins, en fjárveitingar þaðan
til félagsins hafa skipt mil|jónum.
I Sarajevo hefur starfsemi ver-
ið á vegum BISER í allan vetur
en mun nú flytja í eigið húsnæði.
„Félagið hefur tekið þá stefnu að
reka kvennamiðstöðvarnar í eig-
in húsnæði. Mikil spilling er á
leigumarkaðnum og stundum eru
leigusamningarnir ekki pappírs-
ins virði. Það verður því stór
dagur þegar við flyljum starf-
semina í húsið,“ segir hún.
í nýju miðstöðinni verða rekn-
ir námsflokkar og boðið upp á
grundvallarheilsugæslu, áfalla-
hjálp og lögfræðiaðstoð. „Þarna
eiga konur að geta tileinkað sér
kunnáttu, sem kemur þeim að
haldi í atvinnulífinu," útskýrir
Vilborg. „Markmiðið er að skapa
konum athvarf og hjálpa þeim til
að fóta sig í nýjum veruleika sem
fyrirvinnur og einstæðar mæð-
ur.“ Einnig nefnir Vilborg að í
Bosníu hafi verið reynt að setja á
stofn kvennaathvörf sem fórnar-
lömb nauðgana geti leitað tii.
„Bosnískar konur vilja ekki fara í
slík hús því þá vita allir hvað hef-
ur gerst. í kvennamiðstöðina
okkar eiga margir erindi hvort
sem er á saumanámskeið, ensku-
námskeið eða annað og því þarf
enginn að vita hver leitar sér
áfallahjálpar eftir svo skelfilega
lífsreynslu."
Ánægð með áhuga íslendinga
Vilborg segist leita liðstyrks
allsstaðar þar sem hún telur
möguleika á honum. „Það var
mjög nærtækt fyrir mig að leita
eftir stuðningi heim til Islands,
i:-
Í: iSífp?*5":
| Stórhöfða VÍ, við Gullinbrú,
I afani 567 4844
og hér hafa allir tekið þessu
mjög vel.“
fslensk stjórnvöld og íslensk
kvenfélög eru meðal þeirra sem
styrktu uppbyggingu kvennamið-
stöðvarinnar í Sarajevo. „Við
höfúm fengið 1.950 þúsund frá ís-
lenskum aðilum og það hefur
dugað til þess að stytta skulda-
halann verulega," segir Vilborg.
„Stuðningur þeirra kom sér af-
skaplega vel og ég var undrandi
á því hversu lítil kvenfélög úti á
landi voru rausnarleg.“ Hún
kveður áhuga íslendinga á mál-
efninu mikinn og til marks um
það nefnir hún að til standi að
stofna íslandsdeild BISER. Hún
nefnir einnig að Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra hafi
heimsótt húsið 19. júní síðastlið-
inn. „Hann var í Sarajevo í erind-
um Evrópuráðsins, en hann var
formaður ráðherranefndar þess.
Mér þótti nyög gaman að hann
skyldi kíkja á okkur, en þetta var
í fyrsta skipti í manna minnum
sem svo háttsettur maður hefur
komið og beðið gagngert um að
fá að tala við kvenfélag,“ segir
hún brosandi.
Vilborg kveður konur í Bosniu
að mörgu Ieyti í svipuðum spor-
um og íslenskar konur voru í
upphafi þessarar aldar. „í raun
og veru er tilkoma BISER ámóta
viðbragð við vandamálum tímans
og þegar að íslenskar konur, sem
eitthvað höfðu til að miðla, settu
á stofn húsmæðraskólana," segir
hún.
Norðurlandabúa segir hún sér-
staklega vel liðna í löndum fyrr-
verandi Júgoslaviu. „Á Norður-
löndum er ekki til siðs að not-
færa sér neyð fólks heldur að
hjálpa fólki upp úr henni, „ segir
hún og bætir við að yfirvöld í
Sarajevo hafi spurt hver ætlaði
að græða á þessari kvennamið-
stöð, eftir að BISER konur höfðu
kynnt þeim verkefnið. „Embætt-
ismenn ætluðu ekki að trúa því
að enginn ætti að græða á þessu,
nema flóttakonur. En þess má
geta að spilling er landlæg á
Balkanskaganum," segir Vilborg
og bætir við: „Þetta starf byggist
á hugsjón, og hugsjónin er sú að
bundinn verði endi á ofbeldi og
kúgun gagnvart konum, að
minnsta kosti í þessum heims-
hluta - og það verður best gert
með því að mennta konur og
styrkja þær til þess að byggja
upp lýðræði í sínu samfélagi."
