Morgunblaðið - 14.09.1999, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samkomulag um reglur um sölu
á hlut ríkisins 1 FBA
Unnið að nán-
ari útfærslu
Fyrsta áætlunarflug Flugleiða með frakt til Norður-Ameríku
Morgunblaðið/Kristinn
Vélin fermd í Keflavík í gærkvöldi. Hún er máluð í nýjum litum Flugleiða.
Flutningsgetan stóreykst
NÝ fraktflugvél Flugleiða, Boeing
757-200F, með allt að 38 tonna burð-
argetu, hóf áætlunarflug frá Kefla-
víkurflugvelli í gærkvöldi. Vélin er
sú fyrsta í fiota Flugleiða, sem máluð
er í nýjum litum félagsins.
Nýja vélin hefur tvíþætt hlut-
verk. Hún mun annars vegar sinna
reglulegum fraktflutningi til og frá
íslandi. Hins vegar mun hún flytja
hraðsendingar fyrir alþjóðahrað-
sendingafyrirtækið TNT milli
Liége og New York með viðkomu í
Keflavík. Þetta er í fyrsta sinn sem
flogið er beint til Norður-Ameríku i
reglulegu áætlunarflugi með frakt.
Flutningsgeta til og frá Banda-
ríkjunum fyrir inn- og útflutning
mun aukast um yfir 8.300 tonn á ári.
Þá vega flutningar fyrir TNT mjög
þungt en að jafnaði verða flutt á ári
hverju yfír 10.000 tonn af hraðsend-
ingum, bréfum og pökkum milli Evr-
ópu og N-Ameríku fyrir fyrirtækið.
Aukin tengigeta
þýðingarmikil
Pétur J. Eiríksson, framkvæmda-
stjóri viðskiptasviðs Flugleiða, segir
að aukin tengigeta félagsins báðum
megin Atlantshafsins sé afar þýðing-
armikil fyrir Flugfrakt Flugleiða.
Verið sé að svara kröfum viðskipta-
vina með því að bjóða tíðari ferðir og
meiri flutningsgetu.
Framvegis verður flogið sex sinn-
um í viku milli Keflavíkur og Liége í
Belgíu, og fímm sinnum í viku milli
Keflavíkur og JFK-flugvalIar í New
York í Bandaríkjunum.
Nýja vélin, sem var smíðuð árið
1989, var tekin á leigu til fimm ára
og leysir af hólmi Boeing 737-300F
vél sem félagið hefur notað í hálft
annað ár.
FULLT samkomulag er með
stjórnarflokkunum um fram-
kvæmd sölunnarí Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins, að því er
fram kemur í.yfirlýsingu frá for-
sætisráðuneytinu í gær. Nánari út-
færslu er hins vegar ekki lýst. Að
sögn Finns Ingólfssonar viðskipta-
ráðherra verða þær reglur sem
gilda munu um söluna kynntar
þegar einkavæðingarnefnd hefur
lokið nánari útfærslu á þeim. „Það
verður sem allra fyrst,“ sagði ráð-
herra í samtali við Morgunblaðið í
gær.
I frétt Morgunblaðsins fyrir viku
kom fram að unnið væri að undir-
búningi forvals þar sem væntan-
legir kaupendur að hlut ríkisins í
FBA yrðu valdir. Hreinn Loftsson,
formaður einkavæðingarnefndar,
sagði þá að þeir sem áhuga hefðu á
að bjóða í hlutinn gæfu sig fram.
Viðkomandi þyrftu að uppfylla
ákveðin skilyrði um skyldleika og
tengsl og tilboð frá öðrum en þeim
sem tækju þátt í forvalinu yrðu
ekki tekin gild.
Finnur Ingólfsson gefur ekki
upp hvort ákveðið hafí verið að um
forval verði að ræða. „Eins og seg-
ir í yfírlýsingunni hefur ríkisstjói-n-
in í meginatriðum náð saman um
það hvernig standa á að sölunni á
þessum 51% hlut í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins. Við höfum
náð saman um að selja hlut ríkisins
og fá sem hæst verð fyrir hann.
