Morgunblaðið - 18.08.1999, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
JARÐSKJÁLFTINN í TYRKLANDI
Mikið mannfall og griðarleg eyðilegging í kjöifar öflugs jarðskjálfta í Vestur-Tyrklandi
Flestir í
fastasvefni
er skjálftinn
reið yfir
Stúlka liggur föst undir rústum húss í Istanbúl í gær en hjálparstarfsmenn
gera allt hvað þeir geta til að koma henni til bjargar.
Reuters
JARÐSKJALFTINN I TYRKLANDI
Öflugur jarðskjálfti, sem mæfdist 6,7 á Richters-kvarðanum, olli
gífurlegu manntjóni í Vestur-Tyrklandi aðfararnótt þriðjudags
Istanbul
A.m.k. fjörutíu
létust.
Golcuk Izmit
Tuttugu sjómenn Upptök jarðskjálftans,
fórust og tvö sem oili eyðileggingu
hundmð lokuðust fjölda bygginga. Einnig
inni í bækistöðvum braust út mikill eldur í
'rkneska sjóhersins. olíuhreinsistöð íborginni.
Látnirskipta hundruðum.
Sapanca
Þjóðvegur 1 eyði-
lagðist þegar brú
yfír veginn hrundi.
SVARTAHAF
Borgir og bæjir þar sem mikill
mannskaði og tjón varð.
‘Heimild: British Geological Survey
Izmit, Ankara, Genf, Róm. Reuters.
„SEGÐU mér að börnin mín séu
enn á lífi,“ sagði einn óttasleginna
borgarbúa Istanbúl við fréttamann
Reuters rétt eftir að jarðskjálftinn
reið yfir í fyrrinótt, sem kostaði
a.m.k. á þriðja þúsund manns lífið.
Hundruð manna sem svipað var
ástatt um grófu með berum höndum
í húsarústunum og leituðu ástvina.
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í
mörgum héruðum Tyrklands, en
skjálftinn átti upptök sín á einu
þéttbýlasta svæði landsins.
Upptök skjálftans voru við iðnað-
arborgina Izmit sem stendur við
Marmarahaf, um 90 km suðaustur
af Istanbúl. Reið hann yfir klukkan
3.02 að staðartíma, aðfaranótt
þriðjudags, eða rétt eftir miðnætti
að íslenskum tíma. Á þeim tíma
voru flestir í fastasvefni og er það
talið eiga stóran þátt í hinu mikla
mannfalli.
Að sögn tyrkneskra yfirvalda
mældist styrkleiki skjálftans 6,7 á
Richterskvarðanum, en mælitæki
jarðvísindastofnana víða um heim
sýndu allt að 7,8 stig á Richter.
„Það er mögulegt að sami skjálftinn
mælist missterkur, eftir því hvaða
mælingabúnaður er notaður," sagði
jarðfræðingur á Kandilli-jarðvís-
indastofnuninni í Istanbúl, aðspurð-
ur um ástæðumar fyrir þessari mis-
munandi styrkleikamælingu. „Það
er þetta sem virðist hafa gerst,“
sagði hann. Á síðastliðnum tveimur
áratugum hefur aðeins einn jarð-
skjálfti mælst sterkari en 7,8 á
Richter, en það var 8,1 stiga skjálfti
sem varð um 9.500 manns að bana í
Mexíkó árið 1985.
Mest mannfall í Izmit
Áhrifa skjálftans gætti í Ankara,
höfuðborg landsins, sem er í yfir
400 km fjarlægð í austur frá Izmit.
Þá varð skjálftans einnig vart í
Búlgaríu. Mesta mannfallið varð í
Izmit en tyrkneskar fréttastofur
greindu frá fórnarlömbum í borg-
unum Istanbúl, Bursa og
Eskisehir.
Fréttamenn frá AFP urðu vitni
að því er hundruð borgarbúa í Izmit
leituðu að fólki í húsarústum
skömmu eftir að jarðskjálftinn reið
yfir. Fjöldi bygginga hrundi til
grunna og fólk, lífs og liðið, lá grafið
í rústunum og virtust björgunar-
flokkar ekki geta annað öllum verk-
efnum sínum.