Vilborg segist ætla að halda
ötullega áfram að safna fyrir
bosnískar konur og bendir á að
bankareikningur BISER er í
Landsbankanum nr. 0111-26-
2000
Pantaðu núna
* 555 2866
Kays - Argos - Panduro
B.Magnússon
Fax 565 2866 • bm@vortex.is
Dýpkun
Grindavík-
urhafnar
að ljúka
FRAMKVÆMDIR við dýpkun
innsiglingar Grindarvíkurhafnar
ganga vel og eru verklok áætluð í
þessari viku eða snemma í þeirri
næstu. Síðan í lok apríl hefur
sænska verktakafyrirtækið
Skanska Dredging unnið að mynd-
un rennu út frá höfninni en með til-
komu hennar verður hægt að sigla
beint inn til hafnarinnar.
„Við höfum lokið dýpkun innsigl-
ingarinnai’ og nú fara fram mæl-
ingar til þess að staðfesta hvort
réttu dýpi sé alls staðar náð,“ segir
Juhani Naukkarinen, verkefna-
stjóri fyrirtækisins Skanska
Dredging.
Sprengt á 160 stöðum
Hann kveður verklok vera á
æskilegum tíma en samkvæmt út-
boðsgögnum voru þau áætluð 15.
október. Sprengt var fyrir renn-
unni á 160 stöðum og notað til þess
níutíu þúsund kfló af sprengiefni.
„Kraftur hverrar sprengingar var
ekki mjög mikill,“ segir hann en
þrátt fyrir það komu þær fram á
jarðskjálftamælum Veðurstofu Is-
lands.
Samkvæmt upplýsingum frá
Grétari Sigurðssyni, vaktstjóra Gr-
indavíkurhafnar, vinna starfsmenn
fyrirtækisins nú að borun fyrir
leiðarmerkjum sem sett verða í
rennuna þar sem hún þrengist, sjó-
farendum til glöggvunar. Einnig
hefur Skanska tekið að sér minni-
háttar aukaverkefni við dýpkun
innan hafnar. „Þeir hafa gríðarlega
öfluga gröfu og eru að leika sér að
því sem aðrir hefðu ekki möguleika
á að framkvæma," segir Grétar.
Eftir er að byggja brimgarða við
Grindavíkurhöfn og verður ráðist í
það verk næsta sumar eða árið
2001.
------»♦♦-----
Kópavognr
Ovenju
mikið um
hraðakstur
RÚMLEGA þrjátíu voru teknir
fyrir of hraðan akstur á Nýbýla-
veginum í Kópavogi í gær og að
sögn lögreglu mældist hraði eins
ökumanns 97 km á klukkustund
sem þýðir að hann missir ökuskír-
teinið í einn mánuð og fær auk þess
20 þúsund króna sekt.
Áð sögn lögreglunnar í Kópavogi
eru venjulega teknir um 10 öku-
menn á dag fyrir of hraðan akstur
en undanfarna daga hefur sú tala
þrefaldast og síðastliðna viku hafa
um 30 verið teknir að meðaltali á
dag. Lögreglan sagði að rekja
mætti þessa aukningu að stórum
hluta til þess að ríkislögreglustjóri
hefði verið með myndavélabfl við
störf í bænum á umræddu tímabili.
------♦♦♦------
Bátur vélar-
vana í Faxa-
flóanum
RÉTT fyrir klukkan átta á mánu-
dagskvöldið varð bátur frá Reykja-
vík vélarvana í Faxaflóanum. Báts-
verjar óskuðu eftir aðstoð Slysa-
varnafélagsins og var björgunar-
skipið Henry A. Hálfdansson sent
á vettvang skömmu síðar. Báturinn
var dreginn í land og reyndist um
vélarbflun að ræða.