Einkavæðingarnefndin er að vinna
að frekari útfærslu á reglunum og
þegar hún liggur fyrír, verður það
kynnt,“ segir Finnur.
í nefndinni sitja forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra, fjármála-
ráðherra og viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra. I yfirlýsingu nefndarinn-
ar segir: „Eignarhlutur ríkisins er í
sameiginlegu forræði viðskipta- og
iðnaðarráðherra og sjávarútvegs-
ráðherra. Á grundvelli stjórnar-
sáttmála ríkisstjórnarinnar starfar
sérstök ráðherranefnd að stefnu-
mörkun á sviði einkavæðingar.
Nefndin hefur fyrir nokkru komist
að samkomulagi um það hvernig
staðið verði að sölu 51% hluta ríkis-
ins í FBA. Fullt samkomulag er
með stjórnarflokkunum um fram-
kvæmd sölunnar. Á grundvelli þess
er nú unnið að útfærsluatriðum er
tengjast framkvæmd væntanlegrar
sölu hlutafjárins. Stefnt er að því
að salan fari fram síðar í haust.
Framkvæmdin verður í fullu sam-
ræmi við verklagsreglur um fram-
kvæmd einkavæðingar, sem ríkis-
stjórnin hefur sett sér, og í fullu
samræmi við yfirlýsingar sem
gefnar voru í tengslum við sölu
þeirra 49% hluta ríkisins í FBA
sem seldir voru í nóvember á síð-
asta ári.“
Afkoma ríkissjóðs mun hagstæðari en gert var ráð fyrir í fjárlögum
Tekjur geta orðið 10
milljarðar umfram fjárlög
Ólafsvík
Bátur eyði-
lagðist í eldi
SEX tonna plastbátur er gjörónýt-
ur eftir að kviknaði í honum í höfn-
inni í Ólafsvík síðdegis í gær. Feð-
gamir Svavar Pétursson og Pétur
Svavarsson voru að setja bátinn
Árna Jónsson KE 109 í gang í gær
þegar eldurinn kviknaði. Magnað-
ist hann hratt upp þar sem olía
slettist um allan bátinn.
„Við vorum að setja í gang þegar
eldurinn blossaði upp. Báturinn er
gjörsamlega ónýtur þótt hann fljóti
ennþá, en það á að taka hann upp
úr höfninni," sagði Pétur í samtali
við blaðið. Feðgarnir reyndu að
slökkva eldinn en fengu ekki við
neitt ráðið. Þeir komust í land áður
en báturinn varð alelda og sakaði
ekki. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn.
TALIÐ er að tekjur ríkissjóðs geti
orðið allt að 10 milljörðum króna
umfram áætlun fjárlaga á þessu ári
miðað við rekstrarafkomu ríkissjóðs
á fyrstu sex mánuðum ársins. Ut-
gjöldin eru hins vegar talin geta
aukist um 5 milljarða króna en sam-
kvæmt þessu má ætla að rekstrar-
afgangur ríkissjóðs geti orðið ná-
lægt 7,5 milljörðum króna á árinu
öllu, eða 5 milljörðum umfram fjár-
lög. Miðað við þessar forsendur er
gert ráð fyrir að lánsfjárafgangur
ríkissjóðs verði um 20 milljarðar kr.
miðað við 16,5 milljarða í fjárlögum.
Rekstrarafgangur ríkissjóðs var
8,6 milljarðar króna á fyrri helm-
ingi ársins og er það 6,9 milljörðum
meira en reiknað var með í fjárlög-
um. Heildartekjur ríkissjóðs á
tímabilinu voru 90,6 milljarðar og
heildgjöld 81,9 milljarðar. Frávikið
kemur nær alfarið fram í auknum
ríkistekjum, sem er 7,1 milljarði
króna hærri en áætlað var.