Þá virtust borgarbúar vera yfir-
bugaðir af skelfingu. Lagðist fólk þó
á eitt um að bjarga eins mörgum
mannslífum og unnt var. Tumar
bænahúsa höfðu oltið um koll og
vegir og stræti voru yfirfull af fólki
sem reyndi að flýja hamfarirnar.
Sjónvarpsmyndir sýndu móður
reikandi um stræti Izmit með látið
bam sitt í höndunum.
Tugir manna létust í Istanbúl og
hundruð vora slösuð eftir að hafa
stokkið fram af svölum íbúðarhúsa í
geðshræringu.
Þá sýndi tyrkneska ríkissjón-
varpið loftmyndir frá bænum
Golcuk þar sem heilu húsalengjum-
ar lágu sem jafnaðar við jörðu.
Nauðsyn á sérþjálfuðum
leitarsveitum
Ahmet Sagar, yfirstjómandi sam-
ræmdra björgunaraðgerða, sagði í
gær að stjómvöld yrðu að fá sér-
þjálfaða leitarhunda og tæknibúnað
svo unnt yrði að staðsetja þá sem
enn væru í rústunum. Sagði hann
jafnframt að stjómvöld ættu nægar
birgðir af matvælum og tjöldum
fyrir þá sem verst urðu úti.
Alþjóðlegar hjálparstofnanir sögð-
ust í gær vera reiðubúnar að grípa til
aðgerða en enn væri beðið eftir
formlegri beiðni ríkisstjómar Tyrk-
lands þess efnis. Ríkisstjómir Sviss,
Rússlands, Austurríkis og Svíþjóðar,
meðal annarra, buðu fram sérþjálf-
aða leitarhunda og leitarflokka og
sagði Sergio Piazzi, yfirmaður Evr-
ópuskrifstofu Mannúðaraðstoðar Sa-
meinuðu þjóðanna (OCHA) í Genf,
að ef tyrknesk stjómvöld færa fram
á aðstoðina yrði hún veitt um hæl.
Sagði hann að Tyrkir væra vel í
stakk búnir til að takast á við afleið-
ingar náttúrahamfara en ef aðstoðar
yrði þörf mundi alþjóðleg aðstoð
berast slq'ótt.
Tyrkneski Rauði hálfmáninn
hefur sett upp fjórar neyðarstjórn-
stöðvar á þeim svæðum er verst
urðu úti og sjúkrahús í ferða-
mannabænum Yalova við Marm-
arahaf.
Hin gríðarlega eyðilegging vegna
skjálftans er rakin til þess hve upp-
tök hans vora grannt í jarðskorp-
unni eða um 10 km undir yfirborði
jarðar. Hafa jarðskjálftafræðingar
varað við því að hörmungarnar
kunni ekki að vera að baki því búist
er við röð eftirskjálfta sem kunni að
verða harðir.
Litla Asía, skaginn sem Tyrkland
nær yfir, er lítill jarðskorpufleki
sem er á milli tveggja annarra, gríð;
arstórra, og færist í vesturátt. Á
svæðinu era jarðskorpuhreyfingar
tíðar og síðan 1939 hafa ellefu öflug-
ir skjálftar riðið yfir svæðið. Síðasti
öflugi skjálftinn sem átti upptök sín
við Izmit varð árið 1967 og mældist
hann 7,1 á Richter.
Jarðfræðingar höfðu varað við
því að öflugur skjálfti kynni að ríða
yfir og árið 1992 voru sagðar 12%
líkur á að tO slíkra náttúruhamfara
myndi koma fyrir árið 2020.
Jarðskjálftafræðingar sem BBC
ræddi við í gær töldu að hægt hefði
verið að koma í veg fyrir svo mikið
mannfall ef opinberir embættismenn
hefðu ekki sniðgengið reglugerðir
sem kveða á um byggingarstaðla til
að koma í veg fyrir manntjón.
Dr. Polat Gulkan, prófessor við
Middle East Technical University, í
Ankara sagði í samtali við frétta-
stofu BBC að hann og aðrir hefðu
varað við ástandi bygginga á svæði
því sem verst varð úti í gær. Sagði
hann öran flutning fólks til þéttbýl-
issvæðisins vera eina ástæðuna en
talið er að byggingaverktakar reisi
oft hús á methraða án þess að
skeyta miklu um gæðin. Talið er að
í Istanbúl einni, en þar búa um tólf
milljónir manna, uppfylli aðeins um
helmingur bygginga í smíðum
stranga öryggisstaðla.
