Morgunblaðið - 18.08.1999, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 21
Prímakov til forystu í öflugu kosningabandalagi
Nýir tímar í rússn-
eskum stjómmálum?
Moskvu. Reuters.
JEVGENÍ Prímakov, fyrrverandi
forsætisráðherra Rússlands, ákvað í
gær að verða í forystu fyrir kosn-
ingabandalagi Júrí Lúzhkovs, hins
vinsæla borgarstjóra í Moskvu, og
héraðsstjóranna. Með því hafa hugs-
anlega orðið nokkur vatnaskil í rúss-
neskum stjórnmálum og því er al-
mennt spáð, að kosningabandalagið
með Prímakov í -broddi fylkingar
muni verða sigurvegari þingkosning-
anna í desember.
Akvörðun Prímakovs boðar ekkert
gott fyrir Borís Jeltsín, forseta
Rússlands, og kommúnista, sem nú
eru ráðandi afl í Dúmunni, neðri
deild þingsins. Hann nýtur meiri vin-
sælda en nokkur annar rússneskur
stjórnmálamaður og þær jukust
fremur en hitt er Jeltsín rak hann úr
embætti í maí sl. Þá er einnig talið
líklegt, að hann muni bjóða sig fram
í forsetakosningunum á næsta ári og
geri hann það þarf Vladímír Pútín,
núverandi forsætisráðherra, sem
Jeltsín vill, að taki við af sér, ekki að
gera sér neinar grillur um að hreppa
embættið.
Vinsældir Prímakovs byggjast ekki
á því, sem hann hefur afrekað hingað
til, heldur á þeim dulúð, sem umlyk-
Jevgení Prímakov á frétta-
mannafundi í Moskvu í gær.
ur hann, og því orði, sem fer af hon-
um fyrir gáfur og heiðarleika. Á Vest-
urlöndum naut hann mikillar virðing-
ar er hann gegndi embætti utanríkis-
ráðherra og þótti allt hans fas ein-
kennast af festu og áreiðanleik.
Segja má, að Prímakov hafi verið
dreginn nauðugur viljugur inn á
sviðið og svo mikla áherslu lagði
kosningabandalagið á að fá hann í
sínar raðir, að Lúzhkov, sem hefur
sjálfur stóra drauma um framtíð
sína, lét honum fúslega eftir foryst-
una.
Prímakov lagði á sínum tíma stund
á arabísk fræði og hann hafði mikil
áhrif á stefnu Sovétríkjanna á dögum
kalda stríðsins og síðar er hann
reyndi án árangurs að koma í veg fyr-
ir Persaflóastríðið 1991.1 fímm ár var
hann yfirmaður þeirrar deildar leyni-
þjónustunnar, sem hefur með að gera
njósnir utanlands, en 1996 var hann
skipaður utanríkisráðherra.
Jók stöðugleikann
Prímakov var tregur til að taka við
forsætisráðherraembættinu en þótti
vaxa mjög í starfi. Var hann raunar
gagnrýndur fyrir að fara sér hægt í
umbótum og daðra við aukna seðla-
prentun en um það eru þó flestir sam-
mála, að hann hafi komið á auknum
stöðugleika í efnahags- og stjórnmál-
um samtímis því að hafa stuðning
Dúmunnar. Það hefur enginn annar
rússneskur forsætisráðherra leikið
eftir honum eftir hrun Sovétríkjanna.
Prímakov er fæddur í Kíev eða
Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, 29.
okt. 1929 en ólst upp í Georgíu. Er
margt á huldu um fjölskyldu hans en
þó er vitað, að hann hefur misst bæði
konu sína og son.
Reuters
Fælingarmáttur kjarn-
orkuvopna í forgrunni
INDVERJAR sögðu í gær að þeir
myndu grundvalla lqarnorku-
vopnaeign sína á fælingarstefnu,
og að vopnaeign þeirra yrði ein-
ungis hæfilega mikil til að hafa
tilhiýðilegan fælingarmátt á
hugsanlega óvini. Markmið slíkr-
ar stefnumótunar væri að sann-
færa hugsanlega árásaraðila um
að Indverjar myndu svara af
fullri hörku með kjarnorkuárás
sem hefði það markmið að valda
óvininum nægum skaða til að
hann legði árar í bát.
Mikil spenna hefur ríkt í sam-
skiptum Indlands og Pakistans
undanfarin misseri en bæði ríkin
gerðu tilraunir með kjarnorku-
Leiðtogar Bosníu sakaðir um að stela einum milljarði dala af alþjóðlegu hjálparfé
Landlæg spilling sögð
fæla erlenda fíárfesta frá
Va.I, a d
New York. AP.