Lánsfjárafgangnr
aldrei meiri
I ljósi greiðsluuppgjörs fyrstu
mánaða ársins hafa afkomuhorfur
ríkissjóðs verið endurmetnar, en í
fjárlögum ársins 1999 var gert ráð
fyrir 2,4 milljarða króna rekstraraf-
gangi ríkissjóðs. Fjármálaráðherra
kveðst ánægður með þessar niður-
stöður þegar á heildina sé litið:
„Lánsfjárafgangurinn, sem er sú
stærð sem er til ráðstöfunar til upp-
greiðslu lána og þess háttar er
stærri en nokkru sinni fyrr, eða upp
undir 20 milljarðar. Það eru gríðar-
lega miklir peningar og mikilvægt
að ráðstafa þeim skynsamlega.
Borga upp lán bæði innanlands og
utan eða búa með öðrum hætti í
haginn fyrir framtíðina eins og til
dæmis með því að grynnka á skuld-
bindingum í Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins og fleira. Þetta gef-
ur okkur mikil tækifæri og nauð-
synlegt er að halda rétt á spöðun-
um,“ segir íjármálaráðherra.
Mikill fjármagnstekjuskattur
umfram áætlun
Fjármagnstekjuskattur skilaði
verulegum tekjum umfram áætlun,
eða um 1.400 m.kr. Spurður um
ástæður mikillar hækkunar á fjár-
magnstekjuskatti bendir fjármála-
ráðherra á að hér sé að hluta til um
að ræða millifærslu innan ársins
þar sem greiðslur lögaðila ganga að
hluta upp í álagðan tekjuskatt síðar
á árinu. Þá bendir hann á að arð-
greiðslur til almennings hafi farið
vaxandi. Meira sé um að fólk versli
með hlutabréf, og innleysi sölu-
hagnað en áður.
„Fjármagnstekjuskatturinn sem
slíkur kallaði fram ýmsar breyting-
ar á hegðun manna. Fólk fór að
leysa út söluhagnað sem það hefði
ALLHARÐUR árekstur varð á
gatnamótum Suðurlandsvegar og
Breiðholtsbrautar seinni hluta dags
í gær.
Fólksbifreið var ekið í veg fyrir
sendibifreið sem kom akandi eftir
Suðurlandsveginum og kastaðist
fólksbifreiðin út af veginum þegar
ellegar ekki gert vegna þess að hin
almenna prósenta var það há. Þar
fyrir utan hækkar þessi skattur
eitthvað með almennum vexti í hag-
kerfinu," segir Geir.
Ráðherra bendir á að tekjuskatt-
ur einstaklinga hafi hækkað tölu-
vert og það sé í samræmi við þær
tekjubreytingar sem orðið hafa í
þjóðfélaginu og virðast vera meiri
en von var á. Tekjuskattur einstak-
linga var 750 milljónir króna um-
fram áætlun fjárlaga.
bifreiðamar skullu saman. Kalla
varð út tækjabifreið Slökkviliðs
Reykjavíkur til að ná út ökumanni
hennar og var hann fluttur á slysa-
deild með sjúkrabifreið. Ökumaður
reyndist þó ekki alvarlega slasaður.
Bifreiðin skemmdist hins vegar
töluvert.
Þjónusta númer eitt!
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 948
laugardagar kl. 12-16 ,
BÍLAÞING HEKLU
/VvWk e-'rtf í nofaZvm mlvw!
Laugavegi 174.105 Reykjavik, sími 569-5500
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is
'il sölu VW Passat 1600
Sasicline, nýskr. 10.1998. Ekinn
1.000 km, 17“ álfelgur, Goodyear
lekk, spoiler að framan og aftan.
'oretex púst, kastarar að framan,
lardína í afturglugga. Ásett verð
;r. 1.880.000. Nánari uppl. hjá
lílaþingi Heklu í síma 569 5500.
Morgunblaðið/Ingvar
Slasaðist í árekstri