Morgunblaðið - 18.08.1999, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 49
Veggjalist
setur svip
á bæinn
Hávær tónlist barst frá vegamótum Miklu-
brautar og Háaleitisbrautar á laugardag-
inn þar sem hópur fólks var samankominn
að fylgjast með fæðingu skrautlegrar
veggjamyndar. Ddra Osk Halldórsdóttir
rann á hljóðið og spjallaði við listamennina
sem segja krot vera fyrir kjána en
„graffiti“ sé list sem lífgi upp á borgina.
Morgunblaðið/Jim Smart
Það var fjör í fólki þegar graffiti-listamennirnir og tónelskir vinir þeirra stilltu sór upp fyrir ljósmyndara á
laugardaginn.
VEGFARENDUR um
Miklubrautina á laugar-
daginn var urðu varir við
veislustemmningu mikla
sem ríkti á vegamótum Miklubraut-
ar og Háaleitisbrautar, nánar tiltek-
ið á túninu fyrir framan vegg
nokkum sem margir kenna við
Fönn, enda hefur auglýsing frá fyr-
irtækinu prýtt vegginn um árabil.
Eflaust hefur einhver haldið að
þar væri að sannast að ekkert
taumhald væri á ungdómi þessa
lands, sem slægi bara upp veislu á
næsta grasbletti og væri þar að
auki að mála einhverja óáran yfir
veggi borgarinnar, örugglega i leyf-
isleysi. En þeir sem kynntu sér mál-
ið nánar hafa eflaust séð að enginn
krass-hópur var þarna á ferðinni
heldur ungt fólk sem saman voru að
búa til veggjalistaverk sem ætti
frekar að sýna fjölbreytileika mann-
lífsins í borginni en að vera merki
um virðingarleysi við umhverfið.
Morgunblaðið/Sverrir
Graffiti-verkið fuilbúið þar sem sex listamenn lögðu hönd á plóg.
Frumkvæði
listamannanna
Sex ungmenni máluðu verkið á
vegginn á laugardaginn og hafa þeir
allir komið nálægt veggjalist eða
„graffiti" áður, gerðu m.a. vegginn
fyrir Bflanaust. Nú er umhverfið ut-
andyra vettvangur þeirra sem
stunda „graffiti" og þurfa þeir því
að vera í góðu sambandi við húseig-
endur til að geta stundað list sína.
Hópurinn fékk þá hugmynd að
skreyta vegginn á vegamótum
Miklubrautar og Háaleitisbrautar
andi að fá að leggja íslenskum
veggjalistamönnum lið.
Stuðningur borgaryfirvalda
Hópurinn hafði heyrt af verkefni á
vegum borgarinnar sem kallast
Reykjavík í sparifótin og haft var
samband við borgaryfirvöld um
hvort vegglistaverkið við Miklubraut
væri ekki liður í því verkefni. Það
varð úr að borgaryfirvöld borguðu
flugmiðann fyrir þýska listamanninn
til landsins og segir Ása Hauksdótth'
að með því sýni borgaryfirvöld „að
þau styðji jákvætt framtak og frum-
kvæði ungra graffiti-listamanna þeg-
ar verið er að fegra borgina, en ekki
að krota í óleyfi".
Á menningarnótt verður veggur-
inn formlega vígður en þá verða all-
ir graffiti-listamennirnh' á staðnum,
utan Neck þess þýska, frá kl.
17.30-19 og munu svara fyrirspum-
um frá forvitnum borgarbúum og
segja frá tilurð verksins. Víst er að
þá mun tónlistin óma í hverfinu og
stuðningsmenn „graffiti“-listar vera
á staðnum eins og þegar verkið var
búið tfl á laugardaginn.
