Morgunblaðið - 18.08.1999, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 18.08.1999, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Nýi leikskólinn í Garðinum er T-laga, liðlega 330 fm að flatarmáli. Frágangur hússins sem og umhverfi þess er hið vandaðasta. Nýr glæsilegur leikskóli tekinn í notkun í Garðinum Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Snæfell í felu- búningi Vaðbrekku, Jökul- dal - Snæfellið er stapi þegar það sést úr suðri og er þá ekk- ert ólíkt Herðubreið að sjá. Algera auðn er að sjá sunnan frá Vatnajökli þar sem jökullinn býr til alls- konar listaverk í sam- spili við aur og gijót þegar hann bráðnar og hopar. Garði - Nýr liðlega 330 fm leikskóli í Garðinum var vígður sl. sunnudag. Hinn nýi skóli er tveggja deilda og geta 44 börn verið samtímis í vistun. Aætiað er að skólinn sé tvísetinn og að sögn forsvarsmanna eru nú engir biðlistar eftir skólavist. Nýja byggingin hefur risið með ógnarhraða. Fyrstu skóflustungumar voru teknar 10. nóvember sl. af yngri borgurum bæjarins en síðan tók Húsagerðin hf. við sem aðalverktaki. Áætlaður heildarkostnaður bygging- ar, lóðar og tóla var 48,5 milljónir og að sögn Jóns Hjálmarssonar, for- manns byggingamefndar, virðast þær áætlanir ætla að standast í vígsluathöfninni sl. sunnudag var margmenni. Sigurður Ingvarsson oddviti setti hátíðina. Þá rakti Jón Hjálmarsson_ byggingarsögu húss- ins, prestur Útskálasóknar, sr. Björn Sveinn Björnsson, blessaði húsið og margir ungir söngvarar og lista- menn skemmtu gestum. Þá bámst skólanum margar góðar gjafír og má þar nefna 150 þúsund kr. gjöf frá kvenfélaginu Gefn sem mjög svo hef- ur sett mark sitt á leikskólarekstur Mikill fjöldi gesta var við vígsluna sl. sunnudag. byggðarlagsins í 30 ára sögu hans. Kvenfélagið Gefn hóf rekstur leik- skóla í Garðinum 10. júní 1971 í 60 fm byggingu sem reist var í sjálf- boðavinnu. Þær byggðu síðan við skólann níu áram síðar og var sú við- bygging tekin í notkun 14. septem- ber 1980. Leikskólann ráku Gefnar- konur til ársins 1986 að hreppurinn yfírtók reksturinn. I byggingarstjórn skólans sátu Jón Hjálmarsson, Einvarður Albertsson og María Anna Eiríksdóttir. Núver- andi rekstraraðili skólans er Hafrún Víglundsdóttir en hún hefur verið rekstraraðili skólans í árafjöld. Hraðfrystihúsið hf. Hnífsdal Úr milliuppgjöri 1999 ^ ' ta*- i- i iTCfflBnnraa JAN.-JUNl Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna 912,0 855,3 +6,6% Rekstrargjöld 765,1 721,8 +6,0% Hagnaður fyrir afskriftir 146,9 133,5 +10,0% Afskriftir fastafjármuna -81,5 -82,3 ■1,0% Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) -8,5 -5,9 +44,6% Reiknaður tekjuskattur -17,8 -3,1 +469,1% Hagnaður (tap) af reglulegri starfsemi 39,0 46,7 -16,4% Aðrar tekjur og gjöld 4,6 3,4 +34,4% Hagnaður ársins 43,6 50,1 -12.9% Efnahagsreikningur 30.06.99 31.12.98 Breyting 1 Bgnio 1 Fastafjármunir Milljónir króna 2.142,4 2.117,7 +1,2% Veltufjármunir 699,1 641,4 +9.0% Eignir samtals 2.841,5 2.759,0 +3,0% 1 Skuldir Ofl eiqið fé: | Eigið fé 614,2 574,6 +6,9% Tekjuskattsskuldbinding 81,8 50,9 +60,8% Langtímaskuldir 1.607,5 1.673,4 -3,9% Skammtímaskuldir 538,1 460,2 +16,9% Skuldir og eigið fé samtals 2.841,5 2.759,0 +3,0% Sjóðstreymi 1999 1998 Breyting Veltufé frá rekstri Milljónir króna 94,9 79,8 +18,9% Hraðfrystihusið hf. í Hnífsdal Hagnaður nam 43,6 milljónum HRAÐFRYSTIHÚSIÐ hf. í Hnífs- dal skilaði 43,6 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum þessa árs en hagnaður á sama tímabili í fyrra