LEIÐTOGAR múslíma, Króata og
Serba í Bosníu-Herzegóvínu hafa
stolið allt að einum milljarði banda-
ríkjadala, rúmlega 70 milljörðum ís-
lenskra króna, af því alþjóðlega
hjálparfé sem borist hefur til lands-
ins, að því er bandaríska stórblaðið
The New York Times greindi frá í
gær. Svo rammt kveður að spillingu í
Bosníu að hjálparstofrianir og erlend
sendiráð hafa að sögn blaðsins reynt
að gera lítið úr þjófnaðinum af ótta
við að hræða í burtu erlenda fjár-
festa.
I skýrslu sérstakrar nefndar sem
kannað hefur spillingu í Bosníu, og
sem The New York Times hefur
komist yfir, eru nafngreindir nokkr-
ir embættismenn í stjórnkerfinu,
sem allir hafa tengsl við þá stjórn-
málaflokka sem fara með völd í
Bosníu, og þeir sakaðir um að hafa
grætt persónulega á þjófnaðinum.
Halda flestir þeirra enn um stjórn-
artaumana í landinu þótt að vísu
hafí fimmtán verið vísað úr starfí af
fulltrúa Vesturveldanna eða þeim
meinað að sinna opinberu starfi.
I skýrslunni, sem ekki hefur ver-
ið gerð opinber, er greint frá einu
tilfelli þar sem tíu erlend sendiráð
og hjálparstofnanir töpuðu meira
en tuttugu milljónum dollara, um
fjórtán hundruð milljónum ísl.
króna, sem lagðir höfðu verið inn á
bankareikning í Bosníu. Einungis
svissneska sendiráðið hefur hins
vegar opinberlega gengist við tap-
inu.
Nefndin, sem starfar á vegum full-
trúa Vesturveldanna í Bosníu, rann-
sakar nú 220 tilfelli þar sem talið er
að spilling hafi átt sér stað. Sjóðirn-
ir, sem stolið hefur verið úr, áttu að
fjármagna endurreisn landsins eftir
hörmungar Bosníustríðsins; m.a. átti
að búa til vegi, byggja hús og skóla,
og fjármagna rekstur ýmissa opin-
berra stofnana í þorpum og bæjum
landsins.
Skaðlegt lýðræðisþróun
í Bosníu
Alija Izetbegovic, forseti Bosníu,
og aðrir leiðtogar þjóðemishópanna
þriggja, sem ráða hver sínum hluta
landsins, hafa neitað ásökunum um
svo víðtæka spillingu, en The New
York Times fullyrti í frétt sinni að
þrátt fyrir að Bosnía hefði hlotið
rúmlega fimm milljarða bandaríkja-
dala, um 350 milljarða ísl. króna, til
uppbyggingarstarfs frá lokum Bosn-
íustríðsins 1995 hefði landlæg spill-
ingin fælt frá fjölda erlendra fjár-
festa.
vopn á siðasta ári, og hafa komið
sér upp safni kjarnorkuflug-
skeyta. Lá við að stríð brytist út
milli landanna í sumar vegna
hinnar langvinnu Kasmír-deilu
en Vesturveldin hafa á hinn bóg-
inn hvatt bæði ríki til að gerast
aðilar að alþjóðasáttmálum um
notkun kjarnorkuvopna, og til að
skilgreina sérstaka stefnu í mál-
um er varða kjarnorkuvopn.
Meðal annars hefur McDonalds
ákveðið að hefja ekki rekstur veit-
ingahúsa í Bosníu eftir að embættis-
menn gerðu kröfu um að þeim yrðu
greiddar mútur og einnig hugleiðir
Volkswagen-bílaframleiðandinn
þýski nú alvarlega að hætta allri
starfsemi í Sarajevo enda hefur rík-
isstjórn Bosníu svikið nánast öll lof-
orð sem hún gaf fyrirtækinu í upp-
hafi, stungið undan fé og neitað að
kaupa bíla af Volkswagen þótt fyrir-
tækið hefði sett skilyrði þar að lút-
andi er það samþykkti að hefja starf-
semi í borginni.
Hafa menn miklar áhyggjur af
spillingunni enda þykir hún skaða
mjög tilraunir manna til að koma á
lýðræði í Bosníu og um leið tilraunir
til að tryggja frið í landi þar sem enn
kraumar undir niðri eftir blóðugt
borgarastríð.
aud-íimmtud. 10-18
Föstudaga 10-19
Laugardaga 10-18
12 - 17
Vestfjarðaleið
Ferðaskrifstofa
Skógarhlíð 10
arl®9d/ Æ
Qt John s
* Ný verslunarborg!
^Pafslasttii
Brottíör frá Keflavík: "Xf
28.900,-
eókanir he*.
fcókanir he/ry.
. Pr. mann t weg9ia matUiÚumoq
aisting í tvær nætur a ,
Wtíðaö er viö aö terðin se greidd
twrír 15. sept n.k,
Sími
562-9950