Sroart
Morgun'
ib\aSið/l'n' >
og hafði samband við Ásu Hauks-
dóttur, verkefnastjóra menningar-
sveitar Hins hússins, og í samráði
við hana voru möguleikamir skoð-
aðir. Fannarveggurinn á Miklu-
braut þótti henta vel undir graffiti-
verk enda keyra þúsundir manna
fram hjá veggnum daglega. Hópur-
inn hafði samband við Ara Guð-
mundsson, framkvæmdastjóra
Fannar, sem tók vel í hugmyndina
og gerði enn betur því ákveðið var
að styrkja hópinn með máln-
ingu sem fengin var hjá fyrirtæk-
inu Arvík sem að auki lánaði stiga
til verksins.
Einn úr hópnum, Trausti Skúla-
son, fékk þá hugmynd að fá þekkt-
an erlendan „graffiti“-listamann til
liðs við hópinn og hafði samband
við graffiti-listamann sem kallar
sig Neck og er þekktur í heima-
borg sinni Dusseldorf og er þar að
auki með myndir af mörgum verka
sinna á Netinu. Trausti sendi Neck
tölvupóst og var hann himinlif-
Trausti Skúlason hefur stundað „graffiti" frá árinu
1993. „Mér finnst graffiti vera list og eiga ekkert
skylt með kroti á veggi.“ Hann bætir við að mögu-
leikar þeirra sem eru að byrja í veggjalist séu oft
takmarkaðir vegna þess að nánast cngin svæði eru
lögleg til þeirra verka. „En ég held að „graffiti" sé
komið til að vera og mun vænlegra sé fyrir borgar-
yfirvöld að hafa einhver ákveðin svæði lögleg fyrir
„graffiti" enda er það alþekkt víða í Evrópu.
Trausti segir að veggmyndin við Miklubraut hafi
verið Iauslega skipulögð fyrirfram á pappír, enda
séu margir sem komi að verkinu. Aðspurður um
hvort eitthvert stef hafi verið haft í huga í upphafi
segir hann það ekki svo en þó hafi verið ákveðið að
nota mest gráa, hvíta og rauða liti. „Það er vonandi
að maður fái að gera fleiri svona verk því þau
verða þá alltaf betri og betri,“ segir Trausti.
„Mér fannst frábært að heyra að á íslandi væru til
„graffiti“-listamenn,“ segir Neck sem segir algjört
ævintýri að koma til íslands. Hann segir að borgar-
yfirvöld í Dilsseldorf hafi lagt til þrjá stóra hús-
veggi þar sem „graffiti“-málarar geti iðkað list
sína. En hvað er svona merkilegt við „graffiti"?
„Þetta er ákveðin aðferð við að tjá sig og setja sitt
mark á umhverfið. Nafn þess sem gerir „graffiti“
skiptir líka miklu máli og aðrir í bransanum geta
strax séð hverjir eru á ferðinni hvar.“ Neck segir
að vissulega hafi fólk mismunandi skoðanir á
„graffiti" en margir séu samt farnir að sjá hvað
það getur lífgað upp á umhverfið og sé fallegra en
t.d. gráir steypuveggir. Neck segist alltaf hafa haft
áhuga á teiknun. Hann er að læra grafíska hönnun
í DUsseldorf og segir að nú sé hann búinn að gera
„graffiti“-verk í næstum því tíu ár.
Kjartan Páll Sveinsson segist hafa kynnst „graffiti"
fyrir tíu árum úti í Svíþjóð og að hann hafi stundað
það undanfarin 4-5 ár. „Það er miklu meira um
„graffiti" í Sviþjóð heldur en hérna heima. Það er
fullt af stöðum í borginni sem eru forljótir og væri
miklu meira vit í því ef borgaryfirvöld leyfðu okk-
ur að gera þar flottar myndir sem yrðu síðan látn-
ar í friði.“ Kjartan bætir við að þeir sem kroti úti
um allan bæ sé hópur sem eyðileggi orðspor þeirra
sem stunda „graffiti" af alvöru. „Graffiti" er hluti
af ákveðnum lífsstíl. Hip-hop-tónlistin spilar stórt
hlutverk, breikið og margt fleira. Þetta er ákveðin
menning sem hefur náð fótfestu hérna af því að
hún er skemmtileg. Og við erum komin til að
vera,“ segir Kjartan að iokum.