nam 50 milljónum. Minnkandi hagnaður milli ára skýrist einkum af auknum skött- um, sem vora 17,8 milljónir á fyrri hluta þessa árs samanborið við 3,1 milljón á sama tímabili í fyrra, og minnkandi tekjum af hlutdeildarfé- lögum, sem voru engar á fyrri hluta þessa árs en 4,5 milljónir á fyrri hluta síðasta árs. Rekstrartekjur jukust þó milli ára, vora 912 milljónir nú en voru 855 milljónir fyrri hluta síðasta árs. Rekstrargjöld hækka úr tæpum 722 milljónum í fyrra í rúmar 765 milljónir nú. Hagnaður fyrir af- skriftir var 147 milljónir en var 134 milljónir fyrstu sex mánuði síðasta árs. Hagnaður af reglulegri starf- semi fyrir skatta nam 56,8 milljón- um nú en var 49,7 milljónir á fyrri hluta síðasta árs. Hagstæð afla- samsetning Ingólfur Áskelsson hjá greining- ardeild Kaupþings Norðurlands segir að aflasamsetning fyrirtækis- ins sé mjög hagstæð um þessar mundir og mikið um bolfisk. „Um 60% af heildarverðmæti afla er þorskur, veiðin hefur verið góð og verð haldist hátt. Afkoman er hins vegar lakari nú en á sama tíma í fyrra vegna þess að félagið borgar meiri skatt á þessu ári. Framlegð fyrir afskriftir er svipuð og allt árið í fyrra, eða um 17%, en framlegð fyrir skatta hefur aukist úr 2,25% í 6,23% milli ára. Þetta lofar því góðu,“ segir Ingólfur. í júní síðastliðnum undirrituðu stjórnir Hraðfrystihússins hf. og Gunnvarar hf. áætlun um samein- ingu félaganna. Áætlunin gerir ráð fyrir að samruninn muni verða með þeim hætti að hlutabréf í Hrað- frystihúsinu verði veitt í skiptum fyrir hlutabréf í Gunnvöra. Fyrir- hugað er að sameiningin gildi frá 1. janúar 1999 og munu skiptihlutföll- in byggja á efnahag í árslok 1998 að teknu tilliti til afkomu félaganna á tímabilinu janúar til maí 1999. Búist er við því að hluthafafundir taki endanlega ákvörðun um sam- einingu á næstunni. Eigið fé Hraðfrystihússins var 614 milljónir í lok fyrri hluta þessa árs og er nú 22% af heildareignum fyrirtækisins en alls nema þær rúmlega 2,8 milljörðum króna. Fjárfestingar félagsins á tímabil- inu námu 98 milljónum og vora endurbætur á skipum langstærsti hluti þeirra. Tilboðsdagar frá 18.-21. ágúst Mikill afsláttur Gluggatjaldabútar í úrvoli Komið og gerið góð kaup! epcil Skeifunni 6, sími 568 77 33. Reynolds Metals Co. hafnar Alcoa Richmond. AP. REYNOLDS Metals Co. hefur hafnað 5,6 milljarða dollara tilboði Alcoa Inc. í fyrirtækið. Sérfræðing- ar segja þáttaskil nú verða og ólík- legt að Reynolds verði áfram sjálf- stætt fyrirtæki, heldur aukist nú líkurnar á öðrum tilboðum. Því hef- ur einnig verið haldið fram að ef til- boð Alcoa er reiknað út, nemi það ekki nema 4,2 milljörðum dollara. Alcoa gerði tilboðið á miðvikudag í síðustu viku og tveimur dögum síðar kom tilboð frá fjárfestingar- fyrirtæki í Chicago, Michigan Ávenue Partners, sem að sögn tals- manna þess var staðgreiðslutilboð en upphæðir voru ekki gefnar upp. Talsmenn þess fyrirtækis hafa þó látið hafa eftir sér að það sé mikil- vægt að Reynolds haldi sjálfstæði sínu gagnvart Alcoa. Stjórn Reynolds hélt fund um helgina þar sem tilboð Alcoa var rætt. í yfirlýsingu frá stjórninni segir að tilboð Alcoa hafí verið ófull- nægjandi og að stjórnin hafí ein- róma samþykkt að kanna til hlítai’ alla möguleika með arðsemi að leið- arljósi, þ.m.t. að selja fyrirtækið. Sumir sérfræðingar hafa lýst því yfir að tilboðið sé of lágt og tilboðs- stríð sé nú í uppsiglingu. Þeir segja einnig að Alcoa sé líklega tilbúið til að fara hærra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.