Svalirnar björguðu Muzaffer Yarla
Istanbul, Reuters
MUZAFFER Yarla, miðaldra fjögiirra barna
föður, varð það til bjargar að hann dvaldi
stutta stund á svölum íbúðar sinnar í sjö hæða
fjölbýlishúsi í fátækrahverfi í Istanbul í morg-
unsárið þegar jarðskjálftinn reið yfir borgina.
Húsið hrundi eins og spilaborg en svalirnar
féllu í heilu lagi niður á götu. Kona Yarla, þrjú
börn þeirra og tengdadóttir grófust undir
rústunum. Urðu fátækrahverfi stórborganna
Istanbúl og Izmit verst úti af völdum skjálft-
ans.
í borginni Izmit, 90 kílómetrum austur af
Istanbul, sem er mun nær upptökum skjálft-
ans, jöfnuðust heilu hverfin við jörðu. Fjöldi
fólks hefur nú þegar yfirgefið borgina en fyrir
þá er eftir sitja hafa verið reistar tjaldborgir.
Fahrettin Duman er einn sjálfboðaliðanna er
börðust allan daginn við að lyfta múrbrotum
og veggjarbrotum til að komast að fólki lífs
eða liðnu í rústunum. „Við töldum átta manns
sem virðast sitja undir þungum vegg við inn-
gang eins hússins. Við náum þeim ekki út, ekki
einu sinni með því vélarafli sem við höfum. í
byijun heyrðum við lifsmark en nú ríkir þar
þögnin ein,“ sagði Duman í viðtali við blaða-
mann Reuters.
Fjölskylda í Istanbul bjargaðist fyrir
heppni þegar húsið þeirra féll á hliðina, en
þeim tókst að halda sér réttum megin. „Ég
vil fá mömmu mína,“ hrópaði Muhammed,
fimm ára strákur, sótsvartur í framan í
rykugum náttfötum, þegar slökkviliðsmaður
bjargaði honum úr rústum hússins. Nágrann-
arnir höfðu stuttu áður komið móður hans og
systur til bjargar sem brustu í grát þegar
þær sáu litla drenginn.
Heimilislausir búa sig nú undir langa bið en
yfírvöld hafa einnig varað fólk við að halda til
í ótraustum byggingum þar sem þær gætu
hrunið af minnsta tilefni. Fólk sást nálægt slys-
stöðunum bera nestiskörfur og bækur í átt að
almenningsgörðum og fjaldbúðum.
Reuters
Ibúi í Istanbúl rótar í rústum
fimm hæða byggingar, sem
hann bjó í, en jarðskjálftinn í
gær jafnaði húsið við jörðu.
Mannskæðir
jarðskjálftar
MANNSKÆÐUSTU jarðskjálftar tuttug-
ustu aldarinnar, raðað upp eftir stað, dag-
setningu, hversu öflugir á Richters-skalanum
þeir vora og fjölda látinna.
• Tangshan í Kína; 28.
júlí 1976; 7,8 til 8,2 á
Richter; 240.000
fórust.
• Yokohama í Japan; 1.
september 1923; 8,3 á
Richter; 200.000
fórust.
• Gansu í Kína; 16.
desember 1920; 8,6 á
Richter; 100.000
fórust.
• Norður-Perú; 31. maí
1970; 7,7 á Richter;
70.000 fórust.
• Norðvestur-íran; 21.
júní 1990; 7,3-7,7 á
Richter; 50.000 fórust.
• Austur-Tyrkland; 26.
desember 1939; 7,9 á
Richter; 33.000 fórust.
• Chillan í Chile; 24.
janúar 1939; 8,3 á
Richter; 28.000 fórust.
• Norðvestur-íran; 16.
september 1978; 7,7 á
Richter; 25.000 fórust.
• Norðvestur-Armenía;
7. desember 1988; 6,9
á Richter; 25.000
fórust.
• Guatemala; 4. febrúar
1976; 7,5 á Richter;
22.778 fórust.